Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 37 Jólasveinarnir: Að taka til hátíð- arbúning jólanna Nú e’- jólahátíðin við bæjardyrnar og menn komnir í jólaskap eins og vera ber. Víðast hefur verið þvegið í hólf og gólf eins og löngum á íslandi fyrir jólin. en sjálfsagt eiga margir eftir að taka til hendinni seinustu dagana fyrir hátiðina og þá er um að gera að börn og fullorðnir hjálpist að við húsverkin og annað sem nauðsynlegt er að gera fyrir hátiðarbún- inginn. Það var gömul trú hér á landi og er jafnvel enn, að Guð láti koma þíðviðri og þurrk rétt fyrir jólin til þess að fólk geti þvegið af sér fötin og fengið þau sem fyrst þurr. Þessi þurrkur hefur löngum verið kallaður fátækraþerrir. Nú er æði margt sem íslendingar geta valið í jólamatinn, en við skulum aðeins rifja upp hvað forfeður okkar bjuggu við i þeim efnum í aldaraðir. Hátíðin hófst kl. 6 á aðfangadag eins og er ennþá með því að farið var til kirkju, en ef ekki var unnt að komast til kirkju þá var lesinn jólalestur eftir að búið var að kveikja jólanóttina. Allir voru þá búnir að þvo sér og greiða og fara í betri fötin. Jafnvel var reynt að mjólka kýrnar fyrir kl. 6. Þegar lestri var lokið var jólamatur- inn borinn inn, magáll, sperðill og ýmislegt hnossgæti og nokkrar laufabrauðskökur. Ekki var venja að skammta hangikjöt á jólanóttina og eftir að kaffi kom til var það víða siður að bjóða upp á kaffi og lummur seinna um kvöldið. Stundum var líka hnausþykkur grjónagrautur með sýrópi og jafnvel rúsínum. Þótti þetta allt hið mesta hnossgæti eins og von er, því engir voru í aðstöðu þá til þess að hlaupa út í næstu búð. — á.j. Gáttaþefur er mættur til leiks í jólaumferðina og hnusar einhver skelfing út í loftið, en þessa ljúfu mynd teiknaði Halldór Pétursson. Bjúgnakrækir, blessaður, er þarna búinn að næla sér i væna bjúgnalengju. Flestir jólasveinarnir eru nú komnir til byggða, en á myndinni er einn slurkur af þeim og þar sem jeppinn þeirra bilaði tóku þeir til þess ráðs að draga farartækið. Viö vorum aö taka upp nýja sendingu af klassískum hlómplötum. Allir gömlu meistararnir og nýju líka og aösjálfsögöu vonum viö aö þiö sjáiö eitthvað sem gæti glatt hugann. T schaikowsky Píanókonsert nr. op. 44. Einl. Elahu Inbal. Pínaókonsert nr. 1. Einl. Peter Katin. Rodrigo Concierto de Aranjuez. Gítar Pepe Romero. Saint Martin in the Fields. Hándel Orgelkonsert op. 4. Einl. Johannes Ernst Khöler. Orgelkonsert nr. 4, 5, 6. Mozart Flgaro. Stj. Colon Davis. Sórstaklega viöurkennd upptaka. Prokofiev Pétur og úlfurlnn. Stj. Herman Frey. Brahms Ungverskir dansar fluttir af sinfóníu- hlj. Lundúna á mjög lifandi hótt. Stj. Antal Doratti. Beethoven Tunglskinssónatan, MHrikalegt“ eins og ísland ekki satt? Sinfónía nr. 9. Stj. Kurt Masur. J. S. Bach Mattheus Passion. Stj. Eugen Joch- um. Brandenborgarkonsertarnir. Stj. Eugen Jochum. Verdi Requiem. Stj. Ingor Markevit. Dvorak Sinfónía nr. 7 d-moll op. 70. Stj. Colin Davis. Brahms Sinfónía nr. 3. Stj. Bernard Haitink. TSCHAIKOWSKV 9 ( Dk* 6 Smfonien l nt' f> SvT«j>bonii*V' Ix's 6 Symjfhtmkf* TSCHAIKOWSKY Sinfónía nr. 9. Sinfóníuhljómsveit Lundúna. Stj. Antal Dorattí. Konsert nr. 9 fyrir sembal og hljómsveit. Stj. Raymond Leppard. UiRGIlER OIE mEISTERStnGER UOn MIRnBERG BRVREUTHER FE5TSPIELE SilUlO UflRUISO WAGNER Meistarasöngvararnir frá Núrnberg, upp- takan var gerö á Bayreuther hétíðinni og vsegast sagt fara allir á kostum og Varviso aldrei veriö betri. Vandaöur textabaekllng- Stj. Sllvo Varviso. Sökum plássleysis þá er þetta aðeins hluti af því sem viö fengum, svo ef þú hefur frekari áhuga, þá líttu viö og athugaðu málið. Hljómplötudeild Hafnarstræti 3 - 20455. A Iþýöu- tónlist Þessar tvær plötur hljóöa aö teljast þær athyglisveröustu í dag og auðvitað fást þær hjá okkur. Fleetwood Mac Tusk Styx .... Cornerstone PinkFloyd .... TheWall Racey .Smash and Grab Spyro Gyra..., . .Morning Dance Donna Summer Radio E.L.O ... .Greatest Hits. Createns Clearwater Rivival .20 Greatest Hits John Williams. Bridges Herb Alpert... Rise Toto Hydra NinaHagen .. Band Stevie Wonder Journey through the secret life of plants Þetta er ein sú vandaðasta plata sem gefin hefur verið út. Þetta eru nokkrar af nýj- ustu plötunum hjá okkur, úrvaliö er stórkostlegt svo kannski ættir þú aö kíkja inn og athuga málið. Höfum einnig jólaplötur frá kr. 4.500,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.