Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 Landslióið marði pressuna • Viggó Sigurðsson smeygir sér á milli tveggja varnarmanna og væntanlega hafnaði knötturinn í netinu. Ljósm.: Kristján ÍKKI ER hægt að segja annað ■n að jólasveinahátið HSÍ hafi leppnast með ágætum. Há- tunktur kvöldsins var þegar landslið íslands mætti liði sem íþróttafréttamenn höfðu valið. Landsliðinu tókst að knýja fram sigur, 25—24, í bráðfjör- ugum og vcl leiknum leik. Hið ósigrandi lið íþróttafréttarit- ara og lið skemmtikrafta urðu jöfn að stigum á HM-keppninni i innanhússknattspyrnu og i leik landsliðsins frá 1966 og unglingalandsliðsins, sem er skipað leikmönnum 18 ára og yngri, gerðu „gömlu“ mennirn- ir sér lítið fyrir og sigruðu 9-7. Landslið — Pressan. Jafnræði var framan af leik með landsliðinu og pressuliðinu, t.d. var staðan 7—7 um miðjan fyrri hálfleikinn. Þá seig lands- liðið fram úr, komst í 10—7 og eftir það var sigurinn í rauninni aldrei í hættu, þó að allan tímann munaði litlu, en lokatöl- ur urðu 25—24 fyrir landsliðið eins og áður er sagt. Leikurinn var mjög vel leikinn af beggja hálfu, stórskemmtilegar leik- fléttur gengu oft upp hjá báðum liðum. Einkum skemmtilegar línusendingar Axels og Sigurðar Sveinssonar. Þorbergur Aðal- steinsson var sérlega atkvæða- mikill fyrir landsliðið í fyrri hálfleik og Viggó ásamt nýja framliðanum, Olafi Jónssyni. Áttu báðir mjög góðan leik. MÖRK LANDSLIÐSINS: Viggó Ljósm.: Krlstján E. Komdu hingað góði, gæti Al- ) bert Guðmundsson verið að segja við boltann. En Albert sýndi og sannaði enn einu sinni, að hann hefur engu gieymt, og fékk hann hvað eftir annað mikið klapp frá áhorfendum fyrir leiknina. Þrátt fyrir snilli Alberts kom leiftursókn þing- mannaliðsins fyrir ekki að þessu sinni því að þeir töpuðu báðum leikjunum. og Þorbergur 5 hvor, Ólafur Jónsson 4, Sigurður Sveinsson 3, Bjarni Guðmundsson, Guð- mundur Magnússon og Sigurður Gunnarsson 2 hver, Þorbjörn Jensson og Steindór Gunnarsson eitt hvor. MÖRK PRESSULIÐSINS: Axel Axelsson 7, Páll Björgvinsson 4, Erlendur Hermannsson, Pétur Ingólfsson, Steinar Birgisson, Þorbjörn Guðmundsson og Ólaf- ur H. Jónsson 2 hver, Bjarni Bessason, Birgir Jóhannsson og Árni Indriðason 1 mark hver. HM í knattspyrnu Fréttamenn og skemmtikraft- ar léku fyrsta leikinn og skildu liðin jöfn, 5—5. Síðan sigruðu fréttamenn alþingismenn 7—2, en skemmtikröftum tókst aðeins að sigra þingmennina 6—2, þrátt fyrir að þeir tefldu fram útherj- anum fræga, Guðrúnu Á. Símon- ar. Guðrún lék í framandi stöðu að þessu sinni, fékk það hlutverk að tengja sókn og vörn. Frétta- menn hlutu því betri markatölu og líta á sig sem sigurvegara í keppninni, en Ómar og félagar eru ekki aldeilis á því. Mál þessa fer því líklega fyrir alla hugsan- lega dómstóla áður en yfir lýkur. Athyglisverð urðu úrslit leiks íslenska landsliðsins, sem er skipað leikmönnum 18 ára og yngri, og landsliðsins í hand- knattleik frá 1966. Þeir eldri sigruðu nefnilega léttilega 9—7 og sýndu strákunum hvernig á að framkvæma hlutina. Brighton tók Ulfana rækilega í bakaríið PETER Ward var hetja Brighton, sem vann sann- arlega óvæntan stórsigur á útivelli gegn Úlfunum. Ward skoraði þrívegis gegn einu marki Ulf- anna. Mel Eaves, sem lék sinn síðasta leik fyrir Wolves, skoraði eina mark heimaliðsins. Kevin Keegan var hetja Nor- wich, sem krækti í óverðskuldað stig á Highbury. Arsenai sótti látlaust, en Kevin Keegan í ÞEIR verða líklega margir sem fá skíðaútbúnað í jólagjöf, og fýsir þá ábyggilega flesta að reyna útbúnaðinn sem fyrst. Það er því ekki úr vegi að veita lesendum upplýsingar um hvenáer opið verður í skíðalöndum Reykjavíkur um hátíðarnar. Lyfturnar í Bláfjöllum verða opnar sem hér segir: Laugardag 22. des. frá kl. 10.00 til 18.00. Sunnudag 23. des. frá kl. 10.00 til 18.00. Aðfangadag lokað. Jóladag lokað. Á 2. í jólum, miðvikudag verður opið ef veður leyfir og sömu sögu er að segja um gamlársdag. Að öðru leyti verður opið á milli jóla og nýárs eins og venjulega og getið er um hér að framan. Loks ber að taka það fram að á nýársdag verður lokað. Verð 8 miða fyrir fullorðna er kr. 1000, en kr. 500 fyrir börn. Tvöfalt gjald er í stólalyftuna, þ.e.a.s. þar þarf að láta af hendi 2 miða í stað eins. Virka daga er hægt að kaupa dagkort (gilda til 18.30) og kosta þau 2800 fyrir fullorðna og 1400 fyrir börn. Kvöldkortin (frá 18 til 22) kosta 2000 fyrir fullorðna og 1000 fyrir börn. Símasjálfsvari Bláfjallanefndarinnar er 85582, og ráðleggjum við fólki að notfæra sér hann sem mest. - þr. markinu varði eins og berserkur allt sem á markið kom, allt nema skot Frank Stapleton af stuttu færi á 55. mínútu. Kevin Bond jafnaði metin fyrir Norwich skömmu síðar úr eina góða færinu sem Norwich fékk allan leikinn. Paul Mariner, Arno Muhren og Eric Gates skoruðu mörk Ipswich, sem vann góðan heima- sigur gegn Tottenham. Eina mark Lundúnaliðsins skoraði Don McAllister. Og Leeds vann góðan útisigur og er greinilega á uppleið um þessar mundir. Terry Connor og Carl Harris skoruðu mörk Leeds. Loks má geta góðs sigurs Middlesbrough gegn Bolton, sem fær varla stig þessa dagana. Dave Armstrong, Terry Coch- rane og John Craggs skoruðu mörk Boro, sem svaraði aðeins með marki Willy Morgan, sem skoraði úr víti. Annars urðu úrslit leikja í gærkvöldi þessi: 1. DEILD: Arsenal — Norwich 1—1 Bristol C — Southampton 0—1 Cr.Palace — WBA fr. Ipswich — Tottenham 3—1 Middlesbrough — Bolton 3—1 Stoke — Leeds 0—2 Wolves — Brighton 1—3 2. DEILD: Burnley — Wrexham 1—0 Leicester — Cardíff 0—0 Luton — Charlton 3—0 Oldham — Birmingham 1—0 Preston — Watford 1—2 Sunderland — Shrewsbury 2—1 Swansea — Orient 0—1 West Ham — Cambridge 3—1 3. DEILD: Barnsley — Blackpool 2—1 Bury — Brentford 4—2 Carlisle — Grimsby 0—2 Chester — Rotherham 3—1 Exeter — Colchester 3—1 Hull C — Blackburn 0—1 Mansfield — Plymouth 0—0 Reading — Sheffield Wed 0—2 Sheffield Utd — Southend 2—0 Coe íþrótta- maður ársins HLAUPARINN snjalli Sebast- ian Coe frá Bretlandi var í gær útnefndur iþróttamaður ársins af fréttamönnum AP fréttastof- unnar um alla Evrópu. Heims- met Coe á árinu þarf ekki að tiunda einu sinni enn, hann er vafalaust vel að sigri sinum kominn. í öðru sæti var Björn Borg, tennisstjarna þcirra Svía. Þriðji maður á lista var einnig Svíi, skiðakóngurinn Ingmar Stenmark. Marita Koch frá Austur- Þýskalandi var kjörin iþrótta- kona ársins, en hún setti nýtt heimsmet í 200 og 400 metra hlaupunum. Anna Marie Pröll Moser var í öðru sæti og kylf- ingurinn Nancy Lopez frá Bandaríkjunum var í þriðja sæti. Jóhann í KR? JÓHANN Jakobsson, miðvallar- leikmaður hjá KA, mun hafa félagaskipti í hyggju, en lið hans, KA, féll í 2. deild á síðasta keppnistímabili. Helst hefur Jó- hann í hyggju að ganga í KR. Eða þá Víking. Félagi hans hjá KA, Njáll Eiðsson, hyggst einnig skipta um félag, en óljóst er enn hvaða félag hreppir hann. Njáll lék áður með Þrótti frá Norðfirði og er tengiliður eins og Jóhann. Ef snúið er að handboltanum, þá hefur frést að þeir Friðjón Jónsson og Ármann Sverrisson, sem nú leika með HK, hafi í hyggju að halda aftur á fornar slóðir og skipta yfir í KA. sor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.