Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 23 Birgir tsl. Gunnarsson: Fjárhagsáætlun borgarinnar 1980 Fjárhagsáætlun borgarinnar 1980 Fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1980 var til fyrri umræðu í borgarstjórn s.l. fimmtudag. Þetta er önnur fjár- hagsáætlun, sem vinstri meiri- hlutinn í borgarstjórn leggur fram og því má af þessari fjárhagsáætl- un nokkuð marka, hvaða stefnu vinstri flokkarnir ætla að fylgja þetta kjörtímabil. Þetta má einnig orða á þann veg að þessi fjárhags- áætlun er fyrir næstsíðasta heila árið á þessu kjörtímabili og því ekki seinna vænna að vinstri meirihlutinn láti stefnu sína koma glöggt fram. Ekkert fjallað um framkvæmdir Það hefur borið til tíðinda við undirbúning þessarar fjárhags- áætlunar, að hvorki borgarráð né borgarstjórn fengu í hendur fyrir umræðuna neitt yfirlit yfir það, hvernig framkvæmdafé borgar- innar eigi að skiptast milli ein- stakra framkvæmda. Borgarráð hefur vikum saman fjallað um fjárhagsáætlun á mörgum fund- um, en ekkert hefur enn verið fjallað um skiptingu fjár á ein- stakar framkvæmdir. Allt logar í illdeilum Þetta er algjört einsdæmi. Borgarráð hefur ávallt fjallað ítarlega um einstakar fram- Askorendaeinvígin: Korchnoi og Petrosjan tefla líklega í Júgóslavíu eða Sviss EKKI hefur enn verið endanlega gengið frá því hvar áskorenda- einvígin fjögur um heimsmeistara- titilinn í skák fara fram, að þvi er Friðrik Ólafsson forseti FIDE tjáði blaðamanni Morgunblaðsins i gær- kvöldi. Friðrik sagði þegar hafa komið tilboð frá Júgóslaviu og Sviss um að halda cinvígi þeirra Korchnois og Petrosjans, og ef til vill væru fleiri tilboð á leiðinni, meðal annars frá Austurríki og Sviss. Einvígi Hiibners og Adorjans fer fram í Vestur-Þýskalandi, væntan- iega f Bad-Lautenberg. Ekki hefur verið frá því gengið hvar Spassky og Portich tefla, en sovésku skák- meistararnir Tal og Polugajevsky munu tefla i Sovétríkjunum. Friðrik sagði að föst verðlauna- upphæð væri nú fyrir öll einvígin, og væri hún 20 þúsund svissneskir frankar, eða tæplega 5 milljónir íslenskra króna. Skipuleggjendur einvígjanna gætu svo auk þess boðið ýmis fríðindi, svo sem kostnað við aðstoðarmenn skákmanna og fleira. Friðrik sagðist ekki vita til þess að handtaka sonar Victors Korchnois hefði áhrif á einvígi þeirra Petro- sjans, en þó hefði hann heyrt einhverjar sögusagnir um það. Best væri líklega að vera við öllu búinn í því efni, enda væru þar undir glóðir sem gætu blossað upp. kvæmdir áður en fjárhagsáætlun hefur verið lögð fram. Sú spurning vaknar því, hvernig á því standi, að nú er brugðið út af þeirri venju. Hversvegna ríkir nú þetta ráðleysi við undirbúning fjárhagsáætlun- ar? Við sem erum í daglegu sam- starfi við borgarfulltrúa vinstri manna vitum, hversvegna þetta er. Astæðan er, að bullandi ágreiningur hefur verið innan meirihlutans um það, hvernig framkvæmdaféð eigi að skiptast. Til að réyna að draga hulu yfir þann ágreining og til að hann komist ekki upp á yfirborðið var það ráð tekið, að leggja áætlunina fram án nokkurra umræðna um þetta mikilvæga mál í borgarráði. Engar breytingar á rekstri Af þessum ástæðum m.a. var ekki möguleiki á því að fjalla ítarlega um efni áætlunarinnar við fyrri umræðu. Þó varð ekki hjá því komist að öllu leyti og skal hér drepið á nokkur atriði. Það vekur að sjálfsögðu athygli, að hvergi örlar á neinum breyting- um varðandi rekstur borgarinnar. Allt er látið renna eftir þeim hefðbundnu leiðum, sem sjálf- stæðismenn mótuðu, en hvergi bólar á þeim róttæku breytingum, sem vinstri menn boðuðu fyrir kosningar að gera þyrfti á rekstri borgarinnar. Eina breytingin er sú, að allt aðhald hefur slappast og ýmsir liðir látnir vaxa stjórn- laust að því er virðist. Fasteigna- skattar aukast Nú er enn á ný beitt þeim hækkuðu álagningarreglum varð- andi aðstöðugjöld, lóðaleigu og fasteignaskatta, sem vinstri menn samþykktu i upphafi þessa árs. Birgir ísleifur Gunnarsson Það þýðir að vinstri menn leggja um 2.6 milljarða á Reykvíkinga umfram það, sem tíðkaðist, þegar sjálfstæðismenn réðu ferðinni hjá Reykj avíkurborg. Harðast munu fasteignaskatt- arnir koma niður á Reykvíkingum. Fasteignaskattar munu hækka mun meir en nemur tekjuhækkun borgarbúa milli ára og fasteigna- skattar eru nú vaxandi hluti af tekjum borgarsjóðs. Fasteigna- skattarnir eiga því eftir að koma illa við borgarbúa, þegar seðlarnir verða sendir út í janúarmánuði. Breytingatillög- ur sjálfstæðis- manna felldar Við sjálfstæðismenn fluttum breytingatillögur á fimmtudaginn var þess efnis, að horfið yrði aftur til þeirra álagningarreglna, sem giltu í mörg ár, áður en vinstri menn fengu meirihlutann. Tillög- ur okkar sjálfstæðismanna voru kolfelldar. Hinar auknu álögur vinstri flokkanna nema um 130.000 á hvert fjölskylduheimili í borginni. Það er hin sérstaka kveðja vinstri flokkanna til heim- ila í borginni. Lóðaúthlutun í lágmarki Eins og fyrr getur var ekki efni til að ræða einstakar framkvæmd- ir borgarsjóðs á árinu. Þó er ljóst, að undirbúningur nýrra bygg- ingarlóða á næsta ári verður í lágmarki. Ráðgert er að bygg- ingarhæfar verði lóðir undir 428 íbúðir og verður þetta því annað árið í röð, sem minna verður um nýjar lóðir en þörf er á. Engar nýjar lóðir undir atvinnustarf- semi verða til úthlutunar. Ymis fleiri atriði væri ástæða til að gera nánar að umtalsefni varðandi fjárhagsáætlunina, en það verður að biða betri tíma. jolagjafirnar heimilistæki hf Sunbeam -raf magnspönnur meö hitastiUi, og meö og án teflonhúöar. AuÖveldar í notkun og ódýrar í rekstri. Þú berö matinnfram í Sunbeam rafmagnspönnu og prýöir meö þv'< boröiö og sparar uppþvottinn. Dömurakvél frá Philips er tilvalin jólagjöf Hún er létt og þægileg og í fallegum gjafaumbúöum. Fæst fyrir 220 og 210 V straum og einnigfyrir rafhlööur. Dósahnífar frá Philips opna dósir af öllum stœröum og geröum, á fljótlegan og auöveldan hátt. Dósahnífana máfesta á vegg. Straujárn frá Philips eru afar létt og meöfærileg. Þau eru meö opnu haldi, hitastilli og langri gormasnúru. Brauðristir frá Philips emi meö 8 mismunandi stillingum, eftir því hvort þú vilt hafa brauÖiÖ mikiö eöa lítiö ristaö. ómissandi viö morgunveröar- boröiö. Tilvalin jólagjöf frá þeim eldri, sem viljá vera í friöi meö dýru tœkin sín, til þeirra yngri sem engin eiga. Kassettutæki frá Philips bæöi fyrir rafhlööur og straum. Fáanleg í tveimur litum. Innbyggöur hljóönemi. 60 mín. kassetta fylgir tækinu. Raf magnsrakvélar | frá Philips Þessi rafmagnsrakvél | er tilvalinn fulltrúi fyrir hinar velþekktu Philips rakvélar. Hún er þriggja kamba meÖ bartskera og stillanlegum kömbum. Hún er nett og fer vel í hendi Kynniö ykkur aörar geröir Philips rafmagnsrakvéla. Kaffivélar frá Philips hella upp á 2—12 bolla í einu og halda kaffinu heitu. Enga poka þarf í HD 611*2, því nylon-filter kemur í þeirra staö. Eigum einnig 8 bolla kaffivélar alveg sambœrilegar en aö sjáfsögöu ódýraH. Teinagrill frá Philips býöur upp á skemmtilega nýjung í matargerö. Átta teinar / snúast / um element, sem grillar matinn fljótt og vel. Grilliö er auövelt í hreinsun ogfer vel á matboröi. Hárliðunarjárn , Philips er nútimakonunnni nauösyn. Þetta er gufujám, sem fer vel meö háriö og er létt og meöfærilegt í notkun. Grillofnar frá Philips gera hversdagsmatinn aö veislumat. í þeim er einnig hægt aö baka. Þeir eru sjálfhreinsandi og fyrirferöarlitlir. meö og án stands. Þriggja og fimm hraöa. Afar handhægt og fyrirferöarlitiö eldhústœki. Þeytir, hrærir og hnoöar. Veggfest ingar fylgja. Wigo klukkur Rafmagns-vekjaraklukka er gagnleg og notadrjúg jólagjöf. Wigo- klukkur eru fallegar i útliti og á góöu veröi. Fást í tveimur litum, svörtum og rauöum. ÍJtvarpsklukkur frá Philips Morgunhanann frá Philips þekkja flestir. Hann er bæöi útvarp og vekjaraklukka í einu tæki Hann getur bœöi vakiö þig á morgnana meö léttri hringingu og músik og síöan svœfi þig meö útvarpinu á kvöldin, Morgunhaninn er fallegt tœki og gengur auk þess alveg hljóölaust. Hárblásarar frá Philips fyrir alla fjölskylduna. Jólagjöf sem alltaf er i gildi. Útvarpstæki frá Philips LB og MB, aöeins fyrir rafhlööur. Til i þremur stæröum á mjög góöu veröi. heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — 20455 Sætúni 8 — 15655- Ársalir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.