Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
35
Jófum tilraunaveiðar á bláskel þegar
árið 1967 og urðum því ómótmælanlega
fyrstir til að veiða skelfisk hér í Breiðafirði"
- segir
Soffanías
Cecilsson í
Grundarfirði
Varnarræða Soffaníasar
í varnarræðu Soffaníasar
og verjanda hans fyrir dóm-
inum í Stykkishólmi kom
eftirfarandi meðal annars
fram: Vinnsla rækju og
kræklings hófst á vegum
Soffaníasar árið 1968. Arið
1973 eru unnin í vinnslustöð
hans 163 tonn af hörpudiski
og árið á eftir var tekið á
móti 424 tonnum af rækju.
Rækjuvinnslan dregst sam-
an og hættir alveg árið 1977.
Sótt er um veiðileyfi fyrir
tvo skelfiskbáta þann 10.
janúar 1979. Því svarar sjáv-
arútvegsráðuneytið með
banni við skelfiskvinnslu,
þótt aldrei hafi verið um
slíkt leyfi sótt. Bann við
veiðum er hins vegar ekki
gefið út fyrr en með komu
skeytis frá ráðuneytinu þann
9. nóvember 1979.
í apríl—maí ræddu Soff-
anías og Sigurður Helgason
lögmaður hans við Jón B.
Jónasson, en áður hafði oft
verið rætt við hann í síma.
Kom þá í ljós að ekki yrði
breytt úthlutun á 5 þúsund
tonna kvótanum úr Breiða-
firði, en málið yrði skoðað að
nýju ef veiða mætti meira.
Annar fundur var síðan
haldinn í september 1979, en
þá lágu niðurstöður rann-
sókna ekki fyrir. Þá var
viðstaddur auk fyrrnefndra
Þórður Asgeirsson og full-
trúi úr ráðuneytinu. Þá kom
í Ijós að dómi þeirra Jóns og
Þórðar, að ekkert væri veið-
um til fyrirstöðu ef aflinn
yrði lagður upp í Stykkis-
hólmi. Þá kváðust þeir einn-
ig vera hlynntir veiðum á
rækju að nýju. Aflamagn
hörpudisks var síðar aukið
úr 5 þúsund tonnum í 6
þúsund, og voru þeir Jón og
Þórður því fylgjandi að Soff-
anías fengi að vinna 300 til
350 tonn fram til áramóta,
en ráðherra lagði til aðra
skiptingu.
Þá má geta þess að Soff-
anías segir skelfiskvinnsluna
geta veitt um 30 manns
atvinnu í landi, auk þeirra
sem vinna á bátunum, og í
verksmiðjutækjum hans
liggi milli 70 og 80 milljónir
króna, sem ekki verði nýttar
verði banninu ekki aflétt.
—AH—
Soffanías og Björn Ásgeirsson skipstjóri á Grundfirðingi II. Þeir voru báðir
sektaðir fyrir óleyfilegar veiðar og vinnslu hörpudisks.
Þessi aldni heiðursmaður stóð við að flaka karfa í Fiskverkun SC á Grundarfirði
er blaðamenn Morgunblaðsins komu þar við.
Soffanías Cecilsson við ónotaðar vélar til skelfiskvinnslu, en samtals segir hann
þær vera tugmilljóna virði.
Nemenda-
tónleikar
í Hvera-
gerði
Hveragerði, 20. desember.
í SAFNAÐARHEIMILI Hvera-
gerðiskirkju voru í gær haldnir
nemendatónleikar og komu þar
fram ncmendur Einars Markús-
sonar píanókennara og léku ýmis
verk. Einnig söng frú Svava
Guðmundsdóttir nokkur lög við
undirleik Einars og frú Ragn-
heiðar Busk. Einar lék fyrir
nemendur sína og gesti og var
nemendum og kennara vel fagn-
að. Á boðstólum voru góðar
veitingar, sem gerð voru hin
beztu skil. Að tónleikunum lokn-
um skemmtu nemendur sér með
léttum leikjum og sungu jólalög.
Var þetta í alla staði hin ánægju-
legasta samkoma.
Einar Markússon er hámennt-
aður tónlistarmaður og hefur get-
ið sér gott orð hér heima og
erlendis fyrir píanóleik, tónsmíðar
og útsetningar. Hann hefur kennt
síðastliðin átta ár við Tónlistar-
skóla Árnessýslu á Selfossi og eru
hjá honum á viku hverri 50
nemendur, þar af eru 30 frá
Hveragerði, en Hveragerðisdeild
skólans hefur aðsetur fyrir
kennsluna í Safnaðarheimilinu. í
tónlistardeildinni er einnig kennt
á blásturshljóðfæri og söngur.
Hvergerðingar binda miklar vonir
við skólann.
— Sigrún.
Naumur
sigur
Haag, 20. desember. Reuter.
ÞÓTT framtið ríkisstjórnar And-
reas van Agts forsætisráðherra í
Hollandi hafi verið tryggð til
bráðabirgða þar sem hollenzka
þingið samþykkti þá stefnu
stjórnarinnar að styðja endurnýj-
un eldflauga NATÓ sýna úrslitin
hvað stjórn hans er í raun og
veru fallvölt.
Tíu óánægðir þingmenn úr
flokki kristilegra demókrata
skiptu um skoðun á siðustu stundu
og studdu stjórnina eftir heitar
umræður í nótt og sýndu að þeir
voru reiðubúnir'að setja áfram-
haldandi völd van Agts ofar sann-
færingu sinni.
En málið hefur undirstrikað
grundvallarágreining. kristilegra
demókrata (CDA) og samstarfs-
flokks þeirra í ríkisstjórn, Frjáls-
lynda flokksins (VVC) samkvæmt
pólitískum heimildum. CDA er
miklu herskárri gagnvart Rússum
og vill að nokkur hinna nýju
vopna verði staðsett í Hollandi til
að vega úpp á móti SS-20-flaugum
Rússa.
Stjórnin hefur aðeins tveggja
þingsæta meirihluta og van Agt
hafði gefið í skyn að hann mundi
segja af sér ef frumvarp stjórnar
hans næði ekki fram að ganga.