Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 10
Bæjarstjórn Kópavogs:
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
Kristján írá Djúpalæk:
PUNKTAR í MYND.
Myndir Ágúst Jónsson.
Bókaútgáfan Skjaldborg
1979.
KRISTJÁN frá Djúpalæk
færist ekki svo lítið í fang
með Punktum í mynd. I
blaðaviðtali segir hann að
bókin sé „saga sálarinnar" og
heldur áfram: „Sálin kemur
utan úr geimnum og sest að í
fræi í móðurskauti, þar sem
hún byrjar að verða fyrir
áhrifum sem halda áfram
eftir að barnið fæðist. Bókin
er með skírskotun til eigin
reynslu og nær til fimm ára
aldurs. Ég vil raunar segja,
að hún sé til varnar sál-
inni... “
í upphafi bókar er sagt frá
því er sálin vaknar við
„Kvíðvænlegt kall“. Hún á að
skipta um bústað, gegna
skyldum á fjarlægum hnetti
sení nefnist Jörð. Hún biður
til einskis um að sá bikar sé
tekinn frá henni því að ekki
vill hún hverfa úr „algóðum
faðmi fegurðar" þar sem
allar óskir rætast og hljóm-
ar, ljós og gleði búa. Sálin
hefur dvalið áður á jörðinni
og veit að þar er refsivist og
reynsluskóli og það vekur
henni óhug.
Kristján frá Djúpalæk
dregur upp dapurlegar og
harmsárar myndir af lífi
sálarinnar á jörðunni. Sorgin
nær hámarki þegar barnið
vaknar einn morgun meðal
ókunnugs fólks á ókunnugum
bæ og hefur týnt móður
sinni. Þá nístir skelfingin
hjartað. Og ekki líður á
löngu þangað til fræi haturs-
ins er sáð, sakleysinginn
verður fyrir barðinu á rang-
læti fullorðna fólksins. Sjúk-
dómar setja mark sitt á
barnið. „Kaldar eru hendur
heimsins / og raddir“ verður
niðurstaða skáldsins.
Framan við hvern kafla í
Punktum í mynd er tilvitnun
í skáld og spekinga á borð við
Kahlil Gibran og Tagore. Sá
síðarnefndi segir: „Sérhvert
barn, sem fæðist flytur þau
skilaboð, að Guð sé ekki
vonlaus um heiminn.“ Gibr-
an virðist þó hafa orkað meir
á Kristján frá Djúpalæk.
Þessir andans menn standa
okkur þó fjær en Kristján
Jónsson, Þorsteinn Erlings-
son og Örn Arnarson sem
líka eiga sín ítök í hugar-
heimi skáldsins. Guðspeki er
ákaflega vandasöm í
skáldskap og hættir til að
verða frekar spakmæli en
ljóðræna. Þegar Kristján frá
Djúpalæk freistár þess að
lýsa bernsku sinni í „ljóð-
rænum texta“ nær hann að
mínum dómi bestum árangri.
En það háir honum að boð-
skapurinn, kenningin má
líka segja, ber skáldskapinn
Kristján írá Djúpalæk
Bókmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
víða ofurliði. Það sem í raun
á að vera einföld lýsing og
raunsæileg er hneppt í fjötra
viskutals. Meiningin gerist of
ráðrík á kostnað þess lífs
sem við nefnum Ijóð. Falleg
mynd geldur mælsku prédik-
arans.
Þessum orðum til staðfest-
ingar birti ég erindi úr
Punktum í mynd:
Hún ber mig einnig til húm-
landa
þessa heims,
þangað sem ég bjó
er ég dvaldi hér áður,
hvar sól brennir um daga,
kuldinn nístir um nætur
og gróðurinn er villimörk
blindrar græðgi:
Þér er gott að rifja upp fortíð
þína,
ferðalangur,
annars verður villugjarnt
á veginum framundan.
Láttu ekkert má út
minninguna um upphaf þitt
né neyða þig í annað hlut
verk en þér ber.
Vertu trúr yfir miklu.
Við erum aftur heima.
Hún leggur mig á blóma-
sængina
í túni föður míns á jörðunni.
Ég, barn hennar, sef.
Síðustu fjórar línurnar í
þessu erindi sýna styrk
skáldsins, hinar ýmsa veik-
leika textans. Án þess að
ástæða sé til að fjölyrða um
þá er hitt ljóst að Kristján
frá Djúpalæk ætlar sér mik-
inn hlut með Punktum í
mynd og gerir virðingar-
verða tilraun.
Myndir Ágústs Jónssonar
eru í sama stíl og við kynnt-
umst í verki þeirra Kristjáns
Óði steinsins (1977). Best
þykir mér mynd á bls. 13.
Henni fylgja orð hins góða
Lao Tses: „Um bústaðinn
skiptir mestu hvar hann
stendur."
Kvíðvænlegt kall
'^XV-.son ÁW'lYAnn
ríki Vatnajökuls segir frá leiöangri höfundarins og Jóns
Eyþórssonar á Vatnajökul vorið 1936. í för meö þeim
voru íslendingarnir Siguröur Þórarinsson, þa nemandi
Ahlmanns, ferðagarpurinn Jón frá Laug og tveir ungir
Svíar. Auk þess höföu þeir meðferöis 4 Graenlands-
huhda, sem drógu sleða um jökulinn og vöktu hér
meöal almennings ennþá meiiri athygli en mennirnir. ,
fyrri hlutanum segir frá lífinu á jöklinum „í stríöi og i
barningi, hvíld og leik“. Seinni helmingurinn er einkar
skemmtileg frásögn af ferö þeirra Jóns og Ahlmanns
um Skaftafellssýslu.
í ríki Vatnajökuls er sígilt rit okkur Islendingum, nærfærin
lýsing á umhverfi og fólki, furöuólíku því sem viö
þekkjum nú, þó að ekki sé langt um liðið.
. L Almenna
(I) bókafélagið,
Austurstræti 18 — *ími 19707. Skemmuvegi 36, Képavofli — Sími 73055.
Tillögu um
greiðsluheim-
ildir vísað írá
Á FUNDI bæjarstjórnar Kópa-
vogs í gærkvöldi lagði Richard
Björgvinsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, fram eftirfarandi
tillögu:
Þessi fundur bæjarstjórnar
Kópavogs er sá síðasti á árinu
1979 og síðasti fundur bæjarráðs
var 18. þ.e.
Meirihluti bæjarstjórnar hefur
ekki lagt fram neina tillögu eða
drög að fjárhagsáætlun (rekstrar-
áætlun) bæjarsjóðs, fyrirtækja
hans og stofnana fyrir árið 1980
og er þetta í fyrsta sinn, er svo
stendur á í sögu kaupstaðarins, og
bæjarstjóri hefur þar með engar
leiðbeiningar um greiðslur úr bæj-
arsjóði og engar samþykktir um
þær.
Af þessum ástæðum samþykkir
bæjarstjórn að heimila bæjar-
stjóra að greiða úr bæjarsjóði
laun starfsmanna bæjarins svo og
að inna af hendi aðrar bráðnauð
synlegar greiðslur þar til fjár-
hagsáætlun fyrir 1980 verður sam-
þykkt af bæjarstjórn eða öðru vísi
kann að verða ákveðið."
Tillögu þessari var vísað frá
með atkvæðum fulltrúa meirihlut-
ans. Fjárhagsáætlun hefur ekki
verið lögð fram í bæjarstjórn
Kópavogs nú í desember og er það
í fyrsta sinn í sögu kaupstaðarins,
sem það gerist.
Hækkun á
gjaldskrám
stundstaða
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum síðastliðinn þriðjudag til-
lögur íþróttaráðs um hækkun á
gjaldskrá sundstaða í Reykjavík.
Er hækkunin að meðaltali liðlega
30%, en hún á eftir að hljóta
staðfestingu stjórnvalda.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
10 miða kort hækki úr 2.200
krónum í 3.000, sem þýðir að hvert
einstakt skipti myndi kosta 300
krónur í stað 220 áður. Hækkunin
á hverju einstöku skipti ef af-
sláttakort eru ekki keypt yrði úr
360 krónum í 500 krónur.
Að sögn Stefáns Kristjánssonar
íþróttafulltrúa hefur sú stefna
ríkt undanfarin ár, að 60% rekst-
urs sundlauganna sé greiddur af
viðskiptavinum. Með þessari
hækkun myndi sú hlutfallstala
nást á næsta ári.
Tækni og þægindi
til heimilisnota.
SIEMENS sameinar gæði, endingu og smekklegt útlit.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4, Reykjavík
Sími 28300
Við bjóðum yður ábyggileg heimilistæki, sem byggja á
áratuga tækniþróun SIEMENS verksmiðjanna.
SIEMENS
-heimilistækin sem endast