Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 „Þaö sem á sér staö er, að ég mæli þær líkamsbreytingar, sem eiga sér staö þegar fólk svarar spurningum, — er að reyna að hylma yfir upplýsingar. í sjálfu sér eru þetta ekki lygamælingar, aöeins verið að finna út að hve miklu leyti er hægt að fá upplýsingar með því að mæla líkamsbreytingar,“ sagði Gísli Guðjónsson í viðtali við Mbl. um tilraun hans fyrir The Sunday Times. Lygamæliprófið mikla athygli... En hver voru tildrög þess að The Sunday Times fór þess á leit við þÍK að þú Kerðir þessa tilraun fyrir blaðið? Ég hafði birt 2 greinar um þetta efni í vísindaritum. The Sunday Times fór þess síðan á leit við mi(í að framkvæma þessa tilraun og fékk blaðið nokkra þekkta borgara hér á Bretlandi tjl að taka þátt í þessu. Það er óhætt að segja að þessi tilraun hafi vakið mikla ath.vgli, því að ég hef fengið bréf víðs vegar að úr heiminum, meðal annars frá Sovétríkjunum og Bandaríkjunum. BBC hefur og í hyggju að gera þatt um meðferð á afbrotamönnum í Bretlandi. Ég hef unnið að rannsóknum fyrir Hendersonstofnunina hér í Bret- landi. BBC hefur beðið leyfis um að taka stutta mynd frá þeim rannsóknum í þennan þátt. Ertu ána'gður með niðurstöður tilrauna þinna fyrir Thc Sunday Times? Já, ég er ánægður með niður- stöðurnar. Þær eru svipaðar og reikna má með. Það er alltaf einn og einn, sem ekki sýnir viðbrögð við spurningum. Ég mældi í þess- ari tilraun bara eina líkamsbreyt- ingu með DFR tæki. Ég vil taka það sérstaklega fram, að ég tel varlegt að nota svona í hverju einasta máli. Það getur komið að notum í sumum tilvikum. I Banda- ríkjunum er þetta mjög mikið notað, jafnvel ofnotað. Viðbrögð eru háð svo mörgu og þau eru ekki alltaf háð ósannsögli hverju sinni. Eins og kom fram í grein The Sunday Times þá var ég beðinn að taka svona próf á manni, sem hélt því fram að honum hafi verið misþyrmt af lögreglunni. Ég varð að hafna þeirri beiðni vegna þess, að nánast hefði verið ómögulegt með mælingum að sjá hvort maðurinn sagði ekki rétt til, eða hvort viðbrögð hans við spurning- um um atvikið hefðu kallað fram Spjallað við Gísla Guðjóns- son um störf hans og til- raunina fyrir The Sunday Times vakti geðshræringu, svipað og hann hafi ekki verið að segja rétt frá. Hins vegar kom mál upp þar sem ég aðstoðaði brezku lögregluna. Það var stúlka, sem hafði misst minn- ið. Hún vissi ekkert um uppruna sinn né fortíð. En með spurning- um, þar sem jafnframt voru mæld viðbrögð, tókst okkur að rekja fortíð hennar. Hún var spurð að nafni — ýmis nöfn voru nefnd, sérstaklega valin. Það kom fram að viðbrögð hennar við einu sér- stöku nafni voru sterk. Þetta reyndist vera nafn hennar. Menn verða því að gera sér grein fyrir takmörkunum og gildi svona mælinga. Ég tel mig enn vera að læra. Með reynslunni geti ég séð hvenær hægt er að nota þessar aðferðir. Annars eru lyga- mælingar mjög lítill þáttur í mínu starfi — ég hef aðstoðað þegar til mín hefur verið leitað og ég sé mér fært að hjálpa til. En hvert er þá markmið þitt með þessum mælingum? Markmið mitt er að læra eins og ég get í sambandi við sálarfræði. Það er svo margt sem við ekki vitum né þekkjum um okkur sjálf. Með þessum rannsóknum vonast ég til að geta hjálpað sjúklingum, að ég geti hagnýtt mér þafþekk- ingu, sem fæst. Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt í sambandi við þessar tilraunir. Þá vonast ég til að geta einnig bætt notkun þess- ara tækja. Og finna út undir hvaða kringumstæðum heppilegt er að nota þessar aðferðir. Að hverju vinnurðu núna? Ég er að vinna að doktorsritgerð um persónuleikaeinkenni og að hvaða leyti lífeðlisfræðílegar breytingar eru háðar sálrænum einkennum. Þá hef ég einnig rannsakað streitu í röddum, með raddmælingum. Þeim er að mestu lokið. Ég er að vinna að niðurstöð- um úr þeim rannsóknum og enn er of snemmt að segja til um þær. Ilvað er framundan? Eftir áramótin mun ég hefja störf við Lundúnaháskóla. Ég mun kenna við háskólann og einnig vinna í klínisku starfi, að sál- fræðilegri meðferð sjúklinga. Jafnframt þessu mun ég starfa með einum þekktasta dómsmála- geðlækni Breta, prófessor Gunn, í sambandi við meðferð sjúklinga sem koma fyrir dómskerfið. Það eru fáir brezkir sálfræðingar, sem hafa sýnt dómsmálasálfræði áhuga og þessi grein er nánast óplægður akur. Sannleikurinn er sá, að við vitum svo sáralítið á þessu sviði og verkefnin nánast óþrjótandi. Gfsli Guðjónsson við lygamæliprófanir á Helga Danielssyni rannsóknarlögreglumanni sumarið 1976. Fyrir skömmu birtist grein í brezka blaðinu The Sunday Times, þar sem skýrt var frá tilraun, sem blaöiö lét framkvæma undir stjórn Gísla Guöjónssonar. Sex manns tóku þátt í tilrauninni, þekktir borgarar í Bretlandi. Þeir voru Clement Freud, þingmaöur, Michael Perwee, leikritaskáld og þókersþilari, Lord Soper, klerkur, Winston Fletcher, Derek Nimmo, leikari, Fransesca Annis, leikkona, Harold, Evans, ritstjóri The Sunday Times, og greinarhöfundur, Isabel Hilton. „ég held að þessar niöurstöður sýni að svona prófanir séu frem- ur yfirborðskenndar." Og Nimmo sagði: „Leikari verður aö læra að sýna viðbrögö, eins og til að mynda að gráta þegar hlutverk krefst þess. Maður verður aö geta sýnt geöshræringu. Ég ákvaö aö bregðast reíður viö öllum sþurningum. Þannig hélt ég að mér tækist helst að villa 1976 þegar hann starfaöi sem sumarafleysingamaöur hjá rann- sóknarlögreglu ríkisins. Innskot Mbl.). Segja má aö þetta séu ef til vill slæmar fréttir fyrir lögreglumenn víös vegar um heim — þaö aö afbrotamenn skuli eiga svo auð- velt með að Ijúga, án þess að sýna jafn mikla geöshræringu og almennt gerist. En Gísli fer var- verið misþyrmt af lögreglunni. En ég varö aö hafna því, vegna þess aö mér fannst, aö jafnvel þótt hann segði sannleikann, þegar hann yrði spuröur spurninga um atvikið, þá gæti þaö vakiö sterkar líkamsbreytingar. Minn- ingin um atburðinn hefði markaö svo djúþ sþor í sálarlíf hans. Heföi hann logið þá heföi það einnig kallað fram sterk viðbrögð Hver er bezti lygarinn? Þetta fólk féllst á aö gangast undir lygamælipróf undir stjórn Gísla. Hann rannsakar meöal annars möguleika — og tak- markanir þess hvernig hægt sé aö afla upplýsinga með því aö mæla líkamsbreytingar fólks þegar lagöar eru fyrir það ýmsar spurningar. Spurningarnar voru fyrirfram gerðar, allar eins. Fólk- iö var hvatt til aö reyna aö leika á tækið, svara ávallt neitandi — þó svo aö þaö þyrfti aö segja ósatt. Þaö var ávallt látiö svara neitandi spurningu um í hvaöa mánuöi þaö væri fætt — líka fæðingar- mánuði sínum. Tækið mældi síöan svitaútstreymi og af því mátti sjá viöbrögö fólksins. Þessi grein fer hér á eftir í lauslegri endursögn: Lagöar voru spurningar fyrir fólkiö og þaö hvatt til aö reyna aö leika á tækið, sem var tengt viö handlegg þess og mældi þær breytingar sem áttu sér staö í húöinni. Viökomandi var síöan spuröur: „Ert þú fæddur í ... (mánuöi)?“ Viðkomandi haföi fyrirfram veriö sagt aö svara nei viö öllum mánuöum, líka hinum rétta fæöingarmánuöi. Gat tækiö fundiö út hvenær viðkomandi var aö segja ósatt? Svipaö próf var lagt fyrir fólkiö, þar sem spurn- ingar um tölur voru lagöar fyrir. Þrátt fyrir aö viökomandi heföi enga sektarkennd og lygin væri heldur léttvæg og viðkomandi fyrirskipaö aö Ijúga, þá var tækiö furöu glöggt aö finna út hvenær viökomandi laug. Aöeins leikur- unum tveimur tókst aö snúa á tækiö, Fransescu Annis í spurn- ingum um tölur og Nimmo um fæöingarmánuö sinn. „Þaö gæti veriö vegna starfa þeirra. Þau hafa meira vald á líkamsstarfsemi sinni,“ sagöi Gísli um niöurstööurnar. „Ég einbeltti mér alveg aö annarri tölu en þeirri sem spurt var um,“ sagöi Annis, og bætti síöan viö, um fyrir tækinu.” Niöurstöður tilrauna Gísla Guöjónssonar á íslandi sýndu, eins og ef til vill mátti búast við, aö erfiðast gekk aö finna út hvenær afbrotamenn lugu, eöa í 72% tilfella. Hann fékk tólf manns til aö gangast undir lyga- mælipróf — úr þremur starfs- stéttum, presta, afbrotamenn og lögreglumenn. Auöveldast var aö sjá prestana út — ekki óvænt niöurstaða í sjálfu sér en í 94% tilfella tókst 'aö finna út lygar þeirra. í 92% tilvika tókst aö finna út hvenær lögreglumenn sögöu ekki rétt frá. (Hér er veriö að vitna til könnunar, sem Gísli Guöjónsson framkvæmdi áriö lega í að draga almennar álykt- anir af þessum tilraunum. Þrátt fyrir þessar tiltölulegu jákvæðu niöurstöður þá er ekki þar meö sagt, aö Gísli sé fylgj- andi almennri notkun lygamæla. (Þeir eru mikið notaöir í Banda- ríkjunum og ísrael en ekki í Bretlandi.) Hann bendir á, aö þaö eina sem hægt sé aö sýna fram á séu líkamsbreytingar — hinar ýmsu spurningar veki mismun- andi viðbrögö, sem kunni aö benda til aö viðkomandi sé aö Ijúga en þurfi alls ekki aö þýöa aö svo sé. x „Ég var einu sinni beöinn aö framkvæma tilraun á manni, sem hélt því fram aö honum heföi — ómögulegt heföi veriö aö greina á milli,“ sagöi Gísli. Lygamælipróf hefur meiri þýö- ingu og jákvæöari í klíniskri sálarfræöi, segir Gísli. Þannig notaðist hann viö þessa aöferö við stúlku, sem hafði misst minn- iö. Hann spuröi hana spurninga, eins og „heitir þú ... ?“ (notaði ýmis nöfn sem voru sérstaklega valin). Stúlkan sýndi sérstök viö- brögö viö einu nafni. Þetta nafn reyndist sföan vera hiö raunveru- lega nafn hennar og hjálpaöi þannig að komast aö uppruna hennar. Hér á eftir fylgja niöurstööur tilrauna, sem Gísli Guöjónsson framkvæmdi. Tala hærri en 100 þýöir aö lygi var uppgötvuö — því hærri tala, því auöveldara var aö komast því þegar viökomandi laug: Spurningar við fæöingarmán- uði: Hilton 467, Evans 460, Pertwee 348, Soper 261, Freud 237, Fletcher 228, Annis 122, Nimmo 99 (náöi aö snúa á tækiö). Spurningar viö tölum: Evans 1267, Pertwee 313, Nimmo 251, Freud 235, Soper 236, Fletcher 223, Hilton 193, Annis 31. (Lygi ekki merkjanleg). THE SUNDAY TIMES, NOVEMBER 25 1979 ______________________________ Fikkim Freud Poker-player Pertwee Ad-man Fletcher CIerí;yman Sopcr Actor Nimmo Who makes the hesf rilE SIX people whuse photo lic was unimportant and he had for iaw enforcert but C.;iclj->n- s< &raph< appear ahove. week been inxtructed ln telJ it—the is cautious ahout drawi;: ; . ,i — íome micht «y. machine w«i uncannilv percep- ciufions lron; <he i.il-orat >: rrrMewtr — 'ietectcd fnur oí our cxperimcni. Iu ii--l 1»f** Actrrss Francetca Annis from thc resuit you would ge: if L. lying." Liv-detection teclmifjues do AN ARGL'MEN'T of crucial

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.