Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 13 Fullkomin slökkvitæki sett í tvo báta frá Hornafirði Hornafirði. 20. desember. FYRIR nokkru voru sett full- komin eldvarnartæki í tvo báta hér á Höfn, Lyngey SF 61 og Hvanney SF 51, en eigendur eru hlutafélagið Borgey. Uppsetn- ingu á eldvarnarkerfunum ann- aðist sérfræðingur frá I. Pálma- son hf., en það fvrirtæki flytur inn þessi tæki, sem nefnd eru HALON 1301. Slökkviefnið er geymt á tveim- ur hylkjum svipuðum og stærð og 2 handslökkvitæki. Frá hylkj- unum liggur rör niður í vélar- rúmið og greinist þar í fjóra stúta. Ef eldur kemur upp og ekki verður við neitt ráðið með handslökkvitækjum þá eru vélar stöðvaðar og vélarrúminu lokað. Með einu handfangi eru slökkvi- tækin sett af stað og slökkviefn- ið streymir þá inn í vélarrúmið og á að slökkva allan eld, sem þar kann að leynast, á innan við 10 sekúndum. Það sem helzt hindrar inngöngu í vélarrúmið strax eftir slökkviaðgerðir er reykur, en strax og vélarrúmið hefur verið loftræst vel er hægt að fara niður í vélarrúmið á ný. Þess má geta að ákveðið hefur verið að samstarfsnefnd JC Hornarfjarðar og Slökkviliðið á Höfn sjái um sérstakan Eld- varnardag eftir áramótin. Verða þar kynntar eldvarnir af ýmsu tagi. — Einar Jólamyndimar í Siglufirði NÝJA BÍÓ í Siglufirði sýnir á 2. dag jóla kvikmyndina Skriðbraut- in, sem sýnd var í Reykjavík fyrir nokkrum mánuðum og fékk mikla aðsókn. Á nýársdag sýna Siglfirð- ingar myndina Flugstöð ’77. Jólavaka í Dóm- kirkjunni í kvöld KRISTILEG skólasamtök og Kristilegt stúdentafélag gangast fyrir jólavöku í Dómkirkjunni í kvöld, laugardag, kl. 21. Hugmyndin er sú að fólk geti staldrað við í bæjarferð og hvílt lúin bein um leið og það tekur þátt í þessari stuttu helgistund. Boðið verður upp á hugvekju, einsöng og sungnir jólasálmar. Lánskjara- vísitalan í 135 SEÐLABANKINN hefur reiknað út lánskjaravísitölu fyrir jan- úarmánuð 1980 með tilvísun til 39. greinar laga nr. 13 frá 1979. Samkvæmt útreikningum gildir lánskjaravísitala 135 fyrir jan- úarmánuð. ÚTSÖLUSTAÐIR: Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ -Eyjabær Vestmannaeyjum- Hornabær Hornafirði- Epliö Akranesi- Eplið ísafirði- Cesar Akureyri vilja allir ráða yfir... vegna hljómgæðanna Veist þú ... hvað PIONEER tækin eru ódýr? — ef ekki — komdu þá í verslun okkar og beröu saman verö og gæöi. Ef þú kaupir heilt sett gegn staögreiöslu, þá færöu skápinn ókeypis. System X-33

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.