Morgunblaðið - 22.12.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
5
Yinstra samstarf
um kiör í nefndum
FORMENN þingílokka Framsóknar, Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks náðu á fimmtudag samkomulagi um samstarf í nefndakjöri.
Mbl. spurði formenn þingflokkanna að því í gær eftir að
Steingrímur Hermannsson hafði skilað stjórnarmyndunarumboði
sínu, hvort samstarfssamkomulag þeirra stæði eftir sem áður.
„Eg tel að það verði að reyna á
það,“ sagði Ingvar Gíslason for-
maður þingflokks Framsóknar.
„En þetta er ekki undirskrifað
samkomulag. Við höfum haft sam-
ráð og það má segja að í þessu
felist viss vilji okkar þingflokks-
formannanna um að þetta gangi
svona fram og sé þá að minnsta
kosti leiðbeining fyrir nefndar-
menn viðkomandi flokka."
„Til að auðvelda kosningu emb-
ættismanna í nefndum þá höfum
við upplýst okkar í milli, hvernig
við viljum standa að þessum
málum," sagði Ragnar Arnalds
formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins. „En það er ekkert
samkomulag. Það er enginn skuld-
bundinn til að kjósa frekar á einn
veg en annan."
„Við höfum haft samráð um það
hvernig við skiptumst á um að
gera framboð í nefndum en um
samkomulag er ekki að ræða,“
sagði Sighvatur Björgvinsson
formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins. „Mér finnst hins vegar
ekki ósennilegt að atkvæðagreiðsl-
ur gangi eftir þessum samráðum
okkar.“
Ólafur Jóhannesson var sjálf-
kjörinn formaður heilbrigðis- og
tryggingamálanefndar efri deildar
á fimmtudag, þar sem ekki var
stungið upp á öðrum til starfans.
Helgi Seljan er varaformaður og
Karl Steinar Guðnason ritari.
Hjörleifur Guttormsson var
kjörinn formaður iðnaðarnefndar
neðri deildar, hlaut 4 atkvæði, en
Jósef H. Þorgeirsson fékk 3. Páll
Pétursson var kjörinn varafor-
maður með 4 atkvæðum og Jósef
fékk 3. Árni Gunnarsson var
einróma kjörinn ritari.
Ólafur Ragnar Grímsson var
kjörinn formaður fjárhags- og
viðskiptanefndar efri deildar með
4 atkvæðum, en Eyjólfur Konráð
Jónsson fékk 3. Guðmundur
Bjarnason var kjörinn varafor-
maður með 4 atkvæðum, en Eyj-
ólfur fékk 3. Eiður Guðnason var
einróma kjörinn ritari.
Stefán Guðmundsson var í gær
kjörinn formaður sjávarútvegs-
nefndar efri deildar í gær með 4
atkvæðum, en Guðmundur Karls-
son hlaut 3. Karl Steinar var einn
í framboði til varaformanns og
Geir Gunnarsson einn um ritara-
starfið.
í þingfararkaupsnefnd varð það
að samkomulagi, að Garðar Sig-
urðsson yrði formaður, Sverrir
Hermannsson varaformaður og
Eiður Guðnason ritari.
Bræðrafélag Dómkirkju og Langholtskirkju;
Jólahugvekja með
blindum og fötluðum
BRÆÐRAFÉLAG Dómkirkj-
unnar og Bræðrafélag Lang-
holtskirkju hafa jólahugvekju
saman með Blindrafélaginu
eða samtökum blindra og
sjónskertra og Sjálfsbjörg, fé-
lagi fatlaðra í Langholts-
kirkju, sunnudaginn, Þorláks-
messudag, 23. desember kl.
14.00.
ur Jóns Stefánssonar, Gísli
Helgason leikur á flautu, Jón-
as Þ. Dagbjartsson leikur á
fiðlu. Séra Hjalti Guðmunds-
son dómkirkjuprestur flytur
formálsorð, Benedikt Gröndal,
forsætisráðherra, flytur ræðu
og séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson flytur jólahugvekju og
bæn. Allir eru velkomnir.
Á dagskrá verður orgelleik-
Tvennir jóla-
tónleikar
Skólakórs
Garðabæjar
JÓLATÓNLEIKAR Skólakórs
Garðabæjar verða í Háteigskirkju
fimmtudaginn 27. desember kl.
20:30 og í Garðakirkju föstudag 28.
des. einnig kl. 20:30.
Á efnisskrá verða verkin Sjá
himins opnast hlið, kantata fyrir
þriggja radda kór, orgel og strengi
eftir Buxtehude, jólasöngvar frá
ýmsum löndum, Á ceremony of
Carols eftir Benjamin Britten. í því
verki leikur Elísabet Waage á hörpu
og einsöngvararnir Marta G. Hall-
dórsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir,
Hildigunnur Halldórsdóttir, Ingi-
björg Guðjónsdóttir og Berglind
Björgúlfsdóttir.
Er þetta í fyrsta sinn sem verk
Brittens er flutt af barnakór hér á
landi, en þetta er lokaverkefni
Skólakórs Garðabæjar á barnaári.
Á tónleikunum koma fram 57 börn
og unglingar og hópur aðstoðar-
manna. Stjórnandi kórsins er Guð-
finna Dóra Ólafsdóttir.
Jóhann H. með
tvö jaínteíli
JÓHANN Hjartarson, sem nú tefl-
ir á Evrópumóti unglinga i skák,
gerði jafntefli í biðskák sinni við
Frakkann Santo Roman úr fyrstu
umferð. Jóhann sagði í samtali við
Mbi. að hann hefði haft heldur
betri stöðu en það hefði ekki nægt
til vinnings.
Jóhann gerði aftur jafntefli i
annarri umferð gegn Ilollend-
ingnum Van Heide og sagði Jó-
hann að þar hefði hann haft verri
stöðu frá upphafi, Van Heidc hefði
beitt byrjun sem hann hefði ekki
þekkt, en tekist í lokin að klóra í
bakkann og ná fram jafntefli.
Þriðja umferð mótsins verður
tefld i dag, en ekki lá fyrir i
gærkvöldi gegn hverjum Jóhann
lenti.
Laugavegi 20. Simi frá skiptiborði 85055.