Morgunblaðið - 22.12.1979, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
Malló sófasettiö er ekkl einungis meö léttu og skemmtilegu yfirbragöi,
heldur einnig einstaklega létt á pyngjuna. Fjölbreytt úrval af áklæðum - og þú færö i hendurnar
fallegt og vandað sófasett fyrir ótrúlega lágt verö.
Malló
Sendum í póstkröfu. Muniö hina sérstöku kaupsamninga okkar - aliar afborganir
meö póstgíróseðlum í staö vixla.
Byggingavörudeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 sími10600
Ql Staögreiösluverö
kr. 390.150
Verö m/afborgunum 433.500
Opið í
dag kl.
9-23
á morgun
sunnudag
Keramik og
trévörur frá
Glervörur frá Pukeberg, Svíþjóð.
•
391/1
Munið okkar fallegu aðventukransa og jólaskreytingar
Okkar skreytingar eru öðruvísi
i?l ÓMLWIMIU
Hafnarstræti 3.
Sími 12717 - 23317.
BLðM
VIKUNNAR V 'w í) J
UMSJÓN: ÁB. @
EINIR
íslenski einirinn mun
vera norrænt fjalla-
afbrigði sem oftast
skríður við jörð. Á stöku
stað réttir hann þó ofur-
lítið úr sér og verður
40—60 sm hár runni. Haf-
ið þið séð hann þvílíkan?
Sumsstaðar vex hann út á
stóra steina og hálf hylur
þá grænu skrúði. Þetta
gerir hann til þess að
njóta yls af grjótinu sem
hitnar þegar sól skín á
það. Einir fer vel í stein-
hæð. Til þess að fá plönt-
ur má sá fræjum einiberj-
anna, einnig má grafa upp
ungar plöntur og flytja í
garðana en oft er erfitt að
ná þeim upp með rótum. í
gróðurhúsum er vel hægt
Grein af Bláeini — Juniperus
squamata meyeri
að fjölga eini með græðl-
ingum, það hefur t.d.
skógrækt ríkisins tekist
prýðilega. Skal þá velja
greinar af vöxtulegum
hríslum, því allir erfða-
eiginleikar haldast þegar
fjölgað er með græðling-
um. Einir vex hægt en
getur orðið æði gamall.
Barrnálarnar lifa nokkur
ár en nýjar vaxa smám
saman í staðinn.
Ofurlítið hafa hér verið
reyndar útlendar einiteg-
undir og virðist a.m.k. ein
þeirra þ.e. Bláeinir (Jun-
iperus squamata) þrífast
vel hér í Reykjavík.
Bláeinir er snotur runni
með ljósar bláhvítar
barrnálar. Ýmis afbrigði
munu til af honum, sum
með útsperrtar greinar og
hangandi hliðarsprota.
Bláeinir er ættaður frá
Himalajafjöllum og Kína.
Oft liggja greinarnar að
mestu við jörðu. Norð-
menn telja afbrigðið J.
squamata var.meyeri
þrífast vel í suðaustur
Noregi. Vert væri að
reyna bláeini hér víðar.
Ber hans eru rauðbrún.
Seyði af einiberjum var
fyrrum drukkið við gigt,
húðkvillum og sem þvag-
örvandi lyf, en varasamt
þótti það nýrnaveiku
fólki. Gegn ofsakláða var
ráðlagt að lemja með
hlandblautum eini!
Einir var fyrrum út-
breiddari en nú. Hann var
sumsstaðar rifinn upp til
fóðurs og jafnvel kola-
gerðar er skógar þrutu.
I.D.
Þessar fróðlegu grein-
ar um „jólarunnann“
eini, sem okkar góðkunni
grasafræðingur Ingólfur
Davíðsson tók að sér að
skrifa fyrir þáttinn
verða þær síðustu á þessu
ári — að undanskilinni
skrá um blóm vikunnar
1979 sem birt mun verða
nálægt áramótum.
GleÖileg jól!
Skúfur af Juniperus sabina — sevenbom