Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
Landsins mesta úrvai af
Til afþreyingar
Allt tíl hljómflutnings fYrír:
HEIMILIO - BÍUNN
OG
D/SKÓTEKIÐ
ffi |. . | | ! (
J ' ■ \ nr.
| ARMULA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVIK SIMAR: 31133 83177 POSTHÖLF 1366
Jólaplata
Hamrahlíðarkórsins
„LJÓS OG HLJOMAR"
fæst í öllum hljómplötuverzlunum og í
Tónverkamiðstöðinni, Freyjugötu 1.
pS Hittumst
| dag Hamrahlíöarkórinn.
Ken Follett: NÁLARAUGA. 308
bls. Sidney Sheldon: BLÓÐ-
BÖND. 288 bls. Frank G.
Slaughter: DYR DAUÐANS. 252
bls. Þýð. Hersteinn Pálsson.
Bókaforl. Odds Björnssonar. Ak-
ureyri, 1979.
FRÁ og með kalda stríðinu hafa
njósnasögur verið fyrirferðar-
miklar á skemmtibókamarkaði.
Nærri lætur að þær hafi tekið við
af gömlu sakamálasögunum, reyf-
urunum, að minnsta kosti öðrum
þræði. Sú dul og spenna og leynd
sem umlykur njósnarann heillar
marga. Skáldskapurinn nærist á
raunveruleikanum. Og ærnar hafa
fyrirmyndir gefist undanfarna
áratugi: á hverju ári hafa einhvers
staðar komið upp meiri háttar
njósnamál sem fjölmiðlar hafa
blásið út sem heimsfréttir. En
síðari heimsstyrjöldin hefur líka
reynst njósnasagnahöfundum
drjúg uppspretta þó langt sé liðið
frá lokum hennar.
Nálarauga, sem Hersteinn
Pálsson hefur þýtt, gerist í Bret-
landi í seinni heimsstyrjöldinni og
styðst við raunverulegt efni að
nokkru leyti: Skömmu fyrir inn-
rásina í Frakkland var komið upp
gerviherbúðum í Austur-Anglíu í
Englandi. »Tilgangurinn var að
blekkja óvinina, svo að þeir byggj-
ust við innrás í Calais-hérað, og
árásin í Normandie kæmi á óvart,
þegar gengið yrði á land þar.«
Þjóðverjar uppgötvuðu blekk-
inguna og gerir Ken Follett sér í
hugarlund í sögu þessari hvernig
þeir hafi farið að því — með hjálp
njósnara á breskri grund.
Sagan er harðneskjuleg eins og
títt er um nútímarómana af þessu
tagi, morð og kynlíf í sterkum
skömmtum, leynilögregla á eftir
þrjótinum, hann á flótta, bardag-
ar, harðbrák ýmiss konar, misk-
unnarleysi og kaldrifjað tilfinn-
ingaleysi í bland við einhvers
konar lífsáfergju.
Þess er getið í kápuauglýsingu
að »sagan hefur þegar verið kvik-
mynduð.« Af sjálfu leiðir. Fyrst
maðurinn er endanlega horfinn úr
laufþykkni frumskógarins inn í
stofuna heima hjá sér verður hann
að fá þetta, sem hann skyldi eftir í
skóginum, á sjónvarpsskerminum
eða á hvíta tjaldinu: blóð og hasar!
Þannig lifir hann áfram sínu
frumskógalífi — í huganum.
Bókaforlag Odds Björnssonar
vandar jafnan valið á skemmti-
bókum sínum og hygg ég þessi sé í
betri röð slíkra sem út koma fyrir
þessi jól. Að minnsta kosti er
sagan spennandi.
Blóðbönd er dálítið annars eðl-
is. »Hér er allt í senn,« segir í
Bókmenntir
eftir ERLEND
JÓNSSON
kápuauglýsingu, »ástarsaga, saka-
málasaga og leynilögreglusaga.«
Sidney Sheldon dreifir þessu öllu
innan um textann í útreiknuðum
hlutföllum og reynir ekki eins
mikið á þolinmæði lesandans og
gert var í gömlu skemmtisögunum
þegar allur veigur efnisins var
fólginn í endinum og söguþráður-
inn var eins og flækja sem þá
fyrst leystist. Hér er alltaf eitt-
hvað á seyði.
Þá er það Dyr dauðans eftir
Slaughter.
Frank G. Slaughter er orðinn
hér gamalkunnur. Þrjátíu ár og
einu betur éru liðin síðan Líf í
læknis hendi kom út. Sú bók var
feikivinsæl á sínum tíma og hafði
raunar varanleg áhrif á bók-
menntasmekk íslendinga því eftir
það tóku íslenskar skáldkonur að
senda frá sér hverja bókina á
fætur annarri um lækninn og
hjúkrunarkonuna. Og alla tíð
síðan hefur margur beðið með
óþreyju hverrar nýrrar bókar eftir
Slaughter.
Slaughter lýsir jafnan ýmsum
störfum lækna, andblænum á
sjúkrahúsum og sömuleiðis því
sem læknar og hjúkrunarkonur
taka sér fyrir hendur í frístund-
um. Það er alltaf einhver vísinda-
og sérfræðingasvipur yfir sögum
hans. Einnig — og því má síst
gleyma — er Slaughter einkar
lagið að fjölyrða um samband
læknis og sjúklings — karllæknis
og kvensjúklings! Sögur hans eru
því ástarsögur þó svo að utan um
þær sé talsverður rammi af öðru
efni. Hersteinn Pálsson hefur þýtt
allar þessar skáldsögur. Hann
mun nú vera orðinn mikilvirkast-
ur íslenskra þýðenda fyrr og síðar.
Sögur af þessu tagi uppfylla
vissa lestrarþörf. Þeir, sem taka
sér þær í hendur, spyrja hvorki
um bókmenntagildi né lífssann-
indagildi — heldur afþreying.
Þessar bækur gera því hvorugt: að
standa í veginum fyrir öðru les-
efni né ryðja öðrum bókum úr
braut. Þær skemmta fólki en villa
ekki á sér heimildir.
Miðnæturmessa
á jólanótt
Á jólanótt kl. 23.30 verð-
ur miðnæturmessa í Há-
teigskirkju. Verður þatlutt
fyrsta kantatan úr jólaóra-
tóríum eftir J.S. Bach.
Messan er þannig að vissu
leyti sett í umgjörð þessar-
ar kantötu, sem tilheyYir
jólanóttinni. Að öðru leyti
verður messan með hefð-
bundnum hætti.
Þetta er í fyrsta sinn,
sem miðnæturmessa er
flutt í Háteigskirkju og
sömuleiðis í fyrsta sinn,
svo vitað sé, sem þessi
jólanæturkantata J.S.
Bachs er flutt hér á landi
sem hluti og umgjörð
messunnar, en vera má að
það hafi verið gert með
%
líkum hætti á dögum
Bachs í Tómasarkirkjunni
í Leipzig. (Frá Háteigs-
kirkju).