Morgunblaðið - 22.12.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
Ég viðurkenni að við þessar
aðstæður var þetta allt saman
heldur óheppilegt og Framsóknar-
flokkurinn kemur svo sem ekki
með neinn geislabaug frá kosning-
unum á Alþingi."
Steingrímur Hermannsson kemur af fundi forseta íslands í gærmorgun, þar sem
hann skilaði aftur stjórnarmyndunarumboðinu. Steingrímur gekk á fund forseta
eftir stuttan fund vinstri flokkanna, þar sem hann tilkynnti viðræðuaðilunum þá
ákvörðun sína að hætta vinstri viðræðunum. . iAsni Mm Emiiu
Þá var Steingrímur spurður að
því, hvort Framsóknarflokkurinn
hefði ekki gert sitt til að hella olíu
á eldinn með því að hafna þeirri
tillögu að kosningar á Alþingi
færu að þingstyrk flokka og
mynda síðan kosningabandalög á
þingi. „Við og Alþýðubandalagið
höfnuðum upphaflegri tillögu
Benedikts vegna þess að okkur
fannst hún gefa til kynna mögu-
leika á samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn. Ef eftir henni hefði verið
farið, þá tel ég að það hefði gert
trú manna á vinstra samstarf
minna. Ég tek fram, að persónu-
lega treysti ég Geir Hallgrímssyni
fullkomlega til þess sem formanni
utanríkismálanefndar að fara
samvizkusamlega með mál eins og
til dæmis Jan Mayen málið. En
formennska hans er engu að síður
dálítið ankannaleg fyrir vinstra
samstarf.
Steingrímur Hermannsson:
XJ tiloka
ekki
Steingrímur Hermannsson af-
henti á fundinum með forseta
íslands í gærmorgun eftirfarandi
greinargerð:
„Undanfarnar tvær vikur hefi
ég gert ítarlega tilraun til mynd-
unar ríkisstjórnar Framsóknar-
flokks, Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks.
Á viðræðufundum fulltrúa þess-
ara flokka hefi ég lagt áherslu á að
kanna hvort grundvöllur er til
samstarfs um markvissar aðgerðir
í efnahagsmálum, sem ég tel
brýnasta verkefni ríkisstjórnar.
Eftir þær umræður og einhliða
viðræður við fulltrúa Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks í gær,
vinstra samstarf
„ÞAÐ er áfram bjargföst skoðun mín, að þessir þrír flokkar eigi svo margt sameiginlegt, að þeir eigi
að geta starfað saman. Allt eru þetta jafnaðarflokkar. Auðvitað er um vissan ágreining að ræða, en í
ástandi eins og nú er, tel ég að þessum flokkum beri að leggja þann ágreining til hliðar,“ sagði
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins á blaðamannafundi eftir að hann hafði i
gærmorgun gengið á fund forseta íslands og skilað stjórnarmyndunarumboðinu. „Það sýndi sig í
kosningunum að kjósendur þessara þriggja flokka vilja stjórn þeirra áfram. En ég hef alltaf sagt að
til þess að af henni geti orðið, þurfi að vera skilningur og vilji, og því er ekki að neita að töluverð
tortryggni og efasemdir um slíkt samstarf eru innan Alþýðuflokks og Alþýðubandalags að minnsta
kosti eins og er.“ Sagðist Steingrímur alls ekki vilja útiloka það, að af samstarfi vinstri flokkanna
gæti orðið, þótt þessi tilraun hefði farið út um þúfur.
Um stjórnarmyndunarviðræður
vinstri flokkanna sagði Steingrím-
ur, að tillögur Alþýðuflokksins
féllu mjög að tillögum Framsókn-
ar. Framsóknarmenn teldu þó
hættulega mikla samdráttartil-
hneigingu í tillögum krata og
óttuðust atvinnuleysi ef svo skarpt
yrði dregið saman, sem kratar
vildu. Þá vantaði í tillögur Al-
þýðuflokksins ákveðin mörk varð-
andi verðlagsmál og launamál,
sem að hans mati væri „talsvert
gat“, en hins vegar segðust kratar
vera hlynntir áföngum í þessum
málum og þá væri hægt að fá fram
mat á því. í heild sagði Steingrím-
ur, að honum sýndist að verulegu
leyti um að ræða bitamun en ekki
fjár milli tillagna Framsóknar og
Alþýðuflokks. Hins vegar mætti
ekki horfa fram hjá því, að fleiri
mál en efnahagsmál væru til og
nefndi hann landbúnaðarmál og
sjávarútvegsmál sem dæmi um
málaflokka þar sem „ef til vill er
miklu meiri ágreiningur" milli
framsóknarmanna og krata.
Um tillögur Alþýðubandalags-
ins sagði Steingrímur að þær
hefðu að hans mati ekki verið
nærri nógu ítarlegar. „Af reynsl-
unni í síðustu ríkisstjórn sagði ég
strax í upphaíi viðræðnanna við
formenn Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags, að ég vildi varða mjög
leiðina að hjöðnun verðbólgunn-
ar,“ sagði Steingrímur. „Festa alla
enda, eins og ég hef líka sagt.
Undir þetta tóku báðir flokks-
formennirnir."
Sagðist Steingrímur hafa lagt
áherzlu á, að ef af stjórnarsam-
starfi ætti að verða, yrðu flokkar
að vera sammála um, hvar mörk
hinna einstöku þátta ættu að
liggja.
„Endapunkturinn er svo alltaf
kjaramálin. Vilja menn til dæmis
veita einhverja kaupmáttartrygg-
ingu. Við framsóknarmenn erum
tilbúnir til þess að tryggja ákveðið
kaupmáttarstig út 1980. Þá verður
að liggja fyrir, hvað langt upp
launastigann menn vilja fara, því
að það er ekki hægt að fara alla
leið upp úr. Menn verða því að
segja til um, hvaða kaupmátt þeir
vilja tryggja og hversu langt upp
það á að ná.
Ég get sagt það, að í einkavið-
ræðum mínum við menn í laun-
þegahreyfingunni hafa þeir lýst
mjög miklum vilja til að skoða
þetta mál.“
Steingrímur sagði, að það
hversu ófullkomnar tillögur Al-
þýðubandalagsins hefðu verið,
hefði komið í veg fyrir að hann
hefði getað unnið stjórnarmynd-
unartilraun sína, eins og hann
hefði ætlað sér. „Við framsókn-
armenn getum tekið undir ýmis-
legt í almennum tillögum Alþýðu-
bandalagsins. En það vantaði
nákvæmari stefnumörkun í efna-
hagsmálum. Þeir hafa lýst vantrú
á útreikningum og sagt að slíkir
útreikningar stæðust illa. Það er
að vísu ýmislegt til í því. Við
eigum bara ekki annars kost en að
grípa til útreikninga. Efnahags-
dæmið er svo flókið, að það fer
enginn í gegn um þann moðreyk á
ímyndunaraflinu einu saman."
Þá var Steingrímur spurður að
því, hvort samkomulag hefði verið
komið milli vinstri flokkanna um
einhver málefni. Hann sagði við-
ræðurnar svo til eingöngu hafa
snúizt um efnahagsmálin. „Sums
staðar ber mjög lítið í milli, en
annars staðar meira. Um algjört
samkomulag á einhverjum punkti
treysti ég mér ekki að segja. Allt
er þetta bundið við heildarsam-
komulag og þá vilja menn ef til
vill slaka á einum punkti og herða
á öðrum á móti.“
Kvaðst Steingrímur þó geta
nefnt verðlagsmálin sem dæmi um
málaflokk, þar sem lítill ágrein-
ingur hefði verið um hámark á
verðhækkunum og allir hefðu
flokkarnir verið sammála um að
leysa ójöfnuð upphitunarkostnað-
ar að verulegu leyti utan fjárlaga-
dæmisins, með tímabundnum við-
bótarskatti.
„Þegar búið er að ræða málin
vítt og breitt, eins og við gerðum,
þá er nauðsynlegt að fá ákveðið
fram, hvað menn vilja og ég bauð
upp á það að menn gerðu þetta
annað hvort með skriflegum at-
hugasemdum við tillögur okkar
framsóknarmanna eða með eigin
tillögum," sagði Steingrímur. „Það
kom í ljós að sem stendur eru
menn ekki tilbúnir til ákveðins
samstarfs um markvissar aðgerðir
í efnahagsmálunum. Á því strand-
aði þessi stjórnarmyndunartil-
raun mín.“
Steingrímur var þá spurður að
því, hvort kosningar á Alþingi
hefðu að hans mati haft áhrif á
gang stjórnarmyndunarviðræðna.
„Það verður að segjast eins og er,
að eins og ástatt var á milli
þessara tveggja flokka, Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags, þá
voru stjórnarmyndunarviðræður
nánast vonlausar.
Alþingi ber skylda til að ganga
frá sínum málum án tillits til
ríkisstjórnar. Þetta eru reyndar
aðskildir hlutir, en þeir voru það
ekki. Og kosningar á Alþingi ýfðu
upp ágreininginn milli Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags. Ég tel
áhrif kosninganna á stjórnar-
myndunartilraunina hafa verið til
hins verra, en efast um að þær
hafi haft úrslitaáhrif."
hefi ég komist að þeirri niðurstöðu
að ekki muni að svo stöddu vera
grundvöllur til slíks stjórnarsam-
starfs.
Því hefi ég ákveðið að skila
forseta íslands því umboði, sem
hann veitti mér 5. desember sl. til
myndunar meirihlutastjórnar,
þannig að forseti geti án tafar
ákveðið næstu tilraun til myndun-
ar starfhæfrar ríkisstjórnar."
Steingrímur var spurður að því,
hvort þessi endalok vinstri við-
ræðnanna breyttu áliti hans á
hugsanlegu samstarfi Framsókn-
ar og Sjálfstæðisflokks. „Ég tel
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn
vægast sagt mjög ólíklegt," svar-
aði Steingrímur. „Við framsókn-
armenn vinnum af heilindum í
hverri þeirri ríkisstjórn sem við
göngum til, en stefna Sjálfstæðis-
flokksins í efnahagsmálum er svo
víðs fjarri því, sem við getum sætt
okkur við.“ Steingrímur gat þess
að fyrri ummæli hans í garð
Sjálfstæðisflokksins hefðu leitt af
sér margs konar viðbrögð, en hann
teldi þau sannleikanum samkvæm.
Sagði hann það „ekki eðli fram-
sóknarmanna að vinna með sjálf-
stæðismönnum". „Þetta er bara
staðreynd," sagði Steingrímur og
kvaðst viss um, að ef kjósendur
Framsóknarflokks yrðu spurðir,
þá mundu 90% þeirra vera á móti
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
„Þetta er ef til vill sálrænt," sagði
Steingrímur. Um þjóðstjórn sagði
Steingrímur, að ef samstaða næð-
ist um efnahagsmálin, þá gæti
hún verið ágætur kostur. „En ég
taldi ekki meiri líkindi á málefna-
samstöðu í þjóðstjórn en stjórn
þessara þriggja flokka og því taldi
ég tímasóun að láta reyna á
þjóðstjórnarmöguleikann."
Þá var Steingrímur spurður
álits á stjórnarmöguleikum, ef
ekki tækist að mynda meirihluta-
stjórn. „Ef það tekst ekki, tel égað
minnihlutastjórn komi vel til
greina," svaraði Steingrímur.
Kvaðst hann hvorki vilja útiloka
samstarf Framsóknar og Alþýðu-
flokks og heldur ekki samstarf
Framsóknar og Alþýðubandalags.
„Og ég útiloka heldur ekki minni-
hlutastjórn Framsóknarflokksins
eins, ef til kæmi,“ sagði
Steingrímur Hermannsson.
Innanlands-
flug í eðli-
legt horf
ALLT innanlandsflug Flugleiða
var með eðlilegum hætti í gær-
dag, nema hvað ekki var flogið til
Vestfjarða vegna veðurs, en ekk-
ert hafði verið flogið daginn áður
vegna vonzkuveðurs sem gekk
yfir landið.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa Flugleiða var búist
við því að allir þeir farþegar sem
biðu víðs vegar um landið eftir
flugfari kæmust á leiðarenda í
gær og í dag. Búist væri við því að
veður gengi niður á Vestfjörðum í
dag og ættu samgöngur því að
komast í eðlilegt horf þar í dag.
Útlit fyrir
ágætt veður
víða um land
ÓVEÐUR það sem gekk yfir
stóran hluta landsins í fyrradag
og í gær er nú að mestu gengið
niður að sögn Braga Jónssonar
veðurfræðings hjá Veðurstofu
íslands.
Aðspurður um veðurútlit um
helgina og í byrjun næstu viku
sagði Bragi að eins og dæmið liti
út í dag yrði norðanátt á öllu
landinu á sunnudag og jafnvel
fram i vikuna. Léttskýjað yrði því
á Suður- og Vesturlandi og nokkru
kaldara en í dag. Hins vegar
mætti búast við éljagangi á Norð-
ur- og Norðausturlandi og kóln-
andi veðri.
Líklegt að vél-
in hafi flogið
í jörðina vegna
lélegra skilyrða
„VIÐ höfum enn ekki lokið
rannsókninni á flugslysinu
á Mosfellsheiði þar sem fjög-
urra sæta Cessna brotlenti,
en það bendir hins vegar allt
til þess að flugmaðurinn
hafi verið að reyna sjónflug
við mjög léleg skilyrði og
hreinlega flogið vélinni í
jörðina,“ sagði Skúli Jón
Sigurðarson hjá loftferðaeft-
irlitinu er Morgunblaðið
innti hann eftir framgangi
rannsóknar á flugslysinu á
þriðjudag.
Bókabíllinn
skemmdist af
völdum elds
AÐFARANÓTT 19. desember 8.1.
kviknaði í einum bókabil Borgar-
bókasafns Reykjavikur út frá
rafkerfi hans. Hann gengur und-
ir nafninu „Stubbur“. Töluverðar
skemmdir urðu og mun viðgerð
hans taka a.m.k. þrjár vikur.
Bíllinn hefur sinnt ýmsum
hverfum bæjarins og verður þar
enginn bíll á næstu vikum. Hverf-
in eru Háaleitishverfi, Holt,
Hlíðar, Laugarás, Laugarnes-
hverfi, Sundahverfi, Túnahverfi,
Vesturbær og einum stað í Breið-
holti, þ.e. við verzlunina Kjöt og
fisk á föstudögum.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
ADALSTRÆTI • SÍMAR: 17152-17335