Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 24
__________________________________________________________________________________________________________________________________ >■ 24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 Tilraun Steingríms Hermannssonar til myndunar vinstri stjórnar hefur mistekist. Hann hefur skilað forseta Islands aftur því umboði, sem honum var veitt til að reyna myndun ríkisstjórnar, er styddist við meirihluta á Alþingi. • Steingrímur leitaði ekki eftir samstarfi við aðra en þá, sem í eitt og hálft ár hafa með hörmungum veitt landinu forystu. Þegar Steingrímur hélt tilraunastarfseminni áfram endurnýjaður eftir hagstæð kosningaúrslit, var það öllum Ijóst nema einföldustu framsóknarmönnum, að hann myndi fyrr en síðar lenda í öngstræti. í stjórnarmyndunarviðræðunum hefur það sannast eins og á þrettán mánaða ferli síðustu vinstri stjórnar, að það er einskonar óttatilfinning, sem heldur þríflokkunum saman. Til marks um þetta má nefna yfirlýsingu sem kommúnistar lögðu fram á viðræðufundi þeirra 19. desember s.l. og birt var hér í blaðinu í gær. Þar segir um efnahagsstefnu Framsóknarflokksins, að henni hafi verið hafnað af Alþýðubandalaginu. Og um Alþýðuflokkinn segir „flokkurinn vill ekki vinstri stjórn og gerir allt sem hann getur til að torvelda vinstra samstarf á Alþingi.“ En plaggi kommúnista lýkur síðan með þessum orðum: „En formaður Framsóknarflokksins, sem falið hefur verið að reyna stjórnarmyndun, verður að meta og ákveða, hvort viðræðum verði haldið áfram.“ Ótti Alþýðubandalagsins lýsir sér í því, að þrátt fyrir vonlausar viðræður, þorir það ekki að slíta þeim. Formaður Framsóknarflokksins sá svo að sér og skilaði umboðinu við svo búið. Um ótta Alþýðuflokksins nægir að vitna til umbrota þeirra í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar, þar sem þeir voru á nokkurra mánaða fresti að gera það upp við sig, hvort þeir ættu að hrökkva eða stökkva. Þegar vinstri stjórnin var mynduð sumarið 1978 var það forystusveit Verkamannasambands íslands, sem stóð með vöndinn yfir þríflokkunum og ógnaði þeim til samvinnu. Þær stjórnarmyndunarviðræður gengu þannig fyrir sig, að hver flokkurinn tók við af öðrum og að lokum var það óttinn, sem rak þá saman, en málefnaleg samstaða náðist aldrei eins og strax kom í ljós, eftir að stjórnin hafði verið mynduð. Verkalýðsrekendur Alþýðu- bandalagsins hafa lítið látið eftir sér hafa um landstjórn- ina undanfarna daga, enda eru þeir önnum kafnir við að reyna að ná sáttum fyrir næstu kjararáðstefnu Alþýðu- sambands Islands, sem frestað var vegna ágreinings 8. desember til 11. janúar n.k. að beiðni forystumanna Verkamannasambandsins. Daginn eftir að Steingrími Hermannssyni var heimilað að reyna stjórnarmyndun var á það bent hér í blaðinu, að forysta Framsóknarflokksins væri tvískipt og síðan sagt: „Ólafur Jóhannesson mun bíða átekta og sjá hvernig fram vindur. Honum væri það ekki á móti skapi, að Steingrímur missti fótanna á svellinu. Þá gæti Ólafur siglt inn í tómarúmið eins og honum er lagið.“ Hér er þetta ítrekað til að minna á, að sá möguleiki er vissulega enn fyrir hendi að haldið verði áfram tilraunum til myndunar vinstri stjórnar ekki aðeins undir forystu annars flokks en Framsóknarflokksins heldur einnig undir leiðsögn „ókrýnds foringja“ framsóknarmanna. Hann hefur haft undarlega hægt um sig eftir kosningar. Hvað sem þessu líður er rökrétt, að forseti íslands snúi sér næst til Geirs Hallgrímssonar formanns Sjálfstæðis- flokksins og veiti honum umboð til að mynda meirihluta- stjórn. Geir á erfitt verk fyrir höndum, því að svo virðist, sem hann verði að leita nýrra leiða eigi honum að takast slík stjórnarmyndun. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. Um refilstigu stjórn- armyndunarvióræðna Fyrsta þætti stjórnamyndun- arviðræðnanna er lokið. For- seti íslands mun nú velja nýjan mann til að mynda ráðuneyti, er nýtur meirihlutastuðnings á Al- þingi. Fyrir valinu verður Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, annað væri órökrétt. Því var almennt spáð, þegar Steingrímur Hermanns- son hóf tilraunir sínar til að mynda vinstri stjórn, að það tækist ekki. En með afdráttar- lausum yfirlýsingum sínum fyrir og eftir kosningar hafði Steingrímur útilokað aðra stjórnarmöguleika undir sinni forystu en vinstri stjórn. Þar sem menn sáu almennt, hve vonlaust ætlunarverk Stein- gríms var, skapaðist aldrei nein eftirvænting og spenna meðal almennings í kringum tilrauna; starfsemi hans. Menn biðu helst eftir því að sjá, hvernig Steingrími sjalfum reiddi af í þessari frumraun sinni sem flokksformaður. Óhætt er að fullyrða, að almennt hafi hann ekki aukið hróður sinn á þeim rúma hálfa mánuði, sem hann hefur stjórnað vinstri viðræðun- um. Það viðræðuform, sem Stein- grímur valdi, er eins konar sjónarspil. Skipaðar eru við- ræðunefndir. Þær koma saman til fundar á auglýstum tíma. Þegar menn hafa ræðst við gefa þeir yfirlýsingar bjartsýnar, svartsýnar eða svo tvíræðar, að stjórnvitringar þurfa marga kaffifundi á Borginni til að skilgreina þær og skilja. Skrif- legar tillögur eru lagðar fram, arsviðinu eða höfðu dregið sig í hlé. Nýjum mönnum fylgdu nýj- ar aðferðir. Tímarnir höfðu einnig breyst. Krafan um meira upplýsingastreymi og fréttir var orðin almenn. Sú pólitíska víðsýni í blaðamennskunni, sem hófst hér í Morgunblaðinu, hafði breiðst út og gat ekki þrifist nema með auknum pólitískum fréttaflutningi. Tilkoma sjón- varpsins heimtaði, að eitthvað myndrænt yrði sett á svið og þótt furðulegt megi virðast, þyk- ir það fréttnæmt í þeim miðli að sýna menn ganga til og frá fundi eða heilsast og setjast við fund- arborð. Formlega sjónarspilið leysti þv«nargan vanda. Forsenda þess, að traust stjórn sé mynduð, er, að trúnaður skapist milli þeirra, sem við stjórnvölinn standa. Mjög ólíklegt er, að sá trúnaður verði til á formlegum nefndar- fundum, þar sem menn eru undir fjölmiðlasmásjánni. Aður fyrr fóru stjórnarmyndunarviðræður fyrst og fremst fram í einka- samtölum manna á meðal og auðvitað eiga þau sér stað enn í dag, en sá er munurinn frá því sem áður var, að í einkasamtöl- unum leystu menn málin. Form- legheitin og bréfaskriftirnar voru aðeins til að staðfesta, að samningar hefðu tekist eða að samkomulag hefði ekki náðst. Sé farið 20 ár aftur í tímann og litið á aðdraganda þess að viðreisnarstjórnin var mynduð, þá er óhætt að fullyrða, að það tók langan tíma að skapa þann ómerkilegri söluvöru. í darrað- ardansi verðbólgunnar sjást þess merki, að rifrildi stjórn- málamannanna sé brauð og leik- ir fjölmiðlanna. Stjórnmála- mennirnir öðlast ekki tiltrú með því að vera sífellt að gaspra um einskis verða hluti. Hið nauðsyn- lega jafnvægi milli þess að flytja einungis litaðar flokksfréttir og opna allar flóðgáttir er smám saman að myndast. Geir Hallgrímsson fær nú umboð til að mynda meirihluta- stjórn. Vonandi fellur hann ekki í sömu gryfju og Steingrímur Hermannsson með því að skipa formlegar viðræðunefndir, þegar það er ótímabært, sem síðan sitja yfir andlausum talnadálk- um án nokkurs sýnilega árang- urs. Hér að framan var sagt, að engin eftirvænting hefði verið eftir niðurstöðu þeirra viðræðna, sem fram hafa farið undir stjórn Steingríms. Andrúmsloftið er annað, þegar Geir Hallgrímsson tekur við. Menn telja sig hafa fundið það, að hann muni ef til vill reyna nýjar leiðir. Hann hefur ekki útilokað neina mögu- leika og gengur ekki til verks einskorðaður við ákveðna flokka. Engin líkindi éru til þess, að Geir Hallgrímsson hefji taflið með því bjóða upp á þjóðstjórn. Kæmi til þess yrði strax spennu- fall. Hann getur varla lagt áherslu á samstarf við Fram- sóknarflokkinn, þar sem formað- ur þess flokks hlýtur þó enn að standa við orð sín um hve óhugsandi sé, að hann starfi með sem spanna allt efnahagskerfið og eiga að segja fyrir um þróun- ina. Þær eru sendar til eink- unnagjafar til Þjóðhagsstofnun- ar við Raúðarárstíg. Krafist er gagntillagna frá viðræðuaðilum. Þótt þær gangi þvert á frumtil- löguna, er haldið áfram að boða til formlegra viðræðufunda og látið í veðri vaka, að enn sé von ' um samkomulag. I þrettán mán- uði stunduðu Framsóknarflokk- ur, Alþýðubandalag og Alþýðu- flokkur þessi vinnubrögð í ríkis- stjórn, sem hafði þó verið mynd- uð að nafninu til að minnsta kosti. Og enn er haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Sú aðferð við stjórnarmynd- anir, að allt fari fram fyrir opnum tjöldum, hefur þróast á þeim áratug, sem nú er að kveðja. Sannast sagna er hún hvorki fljótvirk né árangursrík. Hún leiðir síður en svo til festu í landstjórninni og grefur undan trausti í samskiptum stjórn- málaleiðtoga. Síðustu dagar hafa til dæmis sýnt, að það skiptir litlu, þótt menn sitji kvölds og morgna á trúnaðar- fundum um nýja stjórn, því að um miðjan daginn berjast þeir um völd og áhrif í þingsölum og reyna að klekkja hver á öðrum við nefndarkjör. Þessum leikara- skap verður að linna. Ástæðurnar fyrir þeim vinnu- brögðum, sem tíðkast hafa síðan 1971 eru vafalaust margar. Hafa ber í huga, að það ár kom fyrst til stjórnarkreppu eftir 12 ára hlé viðreisnar. Þeir stjórnmála- leiðtogar, sem verið höfðu í forystu öll lýðveldisárin og sum- ir lengur, voru horfnir af sjón- trúnað milli forystumanna Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks, sem síðan blómstraði á löngum ferli stjórnarinnar. Þessi samstarfsvilji þróaðist í einkasamtölum fyrst milli Ólafs Thors og Emils Jónssonar og síðan bættust fleiri í hópinn. Þegar menn höfðu samfærst um staðfestu gagnaðiljans var í kyrrþey hafist handa um sam- eiginlegu stefnumótunina. Til haustkosninganna 1959 var síðan gengið í því andrúmslofti, sem stjórnmálamennirnir höfðu skapað, og ný ríkisstjórn var mynduð án nokkurrar stjórn- arkreppu. Hefðu fjölmiðlar fylgst með hverju skrefi á undirbúnings- tímanum, hefðu þátttakendurnir í „leiknum" vafalaust afneitað aðild sinni opinberlega og trúnaður hefði brostið. Þau vinnubrögð sem hér er lýst eiga ekkert skylt við leynimakk eða pukur, enda komast stjórnmála- menn ekki upp með slíka hluti, þar sem þeir verða ávallt að vera við því búnir að hlíta dómi kjósenda. í hvaða félagsskap sem menn starfa er þeim ljós einföld nauðsyn trúnaðarsam- bands. Ágengni fjölmiðla var áður nefnd sem ein af höfuðorsökum breyttra vinnubragða. í því efni nægir ekki að líta einungis á aðgangshörku blaðamanna. Hitt er ekki síður mikilvægt, að stjórnmálamennirnir kunni að umgangast fjölmiðlana. Milli þessara aðila þarf að ríkja gagn- kvæmt traust. Blaðamenn mega ekki falla í þá gryfju að gera pólitískar skylmingar að sjálfstæðismönnum. Viðreisnar- stjórn hefur ekki meirihluta í báðum þingdeildum. Fleiri möguleikar verða ekki taldir, enda hafa þeir allir verið tíund- aðir rækilega hér í blaðinu í vikunni. Takist Geir að mynda meirihlutastjórn verður um nýtt stjórnarmynstur að ræða, sé miðað við síðustu 30 ár. Með hliðsjón af því virðist óhjákvæmilegt, að hann hverfi frá þeim vinnubrögðum, sem tíðkast hafa við stjórnarmynd- anir á þessum áratug. Of mikil óþolinmæði á lítinn rétt á sér við þessar aðstæður og varla getur allt farið fram fyrir opnum tjöldum. Eðlilegasti fram- gangsmátinn væri sá, að fram færu einkaviðræður milli stjórn- málaleiðtoga og til þess sé ætlaður hóflegur tími. Til form- legra funda yrði síðan efnt á síðari stigum, ef ástæða þætti til. Auðvitað er tíminn ekki ótakmarkaður og æskilegast væri, að frá upphafi lægi fyrir, hvað mörgum dögum ætti að verja til óformlegra viðræðna. Hér er ekki ætlunin að kyrja þann gamla söng, að stjórnmála- mennirnir séu ómögulegir og Alþingi til lítillar sæmdar, nógu margir aðrir finna sig knúna til þess. I lokin skal aðeins spurt: Hvað halda menn, að margar stofnanir í landinu þyldu að vera undir þeirri smásjá, sem Alþingi hefur verið undanfarin umbrota- ár, án þess. að ýmislegt aðfinnsluvert fyndist? Myndi menntakerfið, tryggingakerfið eða verkalýðshreyfingin þola það, svo þrjú dæmi séu tekin. Björn Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.