Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
Þorskveiðitakmarkanir á næsta ári:
Aðgerðirnar miðist við
300 þús. tonna ársafla
Sjávarútvegsráðherra hélt í
morgun fund með hagsmunaaðil-
um í sjávarútvegi og fuiltrúa
Hafrannsóknastofnunar og
Fiskifélagsins varðandi viðhorf
og stefnumörkun í þorskveiðum
á næsta ári.
Á fundinum rakti ráðherra
helstu valkosti í takmörkun veið-
anna. Fulltrúar ýmissa hags-
munaaðila létu i ljós þá skoðun
að beita ætti svipuðum aðferðum
og á þessu ári.
Þá skýrði ráðherra frá því að
Hafrannsóknastofnunin mælti
með því að þorskafli á næsta ári
færi ekki yfir 300 þús. tonn.
Jafnframt lagði hann fyrir fund-
inn til íhugunar eftirfarandi
grundvallaratriði varðandi mótun
þorskveiðitakmarkana á næsta
ári:
1. Aðgerðirnar miðist við 300 þús.
tonna ársafla og ákveðna við-
miðun um hvernig sá afli skipt-
ist milli togara og báta, t.d.
helmingaskipti.
2. Við mótun takmarkananna
verði lagt til grundvallar tiltek-
ið árstíðamynstur í aflabrögð-
um og athugaðir möguleikar á
viðbrögðum í takmörkunum
eftir því hvernig aflast í sam-
anburði við það mynstur, t.d.
þannig að ef afli færi fram úr
viðmiðuninni á einu tímabili
yrði brugðist við því með aukn-
um takmörkunum á næsta
tímabili á eftir.
Loks minnti ráðherra á að
vissar takmarkanir hefðu unnið
sér hefð, eða komið hefðu fram
ályktanir með ábendingum um
þær, og ætti að vera unnt að fella
þær inn í heildaraðgerðirnar. Af
þessu tagi eru sérstaklega eftir-
farandi atriði: þorskveiðar verði
alfarið bannaðar um páska, versl-
unarmannahelgi og jól og þorsk-
veiðar togara verði sérstaklega
takmarkaðar um hásumarið.
Að lokum var ákveðið að fljót-
lega yrði boðað til annars sam-
ráðsfundar enda yrði á meðan
unnið að stefnumörkun á þessum
grundvelli. (Fréttatilkynning frá
Sjávarútvegsráðunrytinu).
Ljosm. Arnór.
LITLU JÓLIN í GARÐINUM. í gær voru litlu jólin í leikskóla Geínarborgar. Var þá meðal annars
gengið í kringum jólatréð en jólasveinninn lét ekki sjá sig að þessu sinni. Kemur það væntanlega til af
því hve sum barnanna urðu hrædd við hann í fvrra.
Veður
víða um heim
Akureyri 2 alskýjaó
Amsterdam 5 sólskin
Aþena 17 skýjaó
Barcelon 5 skýjað
Berlín 1 skýjaó
BrUssel 3 skýjaó
Chicago 6 skýjaö
Denpaaar, Bali 33 skýjað
Dublin 4 bjart
Feneyjar 5 súld
Frankfurt 3 sólskin
Genf 1 skýjaó
Helsinki 0 skýjaó
Hong Kong 24 heióskírt
Jerúsalem 14 skýjaó
Jóhannesarborg 26 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 bjart
Las Palmas 15 skúrir
Lissabon 11 sólskin
London 5 sólskin
Loa Angeles 19 skýjaó
Madríd 9 bjart
Mallorca 7 alskýjað
Malaga 8 skýjaö
Miami 22 skýjaö
Moskva 0 hálfskýjað
Nýja Delhí 22 sótskin
New York 1 skýjaó
Ósló -2 bjart
París 5 slydda
Rio de Janeiro 27 skýjað
Rómaborg 16 skýjað
Reykjavík -1 snjóél
San Fransisco 13 skýjaó
Stokkhólmur -5 skýjað
Sydney 31 rigning
Tel Aviv 18 skýjaö
Tókýó 17 skýjaó
Vancouver 11 skýjaó
Vínarborg 8 skýjaó
Askasleikir og
bræður hans í
máli og myndum
„ASKASLEIKIR, foringi jóla-
sveinanna, og bræður hans“
heitir lítil bók, sem kom í
bókaverzlanir nú rétt fyrir
jólin.
Höfundur er Ketill Larsen,
en nokkur ljóð eru í bókinni
eftir Jóhannes Benjamínsson.
Margar myndir prýða bókina
og hefur Lars Björk tekið þær
flestar. Letur hf. fjölritaði
kverið.
Vel fór á með þeim Carter Bandaríkjaforseta og Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Breta, þegar frúin var í heimsókn í Bandarikjunum
á dögunum.
Endurskoða fyrri
ákvarðanir um þak
á olíuinnflutning
Washington, BrUssel, Caracas.
Tókýó, 21. des. AP — Reuter.
OLÍURÁÐHERRAR OPEC-ríkja
héldu i dag frá Caracas án þess
að ná samkomulagi um olíuverð,
og er spáð að það eigi síður en
svo eftir að draga úr þeim
óróleika sem verið hefur á olíu-
mörkuðum, verði engar breyt-
ingar á eftirspurn.
Guido Brunner talsmaður Efna-
hagsbandalagsins (EBE) í orku-
málum sagði, að sú óvissa sem
ríkti eftir fundinn í Caracas þýddi
að lönd bandalagsins yrðu að
öllum líkindum að endurskoða
fyrri ákvarðanir um þak á olíu-
innflutning, með það í huga að
lækka það þak sem ákveðið hefur
verið. Sagði Brunner að óhætt
væri að spá því að hagvöxtur yrði
á núlli í löndum EBE þar sem
Opec-ríkin komust ekki að sam-
komulagi um sameiginlegt verð á
olíu.
Þá sagði Charles Duncan orku-
ráðherra Bandaríkjanna í dag að
sundurþykki olíuráðherra OPEC
ögraði efnahagsöryggi Bandaríkj-
anna.
Ohira forsætisráðherra Japans
sagði og í dag að Japanir yrðu að
minnka innflutning sinn á olíu um
sjö af hundraði í stað fimm eins og
fyrr hefði verið ákveðið.
Áreiðanlegar heimildir hermdu,
að Venezuela mundi innan
skamms tilkynna olíuverðshækk-
anir.
Skæruliðahringur rof-
inn á Vesturbakkanum
Tcl Aviv, 21. des. AP.
ÍSRAELSKAR öryggissveitir af-
hjúpuðu á dögunum skæruliða-
hring á Vesturbakkanum, að því
er talsmaður herstjórnarinnar í
Tel Aviv kunngcrði í kvöld. Hann
sagði að ísraelar hefðu fundið
mikið magn sprengiefna og vopna
í hellum og kofum í ýmsum
þorpum í grennd við bæinn Ram-
allah, en þar hefur löngum verið
ókyrrt.
Ekki var greint frá því hversu
margir hefðu verið handteknir en
látið var að því liggja að þar hefðu
verið á ferðinni allmargir ungir
Arabar sem hefðu verið félagar í
A1 Fatah-samtökunum. Að sögn
ísraelskra blaða hafa ýmsir þeirra
viðurkennt að hafa staðið fyrir
skemmdarverkum í Jerúsalem og
víðar í ísrael, svo og iðulega á
Vesturbakkanum.
Tugir létust í bílslysi
Manilla, 21. des. AP.
BJÖRGUNARSVEITIR náðu 43
líkum út úr fólksflutningabifreið
sem ók út af vegi og lenti ofan í
fljóti norður af Manilla á föstu-
dagsmorgun. Ekki er vitað með
vissu hversu margir voru með
vagninum en tíu manns komust af
lifandi.
Afrýjun
neitað
Vtnarborg, 21. des. AP.
HÆSTIRETTUR í Tékkóslóvakíu
vísaði í dag á bug áfrýjunarbeiðni
fjögurra baráttumanna mannrétt-
inda þar í landi. Einn þeirra sem
áfrýjað hafði var leikskáldið
Vaclav Havel. Úrskurður þessi var
kveðinn upp eftir sextán klukku-
stunda fund.
Havel var dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi, Peter Uhl í fimm
ára fangelsi og blaðamennirnir Jiri
Dienstbier og Otta Bednarova í
þriggja ára fangelsi. Allt þetta fólk
hefur verið framarlega í mannrétt-
indabaráttunni í Tékkóslóvakíu,
eins og margsinnis hefur verið sagt
frá.
Þetta gerðist
1975 — Umsátrinu um aðal-
stöðvar OPEC í Vín lýkur;
hryðjuverkamenn taka gísla og
fljúga til Miðausturlanda.
1974 — 77 fórust í flugslysi í
Venezúela.
1968 — N-Kóreumenn sleppa 82
manna áhöfn „Pueblo", 11 mán-
uðum eftir töku skipsins.
1963 — Eldur í gríska farþega-
skipinu „Laconia" á N-Atlants-
hafi (150 fórust).
1958 — Frakkar og Egyptar
semja um viðskipti.
1956 — Síðustu hermenn Breta
og Frakka fara frá Port Said.
1947 — Ný ítölsk stjórnarskrá.
1944 — Þjóðverjar krefjast upp-
gjafar McAuliffes hershöfðingja
í Bastogne.
1943 — Roosevelt, Churchill og
Chiang Kai-shek samþykkja
ráðstafanir til að sigra Japani á
fundi sínum í Kaíró.
1942 — Bandarískar loftárásir á
. Rangoon í Burma.
1941 — Churchill fer til Wash-
ington til stríðsviðræðna.
1935 — Anthony Eden skipaður
utanríkisráðherra Breta.
1929 — Ráðstefna um stofnun
indversks samveldisríkis hefst.
1905 — Uppreisn verkamanna í
Moskvu » Bylting hefst í Persíu.
1894 — Alfred Dreyfus dæmdur
fyrir landráð og til fangavistar á
Djöflaeyju.
1845 — Orrustunni við Feroze-
shah lýkur.
69 — Rómverski keisarinn
Vitellius ráðinn af dögum.
Aímæli. Jean Racina, franskur
leikritahöfundur (1639—1699).
Andlát. St. Francis Xavier 1552
= George Elliot, rithöfundur,
1880.
Innlent. Landsyfirrétti slitið í
síðasta sinn 1919 = f. Þorlákur
Guðmundsson alþm. 1834 =
Magnús Guðmundsson tekur aft-
ur við embætti dómsmálaráð-
herra og ólafur Thors fær lausn
1932 = Jóhann Sæmundsson
skipáður félagsmálaráðherra
1942 = „Svanur" RE týnist með 6
mönnum 1966 = Páfi endurreisir
biskupsdóm á íslandi 1968 = f.
Árni Friðriksson 1898.
Orð dagsins. Lífið þýtur fram
hjá meðan við sláum hlutunum á
frest — Marcus Seneca, róm-
verskur fræðimaður (um 54 f.
Kr.—39 e. Kr.).