Morgunblaðið - 22.12.1979, Page 28
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Garðabær Blaöberi óskast til aö bera út Morgunblaðið eftir áramót í eftirtalin hverfi: hluta af Sunnuflöt og Markarflöt, Aratún og Faxatún og Hreinsholt (Ásar). Upplýsingar gefur umboösmaöur Morgunblaðsins í Garðabæ, sími 44146. Sendill óskast á skrifstofu blaösins kl. 9—12. Upplýsingar ísíma 10100. Keflavík — Starfs- kraftur í matargerð óskast Veitingahúsiö Nautiö vill ráöa konu til aö sjá um eldun á heimilismat fyrir staöinn 5 virka daga vikunnar frá kl. 9—5 eöa eftir sam- komulagi. Viökomandi þyrfti aö geta unnið sjálfstætt. Uppl. gefnar á staðnum. Nautið, Hafnargötu 19A, Keflavík.
Blikksmiður eöa maður vanur járniönaöi svo sem Argon, kolsýru og gassuöu, handfljótur meö góöa æfingu óskast á pústurröraverkstæðiö, Grensásveg 5, Skeifu megin. Aöeins reglu- maöur kemur til greina. Uppl. á verkstæöinu hjá Ragnari Jónssyni, ekki í síma.
Bókari Stórfyrirtæki í Reykjavík óskar aö ráða bókara sem allra fyrst. Góö almenn menntun nauðsynleg auk enskukunnáttu. Æskilegt er aö viðkomandi hafi bókhaldsreynslu. Skriflegar umsóknir óskast sendar Mbl. merktar: Bókari — 4678 fyrir 31. des. n.k.
^flfefc^s-EF ÞAÐ ER FRÉTT- flOTlT^NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í ~ l^MORGUNBLAÐENU
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ódýr ferðaútvörp
bílaútvörp og segulbönd, bíla-
hátalarar og loftnetsstengur,
stereoheyrnartól og heyrnarhlíf-
ar, ódýrar kassettutöskur og
hylki, hreinsikassettur fyrir kass-
ettutæki og átta rása tæki. TDK
og Ampex kassettur, hlómplöt-
ur, músikkassettur og átta rása
spólur, íslenzkar og erlendar.
Mikið á gömlu veröi. Póstsend-
um F. Björnsson. Radíó-verslun,
Bergþórugötu 2, sími 23889.
Ferðaútvarpstæki
Ferðaútvarpskassettutæki,
útvarpsklukkur. Mittiskuldaúlpur
m/hettu barna og unglinga.
Handprjónaöar lopapeysur í úr-
vali. Allt á sérlega hagstæöu
veröl. Opið til kl. 23 laugardag
og 12 aöfangadag.
Verslunin Tryggvagötu 10, gegnt
Bögglapóststofunni.
3ja herb. einbýlishús
tíl sölu á Eyrarbakka. Verö
tllboð. Sími 99-3437.
Jörð óskast til kaups
meö vélum og áhöfn. Uppl. í
síma 94-7349.
Heimatrúboðiö
Óöinsgötu 6a.
Almenn samkoma á jóladag kl.
20.30. Allir velkcmnir.
■ geoverndarfélag islandsB
KSS — KSF
Jólavaka
Helgistund veröur í Dómkirkj-
unni í kvöld, laugardag, kl.
21.00. (Ath. breyttan tíma). Hilm-
ar Baldursson guöfræöinemi
flytur hugleiöingu, Elsa Waage
syngur einsöng og jólasálmar
veröa sungnlr. Allir eru hjartan-
lega vlekomnir.
Kristilegt stúdentafélag
og Kristileg skólasamtök.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
11798 og 19533.
Sunnudagur
23. des. kl. 10
Esja — Kerhólakambur (tól-
stöóuferð). Þátttakendur hafi
meö sér brodda og ísaxir og
veröi vel búnlr. Fararstjórl Tóm-
as Einarsson. Verö kr. 2000 gr.
v/bílinn. Farlð frá Umferöar-
miöstööinni að austanverðu.
Feröafélag íslands
Sunnud. 23. 12. kl. 13
Elliöavatn — Rauóhólar, létt
vetrarganga á Þorláksmessu.
Verö 2000 kr.
2. jóladag kl. 13
Um Alftanes, verö 2000 kr.
Áramótagleöi í Skíöaskálanum
föstud. 28. des.
Áramótaferð í Húsafell,
29.12,—1.1.
Sunnud. 30.12. kl. 13
Um Seltjarnarnes, létt ganga f
árslok. Verö 1000 kr.
Útivlst.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Sölumannadeild V.R.
Aöalfundur
Aöalfundur Sölumannadeildar V.R. veröur
haldinn fimmtudaginn 27. des. n.k. kl. 20.30
aö Hagamel 4 (V.R. hús)
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf
Kosning fulltrúaráös
Munið: fimmtudaginn 27. des. kl. 20.30.
Stjórnin
tilkynningar
Reykjalundur auglýsir:
Lokað
Framleiðsludeildir og söluskrifstofa okkár aö
Reykjalundi veröa lokaðar vegna vörutaln-
ingar og lagfæringa frá og meö 24. desem- ■
ber n.k. til 2. janúar 1980.
Vinnuheimilið að Reykjaiundi,
Mosfellssveit
fTilkynning frá
JC Reykjavík
Félagsheimiliö í Einholti 6 veröur opiö í kvöld
frá kl. 21.00 — 24.00.
JC félagar komið viö hjá okkur aö lokinni
verslunarferð.
Stjórnin.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Verzlunarrekstur SVR á Hlemmi:
Tap án vildarkjara
SÆLGÆTIS- og farmiðasalan,
sem Strætisvagnar Reykjavikur
reka í biðskýlinu á Hlemmi, væri
rekin með tapi, ef hún nyti ekki
sérstakra vildarkjara hjá borg-
inni.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér, munu tekjur
af rekstrinum nema í lok þessa
árs 102.5 millj. kr. en gjöld munu
nema 99.7 milljónum. Hagnaður
mun því nema 2.8 milljónum
króna, samkvæmt þessum tölum.
Hins vegar ber á það að líta, að
þessi versiunarrekstur nýtur sér-
stakra vildarkjara, eins og áður
sagði. Verslunin er undanþegin
aðstöðugjaldi, útsvari, tekju-
skatti, kvöldsöluleyfi o.fl. Þá ber
einnig að geta þess, að í fyrr-
nefndum gjöldum er ekki gert ráð
fyrir venjulegum stjórnunar-
kostnaði, kostnaði við bókhald og
annað, sem venjuleg fyrirtæki
þurfa að bera.
Á skattstofunni fékk Mbl. þær
upplýsingar, að væri miðað við
þau gjöld og þær tekjur, sem talið
er að verði niðurstöðutölur þessa
árs, þá þyrfti verslunin að greiða
1.296.100 kr. í aðstöðugjald og
1.272.600 kr. í tekjuskatt. Þá er
eftir að greiða útsvar, kvöldsölu-
leyfi, stjórnunarkostnað og bók-
haldskostnað og virðist sýnt, að
verslunin væri rekin með tapi ef
að hún nyti ekki þessara „kosta-
kjara".
Skýringin á því að fyrirtækið
greiðir ekki opinber gjöld, önnur
en söluskatt, er sú að hagnaður-
inn, sem af rekstrinum verður,
rennur beint til SVR og hverfur í
þann taprekstur sem þar er.
í tilefni þessa sneri Mbl. sér til
Birgis ísl. Gunnarssonar borgar-
fulltrúa og alþingismanns. Birgir
sagði það rétt, sem fram kemur í
fréttinni, þ.e. að verslunin væri
undanþegin ýmsum gjöldum sem
einkafyrirtæki þyrftu hins vegar
að bera. Þá sagði Birgir: „Það er
ljóst að tap verður á þessum
rekstri þegar á heildina er litið,
þ.e. að ef hann þyrfti að búa við
sömu skilyrði og önnur fyrirtæki
í landinu bæri hann sig ekki. Nú
liggur fyrir frumvarp að fjár-
hagsáætlun borgarinnar og þar
kemur m.a. fram, að gert er ráð
fyrir 2.9 millj. króna hagnaði og
er gjaldahliðin þá fundin út á
sama hátt og gert hefur verið, og
verslunin því undanþegin ýmsum
gjöldum."
Þá gat Birgir þess að
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hefðu verið á móti því
■ að SVR ræki þetta fyrirtæki
sjálft, þegar þetta mál hefði verið
afgreitt í borgarstjórn á sínum
tíma.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU