Morgunblaðið - 22.12.1979, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
39
20000
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég á heima í hverfi, þar sem fólk á fárra kosta völ. Ég er á
unglingsaldri, og mér hefur verið kennt, að öll kynmök utan
hjónabands séu syndsamleg. En krakkarnir kunningjar
minir stunda bjórdrykkju í heimahúsum og sleppa þá alveg
fram af sér beizlinu. Ég kæri mig ekki um slíkt háttalag, en
ég vil ekki heldur missa vini mina.
Eg veit, að annað eins og þetta á sér stað. En mér
finnst erfitt að trúa því, að þú sért eini unglingurinn
í hverfi þínu, sem hefur ekki látið af sannfæringu
sinni um rétt og rangt.
Ég ráðlegg þér að finna þér nýja vini. Enginn
æskumaður þarfnast vina eins og þeirra, sem þú lýsir,
því að þeir stefna hraðbyri út í vandræði, og þú
verður samdauna þeim fyrr en varir, ef þú heldur
áfram að umgangast þá.
Þessi lausung í bæjarhverfi þínu ætti að verka eins
og hvatning á þig og önnur siðprúð ungmenni í
grennd við þig. Nú vitum við, að það eru ekki nema tíu
eða tuttugu af hundraði ungmenna, sem brjóta á móti
sannfæringu sinni og hugsjónum. Samt mun þetta
saurlífisfargan breiðast út, ef siðprúða fólkið lætur
ekki að sér kveða.
Ef ég væri í þínum sporum, mundi ég stofna
Biblíulestrarflokk, efna til heilbrigðs útilífs, byrja á
kristilegri æskulýðsstarfsemi eða einhverju jákvæðu
starfi í hverfinu þínu. Láttu fólk heyra í þér alveg
eins og svallararnir gera. Já, hafðu hærra, og styddu
orð þín með hreinum, hollum lífsháttum.
Það borgar sig hundraðfalt að lifa hreinu lífi en
liggja í saurnum. Þú munt finna margvíslegan
stuðning og vinsemd, og með hjálp Guðs munt þú og
þínir líkar breyta siðgæðismati nágranna þinna.
börnum, sem nú eru uppkomin.
Ólafur á þrjú börn og Halldóra á
fjögur börn, það voru því margar
hendur sem hlýjuðu vanga
mömmu sinnar og ömmu og margs
var að minnast á því heimili, því
hér var kvaddur góður faðir og
förunautur til hinstu hvíldar og
minningar voru bæði hlýjar og
sárar því það er sárt að sjá á bak
traustum vini, en það vermir
hugann að vita að þar fór góður
maður.
Þar lágu sporin, sem hann hafði
spyrnt við fótum, þar spurðist
hinn mæti maður, þar sem höndin
var hlýjust og hugurinn og hjart-
að unnu að sama marki, þar var
æviþráðurinn spunninn. Þetta var
hans lífsmynstur, þar mátti kanna
dýpstu lindir ljóss og skugga, þar
var það skúrin hreina og skinið
bjarta sem skírði hverja athöfn og
hvergi mátti halla réttu máli.
Þess vegna er svo margs að
minnast og svo margt sem tvinn-
ast saman eftir langa lífsgöngu.
Því biðjum við guð að geyma
sálu hans og gæta hennar í nýjum
heimi í hásölum kærleikans.
Jón Þ. Haraldsson
Jón Halldórsson
— Minningarorð
ari Bjarnasyni go Sigurði
Thoroddsen árin 1941—1945, en
hóf síðan iðn sína aftur og vann
það starf meðan kraftar entust.
Þeim Oddnýju varð þriggja
bárna auðið og voru börnin látin
heita Kristbjörg, Ólafur og Hall-
dóra. Öll komust þau á legg, en
Kristbjörg dó ung frá fjórum
nágrannana í bænúm, bjargföst og
æfilöng vináttubönd. Var oft glatt
á hjalla í þessari litlu nýlendu.
En mjög þurfti að mörgu að
hyggja og mikið starf var af hendi
leyst. Eftir að húsið reis, kom
skrúðgarður og síðan matjurta-
garður. Þetta var þægileg og
skemmtileg vinna eftir inniset-
urnar og börnin fóru snemma að
leggja hönd á plóginn. En svo
þurfti líka allt sumarið að hreinsa,
vökva og hlúa að, tala og gæla við
plönturnar svo að þær yrðu
ánægðar og viljugar að vaxa.
Á vorin hetjast menn handa.
á haustin uppskera þeir.
gæfu sem aldrei glatast,
Kieði, sem aldrei deyr. (D.St.)
Auk þeirra félagsstarfa, er áður
getur, sinntu þau hjónin fjölmörg-
um öðrum félagsstörfum. T.d.
voru þau bæði félagar í góðtempl-
arareglunni um tugi ára. Kristín
hefur lengi starfað í kvenfél. Hlíf
og Þórður í Oddfellowreglunni.
Fyrir þessi félagsstörf var Þórður,
á 85 ára afmæli sínu, kjörinn
heiðursfélagi í Góðtemplararegl-
unni og á 90 ára afmælinu heið-
ursfélagi í Oddfellowreglunni og í
Úrsmíðafélagi íslands.
Þórður hafði haga hönd, var því
eftirsóttur við leturgröft á fagra
gripi og skrautritun á skjöl og
bækur. Bera margar vinargjafir
snilld hans fagurt vitni.
Orka þér entist,
aldur tvegttja manna
að vinna stórt og vinna rétt.
Vitur og vinsæll
varstu til heiðurs
I þinni byggð og þinni stétt (E.B.)
Eg sendi Kristínu, börnunum og
öðrum ættingjum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Ljósið dvinar, lokast brá
la tur vel 1 eyrum þá
ómur æskusöngva.
Olafur I. Magnússon
Ég var staddur í húsinu
Stigahlíð 12 í Reykjavík ákveðinna
erinda sunnudaginn 25. nóvember.
— Þegar ég hafði lokið erindi
mínu, hafði ég orð á því, að ég
gæti ekki komið í þetta hús án
þess að heilsa frænku minni sem
býr þar á 4. hæð.
En er ég nefndi það, var mér
sagt, að þar hefði sorgin barið að
dyrum daginn áður. Ekki aftraði
það mér að fara til frænku
minnar, því nú vildi ég sýna
hluttekningu, en það er lítið sem
við getum gert á slíkum stundum
enda varð það svo, að ég varð
úrræðalaus og mér varð orða vant
og ég held að frænku minni hafi
verið lítill styrkur í mér, því hún
hafði nú misst maka sinn og
ævifélaga, og ekkert getur komið í
hans stað.
En hún átti börnin og barna-
börnin og þar var huggunin
stærsta, því ekkert er betra en
hrein barnssálin, höndin hlý og
saklaust bros í blikandi augum og
brennheit tár á vanga, þá verður
móðurhjartanu huggun að mega
sefa og sætta og veita umhyggju,
vernda vinina smáu og vefja að
móðurbarmi.
Oft hafði ég áður komið til
þeirra hjóna, Oddnýjar Guð-
mundsdóttur frænku minnar og
Jóns Halldórssonar, og alltaf verið
tekið þar tveim höndum, því að þó
Jón væri fremur fámáll, þá fannst
mér anda hlýju frá öllu hans
viðmóti, mér kom hann þannig
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast biaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
fyrir sem notalegur, hæglátur og
hlýr, hann lét sjaldan orð í belg
þegar við frænka mín ræddumst
við, en þá sjaldan það var þá var
það oftast jákvætt.
Jón Halldórsson bakarameistari
var fæddur að Stóruborg í
Grímsnesi. Móðir hans var Stefa-
nía Stefánsdóttir, faðirinn Hall-
dór Jónsson hreppstjóri í Mos-
fellssveit og Kjósarhreppi, hann
dó frá Jóni syni sínum ársgömlum
og ólst Jón því upp hjá bróður
sínum, Halldóri Halldórssyni
bónda á Setbergi. Hálfsystir Jóns
hét Þjóðbjörg Þórðardóttir og
fóstursystir Steiney Karlotta
Kristmundsdóttir.
Jón Halldórsson lærði bakariðn
og náði meistararéttindum í þeirri
grein og við þá iðn starfaði hann
mestan hluta ævi sinnar, þó var
hann skrifstofumaður hjá Gunn-
Lux R
árgerdiRIIöJ
22“ tækiö er mikiö
tæki í nettum umbúö-
um. Eins og allir vita þá
hafa Luxor verksmiöj-
urnar lagt áherslu á
aö fullkomna litgæöin
í sjónvarpstækjunum.
Eitt tekur við af öðru og nú hefur
Luxor endurbætt hljómburðinn. Tón-
gæðin eru jöfn hvort sem
styrkurinn er hár
75W
Eyðir orku eins og 75
Wpera.
Sjálfvirkur birtustillir.
MAL: ;ob; ;
66x45x48 (B-H-D) 1? .
Þyngd 28.5 kg.
Fáanleg íhnotu. '° f T I'
Öll tækin eru seld
með hjólastelli.
Staðgreiðslu
verð
með
hjólastelli
kr
600
000
HLJÓMDEILD
Utii) KARNABÆR
Y Laugavegi 66, 1. hæö. Sími frá skiptiborði 85055