Morgunblaðið - 06.01.1980, Side 1
48 SÍÐUR
4. tbl. 67. árg.
SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Aðgerðir Carters
koma Rússum illa
WashinKton, 5. janúar. AP. -- ■ ■ 1
UNDANFARIN ár hafa
verið gerðir út 30—40
bátar frá Sandgerði. þar
af nokkrir úr Garðinum
og Keflavík. Ekki er
búizt við að nein breyt-
ing verði á því á þessu
nýbyrjaða ári. Kristján
Einarsson ljósmyndari
Mbl. tók þessa mynd í
Sandgerðishöfn á dög-
unum.
JIMMY Carter forseti segir að hefndarráðstafanir þær sem hann
boðaði í útvarpsávarpi í nótt gegn hernaðaríhlutun Rússa í
Afghanistan. m.a. stöðvun kornsendinga. eigi að valda Rússum
tjóni þar sem þeir séu veikastir fyrir. Vafi leikur á því að
aðgerðirnar neyði Rússa til að kalla heim herlið sitt en talsmaður
Hvita hússins sagði að forsetinn vildi sýna Rússum að þeir gætu
ekki komizt upp með slika framkomu óátalið.
í Bandarikjunum virðast demókratar styðja stöðvun kornsend-
inga en repúblikanar gagnrýna ákvörðunina. í ræðu sinni sagði
Carter að árás án viðnáms gæti orðið „smitandi sjúkdómur" og
kvað íhlutunina „vísvitandi tilraun trúlausrar stjórnar að kúga
sjálfstæða islamska þjóð“. Hann varaði við því að áframhaldandi
árásaraðgerðir stofnuðu þátttöku bandarískra iþróttamanna og
áhorfenda í Ólympíuleikunum í Moskvu í hættu.
lega getu sovétstjórnarinnar til að
bæta kjör Rússa næstu fimm ár.
Talið er að Kanada, Ástralía og
fleiri ríki stöðvi líka kornsend-
ingar. Bandarískum bændum er
heitið aðstoð.
Carter boðaði jafnframt aukna
hernaðarlega og aðra aðstoð við
Pakistan. Hætt verður að senda
Rússum nýtízku tæknibúnað.
Frestað verður að opna nýjar
bandarískar og sovézkar ræð-
ismannsskrifstofur og flestum
menningar- og efnahagstengslum
hætt. Rússar fá aðeins að veiða
75.000 miðað við 430.000 tonn á
bandarískum miðum. Auk korns
er sett bann á sölu allra annarra
landbúnaðarafurða til Rússa.
Carter kvað aðgerðirnar kosta
Bandaríkin nokkrar fórnir en vera
án vafa í þágu heimsfriðar. Svar
heimsins við „tilraun Rússa að
kúga Afghanistan verður að vera í
samræmi við alvöru aðgerðanna".
Þótt Carter minntist ekki á fækk-
un sendiráðsmanna í Moskvu og
Washington er sagt að það komi
til greina. „Afghanistan undir
sovézku hernámi ógnar bæði íran
og Pakistan og er áfangi á leið til
hugsanlegra yfirráða þeirra yfir
miklum hluta olíubirgða heims-
1ns,“ sagði Carter.
Talsmaður Hvíta hússins kvað
Carter hafa notað flest tiltæk ráð
nema beinar hernaðaraðgerðir.
Hann taldi aðgerðirnar rýra veru-
Zimbabwe Rhodesia:
Flestir
hlýddu
Salisbury, 5. janúar. AP.
SEXTÁN þúsund skæruliðar þjóð-
frelsisfylkingarinnar í Zimbabwe
Rhódesíu höfðu í morgun gefið sig
fram i samræmi við vopnahléssátt-
mála stjórnarinnar i Salisbury og
skæruliða.
Skæruliðar flykktust til stöðva,
þar sem tekið var við þeim. Skæru-
liðar höfðu farið fram á að frestur-
inn til að gefa sig fram yrði
framlengdur en landsstjórinn Soam-
es lávarður neitaði að framlengja
frestinn. Þrátt fyrir að fresturinn til
að gefa sig fram hafi runnið út á
miðnætti var haldið áfram að taka
við skæruliðum, er þeir streymdu til
búða, þar sem tekið var við þeim í
nótt og í morgun.
Helztu bæir í Afghanistan
á valdi sovézka herliðsins
Nýju Delhi, 5. janúar. AP.
ALLIR helztu bæir og allar helztu
herstöðvar í Afghanistan virðast
vera á valdi Rússa sem virðast
aðeins mæta málamynda mót-
spyrnu i þéttbýli að sögn diplómata
i dag. Fréttir frá Kabul herma að
leyniskyttur skjóti aðeins stöku
sinnum á hópa sovézkra hermanna.
Flugmiðum var dreift í gær með
áskorunum um mótmælaaðgerðir
gegn Rússum en engar mótmælaað-
gerðir fóru fram. Nokkrir háttsett-
ir yfirmenn i afghanska hernum
hafa heitið nýju stjórninni stuðn-
ingi, en mjög margir óbreyttir
hermenn hafa hlaupizt undan
merkjum. Ástandið er óljóst á
landsbyggðinni. en samkvæmt
fréttum frá Pakistan veita upp-
reisnarmenn harðvitugt viðnám um
allt landið.
Pakistanskt blað segir að 5.000
sovézkum fallhlífahermönnum hafi
verið varpað niður í snæviþöktum
fjöllum Norðaustur-Afghanistans þar
sem þeir hafi mætt harðri mót-
spyrnu uppreisnarmanna. Vestrænir
sérfræðingar telja að nú sé allt að
50.000 sovézkir hermenn í Afghan-
istan.
Bandaríkjamenn efndu til mót-
mælaaðgerða í sex borgum gegn
hernaðaríhlutun Rússa. Fjölmenn-
ustu mótmælaaðgerðirnar voru í
San Francisco þar sem hrópað var
„Dauði yfir Brezhnev" og brenndur
sovézkur fáni við ræðismanns-
skrifstofu Rússa. Rússum var líka
mótmælt í Washington, Dallas, New
York, Seattle og Omaha.
Brezka blaðið # i "V
Daily Telegraph: ÖOVCt 11101111 001011
landgöngTi á ísland 1978
Sovétmenn eíndu til mikillar flotaæfingar 1978 við eyju á Eystrasalti, þar sem æfð var sigling skipalesta
og landganga á eyjuna. Að sögn breska blaðsins Daily Telegraph telia margir háttsettir vestrænir
herforingjar, að þarna hafi farið fram æfing á innrás á Shetlandseyjar eða Island. Þá segir blaðið, að ferðir
sovéskra.flugvéla í nágrenni við Bretland bendi til þess, að þær séu að æfa eldflaugaárásir á valin skotmörk
á Bretlandseyjum og herskip á Atlantshafi. Hafi umsvif sovéskra flugvéla og skipa umhverfis Shetlandseyjar
aukist til mikilla muna siðustu 18 mánuði, en á næsta ári munu tveir þriðju hlutar af oliuframleiðsiu Breta
fara um eyjarnar.
þann, að þær æfðu árásir á
NATO-herskip og sérgreind skot-
mörk í fjarlægum löndum.
Fréttin í Daily Telegraph er
skrifuð af Desmond Wettern sér-
fræðingi blaðsins í flotamálum og
birtist 2. janúar s.l. Blaðamaður-
inn vísar til viðtals, sem hann átti
við Sir James Eberle yfirmann
breska flotans og Ermarsundsher-
stjórnar NATO í höfuðstöðvum
hans í Northwood í Middlesex í
Englandi. Sagði flotaforinginn, að
ferðir ýmissa sovéskra flugvéla,
sem lúta stjórn flotans, væri ekki
unnt að skýra á annan veg en
Samhliða stöðugt auknum um-
svifum Sovétmanna umhverfis
Shetlandseyjar efndu þeir á árinu
1978 til þeirrar æfingar á Eystra-
salti, sem áður er getið, og verður
ekki skýrð nema sem undirbúning-
ur undir strandhögg á Shetlands-
eyjum og íslandi. í september 1978
settu um 5000 bandarískir land-
gönguliðar á svið sókn inn á
Shetlandseyjar af sjó í samvinnu
við breska og hollenska flotann.
Höfðu eyjarnar ekki fyrr verið
notaðar í svo víðtækri NATO-
æfingu og íbúum eyjanna var sagt,
að æfingin væri nauðsynleg vegna
þess hve Sovétmenn hefðu fært sig
upp á skaftið á þessum slóðum.
Síðan segir breski blaðamaður-
inn, að Shetlandseyjar séu ásamt
íslandi og Grænlandi hluti af
þeirri mikilvægu varnarkeðju, sem
nefnd sé GIUK-hliðið. A milli
landanna séu hlustunartæki, sem
Bandaríkjamenn hafi lagt á hafs-
botninn til að fylgjast með ferðum
sovéskra kafbáta, sem komi frá
Murmansk. Byggist varnarstefna
NATO á hafinu á því að eyða eins
mörgum sovéskum kafbátum og
herskipum og kostur er, áður en
þau komist um GIUK-hliðið til
árása á flutningaskip í ferðum
milli Evrópu og Norður-Ameríku.
í framhaldi af þessari frétt
Daily Telegraph má rifja upp
ræðu, sem flutt var í nafni Harry
D. Train yfirmanns Atlantshafs-
herstjórnar NATO hér á landi í
marz sl., en þar kom hann sér-
staklega að auknum flugferðum
Sovétmanna umhverfis Island.
Hann sagði, að sovéska Backfire-
sprengjuþotan gæti nú gert árás á
skotmörk talsvert fyrir sunnan
GIUK-hliðið og hefði tilkoma vél-
arinnar aukið mjög hættuna á
siglingaleiðinni milli Norður-
Ameríku og Evrópu. Ferðir sov-
éskra flugvéla umhverfis ísland
hefðu á árinu 1978 verið næstum
tvöfalt fleiri en að meðaltaii næstu
fimm ár á undan. Þá taldi flotafor-
inginn ástæðu til að benda sér-
staklega á aukin umsvif sovésku
Bear Foxtrot-kafbátaleitarflugvél-
anna vestur af Skotlandi. Hafi
allar þær flugvélar farið um
íslenska loftvarnarsvæðið, annað
hvort á leið sinni suður eða á
heimleið til Kola-skaga.