Morgunblaðið - 06.01.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980
/11; ,í < í, ,■ ■■ i
M/B Álsey í Vestmannaeyjahöfn. Bvfffft vfi: Ljósmynd Mbl.: Sigurgeir. r Álsev í
V estmannaeyjum
Vestmannaeyjum. wsMÉÍiELFf %; * ” 4. janúar. y!««5 í VESTMANNAEYJUM er þessa ijfj*-** dagana verið að byggja yfir m/b Álsey og er það fyrsta verk P’ fff' MÍII f~ eyjum. Það eru starfsmenn u^flfM j~ Vélsmiðjunnar Magna sem sjá um framkvæmdina, sem hefur ‘^jjpttiPirnliNM 4 gengið mjög vel. XaJwitÍÉt Tll IPf t Það er mikið fagnaðarefni að S^MHpPjTJmi hægt skuli að vinna svona verk ÉjSSr I hér og kemur nauðsyn skiplyftu 4 æ betur í ljós, en með henni myndu skapast veruleg verkefni , i/ viö alls konar yfirbyggingar og .■* ». s .. | I Í __p~U ~~T~ ^ÍMMWBBMMIMÉméimí
—Sigurgeir. Unnið að því að koma þilinu um borð. Ljósmynd Mbi.: Sigurgeir.
VL-mál Einars Braga:
Farið fram á sekt
argreiðslu í stað
fangelsisvistar
Lögreglustj óraembætt-
inu í Reykjavík hefur verið
falið að innheimta hjá Ein-
ari Braga rithöfundi sekt-
argreiðslur vegna dóms í
meiðyrðamáli gegn að-
standendum Varins lands,
en dómsmálaráðuneytið
hafði áður farið fram á að
vararefsingu yrði fullnægt,
þ.e. að Einar sæti í fangelsi
í tvo daga.
Baldur Möller ráðuneyt-
isstjóri dómsmálaráðu-
neytisins sagði í samtali
við Mbl. í gær að ráðuneyt-
ið hefði falið lögreglustjóra
að innheimta sektina hjá
Einari í stað þess að grípa
til vararefsingarinnar og
væri það í valdi hans að
ákveða með hvaða hætti
innheimta sektarinnar færi
fram.
Póstránið:
Unnið af full-
um krafti
um helgina
ÞRÁTT fyrir að mikil vinna hafi
verið lögð í rannsókn póstráns-
ins í Sandgerði hefur ekkert það
komið fram, sem leitt hefur
lögregluna á sporið, samkvæmt
því sem Hallvarður Einvarðsson
rannsóknarlögreglustjóri ríkis-
ins tjáði Mbl. í gær. Sagði
Hallvarður að kappsamlega yrði
unnið að rannsókn málsins um
helgina.
„Ekki gengið frá
kaupum ennþá44
„Samningaviðræður hafa ver-
ið í gangi undanfarið milli þess-
ara aðila, en það hefur ekki verið
gengið frá neinum kaupum enn-
þá. Það eru ýmsir þættir sem
enn á eftir að ræða um,“ sagði
Hörður Sigurgestsson forstjóri
Eimskipafélags íslands er Mbl.
innti hann eftir því hvort Eim-
skip væri búið að kaupa annars
vegar Skipafélagið Bifröst og
hins vegar íslenzk kaupskip.
Skipafélögin tvo eiga hvort um
sig eitt kaupskip, Bifröst á
Bifröstina og íslenzk kaupskip
eiga Berglind.
Gítartónleikar í
Norræna húsinu
NÆSTKOMANDI miðvikudag
verða gítartónleikar f Norræna
húsinu og kemur þar fram
danski gítarleikarinn Tom Meth-
ling. Hann hefur hlotið tónlist-
armenntun sína í Danmörku og á
Spáni þar sem hann hefur dvalist
um árabil.
Tom Methling hefur haldið
tónleika í Danmörku, Noregi,
Hollandi, Þýskalandi, Kanada og
Spáni og nú í fyrsta sinn hérlend-
is. Leikur hann verk eftir Bach,
Fernando Sor, Francisco Tarrega,
Villa Lobos og sjálfan sig. Leikur
hann á 10 strengja gítar og hefjast
tónleikarnir klukkan 20.30 mið-
vikudaginn 9. janúar.
INNLENT
Maðurinn hér dvelst í flótta-
mannabúðum á landamærum
Thailands og Kambódíu og er
hann hér að leita eftir vatni og
mun hann hafa komið niður á
vatn þegar hann hafði grafið
tveimur fetum lengra en gröfin
var komin þegar myndin var
tekin.
Kampútseusöfnunin
komin í 115 m.kr.
SÖFNUN Hjálparstofnunar
kirkjunnar til bágstaddra í
Kampútseu nemur nú 115 millj-
ónum króna og að sögn Guð-
mundar Einarssonar fram-
kvæmdastjóra Hjálparstofnunar-
innar hefur verið ákveðið að
framlengja söfnunina til 15. jan-
úar, en henni átti sem kunnugt er
að Ijúka um áramótin.
Guðmundur sagði að framlög
hefðu sífellt verið að berast á
skrifstofuna svo og á gíróreikning
20005 og verður tekið við framlög-
um til 15. janúar. Unnið er að því
að kanna á hvern hátt söfnunarféð
kemur að bestum notum og kvað
Guðmundur féð annað hvort sent
utan eða hluta þess einnig tíl að fá
hjálpargögn hérlendis, en því
verður m.a. ráðstafað í samvinnu
við Lútherska heimssambandið og
bresku hjálparstofnunina Oxfam.
Slippstöðin hf. Akureyri:
Nýju nótaveiðiskipi
hleypt af stokkunum
Akureyri, 5. janúar.
NÝJU nótaveiðiskipi að burðargetu 1360 tonn
DW var hrundið á flot í Slippstöðinni á
Akureyri laust eftir hádegi í dag. Skipið er að
öllu leyti hannað af starfsmönnum tæknideild-
ar Slippstöðvarinnar, en eigandi er hlutafélag-
ið Hilmir á Fáskrúðsfirði.
Dóttir eins eigenda
skipsins Oddný Sverris-
dóttir gaf skipinu nafnið
Hilmir SU 171 og bað skipi
og skipshöfn blessunar og
góðs farnaðar.
Helstu máls skipsins eru
mesta lengd 56,5 m, breídd
11 m, dýpt að efra þilfari
7,5 m og mesta djúprista
5,8 m. Lestarrými er 1320
rúmmetrar þar af eru 580
rúmmetrar í sjóvatnskæld-
um tönkum. íbúðir eru
fyrir 16 menn, 5 tveggja
manna klefar og 6 eins
manns klefar, þar með tal-
in íbúð skipstjóra.
Aðalvél er af gerðinni
Wickmann og er útbúin
fyrir brennslu á svartolíu
með 2.400 hestafla afköst-
um. Hjálparvélar eru af
Caterpillar gerð og skipið
er búið tveimur þverskrúf-
um 350 og 500 hestafla.
Allur búnaður skipsins og
tæki eru af fullkomnustu
og nýjustu gerð. Auk nóta-
veiða getur skipið stundað
skuttog með flotvörpu.
Ráðgert er að afhenda
skipið eigendum fullbúið í
í NOKKUR ár hefur það verið
fastur liður í starfsemi Prestafé-
lags Suðurlands, að hafa messu-
skipti í prófastsdæmunum fyrsta
sunnudag i nýári.
Að þessu sinni er Kjalarnes-
prófastsdæmi heimsótt og messu-
dagurinn 6. janúar. Messað verður
sem hér segir: Grindavíkurkirkja,
sr. Valgeir Astráðsson Eyrar-
bakka. Utskálakirkja, sr. Sigurður
Sigurðarson Selfossi. Keflavíkur-
kirkja, sr. Ingólfur Ástmarsson
Mosfelli. Njarðvíkurkirkja, sr.
Stefán Lárusson Odda. Hafnar-
fjarðarkirkja, sr. Heimir Steins-
síðari hluta febrúarmánað-
ar.
Næstu verkefni Slipp-
stöðvarinnar hf. eru smíði
togveiðiskips fyrir Höfða
hf. á Húsavík og á að
afhenda það í febrúar 1981.
Einnig hefur verið samið
um smíði togveiðiskips
fyrir útgerðarfélag
Skagstrendinga. Það skip
verður jafnframt útbúið til
rækjuveiða, vinnslu og
frystingar rækju og verður
afhent í ágúst 1981.
—Sv.P.
son rektor Skálholti. Garða- og
Víðistaðasóknir, sr. Eiríkur J.
Eiríksson Þingvöllum. Kópavogs-
kirkja, sr. Sigfinnur Þorleifsson
Tröð Gnúpverjahr. Mosfellskirkja,
sr. Hannes Guðmundsson Fells-
múla. Reynivallakirkja, sr. Auður
Eir Þykkvabæ.
Messutími er almennt kl. 2,
nema annað sé auglýst. Um kvöld-
ið er svo samvera í safnaðarheim-
ilinu í Innri-Njarðvík og hefst með
borðhaldi kl. 7. Er þess vænst, að
allir félagar sjái sér fært að koma
þangað með maka sína.
— Frá Prestafélagi Suðurlands.
Messuskipti hjá Presta-
félagi Suðurlands