Morgunblaðið - 06.01.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980
3
Árið 1979 var eitt hið
kaldasta á þessari öld
EINS OK ílestum er nú orðið ljóst
var síðastliðið ár eitt af kðldustu
árum hér á landi frá þvi að
reglulegar veðurathuganir hóf-
ust, en það var i Stykkishólmi
1845 fjrir 134 árum. Meðalhiti
síðastliðins árs var þar 2.3° og er
það 1,9° kaldara en meðaltal
áranna 1931—60 segir til um.
Kaldasta ár frá aldamótum var
1918, en þá var hitinn 2.2° eða
0.1° kaldara en nú. Önnur köid
ár í Stykkishólmi á þessari öld
voru 1907, 1914, 1917, 1919, og
1969 og var 0.2° — 0.3° hlýrra í
þessum árum en nýliðnu ári.
Köldustu árin frá upphafi mæl-
inga voru 1859 og 1866, en þá var
meðalhitinn í Stykkishólmi að-
eins 0.9° eða 1.4° lægri en árið
1979 og samtals voru 10 ár
kaldari en síðasta ár á seinni
hluta síðustu aldar.
Meðalhitinn í Reykjavík árið
1979 var 2.9°, sem er 2.1° kaldara
en í meðalárgerði, og á Akureyri
var hitinn 1.5°, en það er 2.4°
lægra en meðaltal segir til um og
var þetta kaldasta ár frá 1892 á
báðum þessum stöðum. Árin 1917
og 1918 voru o.l° hlýrri á Akur-
eyri en síðastliðið ár, en í
Reykjavík var 1919 næstkaldasta
ár frá aldamótum. Þá var meðal-
hitinn 3.5° eða 0.6° hærri en 1979.
Úrkoma í Reykjavík mældist
668 mm, sem er 83% meðalúr-
komu og er þetta sama úrkomu-
magn og mældist 1978 og 3. árið í
röð, sem úrkoma er minni en í
meðalári. Á Akureyri var úrkom-
an 367 mm og er það rúmlega 3/4
hlutar þess, sem venjulegt er.
Verður að leita allt til ársins 1965
til að finna minni ársúrkomu á
Akureyri en þá mældist þar 320
mm. Sólskinsstundir mældist
1496 á Akureyri en þá mældust
þar 320 mm. Sólskinsstundir
mældust 1496 í Reykjavík sem er
247 stundum meira en venjulega,
en á Akureyri mældist sólskin
aðeins í 872 stundir og er það 90
stundum minna en í meðalári.
Ef einstakir mánuðir ársins eru
athugaðir, þá voru janúar og
mars mjög kaldir, en febrúar
aftur á móti í réttu meðallagi.
Þessír 3 mánuðir voru frekar
stormasamir og snjóþungir víðast
hvar.
Vorið, þ.e. apríl og maí, var með
afbrigðum kalt og óhagstætt,
einkum þó maí mánuður. Meðal-
hiti í maí á landinu á landinu öllu
var 5.4° lægri en venjulega og er
þetta kaldasti maímánuður í
Stykkishólmi frá því að reglu-
legar veðurathuganir hófust þar
1845. Er munurinn á meðalhita
maímánaðar 1979 og næstkald-
asta maímánuði á hinum ýmsu
veðurstöðvum yfirleitt '/2 ° — 1 °.
Sumarið, þ.e. júní-september,
var kalt, einkum þó september og
júlí. Hlýjast var á Suðausturlandi
og t.d. var meðalhiti þessara 4
mánaða 8.9° á Kirkjubæjar-
klaustri, en það er 1.3° kaldara en
venja var 1930—60. Á Raufarhöfn
var aftur á móti 5.1°, sem er 2.8°
lægri hiti en meðalárferði. í
Reykjavík var meðalhiti sumars-
ins 8.3° og var þetta þriðja
kaldasta sumar frá aldamótum.
Sumarið 1920 var sumarhitinn
8.0° og árið eftir 8.2°. Á Akureyri
var sumarið 1907 0.8° kaldara en
núna, en meðalhitinn var núna
7.4°. Sunnan- og vestanlands var
þó hagstæð tíð fyrir landbúnað
seinni hluta júlí og fram í ágúst
og heyþurrkur þá góður.
Síðustu 3 mánuðir ársins voru
tiltölulega hlýir miðað við það,
sem á undan var gengið. Októ-
berhitinn var nálægt meðallagi,
en nóvember um það bil 1.6°
kaldari en í meðalári. Desember
virðist hafa verið aðeins kaldari
en venjulega á Raufarhöfn og
Akureyri, en í Reykjavík var 1.3°
kaldara en í meðaldesember. Úr-
koma var í tæpu meðallagi þessa 3
mánuði að því er best verður séð.
(Frétt frá Veðurstofu tslands).
Borgarnes:
Aukning mjólkurfram-
leiðslu þrátt fyrir
mikla nautgripaslátrun
Hvanncyri, 4. jan.
GOTT tíðarfar einkenndi haust-
mánuðina hér i Borgarfirði. Að
vísu hefur oft verið talsverð hálka
á vegum en klammi á högum hefur
enginn verið. Ég hefi heyrt af og
séð umferðaróhöpp vegna hálk-
unnar en engin alvarleg slys hafa
orðið, svo að mér sé kunnugt. Eins
og áður sagði hefur verið gott á
högum. Þannig hafa sparast hey
og veitti ekki af þvi að knapplega
var víðast sett á á þessu hausti.
Flestir hafa góð hey frá góðu
þurrkasumri en engar fyrningar
INNLENT
eru til frá siðasta vetri. Þá mælast
góð hey, sem oft síga lítið, frekar
illa.
Mikið var slátrað af stórgripum
hjá Kaupfélagi Borgfirðinga á
þessu hausti. Gestur Kristjánsson
hjá KB sagði mér að slátrun
stórgripa hefði nú í haust verið með
allra mesta móti. Síðustu fjóra
mánuði ársins var búið að slátra
922 nautgripum en allt árið 1978
var slátrað 738 nautgripum. Af
hrossum var slátrað 527 allt s.l. ár
en til samanburðar var slátrað 230
gripum allt árið 1978.
Þrátt fyrir mikla nautgripaslátr-
un á s.l. hausti hefur mjólkurfram-
leiðslan aukist þessa sömu mánuði.
Samkvæmt upplýsingum frá Mjólk-
ursamlaginu í Borgarnesi er aukn-
ingin 13—15%, mest í desember. Þá
'var aukningin um 100 þúsund
lítrar.
— Ófeigur.
Áramótaspila-
kvöld á Sögu
Áramótaspilakvöld Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík verður
haldið að Hótel Sögu i kvöld og
hefst kl. 20.30 en húsið verður
opnað kl. 20.00.
Spiluð verður félagsvist. Sex
spilaverðlaun verða veitt, öll mjög
glæsileg að vanda. Spilakortin
gilda sem happdrættisvinningur:
Keflavík — Kaupmannahöfn —
Keflavík með Flugleiðum, fyrir
einn farþega.
Formaður Fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna, Ellert B.
Schram, flytur ávarp. Þá munu
Ólöf Harðardóttir og Garðar Cort-
es skemmta. Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar leikur síðan fyrir
dansi til kl. 1.
LandsmálafélaxiA Vðrður.
Ellert B. Schram
FERDA-ALMANAK ÚTSÝNAR
er afhent á skrifstofu okkar
í Austurstræti 17.
KYNNIÐ YKKUR FERÐAÚRVAL