Morgunblaðið - 06.01.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980
5
Jónsson og Sigmar B. Hauks-
son. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
landsmálabl. (útdr.).
Dagskrá. Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Gunnvör Braga heldur
áfram að lesa söguna „Það er
komið nýtt ár“ eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur (4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál. Um-
sjón: Jónas Jónsson.
Spjallað við Agnar Guðna-
son um framleiðslu og sölu-
mál á liðnu ári.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morguntónleikar
Filharmoniusveitin í Vín
leikur „Anacréon“, forleik
eftir Cherubini; Karl Munch-
inger stj. / Fritz Wunderlich
syngur óperuaríur eftir Moz-
art.
11.0 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar,
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa
Léttklassisk tónlist, dans- og
dæguriög og lög leikin á
ýmis hljóðfæri.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Gatan“
eftir Ivar Lo-Johansson
Gunnar Benediktsson þýddi.
Halldór Gunnarsson les (13).
15.00 Popp. Þorgeir Ástvalds-
son kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
Sinfóniuhljómsveit íslands
leikur „Dimmalimm kóngs-
dóttur“, ballettsvítu eftir
Skúla Haildórsson; Páll P.
Pálsson stj. / Pierre Fourn-
ier og Filharmoniusveitin í
Vín leika Sellókonsert í h-
moll op. 104 eftir Dovrák;
Rafael Kubelik stj.
17.20 Framhaldsleikrit barna
og unglinga:
„Bjössi á Tréstöðum“ eftir
Guðmund L. Friðfinnsson
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
Leikendur i 6. og síðasta
þætti: Stefán Jónsson, Guð-
björg Þorbjarnardóttir, Rúr-
ik Haraldsson, Baldvin Hall-
dórsson, Auður Guðmunds-
dóttir, Jón Aðils og Kristin
Jónsdóttir. Kynnir: Helga Þ.
Stephensen.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál
Árni Böðvarsson flytur þátt-
inn.
19.40 Um daginn og veginn
Andrés Kristjánsson
fræðslufulltrúi talar.
20.00 Við, — þáttur fyrir ungt
fólk
Jórunn Sigurðardóttir sér
um þáttinn.
20.40 Lög unga fólksins
Ásta R. Jóhannesdóttir
kynnir.
21.45 Útvarpssagan: „Þjófur í
Paradis“ eftir Indriða G.
Þorsteinsson
Höfundur byrjar lesturinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Hvað er vitsmunaþroski?
Guðný Guðbjörnsdóttir flyt-
ur erindi.
23.00 Verkin sýna merkin
Þáttur um klassiska tónlist i
umsjá Ketils Ingólfssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Útvarp í dag klukkan 14.55:
Stjórnmál og glæpir
í DAG, klukkan 14.55 verður
fluttur i útvarpi fyrsti þátturinn
af sex undir samheitinu „Stjórn-
mál og glæpir“. Nefnist hann
„Furstinn“ og fjallar um bragða-
refinn Niccoló Macchiavelli. Þýð-
andi er Jón Viðar Jónsson og
stjórnandi Benedikt Árnason.
Flytjendur eru Gunnar Eyjólfs-
son, Guðjón Ingi Sigurðsson, Gislj
Alfreðsson, Randver Þorláksson,
Jónas Jónasson og Benedikt Árna-
son. óskar Ingimarsson flytur
inngangsorð.
Höfundur þáttanna um „Glæpi
og stjórnmál" er Hans Magnus
Enzensberger, en danski útvarps-
maðurinn Viggo Clausen hefur
búið þá til flutnings í útvarpi. Þar
er fjallað um menn og málefni, er
vakið hafa athygli og markað spor
í söguna, ekki síst á þessari öld. í
þáttunum er lýst einræðisherrum,
bófum og glaumgosum, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þetta eru ekki
framhaldsþættir í eiginlegum
skilningi. Ákveðið efni er tekið
fyrir í hverjum þætti, en þó eiga
þeir sammerkt á ýmsan hátt.
í „Furstanum" er ljósi sam-
tímans varpað á ævi manns, sem
uppi var um aldamótin 1500 og
skrifaði „handbók valdamanna"
þar sem mælt er bót hvers kyns
klækjum og fantabrögðum til að
halda völdum.
Hans Magnus Enzensberger er
Þjóðverji, fæddur árið 1929. Hann
stundaði nám í germönskum fræð-
um, almennri bókmenntasögu og
heimspeki. Vann síðan hjá suður-
þýska útvarpinu, en hefur eingöngu
helgað sig ritstörfum frá árinu
1961. Hann hefur skrifað fjölmörg
leikrit fyrir útvarp, þ.á m. svoköll-
uð heimildaleikrit, byggð á sann-
sögulegum atburðum.
Viggo Clausen hefur unnið við
dagskrárgerð hjá danska útvarpinu
í fjölda ára og er þekktur um öll
Norðurlöndin og jafnvel víðar fyrir
að gera þætti um mál, sem mikla
athygli hafa vakið. Samvinna hans
við Enzensberger hefur verið með
miklum ágætum, og þættir þeirra
verið fluttir víða á Norðurlöndum
við góðar undirtektir.
Við gefum
afslatt
af fatnaöi, skóm og hljómplötum
allan þennan mánuö
Það er alltaf rétti tíminn til að gera
góð kaup hjá okkur
2. hæð. Sími 85055.
Laugavegi 20. Sími fré tkipfiborði 85055.
TlZKUVERZLUN unga fólksins
^jj) KARNABÆR
Glæsibæ — Laugavegi 6b Simi fra skiptiborði 85055