Morgunblaðið - 08.02.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980
Skemmdarverk á eigum borgarmnar:
Kostuðu um 80 ,
milli. á síðasta ári
BEINN kostnaður vegna
skemmda á eigum borgarinnar
nam á síðasta ári um 80 milljón-
um króna. Þetta kom fram í svari
Egils Skúla Ingibergssonar borg-
arstjóra við fyrirspurn Guðrúnar
Ilelgadóttur sem laut að þessum
málum.______________
Stöðug og
góð veiði
LOÐNUAFLINN á vertíðinni var
í gærkvoldi orðinn rúmlega 210
þúsund lestir. Frá því að vertíð
hófst hefur varla fallið úr dagur
hjá loðnuskipunum. en fyrst var
tilkynnt um loðnu 10. janúar.
Síðan féllu úr 4 dagar 19. — 22.
janúar og einnig 24. janúar. Síðan
hefur veður verið gott miðað við
árstíma og flesta dagana hefur
aflinn verið um eða yfir 10 þúsund
lestir.
í svari sínu sagðist borgarstjóri
hafa leitað til nokkura stofnana
borgarinnar og fengið þar upplýs-
ingar um þessi mál. Borgarstjóri
sagði að kostnaður hreinsunardeild-
ar borgarinnar næmi 2 — 5 milljón-
um, kostnaður vegna skemmda á
skólabyggingum næmi alls, allt að
25 milljónum króna, en bein útgjöld
vegna þessa væru 12 — 18 milljónir.
Tjón vegna skemmda á strætisvögn-
um næmi um 11 milljónum,
skemmdir á görðum borgarinnar,
þ.e. trjáplöntum, blómum og þ.h.
næmi um 23,5 milljónum. Þá sagði
borgarstjóri að þær upplýsingar
hefði hann fengið hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur að beinar tölur
um þetta lægju ekki fyrir, en talið
væri að kostnaður vegna skemmda
myndi nema 30 — 35 milljónum
króna.
Nokkrir borgarfulltrúar tóku til
máls vegna þessa og lýstu þeir allir
áhyggjum sínum og töldu að átak
þyrfti að gera í þessu efni.
Land og synir á Sauöárkróki:
Ekki pantaðir stakir miðar
heldur heilu sýningarnar
SÝNINGAR á kvikmyndinni Landi
og sonum hófust á Sauðárkróki í
gær og verður myndin sýnd þar
næstu daga þrisvar á dag eða
jafnvel oftar. Svo mikill var at-
gangurinn þegar tekið var á móti
pöntunum simleiðis í gær að síma-
kerfið fór úr sambandi á tímabili að
því er fréttaritari Mbl. á Sauðár-
króki tjáði blm.
Aðsókn var mikil í gær og voru ekki
aðeins pantaðir stakir miðar á ein-
staka sýningar heldur heilu sýn-
ingarnar eins og þær lögðu sig.
Þannig pöntuðu Lionsmenn á Hofsósi
um 70 miða fyrir aldrað fólk þaðan,
en bíóið tekur á annað hundrað
manns og Grunnskólinn á Hofsósi
fær í dag kl. 13 sérstaka sýningu
þegar nemendur og kennarar ásamt
foreldrum eftir því sem húsrými
leyfir, leggja land undir fót til að sjá
Land og syni. Myndin verður sýnd á
Króknum fram á helgi, kl. 15, 17 og
21, og fara þær fram í félagsheimilinu
Bifröst.
Töldu íslenska næt-
urlífið fátæklegt
Ragnar Jónsson er hér meðal annarra gesta við vígslu Listaskála aiþýðu í gær.
Listaskáli alþýðu vígður
Geirdal arkitekt hannaði inn-
réttingar Listaskálans, Daði Ól-
afsson ljóstæknifræðingur
teiknaði ljósabúnað og raf-
magnsmeistari var Tryggvi
Þórhallsson.
Stjórn Listasafns alþýðu skipa
Hannibal Valdimarsson, Eggert
G. Þorsteinsson, Stefán Ög-
mundsson, Árni Guðjónsson,
Björn Th. Björnsson, og Hrafn-
hildur Schram. Forstöðumenn
safnsins hafa verið Arnór
Hannibalsson, Sigríður
Þorgrímsdóttir, Hjörleifur Sig-
urðsson og Þorsteinn Jónsson.
Fysta sýningin í Listaskála
alþýðu var jafnframt opnuð í
gær. Þar eru sýnd 58 málverk
eftir 36 höfunda. Sýningin verð-
ur aðeins opin meðlimum í
verkalýðsfélögum. En nokkuð
fljótlega verður sýning á verkum
Gísla Jónssonar í Listaskála
alþýðu og verður sú sýning opin
almenningi.
LISTASKÁLI alþýðu, Grensásvegi 16, var í gær vígður við
hátíðlega athöfn. Fjöldi gesta var viðstaddur athöfnina, en
heiðursgestur var Ragnar Jónsson forstjóri sem varð 76 ára í gær.
Listaskáli alþýðu h.f. var
stofnaður 16. desember 1976 af
25 verkalýðsfélögum ASÍ og
Listasafni alþýðu en nú eru
félögin orðin rúmlega fjörtíu.
Hlutafé var upphaflega 40 millj-
ónir króna en það verður aukið á
næstunni.
Nýting salarins verður fyrst
og fremst fyrir Listasafn alþýðu
en auk þess er gert ráð fyir að
verkalýðshreyfingin geti haldið
fundi sína og ráðstefnur í þessu
húsnæði, sem og haft þar aðra
fræðslu- og menningarstarf-
semi.
Ragnar Jónsson forstjóri
færði Alþýðusambandi íslands
árið 1961 120 valinkunn listaverk
sem stofn í alþýðulistasafn.
Listasafn alþýðu hefur síðan
aukið við listaverkaeign sína.
Ragnar hefur miklu bætt við
frumgjöf sína, margir listamenn
hafa fært safninu verk og svo
hefur Margrét Jónsdóttir fært
safninu rúmlega þrjátíu lista-
verk. Nú eru á skrá hjá safninu
um 300 listaverk.
Listasafn alþýðu var fyrst í
húsakynnum ASÍ, Laugavegi 18,
síðan á þriðju hæð Alþýðubank-
ans, Laugavegi 31, en fyrir
tæpum tveimur árum fluttist
aðstaða safnsins, skrifstofa og
listaverkageymslur að Grensás-
vegi 16.
Stjórn Listaskála alþýðu skipa
Árni Guðjónsson, Ólafur Emils-
son, Sverrir Garðarsson, Halldór
Björnsson, Þórunn Valdimars-
dóttir, Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir og Guðmundur H. Garð-
arsson. Forstöðumaður skálans
er Þorsteinn Jónsson. Njörður
FERÐAMÁLARÁÐ hefur birt
niðurstöður könnunar er ráðið ann-
aðist í samvinnu við Hagvang hf.
um álit erlendra ferðamanna er
koma til landsins á ýmsum atriðum
ferðaþjónustunnar, t.d. hvað sé
athyglisverðast að sjá á íslandi.
Á blaðamannafundi í gær voru
niðurstöður þessar kynntar, en könn-
unin er liður í skipulagningu og
áætlanagerð Ferðamálaráðs, en þátt í
henni tóku 658 ferðamenn. Meðal
spurninga er lagðar voru fyrir þá er
hvað þeim fyndist um hótel, ferða-
skrifstofu, tjaldstæði, veitingahús og
næturlíf og fleira þess háttar. I svari
við henni kemur fram að flest þessi
atriði fá góða einkunn, eða umsagn-
irnar ágætt og gott hjá um helmingi
ferðamanna er spurðir voru, en næt-
urlífið fær lélega einkunn, er sagt
vera fátæklegt og er það skoðun
nálega 40% þeirra er spurðir voru.
Margt fleira kom fram í könnun-
inni og þá sagði Lúðvíg Hjálmtýsson
ferðamálastjóri að beinar og óbeinar
tekjur af erlendum ferðamönnum
hefðu á tiðasta ári numið 11 milljörð-
um króna og hefðu um 5% lands-
manna lífsviðurværi sitt af ferða-
þjónustu.
Aukning langra erlendra
lána á síðast ári var
um 24 milljarðar króna
ALLS námu innkomin er- króna og afborganir 28
lend löng lán 52 milljörðum milljörðum króna, þannig
„Vafasamt að stjórnvöld eigi aðild að eða
samþykki viðskipti sem ekki þola dags-
ins ljós eða kunna að teljast ólögleg44
• • *
Segir Jóhannes Nordal vegna ummæla Onundar Asgeirssonar
MORGUNBLAÐIÐ leitaði í gær
til Jóhannesar Nordals seðla-
bankastjóra og formanns olíu-
viðskiptanefndar. og spurði
hann álits á ummælum Önund-
ar Ásgeirssonar í dagblaðinu
Vísi í gær. Þar segir Onundur
meðal annars: „Það eru margar
nefndir starfandi í landinu í
sambandi við olíumál. Þær gera
lítið gagn en mikið ógagn, en
þó engin eins mikið ógagn og
nefnd Jóhannesar Nordals. Það
var stórum samningi spillt í
desember fyrir atbeina Jóhann-
esar Nordals, og hann hefur
ekki fengist til að gefa skýr-
ingu á því ennþá.“
Jóhannes sagði í gærkvöldi, í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins, að þegar Önundur Ás-
geirsson hefði komið heim frá
Nígeríu snemma í desember,
hefði hann (þ.e. Önundur) talið
sig hafa möguleika til að semja
um kaup á miklu magni af
hráolíu. „Sá böggull fylgdi þó
skammrifi," sagði Jóhannes, „að
það skilyrði var sett fyrir því að
samningar gætu hafist, að
greiddir yrðu fyrirfram 500 þús-
und dollarar, eða jafngildi 200
milljóna íslenskra króna, inn á
reikning ótilgreinds aðila í Sviss.
Þetta mál kom ekki til kasta
olíuviðskiptanefndar, nema að
mjög litlu leyti, enda lágu engin
föst tilboð fyrir um olíuviðskipti.
Hins vegar var um það að tefla,
hvort gjaldeyrisyfirvöld gætu
samþykkt 500 þúsund dollara
yfirfærslu í þessu skyni. Niður-
staðan varð sú, að ekki væri
unnt að veita gjaldeyrisleyfi
fyrir þessari fjárhæð þar sem
hvorki lægi fyrir hver viðtak-
andi greiðslunnar væri né fyrir
hvaða þjónustu hún væri innt af
hendi. Ekki var heldur hægt að
staðfesta að samningar myndu
takast ef greiðslan ætti sér stað.
Ákvörðun um þessa málsmeð-
ferð var tekin af viðskiptaráðu-
neytinu í samráði við Seðlabank-
ann og Landsbankann, er. hann
er viðskiptabanki Olíuverslunar
íslands. Til að reyna að finna
leið til að halda málinu opnu
buðust gjaldeyrisyfirvöld til að
leyfa yfirfærsluna í formi fyrir-
framgreiðslu út á væntanlegan
samning um hráolíukaup, enda
yrði ábyrgst að greiðslan gengi
til baka ef ekkert yrði úr samn-
ingum um olíukaupin.
Þessu boði var hins vegar
hafnað, og bentu þau viðbrögð
óneitanlega til þess að hér hafi
ekki verið um venjulega við-
skiptahætti að ræða.
Eg get svo að lokum sagt það,
að önnur afskipti en þau sem
varða þessa yfirfærslu hef ég
ekki haft af tilraunum Önundar
tii olíuviðskipta í Nígeríu. Ég hef
aldrei gagnrýnt framtak hans í
því efni, sem er eflaust góðra
gjalda vert. Hins vegar tel ég
vafasamt að stjórnvöld eigi aðild
að eða samþykki með leyfisveit-
ingum nein viðskipti sem ekki
þola dagsins ljós eða kunna
jafnvel að skoðast ólögleg hér á
landi eða erlendis," sagði Jó-
hannes að lokum.
Morgunblaðinu tókst ekki að
ná í Önund Ásgeirsson í gær
vegna þessa máls.
að nettóaukning langra
lána nam um 24 milljörðum
króna á meðalviðskipta-
gengi ársins á móti 24,6
milljörðum króna árið 1978
reiknað á sama gengi segir
í bráðabirgaðyfirliti Seðla-
banka íslands um þróun
greiðslujafnaðar og gjald-
eyrismála á árinu 1979.
Áætlað er, að jöfnuður á öðrum
fjármagnshreyfingum, og þá
einkum skammtíma hreyfingum,
hafi orðið óhagstæður um tæpa 4
milljarða króna, og fjármagns-
jöfnuður í heild þá hagstæður um
tæpa 20 milljarða króna. Að
frádregnum tæplega 3 milljarða
halla á viðskiptajöfnuði kemur
það heim við 17 milljarða króna
hagstæðan jöfnuð á gjaldeyris-
viðskiptum bankanna.
Frumdrög að greiðslujöfnuði
við útlönd árið 1979 benda til þess
að viðskiptajöfnuðurinn verði
hagstæður um 9,4 milljarða
króna á móti 10,7 milljörðum árið
áður. Búist er við að þjónustu-
jöfnuður verði óhagstæður um 12
milljarða króna á móti einum
milljarði króna árið áður, þannig
að viðskiptajöfnuður landsmanna
verði óhagstæður um 2,6 millj-
arða króna á móti því að hann
var hagstæður um 9,7 milljarða
króna í fyrra.