Morgunblaðið - 08.02.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980
5
Fyrsti skákmeist-
arinn kom í gær
FYRSTI erlendi keppandinn á
Reykjavíkurmótinu í skák kom
til landsins í gær. Það var
bandaríski stórmeistarinn Walt-
er Browne. en hann sigraði ein-
mitt í síðasta Reykjavíkurmóti.
Hann mun á næstunni tefla
fjöltefli víðs vegar um landið og er
það skýringin á því hvers vegna
hann kemur svona snemma. í
kvöld mun hann tefla fjöltefli á
vegum mótsnefndarinnar í skák-
heimilinu við Grensásveg, um
helgina teflir hann svo í Vest-
mannaeyjum og í næstu viku við
ýmsa starfshópa í Reykjavík,
bankamenn, lækna, rútubílstjóra
og ýmsa fleiri, en um aðra helgi
fer hann til ísafjarðar. Myndin
var tekin er hann kom á Hótel
Holt í gær.
Kastljós í beinni útsendingu í kvöld:
Formenn stjórnmála-
flokkanna og Gunnar
Thoroddsen ræðast við
1 þættinum Kastljósi í sjónvarpi í
kvöld munu formenn stjórnmála-
flokkanna og Gunnar Thorodd-
sen koma til beinnar útsendingar
í umræðuþætti um síðustu at-
burði á þjóðmálavettvangi. Um-
ræðunum stýrir Guðjón Einars-
son fréttamaður.
Þátturinn hefst klukkan 21.10,
og þátttakendur verða þeir Lúðvík
Jósepsson formaður Alþýðu-
bandalagsins, Gunnar Thoroddsen
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Benedikt Gröndal formaður
Alþýðuflokksins, Geir Hall-
grímsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins og Steingrímur Her-
mannsson formaður Framsóknar-
flokksins. Stjórnandi þáttarins er
sem fyrr segir Guðjón Einarsson
fréttamaður, og þátturinn er í
beinni útsendingu.
Verð ákveðið á
loðnu til beitu
og frystingar
Á fundi Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í gær varð samkomulag
um eftirfarandi lágmarksverð á
loðnu á vetrarloðnuvertíð 1980:
Fersk loðna til frystingar,:
hvert kg..............kr. 83.00
Fersk loðna til beitu og frystingar
sem beita og fersk loðna til skepnu-
fóðurs,:
hvert kg .............kr. 35.00
Afhendingaskilmálar eru óbreyttir.
(Verðlagsráð sjávarútvegsins)
Snjór í Hveragerði
IlveraKerði 6. febrúar 1980.
Hér í Hveragerði rak margur
upp stór augu er komið var á
fætur í gærmorgun, en þá var hér
jafnfallin snjór, milli 20 og 30
sentimetra djúpur. Það sem af er
þessu ári hefur ekki sést snjór, en
verið frost og sólskin dögum
saman.
í síðustu snjókomu, um jólaleyt-
ið, sást þessi íturvaxna dama við
aðalgötu þorpsins og vakti mikla
thygli vegfarenda, en ókunnugt er
um faðernið! Sigrún.
Utsalan sem
allir biöu eftir
Allra síðustu dagar
í dag og á morgun nýjar vörur meö
15% afslætti Aðeins fram aö helgi
NÚ ER HVER SÍÐASTUR
Látið ekki happ úr hendi sleppa
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
Glæsibæ — Laugavegi 66. j—Austurstraeti 22.
Laugavegi 20. Sími Iré ikiptiborði 85055.
SKODEHD
UmKARNABÆR
A .sturs*f«»li Sim, frj skiotiboröi ft5055
Í Greifahúsinu,
Austurstræti 22,
2. hæö. Sími 85055