Morgunblaðið - 08.02.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980
19
Alþingi í gær:
Deilt um dreif-
ingu loðnuafla
KJARTAN Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra sagði í umraeðu
utan dagskrár á Alþingi i gær, að
ekkert heíði komið íram sem
benti til þess að ráðlegt væri að
auka það magn, sem ráðgert væri
að veiða af loðnu. þ.e. 300.000
tonn. Söluhorfur á frystri loðnu
hefðu reynst óvissari en ráð var
fyrir gert. Þrátt fyrir það teldi
hann eðlilegt að gera ráð fyrir
um 50.000 tonnum af loðnu til
frystingar og hrognatöku, til að
detta ekki út af markaðinum i
Japan. Akvörðun um þetta efni
þyrfti að taka fyrir eða um næstu
helgi.
Eina lagaákvæðið, sem til er
um dreifingu loðnuafla með opin-
berri stjórnun á loðnubræðslur
er í lögum, sem veita loðnuncfnd
visst ákvörðunarvald í þessu efni.
Þetta lagaákvæði var byggt á
þeim rökstuðningi í greinargerð
með frumvarpi, að nýta verk-
smiðjukost í landinu sem bezt í
þeim tilgangi, að auka heildar-
afla flotans sem mest á hverri
vertíð. Ef nýta á þessa stjórnun-
arheimild nú á annarri forsendu,
þarf Alþingi að taka af tvímæli
með yfirlýsingu þar um.
Upphaf þessa máls var það að
Halldór Asgrímsson (F) vakti
athygli á vanda verksmiðja,
verkafólks og sveitarfélaga á
sunnanverðum Austfjörðum og í
Vestmannaeyjum vegna vöntunar
á loðnu til vinnslu. Spurðist hann
fyrir um, hvort lagaheimildum til
dreifingar afla, sem loðnunefnd
hefur, yrði beitt til að bæta hér úr.
Bjarni á Skírni:
„400 þús.
tonngera
engum
neittw
ÞEGAR við vorum síðast úti
voru um 20 skip á miðunum á
mjög stóru svseði, það voru
margar milur á milli skipanna.
sen allir voru að mokfiska,
sagði Bjarni Sveinsson, skip-
stjóri á Skirni, í samtali við
Mbl. í gær. Verið var að landa
nokkrum tugum tonna af loðnu
úr Skirni i Krossanesi, en siðan
var ferðinni heitið til Akureyr-
ar, þar sem verið var að gera við
nótina.
— Það er alltaf að koma meira
og meira af loðnu vestan að, hélt
Bjarni áfram. — Skipin fylgja
göngunni síðan eftir austur undir
Kolbeinsey, en þar hefur loðnan
dreift sér. Þá er keyrt á ný vestur
á bóginn og byrjað að veiða úr
nýrri göngu. Loðnan virðist vera
nær samfellt fyrir Norðurland-
inu og slitnar í raun aldrei, en er
þó sums staðar ekki veiðanleg.
Það segir sína sögu um magnið af
loðnunni í ár, að menn sem eru
búnir að vera í þessu síðan
loðnuveiðar byrjuðu, hafa aldrei
séð annaö eins af ioðnu.
— Ég held að um 400 þúsund
tonna veiði geri engum neitt og
komi varla við það magn, sem
núna er á ferðinni. Ég er hins
vegar ekki viss um að loðnan
komist suður með Austfjörðun-
um nema hún hrygni hálfum
mánuði síðar en venjulega. Það
kann vel að gerast því að loðn-
unni fór illa fram í sumar, m.a.
vegna lélegra átuskilyrða, og sé
því seinni til en áður. Undanfarið
hefur loðnan verið ágæt, sem
fengist hefur, og ég segi það
alveg satt, að mönnum hreinlega
blöskraði eina nóttina um daginn
þegar þeir sáu hversu mikið var
af loðnunni.
Helgi F. Seljan (Abl.) taldi ástæðu
til, að hugað yrði að vanda fólks
og fyrirtækja í vissum landshlut-
um í þessu efni. Stefán Jónsson
(Abl) taldi vandséð að réttlætan-
legt væri að flytja loðnuafla á
fjarlægari staði, sem hægt væri að
vinna á hagkvæmari hátt í ver-
stöðum nær veiðisvæðum, enda
afkastageta þeirra ekki fullnýtt.
Pétur Sigurðsson (S) sagði
óhjákvæmilegt að horfa á þetta
mál frá sjónarhóli sjómanna, sem
hér ættu stórra hagsmuna að
gæta, og útgerðarinnar, en þessir
tveir aðilar væru jú þeir, er
hráefnið sæktu á miðin.
Karen
Asgeirsson
(f.Mogensen)
— Kveðja
Fædd 10. maí 1922.
Daín 31. janúar 1980.
Nú er elsku amma okkar, Kaja,
horfin frá okkur. Við fengum ætíð
svo mikla hlýju hjá henni og það
var svo gott að koma til hennar.
Loðnu landað úr Albert og Hilmi á Þórshöfn síðastliðið haust.
(Ljósm. Már).
Þórarinn á Albert GK:
„Langt síðan maður hefur
séð eins stórar torfur
— OKKUR skipstjórunum hefur
nú fundizt töluvert meira af
loðnu heldur en t.d. tvo síðast-
liðna vetur á þessum tíma. sagði
Þórarinn Ólafsson, skipstjóri á
Albert GK, er Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans vestur á Bolung-
arvík, þar sem beðið var löndun-
ar.
— Fyrir nokkrum dögum vár
alveg óhemjumikil loðna á miðun-
um, bara langt síðan maður hefur
séð eins stórar torfur, þær voru
allt upp í 100 faðmar og á
gríðarlega stóru svæði, sagði Þór-
arinn. — Við fengum ábyggilega
ein þúsund tonn á síðuna úr einu
kastinu og vantaði þó ekki nema
um 200 tonn. Við höfum fengið
stór köst áður, en ekkert í líkingu
við þetta. Þá held ég, að aldrei hafi
verið gert eins mikið af því og í
vetur að láta næstu báta hafa
loðnu, köstin hafa oft verið svo
stór.
— Það er loðna austur úr öllu,
en hún er dyntótt greyið atarna og
virðist haga sér dálítið einkenni-
lega þegar kemur austur undir
Kolbeinseyjarhrygginn. Þá dreifir
hún sér og spurningin er hvenær
hún þéttist aftur í torfur, en
annars er loðnan núna á hraðri
ferð austur. Jú, það er rétt, loðnan
var smærri í byrjun vertíðar, en
þá átti smáloðnan eftir að skilja
sig frá stóru loðnunni. í fyrrinótt
bar einnig svolítið á ungloðnu, en
það var vestarlega á svæðinu og
hún á bara eftir að skilja sig úr.
Leiðrétting
í athugasemdum frá Áfengis-
varnarráði, sem birtist í blaðinu í
gær, varð misritun í 1. lið. Hann á
að vera þannig:
„1. Löggjafarvaldið á íslandi,
Alþingi, hefur aldrei á þessari öld
samþykkt heimildir til innflutn-
ings, framleiðslu og sölu áfengs
öls á Islandi — nema til handa
varnarliðinu sem hér dvelst. —
Heimildir til slíks eru frá öðrum
stjórnvöldum komnar."
— Þegar við vorum margir á
því, að stöðva veiðarnar við 400
þúsund lestir í haust, gerðum við
það í þeirri góðu trú, að við
fengjum að veiða a.m.k. 400 þús-
und tonn eftir áramót. Núna
teljum við sannað, að það sé sízt
minna af loðnu á miðunum heldur
en 2 síðustu ár á þessum tíma og
þetta mikla magn gefur ekki
tilefni til að hugleiða stöðvun
veiðanna að svo stöddu. Það er
óvenjulegt að svo mikið skuli vera
af loðnu á þessum slóðum á
þessum tíma, en mönnum finnst
að lágmarkið ætti að vera 400
þúsund tonn, sagði Þórarinn á
Albert að lokum.
Við vitum, að hún er núna hjá
Guði og líður þar vel.
Við þökkum henni fyrir það sem
hún var okkur og biðjum góðan
Guð að geyma elsku ömmu.
Barnabörn.
Allr.I.YSINGASIMINN ER:
22480
JWorjjunblatiib
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aöalstræti 6 simi 25810
Innihald
500-700 g ærhakk
1-2 stk. laukur
75 gr. sveppir
50 gr. smjörliki
1 msk. tómatkraftur
1/4 tesk. karrý
1/4 tesk. paprika
salt, ostur
Tillaga að matreiðslu.
Ærhakkiðfœst í næstu
Jgötbúð
ítalskur hakkréttur
Hakk, laukur og sveppir brúnað á vel
heitri pönnu í smjöri, kryddað.
Tómatkrafti bætt út i og e.t.v.
dálitlu af brúnni sósu ef til er. Allt
sett i eldfast mót eða form, ostinum
stráð yfir, bakað i vel heitum ofni
i 5-7 min. eða þar til osturinn er
bráðinn. Borið fram með spaghetti,
hrisgrjónum, bökuðum baunum, grófu
brauði, hræðrum kartöflum, hrásalati
eða öðru þvi er hugurinn girnist.
Kjötíðnaðarstöð Sambandsins
Kirkjusandi sirrá:86i66