Morgunblaðið - 08.02.1980, Page 32
[□AM-tATBU
Charade
GEGN ORKUKREPPU
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980
[DAMAT8U
Charade
| LEYSIR VANDANN
Framsókn tilnefnir Ólaf Jóhannes-
son sem utanríkisráðherra
400 þúsund tonn lág-
mark segja skipstjórar
Ekki ráðlegt að veiða meira en 300 þús. tonn segir sjávarútvegsráðherra
SAMKVÆMT tilboöi. sem Gunn-
ar Thoroddsen gerði samstarfs-
flokkum sínum. Alþýðubanda-
lagi ok Framsóknaraflokki í gær
fá Gunnar og stuðningsmenn 3
Hækkun á
neyzlufiski,
unnum kjöt-
vörum og
fargjöldum
Landleiða
RÍKISSTJÓRNIN hefur staðfest
samþykktir verðlagsráðs um
hækkun á neyzlufiski, unnum
kjotvörum og fargjöldum Land-
leiða.
Neyzlufiskur hækkar um sem
næst 10% að meðaltali. Hausuð
ýsa hækkar úr 538 í 602 krónur kg
eða um 11,9%, ýsuflök án þunnilda
úr 972 í 1110 krónur kg eða um
13,1%, nætursöltuð ýsuflök úr 998
í 1120 krónur eða 12,2% og
þorskur um 8%.
Unnar kjörvörur hækka að með-
altali um 12,6%, pylsur úr 2174 í
2421 krónu kg eða 11,9%, kinda-
bjúgu úr 2053 í 2337 krónur eða
13,8%, kjötfars úr 1370 í 1533
krónur eða 11,9% og kindakæfa úr
2734 krónur kg í 3112 krónur eða
13,8%.
Fargjöld Landleiða á leiðinni
Reykjavík- Hafnarfjörður hækka
um 13%.
ráðherra í ríkisstjórninni, fram-
sóknarmenn 4 og alþýðuhanda-
lagsmenn 3. Tilboð Gunnars ger-
ir ráð fyrir, að hann verði
forsætisráðherra. en að auki fái
hans menn dóms- og kirkjumál
og iandbúnaðarmál. Ilafa þar
verið tilnefndir þeir Friðjón
Þórðarson og Pálmi Jónsson.
Þingflokkur og framkvæmda-
stjórn Alþýðuhandalagsins fjall-
aði um þetta tilhoð í nótt. er
Morgunblaðið fór í prentun.
Gunnar Thoroddsen gerir ráð
fyrir því í tilboðinu, að framsókn-
armenn fái sjávarútvegs- og sam-
göngumál, utanríkismál,
viðskiptamál og menntamál. Þing-
flokkur framsóknarmanna sam-
þykkti þessa tillögu Gunnars og
tilnefndi Steingrím Hermannsson
sem sjávarútvegs- og samgöngu-
ráðherra, Ólaf Jóhannesson sem
utanríkisráðherra, Tómas Árna-
son sem viðskiptaráðherra og
Ingvar Gíslason sem menntamála-
ráðherra.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins var í gærkveldi og fram á nótt
að fjalla um tilboð Gunnars
Thoroddsen um ráðuneýtaskipt-
inguna og framkvæmdastjórn
flokksins fjallaði um málefna-
samninginn. Var síðan búizt við
því, að sameiginlegur fundur yrði
um hvorttveggja. Samkvæmt til-
boði Gunnars standa alþýðu-
bandalagsmönnum til boða fjár-
mál, iðnaðar- og orkumál og
félags-, heilbrigðis- og trygginga-
mál. Til greina munu koma Svavar
Gestsson, Hjörleifur Guttorms-
son, Ragnar Arnalds, Ólafur
Ragnar Grímsson, Geir Gunnars-
son og jafnvel Lúðvík Jósepsson.
KJARTAN Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra sagði á Alþingi í
gær, að ekkert hefði komið fram,
sem benti til að ráðlegt væri að
auka það magn, sem ráðgert væri
að veiða af loðnu í vetur, þ.e. 300
þúsund tonn. Hann sagðist telja
eðlilegt að af þessu magni færu
50 þúsund lestir til frystingar og
hrognatöku.
Undanfarið hefur verið mikil og
stöðug loðnuveiði, veður hefur
verið einstaklega gott miðað við
árstíma og loðna fundizt og veiðst
á stóru svæði fyrir Norðurlandi.
Morgunblaðið ræddi í gær við tvo
skipstjóra á loðnuskipum, þá Þór-
arin Ólafsson á Albert GK og
Bjarna Sveinsson á Skírni AK.
Sögðu þeir báðir að óvenju mikið
væri af loðnu fyrir Norðurlandi og
sögðu það vera álit skipstjóra, að
400 þúsund lestir ættu að vera
lágmarkið á þeirri vertíð, sem nú
stendur.
Aflinná vertíðinni er nú um 210
þúsund tonn.
Sjá nánar blaðsíðu 19.
Mikið hvass-
viðri í Vest-
mannaeyjuiti
MIKIÐ hvassviðri var í Vest-
mannaeyjum í gær, og í gær-
kvöldi er Morgunblaðið hafði
samband við lögregluna í Eyjum
voru þar rösklega tólf vindstig,
og hvassviðri geisaði einnig á
miðunum umhverfis Eyjar og
allur flotinn lá inni.
Hlýtt var hins vegar og gekk á
með rigningarskúrum annað veif-
ið, en samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar má búast við því
að heldur fari hlýnandi hér sunn-
anlands næstu daga. Einnig má
búast við því að hvessi hressilega,
þó ekki sé talið að veðurhæðin
verði eins mikil og í Vestmanna-
eyjum.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Vestmannaeyjum var
ekki vitað um neinar skemmdir af
völdum veðurofsans þar í gær.
Þingflokkur sjálfstæðismanna:
Geir bauð viðræður
en Gunnar hafnaði
ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis-
flokksins fjallaði í gær um
málefnagrundvöll ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsens, sem
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
fengu í hendur, er þeir komu í
þinghúsið eftir hádegi í gær.
Þingflokkurinn tók ekki af-
stöðu til grundvallarins og ekki
til stöðu þeirra þingmanna, sem
heitið hafa Gunnar Thoroddsen
stuðningi við ríkisstjórnina.
Mun fjallað um það á þing-
flokksfundi í dag.
Þingflokksfundurinn hófst
með því að Gunnar Thoroddsen
gerði grein fyrir málefnasamn-
ingnum, en þar sem þingmenn
höfðu aðeins haft hann í um það
bil tvær klukkustundir, er fund-
urinn var haldinn, urðu ekki
efnislegar umræður um hann.
Samkvæmt upplýsingum Geirs
Hallgrímssonar lagði hann til,
þar sem svo stutt var frá því er
þingmenn hefðu fengið samning-
inn í hendur, að þingflokkurinn
tilnefndi menn -til viðræðna um
„framlagðan málefnasamning
við aðila hans í þeim tilgangi að
fá upplýsingar og ná fram breyt-
ingum, sem gætu leitt til sam-
komulags, enda sé ljost, að
málefnasamningurinn sé ekki
lagður fram í þingflokknum í
dag eingöngu til upplýsinga,
samþykktar eða synjunar,“ eins
og Geir orðaði það.
Gunnar var þá, að sögn Geirs,
spurður um tilgang þess, að
hann legði samninginn fram og
sagði hann að hann væri lagður
fram til kynningar, samþykktar
eða synjunar. Kvaðst hann ekki
ætla að leggja málefnasamning-
inn fyrir flokksráð Sjálfstæðis-
flokksins.
Geir Hallgrímsson sagði, að
samkvæmt skipulagsreglum
Sjálfstæðisflokksins væri það
verkefni flokksráðs að fjalla um
afstöðu til annarra flokka.
Gunnar Thoroddsen hafi neitað
að fylgja lögum og skipulags-
reglum flokksins. „Að mínu mati
hefur Gunnar þar með sagt sig
úr lögum við Sjálfstæðisflokkinn
með því að neita að hlíta skipu-
lagsreglum hans.“ Var Geir þá
spurður að því, hvort Gunnar og
stuðningsmenn hans myndu
áfram sitja í þingflokki sjálf-
stæðismanna og kvað hann þing-
flokkinn myndu taka afstöðu til
þess á næstu dögum, að öðru
leyti vísaði hann á formann
þingflokksins um það efni.
Ólafur G. Einarsson kvað eng-
an vafa á því að Gunnar liti á sig
sem þingmann Sjálfstæðis-
flokksins, það hefði komið fram
á fundinum. „En það hefur áður
komið fram í svörum mínum við
blaðamenn, að ég lít svo á, að sá
sem tekur þátt í ríkisstjórn, sem
flokkurinn á ekki aðild að, geti
ekki setið þingflokksfundi."
Það kom fram í máli þeirra
Geirs og Ólafs, að næsta skref
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
væri að taka afstöðu til ríkis-
stjórnarinnar og málefnasamn-
ings hennar. Þeir kváðust ekki
telja, að fleiri þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins myndu veita
ríkisstjórninni stuðning, þar
sem allir aðrir hefðu lýst því yfir
að þeir myndu hlíta ákvörðun
meirihlutans. Hins vegar tók
Ólafur G. Einarsson fram að
auðvitað gætu þingmenn skipt
um skoðun eins og aðrir.
Eftir að Gunnar Thoroddsen
hafði kynnt málefnasamninginn
og svarað fyrirspurnum varð-
andi aðdraganda að myndun
ríkisstjórnarinnar og málsmeð-
ferð vék hann af þingflokksfundi
til þess „að gefa þingmönnum
frjálsari hendur til að tala út“
eins og hann orðaði það. „En ég
er áfram í þingflokki Sjálfstæð-
isflokksins og mun sækja fundi
þar áfram," sagði Gunnar
Thoroddsen.
Gunnarsmenn fá dóms-
mál og landbúnaðarmál
ÓLAFUR Jóhannesson
og Gunnar Thoroddsen
ræðast við í Alþingis-
húsinu í gær, eftir að
það fréttist að Ólafur
yrði hugsanlega utan-
ríkisráðherra í stjórn
Gunnars. Ljósm. Mbtói.K.M.