Morgunblaðið - 09.02.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
V eður haml
aði veiðum
EKKI var veiðiveður hjá loðnu-
skipunum í fyrrinótt, en tíðin
hefur þó verið mjög góð undan-
farið og litlar frátafir frá upp-
hafi vertíðar. Aflinn losar nú 215
þúsund tonn og eftirtalin skip
tilkynntu loðnunefnd um afla á
fimmtudag og þar til síðdegis í
gær:
Fimmtudagur: Þórshamar 570,
Hafrún 640, Gígja 730, Jón
Finnsson 570, Helga II 500, Kap II
680, Seley 400, Sigurfari 820,
Magnús 450, Svanur 670, Hilmir
520, Húnaröst 560, Þórður Jónas-
son 440, Fífill 580, Faxi 80, Skírnir
40, Gullberg 500, Sigurður 1100,
samtals 19 skip með 10.520 lestir.
Föstudagur: Náttfari 290, Júpi-
ter 600, Rauðsey 400, Stapavík 300.
Mörg verkefni í sjónmáli hjá Jarðborunum ríkisins:
2—3 holur
við Kröflu
Jötunn til Færeyja?
EINS og skýrt hefur verið frá í
Morgunbiaðinu Iá við stórslysi
þegar nokkrar snjóskriður féllu
á veginn undir Olafsvíkurenni
þegar verið var að ryðja hann
vegna snjóa. Veghefill sem
Ríkharður Hjörleifsson stjórnaði
hentist eins og eldspýtustokkur
út af veginum, niður snarbratta
hlíðina áleiðis fram af bjargbrún-
inni niður í sjó. Bæring Cecilsson
fréttaritari Mbl. í Grundarfirði
tók þessa mynd af Ríkharði við
hefilinn í snarbrattri hlíðinni.
— ÞAÐ ER óhætt að segja. að fleiri verkefni eru nú í sjónmáli heldur
en oft áður á þessum tíma árs, en þó er óráðið hve mikið verður unnið
af þessum verkum á árinu og skapast það m.a. af því ástandi, sem
verið hefur í stjórn landsins, sagði lsleifur Jónsson hjá Jarðborunum
ríkisins í samtali við Morgunblaðið í vikunni.
Stjórnarsáttmálinn:
I Bjarnarflagi er ráðgert að
Jötunn bori eina holu og að tvær
eða þrjár holur verði boraðar við
Kröflu. Um önnur verkefni er ekki
að ræða á árinu fyrir þennan
stærsta bor Jarðborana, nema
hvað enn þá er til athugunar að
boraðar verði tvær rannsóknar-
holur í Færeyjum og gæti það
prðið seint á þessu ári. Sagði
Isleifur, að búið væri að ganga frá
tillögu að fjármögnun í Færeyjum
sem leggja ætti fyrir stjórnvöld.
Þetta verkefni hefði staðið til um
nokkurn tíma og væri ætlunin
með þessum borunum að gera
almenna jarðfræðirannsókn.
Næg verkefni virðast vera á
þessu ári fyrir gufuborinn Dofra,
sem er sameign jíkis og Reykja-
víkurborgar. Hann er nú við vinnu
fyrir Hitaveitu Suðurnesja í
Svartsengi, hefur lokið við að bora
eina holu þar frá áramótum og
ætlunin er að bora þar þrjár holur
til viðbótar. Þá er ætlunin að bora
3—5 holur fyrir Hitaveitu Reykja-
víkur, eina í Laugardal, eina í
Blesugróf, eina í Mosfellssveit og
e.t.v. að Nesjuvöllum.
Borarnir Narfi og Glaumur eru
í Eyjafirðinum við vinnu fyrir
Hitaveitu Akureyrar, en þeir bor-
ar hafa verið við verkefni fyrir
HA um nokkurn tíma. Fyrir þá
bora liggja fyrir beiðnir um verk-
efni frá hitaveitunni á Egils-
stöðum, Laugalandi í Holtum,
hitaveitunni á Suðureyri við Súg-
andafjörð og um borun á einni
holu fyrir Þörungaverksmiðjuna á
Reykhólum.
ísleifur sagði að gert væri ráð
fyrir allmörgum rannsóknarbor-
unum í sumar og þá m.a. fyrir
fyrirhugaðar vatnsvirkjanir.
„Gengur gegn grundvallar-
stefnu Sjálfstæðisflokksins44
Þingflokkur sjálfstæðismanna
í andstöðu við ríkisstjórnina
ÞINGFLOKKUR sjálfstæð-
ismanna tók í gær formlega
afstöðu gegn málefnasamningi
ríkisstjórnar dr. Gunnars Thor-
oddsens, enda gangi hann í veiga-
miklum atriðum gegn grundvall-
arstefnu Sjálfstæðisflokksins.
Þingflokkurinn mun því hvorki
veita ríkisstjórninni stuðning né
hlutleysi, heldur skipa stjórnar-
andstöðu.
Ályktun þingflokksins, sem
samþykkt var af öllum viðstödd-
Benedikt Gröndal, fráfarandi utanríkis- og forsætisráðherra:
Þekki handbragð Al-
þýðubandalagsins á
utanríkismálakaflanum
„ÉG er ákaflega fenginn. að stjórnarkreppan héfur nú leystst og í
því efni má segja að við höfum oft séð hann svartan. hvað það
snertir," sagði Benedikt Gröndal, fráfarandi forsætisráðherra, er
Morgunblaðið ræddi við hann í skrifstofu forsætisráðherra á
meðan hann beið Gunnars Thoroddsens. „Ég vona að þessi lausn
reynist farsæl."
„Það hefur verið athyglisverð
reynsla að vera í starfsstjórn.
Við störfuðum samkvæmt sam-
komulagi við Sjálfstæðisflokk-
inn fram að kosningum, en eftir
þær á ábyrgð forseta Islands og
lögfróðir menn hafa sagt — með
öllum rétti og skyldum ríkis-
stjórna. Við höfum komið mörg-
um góðum málum til leiðar og
vil ég þar nefna launajafnrétt-
ismálið 1. desember, veigamiklar
endurbætur á ellilífeyri og lausn
á fiskverðsdeilu. Þessi ríkis-
stjórn okkar hefur leyst öll
tímabundin aðsteðjandi vanda-
mál, þótt hún hafi af skiljan-
legum ástæðum ekki hreyft við
langtímavandamálunum.
Eg hef ekki tölu á öllum þeim
fjölda frumvarpa, sem við höfum
unnið og lagt fyrir Alþingi en
þau skipta tugum. Þar er m.a. að
finna gamla kunningja, en auk
þess ýmsar nýjar hugmyndir,
sem unnið hefur verið að á
þessum tíma.“
Hvað vilt þú segja um hina
nýju ríkisstjórn? Benedikt
Gröndal sagði: „Mér hefur nú
ekki reynzt auðið að grandskoða
málefnasamning hennar, en ég
las hann í Morgunblaðinu í
morgun. Þar er margt gott og
ýmislegt varhugavert. í heild er
hann ávísun á áframhaldandi
verðbólgu og stjórnin verður að
halda vel á spöðunum, ef henni á
að takast að leysa vandamálin.
Það hefur sannast að það er
auðveldara að skrifa óskalista,
en halda lífsreglur efnahagslífs-
ins.“
„Mér sýnist við lestur
málefnasamnings nýju ríkis-
stjórnarinnar sem Alþýðu-
bandalagið hafi komið ýmsu
fram af sínum málum. Sérstak-
lega þykist ég þekkja handbragð
þeirra á kaflanum um utan-
ríkismál. Það eru dapurlegir
atburðir, ef byrjað er að verzla
með utanríkis- og öryggismál
þjóðarinn^ir fyrir ráðherrastóla.
Ég vona aðeins, að Ólafur Jó-
hannesson reynist þar tryggur
og fastur fyrir, svo að það
bjargist."
Að lokum sagði Benedikt
Gröndal: „Ég lít svo á, að
ríkisstjórnin eigi að fá tækifæri.
Ég óska ráðherrunum og að-
standendum stjórnarinnar til
hamingju og vona að ríkisstjórn-
in verði þjóðinni til góðs.“
um þingmönnum flokksins, er
svohljóðandi:
„Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins hefur kynnt sér málefnasamn-
ing ríkisstjórnarinnar og telur
hann þess efnis, að flokkurinn geti
ekki veitt ríkisstjórninni stuðning
né hlutleysi, enda gengur hann í
veigamiklum atriðum gegn grund-
vallarstefnu Sjálfstæðisflokksins.
— Þingflokkurinn verður því í
andstöðu við ríkisstjórnina og
mun gera nánari grein fyrir af-
stöðu sinni til einstakra þátta
málefnasamningsins."
Þingflokkurinn fékk málefna-
samninginn fyrst í hendur í fyrra-
dag, er dr. Gunnar Thoroddsen
gerði grein fyrir honum á þing-
flokksfundi; og fjallaði um hann
þá og aftur á formlegum þing-
flokksfundi, sem hófst kl. 14 í gær
og stóð til kl. 16.30 síðdegis. Á
fundinum voru allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, sem staddir
voru í Reykjavík (Jósep H. Þor-
geirsson og Matthías Bjarnason
voru staddir á Akranesi), utan
þeir, sem tekið hafa sæti í hinni
nýju ríkisstjórn (Gunnar Thor-
oddsen, Friðjón Þórðarson og
Pálmi Jónsson). Albert Guð-
mundsson mætti á þingflokks-
fundinum en var farinn af honum
áður en ályktunin kom til at-
kvæða, en hún var samþykkt
samhljóða.
Afstaða þingflokksins til ein-
stakra efnisþátta málefnasamn-
ingsins verður væntanlega birt í
Mbl. á morgun.
0'
INNLENT
Versnandi staða
ullariðnaðarins
— VIÐ höíum ekki sagt upp
neinu starfsfólki ennþá, en hald-
ið að okkur höndunum meðan
stjórnarkreppan hefur ríkt og
segja má að við höfum í hvorugan
fctinn getað stigið og svo verður
sjálfsagt enn um sinn, sagði
Pétur Éiríksson forstjóri Álafoss
er Mbl. innti hann eftir stöðu
mála hjá þeim og hvort til
uppsagna hefði komið hjá fyrir-
tækinu.
—Staða útflutningsiðnaðarins
er slæm um þessar mundir, en við
verðum að sjá til hvað gerist og
hvort ný ríkisstjórn tekur málefni
hans eitthvað til athugunar, sagði
Pétur ennfremur.
—Hér er allt í fullum gangi og
nóg að gera út af fyrir sig, en
staðan hefur versnað mjög síðustu
2 mánuðina, sagði Hjörtur
Eiríksson framkvæmdastjóri Iðn-
aðardeildar SIS á Akureyri.— Við
höfum miklar áhyggjur af þessari
stöðu og ættum í raun að geta
safnað í sarpinn þegar nóg er að
gera, en því er ekki að heilsa og í
stað þess er allt rekið með tapi og
má kenna um miklum launahækk-
unun og ullarverðshækkunum í
desember. Stöðug hækkun hefur
líka verið á allri opinberri þjón-
ustu, t.d. orkuverði, en það fer
eftir efnahagsþróuninni næstu
mánuðina hverju fram vindur og
staðan nú er mun lakari en hún
var á sama tíma í fyrra, sagði
Hjörtur Eiríksson að lokum.
Við ullariðnað í landinu eru nú
milli 13 og 1500 ársverk og hjá'
báðum ofangreindum fyrirtækjum
starfa nálega 500 manns við þenn-
an iðnað.