Morgunblaðið - 09.02.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1980
11
Norðmenn
jurrka nú
íka loðnu
Frá Jan Erik Laure. fréttaritara
Mbl. í Noregi. 7. febrúar.
TILRAUNIR með þurrkun loðnu
hafa gefið svo góð fyrirheit í
Noregi, að flest bendir til að
þurrkuð loðna verði nýjasta út-
flutningsvara landsins. Fyrir-
tæki í N-Noregi hefur þurrkað
3000 kíló af loðnu og sent til
Afríku til reynslu. „Hugmyndina
fékk ég á íslandi,“ sagði eigandi
fyrirtækisins. „íslendingar hafa
gert tiiraunir með þurrkun loðnu
og því ákvað ég að reyna. Viðræð-
ur standa nú yfir með sölu á
þurrkaðri loðnu til Afríku,“
bætti hann við.
Þess má geta að í viðtali í
nýjasta hefti Sjávartíðinda skýrir
Bjarni Magnússon hjá íslensku
umboðssölunni frá því, að samn-
ingar hafi verið gerðir um sölu á
níu þúsund pökkum af þurrkaðri
loðnu til Nígeríu og eigi loðnan að
afhendast á þessu ári.
Kanadísk-
ir vísinda-
menn styðja
Sakharov
Ottawa. 7. febr. AP.
ÞRJÁTÍU og fimm kanadískir
vísindamenn hafa skorað á Sov-
ézku vísindaakademíuna að beita
áhrifum sínum til að dreginn
verði til baka útlegðardómurinn
yfir Andrei Sakharov.
Talsmaður hópsins T.J. Blachut
sagði í dag að allir félagar í
Vísindaakademíu Kanada hefðu
ritað undir skeyti þessa efnis.
Meðal þeirra er Gerhard Herz-
berg, sem hlaut Nóbelsverðlaunin
í efnafræði 1971.
Þór Whitehead
sömu leið, en honum var gefinn
kostur á að bæta ráð sitt.
Þótt evrópskfr kommúnistar
leyfi sér nú að standa uppi 1
hárinu á Moskvuvaldinu var slíkt
talið svik við málstaðinn á þeim
tímum sent bók Þórs Whitehead
fjallar um. íslenskir kommúnistar
voru í nánurn tengslum við Al-
þjóðasambandið (Komintern) og
fyrr en varði var það í höndum
Jósefs Stalíns með öllurn þeim
hörmungum sent af því leiddi fyrir
þjóðir heimsins. Að býsnast yfir
því að íslenskir kommúnistar hafi
fengið fjárstyrki erlendis frá er
aftur á móti út í hött. Það er í
fyllsta máta eðlilegt, enda var
hlutverk kommúnismans alþjóð-
legt, ekki þjóðernislegt hvað sem
menn sögðu og segja enn. Það er
líka staðreynd að íslenskir kratar
fengu peninga frá bræðrum sínum
á Norðurlöndum. Eins og Þór
Whitehead sýnir fram á töldu
íslenskir Alþýðuflokksntenn
danska sósíaldentókrata æskilega
fyrirntynd, en þeir voru aðeins
hjálparkokkar auðvaldsins í aug-
unt ungra ofurhuga meðal
íslenskra kommúnista.
„Þetta rit er aðeins samandreg-
inn fróðleikur unt nokkra efnis-
þætti unnið upp úr takmörkuðum
heimildum," segir Þór Whitehead
um bók sína. Undir það er óhætt
að taka, enda þarf mun viðameira
rit til þess að allt komist til skila.
Gögn vantar oft til þess að mál
séu skýrð til hlítar. Heimildar-
ntönnum ber að þakka margt, en
helstir þeirra eru Einar Olgeirs-
son, Haukur Björnsson og Þor-
steinn Pjetursson. Meðal rita sem
komið hafa sér vel eru fyrrnefnd
bók Hendriks Ottóssonar og Vor í
verum eftir Jón Rafnsson.
Það vill oft verða sve í hita
baráttunnar að einblínt er á vissa
menn sem taka að sér forystuhlut-
verk og eru nógu ráðríkir til að
kveða niður allan mótþróa. Unt
það vitnar bók Þórs Whitehead
meðal annars. En ýntsir minni
spántenn, ekki ónterkir liðsntenn,
fá þó sína uppreisn þegar frarn
líða stundir. Um það segir Komrn-
únistahreyfingin á íslandi okkur
margt. Það voru ekki bara Brynj-
ólfur og Einar sem lögðu drög að
öllu saman þótt sá fyrrnefndi yrði
ofan á með samanlögðum klókind-
um og hörku, m.a. í garð Stefáns
Pjeturssonar. Þeim sem vilja
fræðast um þetta atriði er bent á
bók Þórs Whitehead sem ég held
að verði óntissandi fyrir þá sent
vilja skilja þau ntiklu áhrif sent
kommúnisntinn hefur haft hér á
landi og nt.a. lýsir sér í tryggu
fylgi við arftaka hans í Alþýðu-
bandalaginu.
Peugeot hefur unniö fleiri Þolaksturskeppnir en nokkur önnur gerð bíla.
Bílasýning
veröur haldin í húsakynnum Hafrafells hf. Vagnhöfða 7,
í dag og á morgun sunnudaginn 10. febrúar.
Sýndar veröa árgerðir 1980: Peugeot 305, Peugeot 504
fólksbíll, Peugeot 504 station og nýjasti bíllinn
Peugeot 505.
Nýja franska línan birtist í Peugeot 505.
Hann er nýtískulegur í útliti og frábærlega vel
hannaður.
Peugeot 505 er 5 manna, sjálfskiptur meö vökvastýri.
Hann fæst einnig með dieselvél.
Peugeot 505 er bíllinn, sem ber af öörum. ___________
mium Hf
VAGNHÖFÐA 7 SÍMI 85211
505
Peugeot
Upphaf kommúnista-
hreyfingar á Islandi
SAGNFRÆÐIBÓKMENNTIR
Studia historica.
Sagnfræðistofnun
Iláskóla íslands
Ritstjóri: Þórhallur
Vilmundarson
5. bindi
Þór Whitehead:
Kommúnistahrevfingin á íslandi
1921 - 1934.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
1979.
Þór Whitehead hefur með sagn-
fræðikönnunum sínum vakið hvað
mesta athygli ungra sagnfræðinga
á undanförnum árum. Kemur það
ekki á óvart þegar þess er gætt að
hann velur sér verkefni sem
mönnum eru ofarlega í huga og
vinnubrögð hans mótast af sam-
viskusemi. Eg hef ekki orðið var
við að Þór settist í dómarasæti í
skrifum sínum. Hann leitast við
að varpa ljósi á ýmis viðkvæm mál
samtíðarinnar og leyfir mönnum
síðan að draga sinar ályktanir.
Þetta tel ég kost og fræðimann-
lega afstöðu. Við höfum fengið nóg
af grunnhyggnum og hávaðasöm-
um boðendum.
Bókin Kommúnistahreyfingin á
íslandi 1921 — 1934 er að stofni til
B.A.-ritgerð í sagnfræði sem lögð
var fram haustið 1970. „Eins og
títt er um slíkar prófritgerðir er
þetta flýtisverk unnið á nokkrum
mánuðum,“ skrifar Þór White-
head í formála. Hann segir einnig:
„Gögn Kommúnistaflokks Islands
og alþjóðasamtakanna, sem sá
flokkur laut, liggja ekki á lausu.
Var því ekki um annað að ræða en
að styðjast við prentaðar heimild-
ir og samtöl við nokkra menn, sem
gegndu trúnaðarstörfum í flokkn-
um. Tóku þeir mér allir vel og
greiddu götu mína.“
Hendrik Ottósson víkur að því í
bók sinni Frá Hlíðarhúsum til
Bjarmalands (nýlega endurútgef-
in af Skuggsjá) að drengsmálið
svokallaða hefði auðveldlega getað
valdið byltingu á íslandi og þar
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
með valdatöku kommúnista. Olaf-
ur Friðriksson tók með sér dreng-
inn Nathan Friedmann úr Rúss-
landsför 1921. Drengurinn reynd-
ist haldinn augnsjúkdómi sem
heilbrigðisyfirvöld töldu stafa
smithættu af. Var því ákveðið að
senda drenginn úr landi. En áður
en úr því yrði urðu átök milli
Ólafs Friðrikssonar og stuðnings-
manna hans og lögreglu og lið-
safnaðar hennar. Að mati Hend-
riks Ottóssonar skipti mestu að
Ólafur lét undan síga því að það
hefði hann í raun ekki þurft að
gera. En þessi atburður varð eins
og Þór Whitehead bendir á „upp-
haf skipulagðra kommúnistasam-
taka á íslandi". Ólafur og fylgis-
menn hans voru ekki fyrr sloppnir
úr fangaklefum lögreglunnar en
þeir stofnuðu Áhugalið alþýð-
unnar.
Að ungir menn hneigðust til
kommúnisma og hefðu samúð með
rússnesku byltingunni voru að
vísu ekki ný tíðindi. Til marks um
þennan áhuga nefnir Þór White-
head bókina Byltingin í Rússlandi
eftir Stefán Pjetursson sem kom
út 1921. Stefán var þá við laganám
í Háskóla íslands og að útgáfunni
stóðu auk hans laganemarnir
Stefán Jóhann Stefánsson, Jón
Thoroddsen, Tómas Jónsson og
Sigurður Jónasson og mennta-
skólaneminn Einar Olgeirsson.
Stefán Pjetursson var líklega
fyrsti íslenski kommúnistinn til
að átta sig á ógnarstjórninni í
Kreml, enda var hann rekinn úr
flokknum 1933. Þór Whitehead
kallar hann „frumkvöðul „Evrópu-
kommúnismans" hér á landi“.
Þegar Stefán var rekinn munaði
minnstu að Einar Olgeirsson færi