Morgunblaðið - 09.02.1980, Page 21

Morgunblaðið - 09.02.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 21 hækkað langt umfram verðhækk- anir á erlendum mörkuðum, og breyting á gengisskráningu hefur ekki nægt til að jafna þann mis- mun. Hér erum við komnir að sérstæðum vanda sem íslenskur iðnaður glímir við vegna yfirburða- stöðu sjávarútvegs í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins. Sambýlið við sjávar- útveg hefur verið iðnaðinum erfitt á aðlögunartímanum vegna þeirra áhrifa sem verð- og aflasveiflur, sem mjög setja mark sitt á þessa atvinnugrein, hafa á gengisskrán- ingu íslensku krónunnar. Af þess- um sökum vil ég gera hér sérstak- lega grein fyrir „gengisvanda" íslensks iðnaðar. Gengi gjaldmiðla er verðmætis- hultfall, sem segir til um hvernig skipta má einum gjaldmiðli fyrir annan. Gengið tengir þannig inn- lent og erlent verðlag saman og af þeim sökum er hlutverk þess eink- um að koma á samræmi milli innlends og erlends verðlags og kostnaðar, þannig að samkeppnis- staða innlendra atvinnuvega gagn- vart erlendum sé viðunandi. Á þann hátt er lagður grunnur að jafnvægi þjóðarbúsins gagnvart öðrum lönd- um. Fram til þessa hafa gengis- ákvarðanir nær alfarið verið mið- aðar við afkomu í sjávarútvegi og lítið sem ekkert mið tekið af stöðu almenns iðnaðar. Gengisskráning- unni hefur þannig í reynd verið beitt til stýringar á raunverulegum tilkostnaði sjávarútvegs miðað við tekjumöguleika hans á erlendum mörkuðum. Þessi gengisstefna hef- ur skapað mikinn vanda í íslensk- um iðnaði, sérstaklega í kjölfar samninga Islendinga við Fríversl- unarsamtök Evrópu og Efnahags- bandalagið, en fyrir þann tíma voru aðrar atvinnugreinar en sjávarút- vegur verndaður með háum toll- múrum og innflutningshöftum. Með þátttöku Islendinga í fríverslunar- samtökum og þar með afnámi tolla og hafta í utanríkisviðskiptum, hefur þýðing gengisskráningarinn- ar fyrir íslenskan iðnað gjörbreyst. Gengi hefur nú nákvæmlega sömu þýðingu fyrir afkomu í útflutnings- iðnaði og iðnaði í samkeppni við innflutning og það hefur fyrir sjávarútveginn. Áðgerðir í efna- hagsmálum, sem áhrif hafa á gengi krónunnar, á aðlögunartíma íslensks iðnaðar að frjálsum utan- ríkisviðskiptum með iðnaðarvörur hafa ekki tekið mið af þessum staðreyndum. Vandi íslensks iðnaðar Vandi íslensks iðnaðar af þessum sökum er af tvennum toga spunn- inn, sem nauðsynlegt er að gera skýran greinarmun á. I fyrsta lagi hafa tíðar og miklar afkomusveifl- ur í sjávarútvegi endurvarpast í gengisskráningunni, þar sem jöfn- unarsjóðir sjávarútvegsins hafa ekki verið notaðir nema að tak- mörkuðu leyti í samræmi við það hlutverk sem þeim var upphaflega ætlað. Þessi óstöðugleiki hefur valdið þvt, að útflutningsfyrirtæki í iðnaði, hafa átt erfitt með að ná þeirri fótfestu, sem er útflutnings- fyrirtækjum í iðnaði nauðsynleg jafnt sent fyrirtækjum í samkeppni við innfluttar iðnaðarvörur. Annar meginvandi, sem gengis- stefna stjórnvalda hefur valdið íslenskum iðnaði á undanförnum árum, felst í þeirri tilhneigingu stjórnvaida að fresta nauðsynlegum gengisleiðréttingum með sérstökum aðgerðum til að hafa áhrif til lækkunar á tilkostnaði sjávarút- vegs. Slíkar ráðstafanir bitna mjög illa á útflutningsiðnaði og sam- keppnisgreinum iðnaðar á heima- markaði, þar sem gengisskráning og afkoma í sjávarútvegi eru eins nátengd og raun ber vitni og hljóta því hagíjtæðari starfsskilyrði í sjáv- arútvegi en iðnaði óhjákvæmilega að skekkja gengið gagnvart iðnaði. Dæmi um aðgerðir af þessu tagi, HMM:2093 TNR:20‘JU:13,20 sem ekki verður mótmælt, að eru hlunn- indi fyrir þá sem þess njota, eru undanþága frá launaskatti og íviln- un í aðstöðugjaldi. Ennfremur fer ekki á milli mála, að skattfríðindi einstakra starfshópa verða að telj- ast fríðindi í harðri samkeppni um vinnuafl. Þessu til viðbótar hafa lánskjör og aðgangur að fjármagni verið iðnaðinum mjög í óhag á undanförnum árum, þó þessi mis- munun hafi stórlega minnkað á síðustu árum. Myndin, sem við sjáum hér, sýnir hlutfallslegar breytingar á fram- færslukostnaði og gengi banda- ríkjadollars milli ára frá 1971. Á línuritinu kemur skýrt fram að tilkostnaður mælt á vog fram- færslukostnaðarins vex hlutfalls- lega mun hraðar en nemur breyt- ingum á gengi Bandaríkjadollars á árabilinu 1971 til 1974. Á þessu tímabili var uppsveifla í sjávarút- vegi og genginu lítið breytt, þrátt fyrir verulegar innlendar kostnað- arhækkanir. Árið 1975 snýst þróun- in við og viss leiðrétting á misvægi milli innlends og erlends kostnaðar á sér stað. En fljótlega sígur í sama farið og árið 1976 hækkar fram- færsluvísitalan um 32,2% en gengi dollarans hækkar einungis um 18,4%. Vitanlega var verðbólga í Bándaríkjunum á þessum tíma, en hún var einungis 6,5% á milli áranna 1975 og 1976. Á milli áranna 1976 og 1977 er síðan enn meiri munur á þróun kostnaðar innan- lands og gengi Bandaríkjadollars. Framfærsluvísitalan hækkar um 30,5% en gengi dollars um 9,3%. Með þessum orðum er auðvitað ekki átt við að eðlilegt sé, að kostnaður hér innanlands þróist á nákvæmlega sama veg og gengi Bandaríkjadollars. Ýmislegt getur komið til, sem getur raskað hlut- falli milli gengi gjaldmiðla að frádreginni mismunandi verðlags- þróun milli landa. En óþarft er að fara út í þá sálma hér, enda bar myndin glögglega með sér að hér er fyrst og fremst um hina svokölluðu hagsveiflu sjávarútvegs að ræða. Iðnaður og sjávar- útvegur Þegar aflaverðmæti eykst, eins og árin 1970 - 1973 og 1976 - 1979, hefur það þegar í stað áhrif á tekjur sjómanna og fiskverkunarfólks og hagur fyrirtækja í útgerð og fisk- verkun batnar. En tekjur í öðrum greinum atvinnulífsins aukast einnig, bæði vegna aukningar al- mennrar eftirspurnar vegna tekju- aukans í sjávarútvegi og aukinnar samkeppni og tekjusamanburðar á vinnumarkaðnum. Kostnaðarhækk- anir breiðast þannig út um allt efnahagslífið jafnt til fyrirtækja í sjávarútvegi sem öðrum atvinnu- greinum. Afleiðingin er sú, að þau fyrirtæki sem ekki njóta tekjuauk- ans í formi framleiðsluaukningar, verða að hækka söluverð vara sinna. En verðhækkunarleiðin er ekki vænleg, ef í hlut á fyrirtæki i útflutningi eða heimamarkaðsfyr- irtæki, sem keppir við innflutning. Afleiðingin er því sú, að útflutning- ur dregst saman og markaðshlut- deild heimamarkaðsfyrirtækja, sem eiga í erlendri samkeppni, minnkar. Lægð i sjávarútvegi gefur iðnað- inum hins vegar visst svigrúm til vaxtar, en grundvellinum að þeim vaxtarbroddi, sem þannig myndast er jafnharðan kippt undan, þegar vel árar í sjávarútvegi og fisk- vinnslu aftur. Þetta fyrirkomulag veldur því að iðnaðurinn lokast inn í vítahring, sem ókleift er að brjótast út úr án grundvallar- breytinga á þeim þáttum, sem eru ráðandi um þróun gengisins. Þessi þróun kemur skýrt fram, þegar afkomuþróun er borin saman við þróun gengis á Bandaríkjadoll- ar og framfærslukostnaðar. Ullar- iðnaðurinn er gott dæmi hér um, en árið 1970 er hreinn hagnaður í ullariðnaði 6,5% af framleiðslutekj- um. Þetta afkomuhlutfall lækkar stöðugt næstu ár á eftir á sama tíma og kostnaður eykst stöðugt umfram breytingar á gengi dollar- ans. Árið 1975 vænkast hagur fyrirtækja í ullariðnaði á ný, enda breytist gengi dollarans meira en kostnaður milli áranna 1975 og 1976. Frá 1975 hefur hagnaður í hlutfalli við tekjur stöðugt minnk- að, sem er auðvitað í samræmi við þróun gengis og kostnaðar.I breið- um dráttum gildir þetta almennt fyrir útflutningsiðnaðinn, þó um frávik sé að ræða, sem eru af öðrum toga spunnin, ef ál- og kísilgúriðn- aður er tekinn með. Stórfelldar sveiflur í afkomu út- flutningsfyrirtækja, vegna mis- munandi þróunar á gengi og til- kostnaði innanlands, í för með sér verulega skerta samkeppnisstöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja á erlendum mörkuðum. 011 áætlana- gerð um sölu og rekstur fyrirtækja verður mjög torveld og útflutnings- starfsemin áhættusöm. Markviss útflutningsstarfsemi krefst áætl- ana til langs tíma á íslenska vísu a.m.k., og nægir þar vart minna en eins-tveggja ára tímaskyn hjá stjórnendum fyrirtækja. Slíkt er vart mögulegt til gagns við þær aðstæður, sem við búum við hér á landi. Þróunarmöguleikum fyrir- tækja er þannig skorinn mjög þröngur stakkur og er þar e.t.v. hluta skýringanna að leita á því, að útflutningsiðnaður hefur ekki dafn- að betur en raun ber vitni. Frumskilyrði iðnþróunar er stöð- ugleiki í efnahagslífi, sem þýðir m.a. að verðbólga hér á landi verður að vera í takt við það sem gengur og gerist í helstu viðskiptalöndum okkar. Jafnframt tel ég forsendu þess, að takast megi að koma verðbólgunni niður á sama stig og í nágrannalöndum okkar, er að tekjusveiflur vegna verð- og afla- breytinga í sjávarútvegi eru af þeim sökum nauðsynleg forsenda fyrir eflingu iðnaðar hér á landi, þó raunhæf notkun jöfnunarsjóða sjávarútvegsins leysa auðvitað ekki öll vandamál iðnaðar. Aðlögunargjaldið (3%) sem sett var á í vor, er viðleitni til að rétta það misvægi sem leiðir af mismun- andi aðbúnaði atvinnuveganna. Við álagningu gjaldsins leiðréttist staða heimamarkaðsfyrirtækja, sem eru í samkeppni við innflutn- ing að verulegu leyti, en endur- greiðslur til útflutningsfyrirtækja og þeirra iðnaðarfyrirtækja sem framleiða í samkeppni við innflutn- ing sem aðlögunargjald leggst ekki á, er ætlað að leiðrétta hag þeirra. Álagning aðlögunargjalds er bráðabirgðaráðstöfun til að vinna tíma, sem þarf að nota til að finna varanlega lausn á því misvægi sem er á milli tilkostnaðar fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi. Ætlunin er að fella aðlögunargjaldið niður um árslok 1980 eða eftir rétt rúmt ár og er nauðsynlegt að mismunun iðnað- ar og sjávarútvegs verði þá að fullu afnumin. Hér á ég við alla mismun- un á hvora hliðina sem hún er, enda er ég þeirrar skoðunar að einungis sú iðnaðarframleiðsla, sem getur staðist heilbrigða samkeppni eigi rétt á sér hér á landi. Við eigum hvorki að styðja iðnað né sjávarút- veg sérstaklega, heldur skapa þess- um atvinnugreinum eðlileg og jöfn starfsskilyrði og snúa okkur að því að koma almennum efnahagsmál- um þjóðarbúsins á réttan kjöl. Birt hefur verið áskorun frá kvennasamtökum til íslenzkra kvenna varðandi framboð konu í embætti forseta íslands á næsta vori. Ég tel mig einn þeirra Islend- inga sem bera mikla jafnréttis- kennd í brjósti. Því er ég mjög mótfallinn öllum öfgaáróðri fyrir auknum rétti einum manni til handa, á kostnað annars. Þar á ég við að skórinn sé troðinn niður af einum til að koma öðrum fram. Vissulega ber að muna að konan var misrétti beitt um langa tíð varðandi mannréttindi, sem karlinum hlotnuðust. Það er sorgarsaga, sem núlif- andi eldra fólk kannast vel við. Óréttlætið er ekki lengra undan en þetta. Konur máttu sætta sig við að hafa hvorki kosningarétt né kjörgengi. Forystumenn í þjóðfélaginu hafa hælt sér af því að bæta launamisréttið. Sann- leikurinn er sá, að þetta misrétti var svo mikil þjóðarskömm, að þetta átti að laga án orða og án þess að hæla sér af. Þetta líkist því að skila stolnum hlut til baka, þó ekki öllum. Húsmóður- starfið á íslandi hefur aldrei verið metið sem skyldi. Sannleikur málsins er sá, að hlutverk móðurinnar er það feg- ursta og stærsta framlag sem Valgarður L. Jónsson: Hjón eru eitt jafnfætis og styðja hvert annað, farsælt hjónaband er ómetan- legt konu og karli, og þá ekki síður börnunum, reyndar öllu samfélaginu. Það er sá horn- steinn sem farsæld og mannkær- leikur byggist á. . íslendingar eru taldir gest- risnir að eðlisfari, reyndar er flest sveitafólk og fl. alið upp í þeim anda. Það er gömul íslenzk hefð að bóndi standi úti fyrir heimili sínu og taki á móti gesti sem að garði ber, bjóði til stofu, spyrji frétta og taki við erindi gestsins. Konan gegnir sínu hlutverki, sem er engu minna, lagar sig til og gengur í stofu, heilsar gestum og býður veit- ingar, sem hún ber fram oft af rausn. Þessi forna íslenzka bændamenning ætti að varðveit- ast með íslenzkri þjóð um ókom- in ár. Það er dýrmæt erfð kynslóðanna, sem ber að varð- veita. Því kynni ég því vel að þessi gamla þjóðarhefð yrði varðveitt á heimili æðsta manns þjóðarinnar, forsetaheimilinu að Bessastöðum. Ég kynni því betur að þar mætti gestum höfðingleg- ur karl, húsbóndi heimilisins á bæjarhellu, hann byði til stofu, þar gengi fram virðuleg íslenzk kona, sem byði gesti velkomna og veitti þeim góðgerðir, gegndi sem ætíð sinu göfuga húsmóður- hlutverki. Ég lít þannig á að þarna sé um tvær verur að ræða, sem eru reyndar eitt í sínu starfi og lífi. Mér varð á að fá hjón sem vígsluvotta þegar ég gifti mig. Þegar athöfn skyldi hefjast kem- ur prestur til mín og segir: Hvar er annar votturinn? Ég benti á hjónin. Hann svaraði: Hjón eru eitt, því varð ég að fara út og fá vígsluvott. Þetta atvik varð til þess að síðan veit ég að hjón eru eitt. Því kann ég því alltaf bezt að virðuleg hjón taki á móti gestum sínum. Það form er allavega virðulegast á æðsta heimili þjóðarinnar, hvaða gest- einmg 1 em- bætti forseta nokkur maður á jörðinni leggur fram. Hvað sjáum við fegurra en sanna móðurást? Hver á stærri hlut í friðarmusteri heimilanna en konan? í>að er hún sem ber sáttarorð á milli barnanna í erjum dagsins, reyndar annarra ef með þarf. Hún má í dagsins önn sýna langlundargeð og þol- gæði. Allir góðir menn bera kærleikshug til móður sinnar. Allir vita að hún gegnir stóra hlutverkinu að viðhalda mann- kyninu. Hún má leggja krafta sína í að ganga með nýjan þjóðfélagsþegn undir belti í 9 mánuði, við breytilegar aðstæð- ur, oft erfiðar. Hugsum til sjó- mannskonunnar og annarra slíkra sem gegna foreldrahlut- verkinu einar, lengri eða skemmri tíma. Jú, ég ber svo sannarlega mikla virðingu og vinarhug til góðra kvenna, sem vinna sitt hlutverk af ást og umhyggju, oftast án þess að gera kröfur til annarra en sjálfra sín, allt of oft á bak við tjöld fálætis, það svo að þær nota ekki sjálfsagðan rétt sem þær eiga hjá samfélag- inu. Því skyldu konur vera svo fáar, sem raun ber vitni t.d. á Alþingi? Vegna þess fálætis og hlédrægni sem konunni er í blóð borin, vegna þess að hún hefur mátt þola skert frelsi um ár og aldir. Það tekur sinn tíma að lagfæra hlutina. Hefðbundin lífsvenja er líf- seig, og enn vantar á að konur fái sömu laun fyrir sömu vinnu og karlar, en allt horfir þetta til betri vegar. Sameinaðir stöndum við, sundraðir föllum við, því á ekki að ala á úlfúð á milli karla og kvenna, það er hetmskulegt athæfi. Hjón eiga að standa ir sem eiga í hlut. Oðru máli gegndi væri ísland einræðisríki og hér sæti einn valdamikill þjóðhöfðingi, karl eða kona, sem hefði öll eða flest völd á einni hendi. Ef hér skipaði kona forseta- sætið ein, og væri gift, þá gengi hún fyrst fram mót gestum. Hvar yrði bóndinn? Kannski sem vinnumaður einhvers staðar í verkunum. Því formi kynni ég ekki. Sem fyrr segir: hjón eru eitt og eiga að vera það í hverju starfi, það vantar mikið þegar vantar helminginn. Ég trúi því að forsetahjónin ráði sínum ráðum í félagi, einnig varðandi embættisstörf forset- ans. Af því sem fyrir augun ber, getur maður sér til um að fráfarandi forsetahjón búi við farsælt og ástúðlegt hjónaband og þá um leið samstarf. Það sama var að sjá hjá fyrirrennur- um þeirra. Allt hefur þetta tigna fólk verið þjóð sinni til mikils sóma, það vita allir. Ég held að fléstir íslendingar kunni þessu gamla formi vel. Vissulega ber að vanda valið, þegar Bessastaðir verða byggðir að nýju á næstu fardögum. Þá er gott að hafa frúna einnig og ekki síður í huga, því hún hlýtur heiðurinn að hálfu á móti bónda sínum og embættið einnig. Þetta ættu sem flestir að hafa hugfast, bæði karlar og konur. Við látum okkur ekki detta í hug að gera æðsta býli íslend- inga að einsetubæli, það væri niðurlæging á meðan óbreyttir stjórnarhættir ríkja á íslandi. í starfið veljum við góð, virðuleg hjón, sem eiga flekklausa fortíð. óflekkað mannorð, gáfur menntun og glæsileik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.