Morgunblaðið - 09.02.1980, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
36
„Þetta er saga venjulegs
fólks, hjóna í basli við að
koma sér upp íbúð með tilheyr-
andi aukavinnu og álagi, en
það gengur ekki allt of vel
því freistingarnar eru marg-
ar. Þetta er þeirra hörmunga-
saga, en með verulega léttu
ivafi á köflum, “ sagði Þór-
hildur Þorleifsdóttir leikstjóri
í samtali við Mbl. þegar við
litum inn í Alþýðuleikhúsið
eitt kvöldið í vikunni til þess
að fylgjast með æfingu á
Heimilisdraugunum. nýju leik-
húsverki eftir Böðvar Guð-
m undsson. Heimilisdra ug-
arnir voru frumsýndir sl.
sunnudagskvöld í Lindarbæ.
„Þetta er í rauninni lýsing á
viðskiptum þessara hjóna við
kerfið, sem þau ráða ekkert við.
Þetta eru litlar manneskjur,
klaufalegar gagnvart kerfinu, en
leikritið er sagt með augum
barna þeirra á ýmsum aldurs-
skeiðum.
Við höfum grímur á þeim sem
koma fram fyrir hönd kerfisins
og þau gervi eru stór og ýkt.
Þá er draugur í verkinu, því
skotta nokkur fylgir ætt manns-
ins og hann tekur það sem góða
og gilda ástæðu fyrir óförunum,
en sjón er sögu ríkari og við
frumsýnum þetta nýja leikrit
Böðvars um helgina."
Þórhildur kvaðst hins vegar
vilja vekja athygli á því að
húsnæðisvandamál stæðu Al-
þýðuleikhúsinu alvarlega fyrir
þrifum. Öll aðstaða í Lindarbæ
er mjög erfið vegna þrengsla og
mikill tími fer í að bera leikmuni
út og inn úr geymslum og alla
búninga verður að sníða og
sauma á göngum í anddyri.
þannig fer mikil vinna í vafstur
vegna húsnæðisþrengsla.
Leikarar í Heimilisdraugun-
um eru Björn Karlsson og Sól-
veig Hauksdóttir sem leika hjón-
in, Edda Björgvinsdóttir og
Gunnar Rafn Guðmundsson
leika börnin, Gísli Rúnar Jóns-
son leikur allt kerfið og Bjarni
Ingvarsson leikur vinnufélaga
hans. Vinkonu frúarinnar leikur
Anna S. Einarsdóttir og miðil-
inn leikur Kolbrún K. Halldórs-
dóttir. Einnig leika leikararnir
ýmis önnur hlutverk. Leikmynd
og búninga gerði Valgerður
Bergsdóttir, tónlist og leikhljóð
gerði Áskell Másson og grímur
gerði Gísli Rúnar Jónsson.
Alþýðuleikhúsið er nú með
nýtt leikrit í æfingu eftir Björn
Garðarsson sem er nýr höfundur
í þágu Thalíu og einnig er verið
að æfa barnaleikrit sem mögu-
lega verður sýnt í skólum.
Þessi unga stúlka, Steinunn Þorsteinsdóttir, var stödd á æfingu í Alþýðuleikhúsinu þegar við sóttum andstæða hins grímuklædda kerfis.
Heimilisdraugamir
á svið hjá Alþýðuleikhúsinu
Sólveig Uauksdóttir i Heimilisdraugunum.
Kolbrún K. Halldórsdóttir
Sólveig Hauksdóttir
Gísli Rúnar Jónsson
Gunnar Rafn Guðmundsson
Grein og myndir:
Árni Johnsen
Nýtt leikrit
eftir Böðvar
Guðmundsson
Þórhildur Þorleifsdóttir leik-
stjóri.
Bjðrn Karlsson
Edda Björgvinsdóttir