Morgunblaðið - 09.02.1980, Síða 41

Morgunblaðið - 09.02.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 41 felk í fréttum + Hið fræga vaxmynda- safn Madame Tussaud í London, kannar á ári hverju meðal gesta sinna hver sé ógeðfelldasta vax- myndin í safninu. Arum saman hefur Adolf Hitler skipað þar efsta sætið. En nú hefur hann verið leyst- ur af hólmi. Nú er ógeð- felldasti maðurinn þar Ayatollah Ruhollah Khomeini. Aðeins einu sinni áður á síðari árum hefur Hitler orðið að þoka úr efsta sætinu. Þá var það fyrir einræðisherran- um Idi Amin. Vinsælasti íþróttakappinn í Tuss- aud-safninu hefur til skamms tíma verið Mu- hammed Ali. En nú hefur honum verið skákað. Það gerði sænski íþróttakapp- inn Björn Borg. Þessi mynd er kvöldmynd frá Teheran. Hún sýnir flóð- lýsta mynd af Khomeini gamla framan við banda- rísku sendiráðsbygging- una í borginni, þar sem Bandaríkjamennirnir eru enn í haldi. Það er að sjá sem gatan sé með öllu mannlaus. + Tónverk, í óratóríu- stíl, eftir Jóhannes Pál páfa II. mun verða frumflutt á tónlistar- hátíð í borginni Luc- erne í Svisslandi í ág- ústmánuði næstkom- andi. Verður tónlist- arhátíðin tileinkuð Póllandi. Þetta tónverk páfans, sem hann samdi fyrir 20 árum, er um hjónabandið og ást- ina. „Gullsmíðastofan“ heitir það. Efnið fjallar um þrenn hjónaefni, sem fara til gullsmiðs- ins til að láta smíða giftingarhringana sína. Nú er það svo, að um tónverk þetta hefur verið vitað, en það er fyrst núna sem kunn- gert hefur verið hver höfundur þess er, því er það birtist fyrst, notaði höfundurinn dulnefni. Diskó- drottn- ingin í mál + Rokk- & diskó-stjarnan Donna Reed sagði frá því nú nýlega að þegar hún lagði út á þessa listabraut hefði hún verið allt í senn, andlega og líkamlega illa á sig komin og of reynslu- lítil á flestum sviðum og þá einkum á sviði við- skipta- og peningamála. Hyggst hún nú rétta hlut sinn í þeim efnum. Hafi hún verið hlunnfarin í skiptum sínum við hljóm- plötuútgáfu sem heitir Casablanca Records. Ætl- ar hún að gera fjárkröfur á hendur fyrirtækinu fyrir upphæð, sem nemur 10 milljónum Bandaríkja- dala, eða 4 milljöðrum ísl. króna. Durante hefur kvatt + Ameriski gamanleikarinn ncístóri, Jimmy Durante er látinn 86 ára gamall. Segja má. að þessi einstaklega nefstóri maður hafi allt sitt líf verið skemmtikraftur. Hunum er i fréttum stórblaða vestra skipað á bekk með Chaplin. Ilann var frægur fyrir bráðsmellin til- svör sín og brandara. Gerði i því að gera grín að sjálfum sér ef svo bar undir. Merkileg timamót urðu í lífi þessa spaugilega náunga árið 1950, en þá gerði hann innrás á heimili milljóna Bandaríkja- manna. Það ár byrjaði hann að skemmta í sjónvarpinu vestra. Durante lætur eftir sig konu og barn, sem þau ættleiddu. Hún er 28 árum yngri en hann. Þau giftu sig árið 1960. Þá var Durante orðinn 67 ára og hún 39 ára gömul. Eftir áfall, sem hann varð fyrir á árinu 1972, hafði heilsu hans farið jafnt og þétt hrakandi. BLÓM VIKUNNAR v\<< UMSJÓN: ÁB. ® X^/flBV, BIRKI (Betula) Birki er mjög útbreitt á norðurhveli jarðar og vex yfirleitt þar sem trja- gróður á annað borð get- ur þrifist. Talið er að um 40 tegundir af birki vaxi á norðlægum slóðum. Um norðanverða Evrópu vaxa aðallega þrjár tegundir þær eru: ILM- (Betula pubes- HENGIBJÖRK verrucosa) og FJALLDRAPI (Betula nana). Tvær þessara teg- unda vaxa villtar hér á landi þ.e.: ilmbjörk og fjalldrapi. ILMBJÖRK hefur egg- laga hærð blöð. Greinar eru stinnar, uppstæðar, sm af því, BJÖRK cens) (Betula greinum 30—70 hæð. Börkurinn er dökkgrár eða brúnn. Árssprotar hærðir. Blöð- in stilkstutt gróftennt með snubbóttum bogstýf- um tönnum, hárlaus, dökkgræn. Fjalldrapi hefur lítið verið notaður sem garðrunni, en er mjög fallegur skriðull runni sem væri full ástæða til að nota meira í görðum t.d. sem lágt hekk (30—50 sm) eða í kanta og í steinhæðir. Maðkur og lús sækja mjög á ilmbjörk og fjalldrapa og er nauðsynlegt að fylgj- ast vel með óþrifum á þessum tegundum og Birki og börn í Heiðmörk. ungar greinar oftast hærðar. Börkurinn slétt- ur, grár, brúnn eða rauð- leitur. Ysta lagið flagnar af og kallast næfrar. Ilm- björkin er uppistaðan í íslenskum skógum og hefur verið mikið ræktuð til plöntunar í skóglendi og garða. Hún er mjög falleg sem einstakt tré og jafnframt prýðileg í ilm- gerði (hekk). Birki þarf frjósaman jarðveg þó svo að tréð sé nægjusamt í eðli sínu. Birki er ljós- elskt og þarf að gæta þess við gróðursetningu að það njóti góðrar birtu. Birki- viður er góður tii smíða, þá sérstaklega til út- skurðar og til þess að renna úr. Fátt er betra í brenni en vel þurrt birki. FJALLDRAPI er jarð- lægur runni með jarðlæg- um eða uppsveigðum gera ráðstafanir þar að lútandi í tæka tíð ef með þarf. Talsvert hefur verið flutt inn af ýmsum teg- undum birkis frá norð- lægum löndum en sá inn- flutningur hefur ekki tek- ist sem skyldi. Birki virð- ist vera mjög staðbundið tré og er mjög viðkvæmt fyrir flutningi milli staða. Þó eru nokkrar tegundir sem líklegt væri að gætu þrifist hér og orðið að fallegum og vaxtarmiklum trjám og má þar nefna t.d. HENGIBJÖRK (B. verru- cosa) og ALASKABIRKI (B. papyrifera). Til eru hér á landi nokkur tré af hvorri tegund sem lofa góðu um vöxt og þrif hérlendis. V. Sigtr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.