Morgunblaðið - 09.02.1980, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1980
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL 10— 11
FRÁ MANUDEGI
ny ujjantosaa'u lí
við Baldurshaga, að greiða lóðar-
leigu? Hvers vegna á maður, sem
á næsta land örlítið stærra, að
borga vatnsskatt og Ióðarleigu?
Vatn hefur aldrei verið í landinu
eða á því, aðeins dropar af himn-
um ofan þegar skaparanum þókn-
ast.
Hvers vegna á maður í sveit,
sem á smá sumarhús á smá skika,
að borga sýsluvegasjóðsgjald þó
að hann keyri aldrei á fyrrnefnd-
um vegi?
Hvar verður borið niður næst?
Sennilega verður skattlagt loftið,
sem við öndum að okkur.
Forvitin.“
• Óskiljanlegt
skaup
„Það hafa víst margir sjón-
varpsáhorfendur vonast eftir
skemmtilegri dagskrá í sjónvarp-
inu á gamlárskvöld.
En hvað gerist? Þessi kvöld-
dagskrá var ömurieg frá upphafi
til enda, svo ekki sé meira sagt.
Þetta var samansett af óskiljan-
legum hrærigraut af einhverju,
sem átti að heita dans, og kjána-
látum fjölda fólks í alla vega
búningum. Þar var ekki verið að
spara og væri vel hugsanlegt að í
þetta væru komnar nokkrar millj-
ónir þetta eina kvöld. Bessi
Bjarnason var sá eini, sem kom til
dyranna eins og hann var klædd-
ur, og blandaði sér lítið í alla
hringavitleysuna, en var þó með
spaugsyrði eins og hann er vanur.
Einn þátturinn í þessu verður
sérstaklega gerður að umtalsefni
hér. Hlé varð á og maður hélt að
nú ætti að fara að gera eitthvað
raunverulegt. Og ein stúlkan
stillti sér upp og fór að lesa hið
alkunna kvæði „Ohræsið“. En hún
las ekki nema tvær ljóðlínur, þá
upphófst sami vitleysisgangurinn
aftur og hálfu verri en áður, því
nú byrjuðu þeir á skothríð og
skutu' hver annan, enda lágu
nokkrir skrokkar við fætur stúlk-
unnar á eftir. Mjög glæsileg upp-
stilling að láta börn á barnaári
horfa á það hvað sumt fullorðið
fólk getur gert sig að miklum
hálfvitum frammi fyrir alþjóð.
Það væri ekki ólíklegt að
drengjunum, sem fengu byssur í
jólagjöf, þætti mjög spennandi að
endurtaka þennan þátt fullorðna
fólksins úr sjónvarpinu, enda læra
börn það sem fyrir þeim er haft.
Það væri óskandi að sjónvarpið
kæmi ekki með svona uppstillingu
aftur. Væri ekki reynandi að taka
fallegar landslagsmyndir eða
skemmtilegar myndir af atvinnu-
lífi þjóðarinnar til sjávar og
sveita. Þar er af nógu að taka og
vel viðeigandi að kveðja gamla
árið með því að sýna hvað vel er
gert og hvað hefur áunnist til
góðs. Eg vona að einhverjir séu
mér sammála í því.
Sigríður G."
Þessir hringdu . . .
• Milliölið
er bannað
Áfengisvarnaráð gerði eftir-
farandi athugasemd við skrif hjá
Velvakanda í gær, föstudag um
milliöl í Svíþjóð:
„Áfengisvarnaráði þykir miður
að Velvakandi skuli athugasemda-
laust og án þess að kynna sér
málið birta staðleysur um fréttir
frá því. Auðvelt hefði verið að afla
sér réttra upplýsinga með einu
símtali.
Bann við framleiðslu og sölu
milliöls (mellanöl) í Svíþjóð tók
gildi 1. júlí 1977. Slíkt öl hafði þá
verið selt í landinu í tæpan áratug.
Ein helzta ástæða fyrir banninu
var aukin drykkja unglinga og
barna svo að til stórkostlegra
vandræða horfði. Mellanöl hefur
því ekki verið selt í áfengisverzl-
unum sænska ríkisins síðan þá.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Bialyst-
ok í Póllandi í fyrra kom þessi
staða upp í skák þeirra Kosciuks,
Póllandi, sem hafði hvítt og átti
leik gegn Tekkanum Meduna.
34. IIxh7+! - Rxh7, 35. Df7
(Svartur á nú enga vörn við Rg6+,
því að eftir Rf8 er hann mát á g8.
Hann reyndi:) b5. 36. Bd5 — Hd8.
37. Be4! - Bg7, 38. Rg6+ -
Dxg6, 39. Dxg6 - Hdl+, 40. Kh2
og svartur gaf.
Þess má geta að erindi eftir
ritstjóra stærsta blaðs Svía, Dag-
ens nyheter, birtist í Morgunblað-
inu í vor sem leið og er þar bent á
jákvæðar afleiðingar milliöls-
bannsins. Áfengisvarnaráði ber
lögum samkvæmt, að skýra frá
staðreyndum jafnvel þótt það
kunni að vera einhverjum til
ama.“
HÖGNI HREKKVÍSI
Slot
drabb-
aranna
Hilmar Stefán Karlsson:
BORG DROTTNINGARINNAR.
Útgefandi höfundur 1980.
Borg drottningarinnar má líta á
sem eins konar stílæfingu ungs
höfundar. Hilntar Stefán Karlsson
tileinkar sér sérkennilegan
flaumstíl með fyrndri stafsetningu
á köflurn. Sögunni er að vísu skipt í
kafla, en hana þarf helst að lesa í
einu lagi. Þráður ef þráð skyldi
kalla glatast annars. ,
7 Sagan er lögð í rnunn kvenpér-
sónu sem rifjar upp minningar úr
sveit og borg meðan hún gengur
um stræti Reykjavíkur eða tekur á
móti gestum í sloti sínu. Flestar
eru þessar minningar kynferðislegs
eðlis, lýsa kynreynslu með óvenju-
legunt hætti. Framsetningin er
óljós og víða leikur að orðum og
tilraun til að búa til ný orð sent
tekst misjafnlega. Sumt er reyndar
smellið.
Það er til dæntis gaman að lesa
Reykjavíkurlýsinguna sent er all-
Bðkmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
nákvæm og segir frá öllum helstu
hverfum borgarinnar frá Norður-
ntýri til Vesturbæjar. I þeirri
frásögn kynnumst við lífi krakka
og unglinga sem ýmist stytta sér
stundir við snúðaát eða freista þess
að finna skjól til að prófa uðnaðs-
semdir ástarinnar. Líkt og Pétur
Gunnarsson í Reykjavíkurbókum
sínum segir Hilmar Stefán Karls-
son ítarlega frá kvikmyndum; önn-
ur er með þeim Steve og Ali, hin er
Mary Poppins. Lýsing fyrri mynd-
arinnar ber hugarflugi höfundar
vitni og ekki síst tekst honum að
laða fram undarlega stemningu
kvikmyndahússins. Hófsemi er
meiri hvað varðar ævintýraheim
Mary Poppins.
Persónurnar í Borg drottningar-
innar eru suntar hverjar litríkar og
verða flestar að flokkast undir það
fólk sem kennt er við undirheima
og svalllíf af ýmsu tagi. Ástmann-
inum Bamba er lýst svo:
„Bambi allur var rnjer einn so
sætur kokteill hins blásaklausa
kornabarns og þess út úr kynjað-
asta og drabbaðasta sem líf hafði
alið. Sumpart fannst mjer dulinn
ljettleikinn hans besta dæmi um
allt sem heilnæmt og ólaskað var
tilverunnar en hálfvegis fannst
mjer einmitt þessi sami óendanlegi
ljettleiki haldbetra sönnunargagn
en nokkuð urn þann algjöra geðs-
krankleika sem inni í þessu kám-
laúsa Bambaslími hlaut að hafa öll
völd.“
Undir lok sögunnar er Iýst sam-
förurn kvenna og nær þar flaum-
stíll höfundar hámarki og á enda
vel við.
Margt er vel skrifað í þessari
sögu, en óneitanlega hefði lesandi
kosið að höfundur skipulagði efnið
betur og hefði meira taumhald á
málinu. Ymiskonar sérvisku þarf
hann að losna við í framtíðinni, en
ástæðulaust er að líta á .þetta
öðruvísi en sem dæmigerð byrj-
andaeinkenni.
Hilmar Stefán Karlsson er án
efa vel að sér í framúrstefnulist,
ekki síst nýjum bókmenntum.
Hann er fulltrúi nýrrar kynslóðar
sem ég spái að eigi eftir að láta æ
meir að sér kveða.
Borg drottningarinnar er við-
leitni ungs höfundar sem urn margt
er lofsverð þegar hinum augljósu
göllum er sleppt.
í |bl .
Islands
ferma skipin
sem hér
segir:
AMERÍKA
PORTSMOUTH:
Bakkafosss 8. febrúar
Selfoss 12. febrúar
Goðafoss 21. febrúar
Brúarfoss 26. febrúar
Bakkafoss 28. febrúar
Bakkafoss 21. mars
BRETLAND/
MEGINLANDIÐ
ANTWERPEN:
Bifröst 8. febrúar
Reykjafoss 14. febrúar
Bifröst 20. febrúar
Skógafoss 28. febrúar
Reykjafoss 6. mars
ROTTERDAM:
Reykjafoss 13. febrúar
Bifröst 19. febrúar
Skógafoss 27. febrúar
Reykjafoss 6. mars
FELIXSTOWE:
Stuðlafoss 12. febrúar
Dettifoss 19. febrúar
Mánafoss 25. febrúar
Dettifoss 3. mars
Mánafoss 10. mars
Dettifoss 17. mars
HAMBORG:
Mánafoss 14. febrúar
Dettifoss 21. febrúar
Mánafoss 28. febrúar
Dettifoss 6. mars
Mánafoss 13. mars
Dettifoss 20. mars
WESTON POINT:
Kljáfoss 13. febrúar
Kljáfoss 27. febrúar
Kljáfoss 12. mars.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
KRISTJ ANSSANDUR:
Tungufoss 12. febrúar
Álafoss 26. febrúar
Úðafoss 11. mars
MOSS:
Álafoss 8. febrúar
Tungufoss 15. febrúar
Úðafoss 22. febrúar
Álafoss 29. febrúar
Tungufoss 7. mars
Úðafoss 14. mars
BJÖRGVIN:
Úðafoss 18. febrúar
Tungufoss 3. mars
HELSINGJABORG:
Háifoss 12. febrúar
Lagarfoss 19. febrúar
Háifoss 26. febrúar
Lagarfoss 4. mars
GAUTABORG:
Tungufoss 13. febrúar
Úðafoss 20. febrúar
Álafoss 27. febrúar
Tungufoss 5. mars
Úðafoss 12. mars
KAUPMANNAHÖFN:
Háifoss 13. febrúar
Lagarfoss 20. febrúar
Háifoss 27. febrúar
Lagarfoss 5. mars.
HELSINKi:
Múlafoss 21. febrúar
VALKOM:
Múlafoss 22. febrúar
GDYNIA:
[rafoss 9. febrúar
Múlafoss 25. febrúar
simi 27100
Frá REYKJAVÍK!
á mánudögumtil
AKUREYRAR
ÍSAFJARÐAR
á miðvikudögum tii
VESTMANNAEYJA
EIMSKIP