Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980 29
Ósamræmi í upplýsingum og
aðstöðu erlendra verkamanna
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Baráttuhóp farandverkafólks:
„Almennur umræðufundur um
málefni farandverkafólks var
haldinn í matstofu Meitilsins
Þorlákshöfn miðvikudaginn 20.
febrúar kl. 20.30. Til fundarins
boðaði Baráttuhópur farandverka-
fólks í samvinnu við innlent og
erlent farandverkafólk í Þorláks-
höfn og með aðstoð verkalýðsfé-
lagsins á staðnum. Fundinn sóttu
milli 60 og 70 manns, flest innlent
og erlent farandverkafólk, en auk
þess hópur nemenda af Félags-
málaskóla Alþýðu. Fundurinn
hófst með tveim framsögum.
Björn Gíslason greindi frá þróun
baráttunnar, reyfaði helstu kröfur
í tengslum við aðstæður í dag og
benti á nauðsyn skipulegrar bar-
áttu farandverkafólks.
Jill Johnstone, stúlka frá Ástr-
alíu, lýsti því ósamræmi sem er í
upplýsingum vinnumiðlana er-
lendis og því sem við blasir þegar
til landsins er komið. Nefndi hún
sem dæmi að erlendis var þeim
sagt að um leið og þær byrjuðu að
vinna fengju þær a.m.k. 60 pund í
laun á viku, en er hingað kom urðu
launin mest 40 pund. Erlendis var
þeim sagt að laun þeirra væru
gengistryggð og ört fallandi gengi
íslensku krónunnar skipti þær því
ekki máli. Þetta reyndist ekki rétt.
Þá sagði hún íbúðaraðstöðu, m.a.
hreinlætis- og eldunaraðstöðu í
engu samræmi við það sem þeim
var sagt.
Hún sagði erlendu verkakon-
urnar enga tilsögn hafa fengið í
vinnuaðferðum og bónuskerfi.
Þær yrðu því að læra af reynslu
sinni án aðstoðar sem bæði væri
seinlegt og erfitt, og þá ekki síst
vegna misjafns gæðaeftirlits í
húsinu frá degi til dags. Upplýs-
ingar um aðra þætti kjarasamn-
inga, skatta- og útsvarsgreiðslur
og annað sem máli skipti hefðu
þær engar fengið.
Ræða Jill var samhljóða því sem
fram hefur komið frá erlendu
farandverkafólki á fundum far-
andverkafólks, og Baráttuhópur
farandverkafólks hefur rekist á
dæmi þess að erlendar farand-
verkakonur væru notaðar sem
varavinnuafl og fengju ekki vinnu
nema einn og einn dag í viku, þó
annað verkafólk hjá viðkomandi
fyrirtæki fengi yfirvinnu á sama
tíma. Þær njóta engra atvinnu-
leysisbóta, eiga við þessar aðstæð-
ur naumast til hnífs og skeiðar, og
komast ekki úr landi, þar sem þær
þurfa að greiða fargjald sitt sjálf-
ar, fari þær fyrr en gert er ráð
fyrir. Verður ekki annað séð en
verkalýðshreyfingunni beri nú
þegar að stöðva innflutning er-
lends verkafólks, á meðan aðstæð-
ur þess, réttarstaða og starfsemi
erlendra vinnumiðlana er könnuð,
og kjara- og samfélagsleg réttindi
þessa fólks betur tryggð.
I almennum umræðum á' fund-
inum kom fram frá innlendu
farandverkafólki að verbúðar-
húsnæði á Þorlákshöfn er sum-
staðar mjög slæmt. Einn ræðu-
manna lýsti verbúð þeirri er hann
býr á þannig, að þar væru allt að 9
manns saman í herbergi. Þar
byggi einn farandverkamaður í
gluggalausri kytru við músagang.
Brunahætta væri mikil en eld-
varnir engar. Opið væri milli
vinnslusalar á neðri hæð og ver-
búðar og því megn ólykt á her-
bergjum og af fötum og öðrum
eigum farandverkafólksins.
Hreinlætisaðstaða væri nánast
engin. Einnig kom fram að sam-
göngum við staðinn væri þannig
háttað, að farandverkafólk úr
nærliggjandi byggðarlögum ætti
mjög erfitt með að komast heim
til sin í fríum.
Fram kom mikill áhugi farand-
verkafólksins á baráttu fyrir úr-
bótum, og á fundinum var kosin
nefnd sem í eiga sæti innlendir og
erlendir fulltrúar af öllum vinnu-
stöðum farandverkafólks í Þor-
lákshöfn. Var nefndinni falið að
samræma umræðu og aðgerðir
farandverkafólks í Þorlákshöfn og
vera jafnframt tengiliður við bar-
áttuhópinn í Reykjavík.
Fram kom á fundinum að far-
andverkafólki í einni verstöð í
Grindavík hafði tekist að ná fram
lækkun fæðiskostnaðar úr 3000 kr.
á dag í 1800 kr. Beitti það til þess
hótunum um fjöldauppsagnir.
Vöktu þessar fréttir mikinn fögn-
uð fundargesta.
Á fundinum voru sungnir bar-
áttusöngvar bæði á ensku og
íslensku, og í lok hans var eftir-
farandi ályktun samþykkt einum
rómi.
Ályktun
Almennur umræðufundur um
málefni farandverkafólks, haldinn
í Þorlákshöfn 20. febrúar 1980,
skorar á verkalýðsfélög um land
allt að hefja nú þegar umræðu
innan félaganna um málefni far-
andverkafólks, og hvetur þau til
að lýsa yfir stuðningi við, að
kröfur farandverkafólks verði
meðal forgangskrafna ASÍ í kom-
andi samningum. Jafnframt hvet-
ur fundurinn verkalýðsfélögin til
að skipuleggja náið samstarf við
farandverkafólk á félagssvæðum
sínum.
Fundurinn skorar á fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bands Islands að framfylgja sam-
þykktum 9. þings sambandsins
varðandi farandverkafólk. Jafn-
framt skorar fundurinn á Verka-
mannasambandið og Alþýðusam-
bandið að koma inn í samninga
kröfum farandverkafólks gagn-
vart atvinnurekendum og ríkis-
valdi, og hvetur þessi sambönd til
að hrinda af stað umræðu um
hvernig félagsleg réttindi farand-
verkafólks verði best tryggð.
Þá skorar fundurinn á Sjó-
mannasamband Islands að sýna
farandverkafólki fulla samstöðu
og taka upp baráttu fyrir kröfum
þess. Bendir fundurinn í því sam-
bandi á aðstæður þeirra farand-
sjómanna sem búa þurfa um borð
í bátum alla vertíðina og þá
augljósu slysahættu sem af því
leiðir.
Fundurinn skorar á farand-
verkafólk um land allt að skipu-
leggja umræðu um málefni sín og
hvetur það til samvinnu við við-
komandi verkalýðsfélög.
Fujidurinn fagnar árangri far-
andverkafólks í Grindavík, sem
með einhuga samstöðu og skipu-
lögðum aðferðum, tókst að knýja
fram fæðislækkun úr 3000 í 1800
kr. á dag og bendir á möguleika
þess að hliðstæðar tilraunir verði
gerðar á fleiri stöðum.
Að lokum vill fundurinn hvetja
erlent farandverkafólk á íslandi
til að láta frá sér heyra um sín
sérmálefni, nú þegar umræður um
málefni þess fara fram á Alþingi.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Unganröskan
og reglusaman
mann vantar vinnu. Bara ein-
hverja vinnu. Sími 36306.
Þjónusta
Lögg. skjalaþýð. Bodil Sahn,
Lækjargötu 10. s. 10245.
Tek aö mór
aó leysa út vörur
fyrir verzlanir og innflytjendur.
Tilboö sendist augld. Mbl.
merkt: .Ú — 4822“.
Tilboð óskast
í uppstoppuö dýr úr íslenska
Dýrasafninu í Reykjavík. Þ.e.
folald, selkópur, tvíhöföa lamb,
kan/na, tvær kisur. Þeir, sem
hafa áhuga, leggi nöfn sín og
síma inn á augld. Mbl. fyrir 5.
marz merkt: „Dýr — 6391.“
Ódýr ferðaútvörp
einnig töskur og hylki fyrir kass-
ettur T.D.K. Maxell og Ampex
kassettur. Hljómplötur, múáik-
kassettur og áttarása spólur,
íslenskar og erlendar. Mikið á
gömlu verði. Póstsendum.
F. Björnsson, radíóverslun
Bergþórugötu 2, sími 23889.
IOOF 12 = 1610229'/4 = 0
lOOF 1 = 1612298% = 9 III
Keflavík, nágrenni
Slysavarnardeild kvenna heldur
basar í Tjarnarlundi laugardag-
inn 1. marz kl. 3.
Nefndin.
Kvenfélag
Laugarnessóknar
Fundur veröur haldinn mánu-
daginn 3. marz kl. 8 síödegis í
fundarsal kirkjunnar. Fundar-
efni: Félagskonur skemmta.
Stjórnin.
muniö skemmtikvöldiö í kvöld kl.
20.30 á Farfuglaheimilinu Lauf-
ásvegi 41. Nefndin.
Frá Guðspekifélaginu
VT
39573
Áakriftarsfmi
Ganglera
ar 39573.
í kvöld kl. 21 les Birgir Bjarna-
son erindi sem nefnist „Kona
meö sáramerki Krists".
(Septíma).
Föstudaginn 7. marz veröur
Krishnamurtikvöld.
Föstudaginn 14. marz verður
Geir V. Vilhjálmsson meö erindi.
|FERÐAFELAG
' ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SIMAR 11798 og 19533.
Aöalfundur Ferðafélags
íslands
veröur haldinn þriöjudaginn 4.
marz kl. 20.30 á Hótel Borg.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Ársskírtéini 1979 þarf að sýna
viö innganginn. Sýnd verður
kvikmyndin „Klesvett í vinter-
fjellet", sem sýnir hvernig klæö-
ast skal í vetrarferðum.
Feröafélag íslands
AL'GLYSfNGASIMINN ER:
22480 ^
2W*r0tinl>Ia&tþ
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Sjálfstæðisfélögin
halda fundi á:
Ólafafirði sunnudaginn kl. 15 í Tjarnarborg. Dalvík kl. 20:20 á
sunnudag í Bergþórshvoli, Húsavík mánudag kl. 20:30 í félagsheimil-
inu.
Alþingismennirnir Ólafur G. Einarsson, Lárus Jónsson og Halldór
Blöndal koma á fundina. Félagsfólk í Sjálfstæöisfélögunum velkomið.
Stjórnirnar.
Orðsending frá Hvöt
Félagi sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík
Stjórn Hvatar vill vekja athygll félagsmanna á auglýsingum frá
stjórnmálaskóla Sjálfstæóisflokksins.
Skólinn er heilsdagsskóli og starfræktur dagana 3.-8. marz n.k.
Upplýsingar í síma 82900.
Aðalfundur
Launþegaráðs
Sjálfstæðis-
flokksins
í Suðurlands-
kjördæmi
veröur haldinn sunnudaginn 2. marz n.k. í
Verkalýöshúsinu Hellu og hefst kl. 20.
Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál.
Á fundinum flytur ávarp um stjórnmálaviö-
horfin formaöur Verkalýösráös Sjálfstæöis-
flokksins Siguröur Óskarsson á Hellu og
Hilmar Jónasson, ræöir viöhorfin í kjaramál-
unum.
Þarft þú
þak yfir
höfuðið?
Fundur um húsnæðismál veröur haldinn aö
Seljabraut 54 kl. 14.00. laugardaginn 1.
marz.
Frummælendur: Ellert B Schram fyrrver-
andi alþingismaöur, Þorvaldur Mawby
frk.stj. Byggung.
Þór F.U.S. Brelöholti
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M Al'tiLYSIR l'.M ALLT LAND ÞEGAR
M AMiLÝSIR I MöRGl’NBLAÐINT'