Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
45
Laugardaginn 1. marz veröa til viðtals Pa
Gíslason og Bessí Jóhannsdóttir.
Páll er í framkvæmdanefnd vegna bygginga-
stofnana í þágu aldraöra og heilbrigöismala
ráöi. Bessí er í stjórn Borgarbókasafns, félags
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
a3= SIGCA V/öGA t 'Sii.vtWV
25. Rg6+! — hxg6, 26. Ha3 og
svartur gafst upp, því að hann
getur ekki hindrað Hh3 mát.
Sænska skáktímaritið Schacknytt
hélt mótið í tilefni af tíu ára
afmæli sínu. Sigurvegari varð
Svíinn Lars Karlsson, hann hlaut
7'/2 vinning af 11 mögulegum.
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA 10100
KL. 13-14 FRÁ
MÁNUDEGI TIL
FÖSTUDAGS
Álit mitt á löggæzlunni og
aðstoð hennar í neyðartilfellum
beið mikinn hnekki við að horfa á
öll vinnubrögðin í þessu tilfelli.
Kæri Velvakandi.
Mig langar að segja frá atviki,
sem verður mér sannarlega minn-
isstætt. S.l. mánudag var ég að
koma frá Elliheimilinu Grund á
leið austur í bæ. Þegar ég kom á
Skothúsveginn og ætlaði yfir
Tjarnarbrúna kom skyndilega
mikil hryðja og henni fylgdi ofsar-
ok svo varla var stætt á brúnni og
ekkert viðlit að halda áfram. Ég
hélt mér því dauðahaldi í grind-
verk brúarinnar og ætlaði að bíða
þess að hryðjan gengi yfir og
veðrið lægði. Þegar ég hafði staðið
þarna nokkra stund var bifreið á
austurleið stöðvuð og ökumaður-
inn hljóp til mín og bauðst til að
leiða mig yfir götuna að bifreið
sinni og aka mér heim. Ég var
fegnari en frá megi segja að vera
komin í bifreiðina og innilega
þakklát hinum unga manni fyrir
hugulsemina. Um sama leyti var
önnur bifreið á vesturleið, stöðv-
uð, og hefur ökumaður hennar
sennilega ætlað að veita mér
aðstoð, svo söm var hans gerðin.
Því miður athugaði ég ekki að
setja á mig númer bifreiðarinnar
sem ég komst með heim eða þakka
ökumanninum nógsamlega, en ég
vona að hann lesi þessar línur og
viti að ég er honum innilega
þakklát fyrir góðverkið.
Öldruð kona.
• Hugulsemi til
fyrirmyndar
Undir þessar línur set ég nafn-
númer mitt til merkis um að við
hvert orð get ég staðið, hvar og
hvenær sem er.
Reykjavík, febr. 1980.
2117-0429
HÖGNI HREKKVÍSI
OLAur I
ÆA/ (1 vT&s I »•'* f 75 . (*. i mij v> 5 vy
.. Þerrfl, UIÍT'J# Ao HAFA ið 12161 !
Þessir hringdu . .
• í hljóðri bæn
Karl Helgason hringdi:
„Það vakti sérstaka aðdáun í
viðkvæmri hluttekningu minni að
þulur útvarpsins, Jón Múli Árna-
son, hafði algera þögn eftir til-
kynningu í fréttum þegar hann
hafði nefnt nöfn hinna dánu, sem
nú er talið fullvíst að farist hafi í
hinu mikla fárviðri, sem gekk yfir
og umhverfis land vort á s.l.
sólarhringum. Þjóðin öll harmar
og sendir sínar hljóðu bænir til
þess fólks, sem nú hugsar til
ástvina sinna í djúpi hafsins, og
einnig aðstandenda þeirra, er á
landi fórust. Guð veiti styrk í sárri
sorg.“
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
á alþjóðlegu skákmóti í Málmey
í Svíþjóð fyrir áramótin kom þessi
staða upp í skák þeirra Ornsteins,
Svíþjóð, sem hafði hvítt og átti
leik, og Englendingsins Stean.
OPNUM
ANY
eftir gagngerar
breytingar
Viö bjóöum alla gömlu rót-
grónu viöskiptavinina og
nýja velkomna.
Efnalaugin
Glæsir
Laufásvegi 17—19, sími 18160.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekiö á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boðiö að notfæra sér viðtalstíma þessa.