Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
7
r
„Þetta brölt
á bak viö
allt og alla“
Vesturland, málgagn
vestfirzkra sjálfstæð-
ísmanna, birti nýverið
viðtal við Matthías
Bjarnason, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra,
um stjórnmálaviöhorfið.
Spuröur um aðdragand-
ann aö núverandi stjórn-
armyndun segir hann:
„Eg vil sem minnst um
þetta mál segja. Það hef-
ur mikið veriö rætt og
aðferðir þær sem notaðar
voru í sambandi við
stjórnarmyndunina
sömuleiöis. Ég tel að það
hefði verið mynduð sterk
meirihlutastjórn með
fullri aðild Sjálfstæðis-
flokksins, ef flokkurinn
hefði gengið heill og
óskiptur til opinberra og
formlegra viöræðna við
andstöðuflokka okkar.
Þetta brölt á bak við allt
og alla hafði að mínum
dómi ekkert nema illt (
för meö sér.“
Dýpra seilst
í vasa skatt-
borgara
Matthías sagði „mál-
efnasamninginn þokka-
legt plagg að líta yfir“, en
merginn málsins vantaði:
„hvergi væri sagt ákveð-
ið, hvernig eigi að vinna
að framkvæmd“ efnisat-
riöa hans. „Það sem
skiptir mestu máli,“
sagði Matthías, „og er
sýnu verst við þennan
samning er að hvergi
kemur fram, hvernig
skuli afla fjár til að st
anda straum af þeim
verkefnum, sem stjórnin
hyggst vinna að.“
„Við sjálfstæðismenn
höfðum markað þá
stefnu að ekki skyldi seil-
ast dýpra í vasa einstakl-
inganna til skattlagn-
ingar en þegar hafði ver-
iö gert. Viö höföum
ákveöið að afnema þá
skatta, sem vinstri
stjórnin hafði lagt á.
Þessi ríkisstjórn sem nú
situr hyggst hins vegar
viöhalda þeim sköttum
öllum og ég sé ekki
annað en hún eigi eftir að
seilast enn dýpra í vasa
okkar...“
Staöan í
stjórnarsam-
starfinu
Vesturland spyr
Matthías, hvort hann telji
Matthías Bjarnason
stöðu sjálfstæöismanna,
sem aðild eiga að stjórn-
inni, sterka innan hennar.
„Nei, ég tel svo ekki
vera. í fyrsta lagi verðum
viö að gera okkur grein
fyrir því, að staða Fram-
sóknarflokksins er ákaf-
lega sterk. Hann hefur
fjóra ráðherra og undir
hann heyra fimm ráðu-
neyti af tólf: utanríkismál,
sjávarútvegsmál, við-
skiptamál, samgöngumál
og menntamál. Alþýðu-
bandalagið hefur með
höndum fjármál, heil-
brigðismál, trygginga-
mál, félagsmál, iðnað-
armál og orkumál.“
„Til þess aö gera þenn-
an samanburð einfald-
ari,“ segir Matthías síðar
í viðtalinu, „má benda á,
aö þeir Friðjón Þórðarson
og Pálmi Jónsson fara
sameiginlega meö ráðu-
neyti þau er Steingrímur
Hermannsson haföi einn
á sinni könnu í vinstri
stjórninni." Auk þess svo
forsætisráðherrann og
það, sem undir það ráöu-
neyti heyrir. „Ég held því
að staða þeirra sjálfstæð-
ismanna sé ákaflega
veik. Og það sjá allir
menn að níu ráðuneyti
eru í höndum andstæö-
inga okkar, framsóknar-
og alþýðubandalags-
manna. Og þeir eru að
vonum ánægðir með
Sjálfstæðisflokkinn klof-
inn.“
Endurnýjun
vinstri stjórnar
„Ég tel að þessar aö-
farir allar hafi veikt Sjálf-
stæðisflokkinn og áhrifa
frá stefnu hans gætir
ákaflega lítið í þessari
ríkisstjórn. Ég vil því líta
á myndun hennar sem
endurnýjun vinstri stjórn-
ar samstarfsins ..Og
vandi er fyrir dyrum. „Ég
tel að þaö séu yfirvofandi
miklir erfiðleikar, einkum
þó í sjávarútvegi og öðr-
um útflutningsgrein-
um ... vegna verðbólg-
unnar, sem er bölvaldur
alls. Og ég hefi ekki
neina trú á því aö þessari
ríkisstjórn takist að ráöa
við hana ...“
Matthías Bjarnason er
stjórnmálamaður, sem
hefur mjög sterka stöðu
hjá almenningi, ekki sízt í
sjávarplássum vítt um
land. Enginn vafi er á því
aö þetta mat hans á
stjórnmálaviðhorfum
líðandi stundar vekur
verðskuldaða athygli.
Handbók bænda 1980
FYRIR nokkru kom út hjá Búnað-
arfclagi íslands 30. árgangur
Handbókar bænda. Að vanda er
bókin uppfull af fróðleik um flesta
þætti landbúnaðar. Ýtarleg skrá
er yfir öll helstu félög bænda og
stofnanir landbúnaðarins. Jarð-
ræktarráðunautar Búnaðarfélags-
ins rita greinar um áburð og
heyverkun. Magnús Sigsteinsson
bútækniráðunautur skrifar grein
um tækni við hirðingu heybagga
og aðra sem hann nefnir „Létt og
auðveld votheysfóðrun". Búfjár-
ræktarráðunautar Búnaðarfélags-
ins birta yfirlit yfir helstu
kynbótagripi sem notaðir eru nú í
landinu. Erlendur Jóhannsson
skrifar ýtarlega grein um fóðrun
mjólkurkúa og Árni G. Pétursson
um fóðrun sauðfjár. Þá er grein
um beitarþunga og beitarþol eftir
dr. Ólaf Guðmundsson. Leiðbein-
ingar fyrir ullarframleiðendur eru
í bókinni eftir dr. Stefán Aðal-
steinsson. Magnús H. Ólafsson
arkitekt skrifar um fjárhús.
Margar stuttar, athyglisverðar
greinar eru um garðrækt eftir
garðyrkjuráðunauta Búnaðarfé-
lagsins.
Á vegum samstarfshóps nokk-
urra sérfræðinga eru birtar leið-
beiningar um girðingar. I þessari
grein er allt það sem menn þurfa
nauðsynlega að vita áður en hafist
er handa um að girða. Ýmislegt
hagfræðilegt efni er í bókinni eftir
Ketil A. Hannesson, hagfræði-
ráðunaut. í lokakafla bókarinnar
er skýrt frá helstu lögum og
reglum sem sett hafa verið á
síðustu tveim árum er varða
landbúnaðinn.
í þau 30 ár sem Handbók bænda
hefur verið gefin út hafa þrír
menn verið ritstjórar, fyrstu 10
árin var það Ólafur Jónsson fyrr-
verandi ráðunautur á Akureyri,
síðan var Agnar Guðnason rit-
stjóri í 15 ár og nú hefur Jónas
Jónsson verið ritstjóri í 5 ár. (Frá
Upplýsingaþjónustu landbúnaðar-
Laugardagsmarkaðurinn
Höfum til sölu fáeina Ply-
mouth Volare 2 og 4 dyra af
árgerð 1979 á sérstökum af-
sláttar kjörum. Allt mjög vel
útbúnir bílar.
Dodge Aspen SE 1979 4 dyra
6 cyl. sjálfsk. vökvast. ek. 16 þús.
km. Rauöur metallic.
Chrysler LeBaron 1978 4 d.
318 cid. sjálfsk. vökvast. ek. 27
þús. Lúxusvagn.
Plym. Volaró Premier station
1977 6 cyl. sjálfsk. vökvast. ek.
24 þús. km silfurgrár.
Dodge Aspen Custom 1977 4 d.
6 cyl. sjálfsk. vökvast. ek. 50 þús.
km rauöur/hvítur.
Dodge Ramcharger 1975
318 cid beinsk. vökvast. ek. 40
þús. mílur. Brúnn.
Athugiö aö Simca er bíllinn
fyrir íslenskar aöstæöur
sparneytinn, rúmgóður og
sterkur. Simca-bíllinn sem
endist.
SIMCA 1508 GT ....1978
SIMCA 1307 GLS .... 1978
SIMCA 1508 GT ....1977
SIMCA 1307 GLS .... 1977
SIMCA 1307 GLS .... 1976
SIMCA 1100 LX ....1978
SIMCA 1100 Sp.....1977
SIMCA 1100 GLX .... 1977
SIMCA 1100 1974
SIMCA 1100 S.b....1974
Plym. Satelite Sebring 1972
einn verklegasti kvartmílubíli í
bænum. Ný 440 cid vél, drif
og sjálfsk. o.fl. o.fl. Sjón er
sögu ríkari.
Volvo 244 GL 1979
beinsk. meö vökvast. útv./seg-
ulb. ekinn 16. ús. km. Rauöur.
Volvo 244 DL .............1978
Volvo 245 Dl .............1976
Volvo 144 DL .............1972
Volvo 145 DL .............1970
Fiat 127 900/L 1978
Fiat 132 GLS .............1977
CHRYSLER-SALURINN
Suðurlandsbraut 10, sími 83330 — 83454
Mercury Comet ...........1977
Mercury. Comet custom. 1974
Oldsmobile Cutlass station
1975
ekinn 48 þús, sjálfsk. vökvast.
Mjög fallegur bíll. Brúnn.
Toyota Cr. sjálfsk. .. ... 1978
Datsun 180 D
Mazda 929 station .. ... 1976
Austin Mini sp
Austin Allegro ... 1977
Bronco Sp. 6 cyl. ... . .. 1974
Bronco 6 cyl
Blazer cst
Ódýrir bílar:
Volkswagen 1302 . .. 1971
Saab 96 ....
Peugeot 504 .. 1970
Árshátíð
Árshátíö Breiöfirðingafélagsins veröur haldin aö Hótel Sögu,
Súlnasal föstudaginn 28. marz 1980 kl. 19.00.
Heiðursgestir hátíðarinnar veröa hjónin Ragna Guðmunds-
dóttir og Óskar Jóhannesson frá Svínhóli í Dölum, en frú
Ragna mun flytja aöalræöu kvöldsins.
Dagskrá:
1. Arvarp formaöur félagsins.
2. Heiöursgestur hátíöarinnar.
3. Sönqur í léttum dúr? aö ógleymdum fjöldasöng.
4. Ómar Ragnarsson fer á kostum, með nýtt prógramm.
5. Ragnar Bjarnason sér um dansfjörið.
Aögöngumiöar veröa seldir í Breiðfirðingabúð sunnudaginn
23. marz kl. 15—18, sími 16540.
Upplýsingar í símum 38156, 41531, 50383 og 43536.
Höldum gleöi hátt á loft.
Stjórnin
Öllum þeim er heimsóttu og glöddu mig á annan hátt
á sextugs afmæli mínu þakka ég af alúö og vinsemd.
ALFRED ELÍASSON,
Haukanesi 28,
Garöabæ
Innilegt þakklæti til allra sem heiðruðu okkur með
skeytum, blómum og fleiru á gullbrúðkaupi okkar 7.
marz. Guð blessi ykkur öll.
Sigurður Pétursson og Sigríður E. Markúsdóttir.
Reiðskóli
fyrir börn á aldrinum 8—14 ára tekur til starfa 10.
marz. Kennari verður Hrönn Jónsdóttir. Lagðir eru til
hestar og reiðtygi.
Innritun hefst mánudaginn 24. marz í Félagsheimili
Fáks, sími 33679, kl. 10—12 og 13—14 í dag og
næstu daga.
SUNNUDAGSHADEGI
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ennþá bjóöum við svínakjöt á kynn-
ingarveröi.
Sunnudagur23/3
Grísakóteletta
Hongroise
og eftirréttur
Kr. 3.980.-
Hálft gjald fyrir börn
. BERGSTAÐASTRÆT) 37
araogyngri simi 2ion
VinMmtogut pantiö borö timanloga.