Morgunblaðið - 22.03.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 22.03.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 Sterk staða Verzlunarbanka Islands Frá aðalfundi Verzlunarbanka íslands hf. Eigið fé er orðið 13% af heildarinnstæðum Vaxtaaukainnlán jukust um 102% — 51% útlána til verzl- unar - 27% til einstaklinga Aðalfundur Verzlunarbankans var haldinn að Hótel Söru lautrar- da^inn 15. marz sl. Fundarstjóri var kjörinn Hjörtur Hjartarson. en fundarritarar voru Gunnlaugur J. Briem ok Majjnús Finnsson. Fundurinn var vel sóttur. Formaður bankaráðs. Pétur 0. Nikulásson ok Höskuldur Ólafsson. bankastjóri fluttu yfirlit um starfsemi bankans á liðnu starfsári. auk þess sem bankastjóri skýrði framlaxða ársreikninga bankans. Hagur bankans og rekstur Eigið fé bankans var í árslok 1185 millj. kr. og hafði það aukist á árinu um 631 millj. kr. Nemur eigið fé 13% af heildarinnstæðum í árslok. A árinu var boðið út nýtt hlutafé að upphæð 300 millj. kr., sem hluthafar skrifuðu sig fyrir að fullu, auk þess sem jöfnunar- bréf voru gefin út fyrir 400 millj. kr. og var hlutafé bankans í árslok 800 millj. kr. Hagnaður til ráðstöfunar varð 156 millj. kr. og voru 130 millj. kr.. Iagðar í varasjóð, sem í árslok er 350 millj. kr., en óráðstafað var 26 millj. kr. Samþykkti fundurinn að greiða hluthöfum 10% arð. Niðurstöðutölur rekstrarreikn- ings námu 3362 millj. kr. Vaxta- gjöld urðu alls 2450 millj. kr., en reksturskostnaður 731 millj. kr. Laun og launatengd gjöld hækk- uðu um 54% frá fyrra ári, en annar reksturskostnaður um 60%. Vaxtatekjur urðu alls 3111 millj. kr., en þóknun og aðrar þjónustutekjur námu 251 millj. kr. Bankinn er aðili að Húsi verzl- unarinnar og var á árinu varið 124,6 millj. kr. til bygginga- framkvæmda á eignarhluta bank- ans. Innlán Aukning innlána hjá Verzlunar- bankanum nam 2778 millj. kr. eða liðlega 45%. Innlán voru í árslok 8974 millj. kr. Spariinnlán námu 7149 millj. kr., höfðu aukist um 2187 millj. kr. og veltiinnlán námu 1825 millj. kr., höfðu aukist um 601 miilj. kr. Innlánsaukning varð mest í vaxtaaukainnlánum eða nær 102%. í árslok námu þau 2108 millj. kr. eða 23,5% af heildarinn- lánum. Innan bankans var innláns- aukningin hjá útibúinu að Grens- ásvegi 13 hæst eða 95%. I upphafi vetrar var afgreiðslu bankans í Umferðarmiðstöðinni breytt í úti- bú. Önnur útibú bankans eru að Laugavegi 172, Arnarbakka 2, Grensásvegi 13 og utan Reykja- víkur að Vatnsnesvegi 14, Keflavík, en aðalstrifstofur bank- ans eru í Bankastræti 5. Nýr innlánsflokkur. I byrjun þessa mánaðar tók bankinn upp nýjan innlánsflokk, Safnlán, sem er tengdur rétti til lántöku eftir ákveðnum reglum. Viðskipta- maður leggur mánaðarlega inn fyrirfram ákveðna upphæð í ákveðinn tíma. Sparnaðartíminn er í þriggja mánaða tímabilum, skemmst í 3 mánuði en lengst í 48 mánuði. Að sparnaðartímanum loknum á viðskiptamaður rétt á láni, sem er jafnhátt þeirri upp- hæð sem hann hefur sparað. Til tryggingar Safnláni í 3 eða 6 mánuði þarf aðeins skuldaviður- kenningu viðskiptamanns. Til tryggingar Safnláni 9—18 mánuði þarf auk þess ábyrgðarmann og fasteignaveð fyrir Safnlán til lengri tíma en 18 mánaða. Safn- lánsreikningar eru við allar af- greiðslur bankans og verður Safn- lán veitt í þeirri afgreiðslu, sem viðskiptamaðurinn hefur sinn Safnlánsreikning við. Hefur bank- inn látið gera handhægan upplýs- ingabækling um Safnlánin og ligg- ur hann frammi í öllum afgreiðsl- um bankans. Bankaráð Verzlunarbankans: Pétur ó. Nikulásson, formaður, Þorvaldur Guðmundsson, Sverrir Norland, Guðmundur H. Garðarsson og Leifur ísleifsson. Útlán Útlán Verzlunarbankans námu í lok ársins 6608 millj. kr. Aukning þeirra á árinu var 2022 millj. kr. eða um 44%. Útlán í formi víxla eru stærsti útlánaflokkurinn eða nær 49% af heildarútlánum í árslok, á móti um 54% ári áður. Næst eru vaxtaaukalán, sem eru tæplega 29% af heildarútlánum en aðrir flokkar eru liðlega 22% af útlánunum. í samræmi við meginstefnu bankans er stærsti hluti útlána til verzlunar eða 51%, til einstakl- inga voru í árslok 27% af útlánum bankans og höfðu þau aukist á árinu, en útlán til annarra greina nemur liðlega 22%. V er zlunar lánas jóður Útlán Verzlunarlánasjóðs, sem er stofnlánadeild bankans námu í lok sl. árs 1812 millj. kr. og höfðu hækkað á árinu um 825 millj. kr. eða um nær 84%. Verzlunarlánasjóður vinnur að langmestu leyti með lánsfé, aðal- lega frá Lífeyrissjóði verzlunar- manna og fengust frá honum 738 millj. kr. á sl. ári. Frá Fram- kvæmdasjóði fengust á árinu 100 millj. kr. Lán til endurlána námu í árslok 1666 millj. kr. Lánskjör Verzlunarlánasjóðs eru þau, að lánin eru til 12 ára og eru verðtryggð miðað við hækkun byggingarvísitölu, en vextir eru 3,5% á ári. Staðan gagnvart Seðlabankanum Innstæður bankans á bundnum reikningi í Seðlabanka námu í árslok 1909 millj. kr. og höfðu á árinu aukist um 659 millj. kr. eða tæplega 53%. Á árinu var bindi- skylda hækkuð úr 25% í 28% af heildarinnlánum. í árslok voru endurseld lán í Seðlabanka að upphæð 150 millj. kr. og önnur lán námu 54 millj. kr. eða alls 204 millj. kr. Nemur þessi upphæð 10,6% af inneign bankans í Seðlabankanum. Eins og kunn- ugt er, er innlánsbindingin notuð til þess að fjármagna endurkaup Seðlabankans á lánum til atvinnu- veganna. Þar sem verzlunin er eigi aðnjótandi slíkra lána er innláns- bindingin bankanum verulega íþyngjandi. Úr bankaráði áttu að þessu sinni að ganga þeir Pétur O. Nikulásson, stórkaupmaður, for- maður, Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri og Sverrir Norland, verk- fræðingur. Þeir voru allir end- urkjörnir til tveggja ára. Aðrir, sem sæti eiga í bankaráðinu eru Leifur ísleifsson, kaupmaður, varaformaður og Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur, ritari. Varamenn í bankaráðinu eru þeir Hreinn Sumarliðason, kaupmaður, Hannes Þ. Sigurðs- son, deildarstjóri, Jónas Eggerts- son, bóksali, Sigurður Gunnars- son, forstjóri og Víglundur Þor- steinsson, framkvæmdastjóri. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Hilmar Fenger, fram- kvæmdastjóri og Kristmann Magnússon, kaupmaður og til vara Jóhann J. Ólafsson, stórkaup- maður og Magnús Finnsson, fram- kvæmdastjóri. Bankastjórar eru Höskuldur Ól- afsson og Kristján Oddsson. í lok ársins störfuðu 80 banka- starfsmenn í bankanum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.