Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 20

Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 ÚTVARP Hljóðrituð hafa verið 200 lög eftir Gunnar Þórðarson Sá gamalkunni og ágæti út- varpsmaður Svavar Gests verður með þátt sinn í dægurlandi í útvarpi í dag, eins og verið hefur undanfarna laugardaga, og hefst þátturinn klukkan 15. Svavar sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að hann myndi að þessu sinni ræða við Gunnar Þórðarson hljómlistarmann og dægurtón- skáld, og flytja lög eftir hann. Svavar sagði, að í rauninni væri hér á ferðinni svo mikið efni, að erfitt yrði að koma því í einn þátt. Yrði því mjög stiklað á stóru er rakinn yrði ferill Gunnars. Leikin verða lög eftir Gunnar, þar sem hann kemur sjálfur við sögu sem söngvari, útsetjari og hljóðfæra- leikari, og einnig verða leikin lög eftir hann flutt af öðrum lista- mönnum. En að sögn Svavars eru til hljóðrituð fleiri lög eftir Gunn- ar Þórðarson en nokkurn annan íslending, eða nákvæmlega 200 lög, hvorki meira né minna. „Það er raunar með ólíkindum, hve mörg lög Gunnar hefur sarnið," sagði Svavar, „ekki síst með tilliti til þess að hann er aðeins 34ra ára, og ekki eru nema 15 ár síðan fyrsta hljómplatan með lögum hans kom út. En á henni voru tvö lög, Fyrsti kossinn og Bláu augun þín, á fyrstu plötu hljómsveitar- innar Hljóma frá Keflavík. Gunnar Þórðarson dægurtónskáld, hljómlistarmaður og útsetjari. AKRANES Þrjár bíómyndir í Bíóhöllinni á morgun BÍÓHÖLLIN á Akranesi verður með sýningar á morgun eins og aðra sunnudaga, en þar eru sýningar sex daga vikunnar, alla daga nema laugardaga. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Bíóhöllinni í gær, verða þrjár sýningar á morgun. Klukkan tvö eftir hádegi verður sýnd myndin Gulleyjan, sem einkum er við hæfi yngri kvikmyndahússgesta. Klukkan 21 verður svo sýnd ein hinna mörgu stórslysamynda sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Þetta er myndin Snjóskriðan, og í aðalhlutverkum eru hinir heims- kunnu leikarar Rock Hudson og Mia Farrow. Þá er sýning klukkan 23.15, og verður þá sýnd kvikmyndin Lost- afulla poppstúlkan. Mia Farrow leikur aðaihlutverkið i kvikmyndinni Snjóskriðan, sem Bíóhöllin á Akranesi sýnir á morgun. Hér er mynd af Miu er hún kom til íslands fyrir nokkrum árum, i fylgd eiginmanns sins, André Previns, en þau eru nú skilin að skiptum. Matreiðsiumenn Asks á Laugavegi. Þeir Guðmundur Valtýsson og Hörður Ingi Jónsson sem er matreiðslumaður helgarinnar. í dag og á morgun litur matseðillinn þannig út: Forréttur: Frönsk lauksúpa eða islenskur kavíar. Aðalréttur: Léttsteikt nautalæri Bordlaise með Gratinkartöflum, Dauphinoise, salati, fylltum tómat, hlómkáli og rauðvinssósu á krónur 6.400.- eða pönnusteikt smálúðuflök Joinville mcð humarsneiðum og sveppum á krónur 4.800.-. Desert er svo sitrónuis með rjóma. Ljósm.: Emilía Bj. Björnsdóttir. ASKUR Þríréttuð veislumáltíð á hvunndagsverði „VEISLURÉTTIR á hvunn- dagsverði“ er nýjung sem veit- ingahúsið Askur Laugavegi 28 hefur tekið upp. Hér er um að ræða þriréttaða máltíð, forrétt, aðalrétt og heimatilbúinn ís sem desert. Ef kjötréttur er valinn sem aðalréttur kostar máltiðin 6.400 kr., sé fiskréttur- inn valinn sem aðalréttur kost- ar máltiðin 4.800 kr. Hægt er að velja á miili tveggja forrétta. Veislurétturinn er á boðstólum allar helgar. Askur að Laugavegi 28 fékk leyfi til vínveitinga síðustu mán- aðamót. Húsið hefur á boðstól- um „vín hússins" hvítvín og rauðvín sem borið er fram á karöflum. Einnig er hægt að fá fordrykk og Ask-kaffi eftir máltíð. Sem kunnugt er tóku nýir eigendur við rekstri Askanna, á Laugavegi og Suðúrlandsbraut um síðustu áramót. Verulegar breytingar verða gerðar á rekstri beggja staða en að sögn eigenda verða þær gerðar smám saman. Settur hefur verið upp „gæðastaðall" fyrir alla rétti beggja húsanna. Fyrstu breyt- ingar eru hafnar að Laugavegi 28. Þar hefur innréttingum verið breytt. Fyrir lok aprílmánaðar verður tekin upp nýjung í rekstri þessa staðar. Er þar um að ræða tvo veitingastaði undir sama þaki á sama stað. Frá kl. 09.00 til 18.00 verður fyrst og fremst um að ræða hraðrétti með sjálfs- afgreiðslutilhögun, en eftir kl. 18.00 verður veitt full þjónusta á borð gesta, notaður annar borð- búnaður og annar einkennisfatn- aður á starfsliði. Eftir kl. 18.00 verður á boðstólum annar mat- seðill með fjölbreyttari réttum. Hér er um að ræða nýjung sem tekin hefur verið upp víða er- lendis. Eftir páskana verður boðið upp á enn eina nýjung á Aski á Laugavegi. Er þar um að ræða ostabakka fyrir tvo með völdum ostaréttum. Ostabakkinn verður á boðstólum frá mánudegi til föstudags kl. 18.00 til 23.30. HÁR GAMLA BÍÓ Þýsk gamanmynd af djarfara taginu Klipping og flétting í DAG klukkan fjögur síðdegis verður myndasýning í veitingahúsinu Hollywood, og er allt fólk sem áhuga hefur á hártísku og snyrti- vörum velkomið, að sögn Hársnyrtiklúbbsins Medulla, sem gengst fyrir þessari kynningu. Sýndar verða á myndsegul- bandi myndir frá Tony & Card í London, nýjustu tískulínur í klippingum og fléttingum. Einnig verður snyrtivörukynning frá Kadus. GAMLA BÍÓ í Reykjavík mun um þessa helgi halda áfram að sýna myndina „Þrjár sænskar í Týról“, sem sýnd hefur verið að undanförnu við ágæta aðsókn. Myndin er frá Vestur-Þýska- landi, og telst til þeirra djarfari, en er um leið bráðfjörug gaman- mynd. Myndin er sýnd klukkan 5, 7 og níu, og er bönnuð börnum innan 16 ára aldurs. Leikstjóri myndarinnar er Siggi Götz, en með aðalhlutverkin fara Inge Fock, Anika Egger, Ann Lundell, Gianni Garko sem er ítalskur skopleikari, Alexander Grill og Jaques HeFlin. Þrjár sænskar í Týról sjást hér í hlutverkum sinum í kvikmyndinni sem þessa dagana er sýnd i Gamla bió.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.