Morgunblaðið - 22.03.1980, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
Temma Bell sýnir
í Listmunahúsinu
TEMMA Bell opnar mál-
verkasýningu í Listmunahús-
inu, Lækjargötu 2, laugardag-
inn 22. marz n.k. Hún er fædd
29. júní 1945 og foreldrar
hennar eru listmálararnir Le-
land Bell og Louisa Matthías-
dóttir, en þau eru búsett í New
York.
Temma stundaði nám við
Boston University, Indiana Uni-
versity og lauk B.F.A. prófi 1968
við Philadelphia College of A*rt.
Hún hefur málað í Bandaríkj-
unum, Frakklandi og á íslandi,
haldið fimm einkasýningar í
Bowery Gallery, New York City,
og einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga um öll Bandaríkin.
Temma Bell hefur verið búsett
á Íslandi undanfarin ár.
Þessi sýning er fyrsta sýning
hennar hér á landi, en þar sýnir
hún 39 olíumálverk, sem máluð
eru á árunum 1972 til 1979 og
eru flest málverkin til sölu.
Gert er ráð fyrir að sýningin
standi til 20. apríl og er hún
opin alla virka daga frá kl. 10
f.h. til kl. 6 e.h., en kl. 2 til kl. 6
e.h. á laugardögum.
Af sýningu Temmu Bcll í Listmunahúsinu.
Greinargerð frá Samafli:
Minni háttar gagn-
rýni á flest atriði
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt til birtingar greinargerð frá
Samafli s.v.f. þar sem athuga-
semdir eru gerðar við álit tækni-
manna Reykjavíkurborgar. sem
fóru til Ungverjaiands til þess
að skoða Ikarus-strætisvagnana.
í greinargerð er m.a. skýrt frá
fundi fulltrúa Samafls með Agli
Skúla Ingibergssyni borgar-
stjóra, en hann fór einnig í
umrædda för. í greinargerðinni
segir:
Var það sameiginleg niður-
staða fulltrúa Samafls og borgar-
stjóra að flest þau atriði sem
gagnrýnd voru í skýrslunni um
almennan búnað IKARUS vagn-
anna væru minni háttar, sem
Ögri seldi
í Cuxhaven
TOGARINN Ögri seldi 323 tonn af
fiski í Cuxhaven á miðvikudag og
fimmtudag og fékk fyrir aflann
519.500 þýsk mörk eða 115 milljón-
ir íslenzkra króna. Meðalverðið
var 354 krónur fyrir kílóið. Uppi-
staðan í afla Ögra var karfi.
©
INNLENT
auðvelt væri að fá lagfært. Það er
því okkar álit, að þau ættu ekki
sem slík að standa í vegi fyrir því
að taka hinu óvenjulega hag-
stæða boði IKARUS.
Mbl. mun gera greinargerðinni
frekari skil eftir helgina.
Lánskjara-
vísitalan
SEÐLABANKINN hefur reiknað
út lánskjaravísitölu fyrir apríl-
míéanuð og er hún 147 stig,
hækkar úr 143 stigum frá þeirri
vísitölu, sem gilti fyrir marzmán-
uð. Hækkunin er 2,8%.
Gefa ágóð-
ann til Von-
arlands
FáskrúAsfirði, 21. marz.
VORSKEMMTUN Fáskrúðsfirð-
ingafélagsins í Reykjavík verður
haldin í Fóstbræðraheimilinu
laugardaginn 22. marz. Ágóða af
skemmtunum þessum, sem haldn-
ar eru árlega, er varið til styrktar
vangefnum á Austurlandi, þ.e.a.s.
til uppbyggingar Vonarlands á
Egilsstöðum, og voru nú fyrir
skemmstu afhentar krónur 350
þúsund til formanns félagsins.
— Albert
J.C. með víðtæka starfskynningu um allt land:
„Að gefa ungu fólki kost á
að auka hæfni og þekkingu44
Slysavarnafélag íslands
efnir til umferðarviku
SLYSAVARNAFÉLAG íslands
mun beita sér fyrir umferðarviku
dagana 23. til 29. marz. Ætlunin
er að hún nái til sem flestra um
land allt. Til að svo megi verða
hefur verið sent bréf til allra
deilda félagsins með ósk um að
þær geri það sem hægt er til að
vekja athygli á umferðarviku
þessari, hver á sínum stað. Hafa
margar deildir nú þcgar haft
samband við félagið vegna þessa
máls.
Prentað hefur verið veggspjald
og er ætlunin að það geti hangið
uppi áfram til áminningar fyrir
vegfarendur. Einnig hefur verið
prentaður límmiði til áminningar
fyrir ökumenn um börnin í um-
ferðinni. Ætlast er til að miðinn
verði hafður í mælaborði eða inni
í bifreið, þar sem ökumenn sjái
hann að staðaldri.
Dagskrá vikunnar er:
Sunnudagur og mánudagur: Al-
menn atriði um umferð. (Tillits-
semi).
Þriðjudagur: Umferð í þéttbýli.
Miðvikudagur: Afleiðingar um-
ferðarslysa.
Fimmtudagur: Barnið og um-
ferðin.
Föstudagur: Akstur á þjóðveg-
um.
Laugardagur: Ölvun við akstur.
Meðan umferðarvikan stendur
yfir, verða greinar birtar í blöðum
og erindi flutt í útvarp til þess að
vekja fólk til umhugsunar um
umferðarmálin og freista þess að
draga úr slysum í umferðinni.
segir Haukur Gísla-
son landsforseti
J.C. Island
J.C. ÍSLAND gengst fyrir kynn-
ingu á starfsemi sinni m.a. með
fundahöldum og skcmmtunum um
helgina og i tilefni þess ræddi Mbl.
við Hauk Gíslason Landsforseta
J.C. og innti frétta af starfinu.
„J.C., Junior Chamber, er alþjóða-
hreyfing, stofnuð hér á landi 1960.
Nú eru starfandi á landinu 28 félög
með 1200 félaga. Tilgangur hreyf-
ingarinnar er að gefa ungu fólki
kost á að auka hæfni sína og
þekkingu. Við höldum námskeið í
stjórnþjálfun fyrir einstaklinga og
Hlutavelta
KRISTILEG skólasamtök og Kristi-
legt stúdentafélag efna í dag, laugar-
dag, kl. 15 til hlutaveltu í húsi KFUM
og K við Holtaveg í Reykjavík.
Rennur ágóði hlutaveltunnar til
húsakaupa félaganna sem gengið var
frá sl. haust. Margt muna er að finna
á hlutaveltunni, auk þess sem í boði
eru ferðavinningar.
Umræðufundur um
kennslubók í
íslenzkri málf ræði
LAUGARDAGINN 22. mars næst-
komandi efnir íslenska málfræðifé-
lagið til umræðufundar um nýút-
komna kennslubók Kristjáns Árna-
sonar, íslenska málfræði handa
framhaldsskólum.
Málshefjendur verða, auk höfund-
ar, Arnór Hannibalsson lektor og
Baldur Ragnarsson menntaskóla-
kennari. Að loknum stuttum fram-
söguerindum verða frjálsar umræður.
Fundurinn verður haldinn í stofu 422
í Árnagarði og hefst kl. 2 síðdegis.
Öllum er heimill aðgangur og þátt-
taka í umræðum.
námskeið í félagsstarfi margs kon-
ar. Við höfum t.d. átt frumkvæði að
því að gefin hefur verið út vönduð
bók um fundarsköp.
Mikilvægur málaflokkur hjá okk-
ur eru félagsmál og um helgina
verður lögð áherslza á að kynna
þann þátt og tilgang hans. Við
vinnum einnig að ýmsum byggð-
armálum, komum verkefnum á
framfæri sem við eigum oft á tíðum
sjálfir hugmynd að og mótun.
Sem dæmi um þennan þátt í
starfinu má nefna að JC vinnur
talsvert að brunavörnum og upp-
setningu vegvísa við kaupstaði með
nokkrum upplýsingum um staðinn.
Landsverkefnið í þessum málaflokki
er Æskan til starfa. I því sambandi
má benda á að J.C. í Hafnarfirði er
nú að stuðla að stofnun drengjakórs.
Sem dæmi um viðameiri verkefni
í byggðarmálum voru J.C. félagar á
ísafirði frumkvöðlar að því að
hótelbygging komst á.
Kjörorð alþjóðahreyfingarinnar í
málaflokki æskunnar byggist á því
að skapa tækifæri fyrir börn. I
framkvæmd þess verkefnis höfum
Ilaukur Gíslason landsforseti J.C.
ísland
við á beinan hátt náð til 30 þús.
barna hérlendis og t.d. tókum við
þátt í sérstakri dagskrá 24. okt. s.l.
með öðrum í viku gegn vímugjöfum.
Varð fyrir bíl og
handleggsbrotnaði
UM hádegisbilið á fimmtudag leggsbrotnaði og meiddist auk
varð 11 ára drengur á reiðhjóli þess á fæti. Hann var fluttur á
fyrir bifreið á mótum Ármúla slysadeildina til aðgerðar.
og Selmúla. Drengurinn hand-
Sigur hjá Mar-
geiri, tap hjá Jóni
MARGEIR Pétursson vann al-
þjóðlega meistarann Rind frá
Bandarikjunum í 5. umferð skák-
mótsins í Lone Pine en Jón L.
Árnason tapaði fyrir danska
stórmeistaranum Bent Larsen,
eftir að hafa haft gjörunna stöðu
um tíma.
Jón náði mjög góðum sóknarfær-
um í skák sinni við Larsen og
blasti sigur við. En hann eyddi
miklum tíma í það að reyna að
finna afgerandi vinningsleið og
átti hann aðeins H4 mínútu á
síðustu 18 leikina. Lék Jón síðan
illilega af sér í tímahraki og varð
að gefast upp. Margeir tefldi sömu
byrjun gegn Rind og á Lone Pine
mótinu í fyrra og vann, alveg eins
og í fyrra.
Geíler er efstur með 4'/2 vinning,
en næstir koma Georghiu og Lar-
sen með 4 vinninga, en Larsen
hefur verið með ólíkindum heppinn
í mótinu. Jón hefur 3 vinninga og
Margeir 2xk vinning.