Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 36

Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 Mirmkandi hagvöxtur Svo virðist sem dagar hins mikla hagvaxtartímabils séu taldir í bili að minnsta kosti, þ.e.a.s. ef miða á við þróunina í Bandaríkjunum, Bretlandi og V-Þýskalandi. Tölurnar hér að neöan tákna breytingu í þjóðarframleiðslu brúttó á milli ára í prósentum. 1977 1978 1979 1980 Bandaríkin 5,3 4,3 2,0 0 Bretland 1,5 3,0 1,0 -1,0 V-Þýskaland 2,5 3,4 4,0 2,5 Svíþjóð -2,2 2,8 5,0 3,0 Danmörk 1,9 1,0 3,0 0 ísland 6,0 4,2 2,5 1,0 Rétt er að taka fram að tölurnar fyrir 1979 og 1980 eru áætlaðar og einnig má benda á aö reiknað er með versnandi vipskiptakjörum okkar þannig að breyting á þjóðartekjum okkar frá því í fyrra er engin samkvæmt áætluninni. Lánstraust Lánstraust okkar á alþjóða- markaði er ekki sérlega mikið ef marka má skoðanakönnun sem gerð var meðal 90 alþjóðlegra fjármálastofnana. Við erum núm- er 44, langneðstir allra Norður- landaþjóðanna og er okkur gefin einkunn 5,85 stig meðan Banda- ríkin, sem eru í efsta sæti, fá 9,89 stig. Svíþjóð fær 8,42 stig, Dan- mörk 7,53, Finnland 7,49 og Nor- egur 8,89 stig. Einföld staðreynd Hagnaður eða gróði er ekki til. Hugtakið hagnaður er hins vegar samheiti fyrir fjármagnskostnað, áhættuþóknun og kostnað sem leggja þarf til vegna framtíðar- atvinnutækifæra og eftirlauna. Svona einfalt er það, segir Peter Drucker. Hvað veiztu um skattana? Ný lög hafa tekið gildi um tekju- og eignaskatt. Þar sem lögin gjörbreyta tekjuhugtakinu og allri skattlagningu tekna af atvinnurekstri hefur Verzlunar- ráðið talið nauðsynlegt að kynna atvinnulífinu þessar breytingar. Er ákveðið að efna til sérstaks kynningarfundar að Hótel Loft- leiðum, Kristalssal, þriðjudaginn 25. marz kl. 16.00 um nýju skattalögin. Allar nánari upplýs- ingar veitir Verzlunarráð íslands góðfúslega í síma 11555. Vextir fara hækkandi Alls staðar virðist vaxtakostn- aður fara hœkkandi en það er athyglisvert að á meðan íslensk fyrirtæki þurfa að greiða milli 30 til U0% í vexti þá eru fyrirtæki í helstu samkeppnis- löndum okkar að greiða frá tveimur upp í tæp 20% eins og er á Norðurlöndunum í dag. Money costs more Official discount rates, % um löndum síðan í ársbyrjun. Þessi skemmtilega mynd og texti birtist í síðustu Sveitarstjórn- artíðindum og skýrir sig sjálf. Tækniframfarir eru nú örar til aðstoðar við bókhald og reikningsskil. Vasareiknar einir sér verða úreltir og ýmiss konar tölvubúnaður kemur til skjalanna. Myndin sýnir vasahnífatölvu, sem er sérhönnuð miðað við þarfir bænda, sem stunda oddvitastörf í hjáverkum og gætu hagnýtt sér tölvubúnaðinn að loknu ársuppgjöri og jafnvel í göngum. Guölaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar: Nýjungamar em lykill- ínn að söluaukningunni Mjólkursamsalan var stofnuð þann 15. janúar 1935 og þá með sérstökum lögum og voru stofnendur öll mjólkursamlög á svæð- inu milli Lómagnúps og Þorskafjarðar. í dag eru þessi mjólkursamlög fjögur og á markaðssvæðinu búa um 150 þús. manns. Heild- armagn innveginnar mjólkur hjá þessum fjórum samlögum var um 60 millj- ónir lítra á síðasta ári en það er um helmingur allrar mjólkurframleiðslu í land- inu. Fjöldi mjólkurfram- leiðenda á Suður- og Vest- urlandi árið 1979 var um 1200. Af þessum sextíu milljónum lítra fóru um 36 millj. til Mjólkursamsöl- unnar í Reykjavík en hinn hlutinn fór til ostagerðar og neyzlu heima í héruðun- um. Starfsmannafjöldi Mjólkursamsölunnar er nú um 240 og heildarsala á síðasta ári nam um 13 milljörðum króna. Nú hefur mikið verið rætt um offramleiðslu landbúnaðarafurða, hvernig hefur því verið mætt? A undanförnum árum hafa átt sér stað ýmsar breytingar í neyzluvenjum okkar sem m.a. hafa leitt til þess að nýmjólkin hefur átt í vök að verjast. Okkur hefur hins vegar tekist að halda neyzluhlutfallinu óbreyttu með því að hefja sölu á ýmsum nýjum vörum s.s. jógurt, ávaxtaskyri, kókosmjólk og jóga svo eitthvað sé nefnt. Stað- reyndin er hins vegar sú, að við eigum ekki við offram- leiðsluvandamál mjólkur að stríða á okkar mark- aðssvæði. Við höfum á und- anförnum árum þurft að flytja til okkar mjólk að norðan og t.d. 1979 svaraði þetta magn til um 760 þús. Guðlaugur Björgvinsson for- stjóri. 1 af mjólk. Ég óttast hins vegar að með því að hrinda í framkvæmd svokölluðu kvótakerfi þá eigi þessir flutningar eftir að vaxa stórlega og þá með auknum tilkostnaði. En er ekki framleiðsla á ávaxtasafa bein sam- keppni við mjólkurfram- leiðsluna? Nei, það hefur sýnt sig að við erum ekki að keppa við sjálfa okkur í þeim efnum Mjólk Sala alls 1979 10001 eða kg 24.508 Súrmjólk .... 1.891 Ýmir 20 Jógurt 1.075 Rjómi 841 Undanrenna . 1.907 Sýrður rjómi .. 56 Kókómjólk .. 1.057 Kaffirjómi .... 78 Eplajógi 102 Skyr 1.023 Skipting milli vöruteg- unda 1979. og ef við byðum ekki upp á þessa vöru þá gerðu það bara einhverjir aðrir. Upp- haflega fórum við út í þetta tií að nýta betur þá fjár- festingu sem búið var að ráðast í vegna átöppunar- véla fyrir nývörufram- leiðsluna. Nú hættuð þið rekstri mjólkurbúðanna — hver hefur reynslan verið síðan þessu var breytt? Reynslan hefur verið mjög góð og við höfum átt gott samstarf við hina fjöl- mörgu kaupmenn sem selja mjólkurafurðir í dag. Einn liður í þessu samstarfi er stóraukin hagræðing í mjólkurflutningum til verzlananna. í dag pakka vélar fernunum í sérstakar grindur sem ekið er út í bílana og síðan þaðan beint inn í kæliskápa verzlan- anna en allir bílarnir eru búnir sérstakri lyftu til að gera þetta sem hagkvæm- ast. Burðurinn heyrir því sögunni til. Einnig höfum við stóran kælibíl í förum um allt land til að dreifa þeim vörum sem hafa mik- ið geymsluþol og ýmsum öðrum vörum. Fyrir utan þetta má benda á tankvæð- inguna á bæjunum og bílunum sem koma utan af landi en þeir stærstu flytja um 110 þúsund mjólkurglös í hverri ferð. Hver eru mikilvægustu framtíðarverkefnin, Guð- laugur? Þar sem öll söluaukning er fólgin í nýjungum er vöruþróunin sá þáttur sem sífellt þarf að vera undir smásjánni ef vel á að tak- ast. A þennan hátt munum við leggja mikla áherzlu því markmið okkar er að fram- leiða það góðar vörur að þær uppfylli þarfir og óskir sem flestra neytenda á hverjum tíma sagði Guð- laugur Björgvinsson að lok- um. Erlendir punktar... IBM. Hjá IBM í Evrópu vinna nú um 100.000 manns en um Vs hluti af heildarveltu fyrirtækisins kemur frá þess- um heimshluta. 95% allra véla sem seldar eru í Evrópu í dag á þeirra vegum eru framleidd- ar í Evrópu. Nú nýlega eru Danir byrjaðir að selja hluti í tölvur og um nokkurt skeið hafa þeir séð um stóran hluta af allri prentvinnu sem fyrir- tækið hefur þurft á að halda í Evrópu. Stjórnendur. Framboð af stjórnendum í Evrópu hefur vaxið um 12% á síðustu 12 mánuðum samkvæmt upplýs- ingum PA International. Mest er aukningin í Svíþjóð eða 71% en minnst á Spáni eða *41%. Ef litið er á einstakar greinar þá jókst framboðið mest á framleiðslu- og tölvu- sviðum eða 38% en minnst í starfsmannastjórn, -14%. Danfoss. Heildarsalan á milli áranna 1978 og 79 jókst um 14%. Skipting þessarar auknu verðmætasköpunar er þannig: til starfsmanna 48%, til hins opinbera 27%, framlag til rekstrar 23% og til eigenda 2%. Að undanförnu hefur verið bætt við 600 nýjum atvinnu- tækifærum hjá þessu fyrir- tæki og það er einungis hægt vegna þess að hagnaður hefur átt sér stað. Allur er varinn góður. Til að geta fylgst með þróuninni sem bezt mun málmkauphöllin í Singapore verða opin fram til klukkan eitt að nóttu í fram- tíðinni. Air France. Hagnaðurinn nam samtals um 210 millj. f.fr. á síðasta ári þrátt fyrir tap vegna reksturs Concordeflug- vélarinnar upp á 96 milljónir franska franka. Danmörk. Danskir skipa- eigendur, innflytjendur og út- flytjendur hafa ákveðið að standa saman gegn undirboð- um Rússanna á alþjóða sigl- ingaleiðum eins og til dæmis til og frá Bandaríkjunum og Japan. Á þetta einnig við um Síber íuj árnbrautina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.