Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
41
fólk í
fréttum
+ ÞESSI mynd er tekin í
rakarastofu John Amico í
Chicagoborg. — Hann sýnir
hér blaöaljósmyndurum „hár-
tízkuna 1980“, sem hann hef-
ur hug á aö boöa kvenþjóð-
inni þar vestra. — En ekki
veröur betur séö en þessi
ameríski hárskeri telji að
þessi skallatízkuklipping eigi
sér framtíð. — Hingaö til
hefur skalli ekki átt neinum
vinsældum að fagna hjá fólki,
og háö hörö barátta við
skallann. Stúlkan sem Amico
er að klippa, sagði blaöa-
mönnunum, að hún væri viss
um að hún myndi kunna vel
viö þessa klippingu.
Enginn Ford
hjá Ford!
+ í FYRSTA skipti í sögu Fordverksmiöjanna amerísku,
sem Henry Ford stofnaði áriö 1903, verður aöalfram-
kvæmdastjóri verksmiöjanna maöur sem ekki er afkom-
andi Fords gamla og ber Ford-nafniö. Núverandi
forstjóri, Henry Ford II, hefur ákveöiö aö hætta nú
störfum. Mun þá viö taka sem aöalmaður Fordverksmiðj-
anna maöur aö nafni Philip Caldwell. Henry II. er nú 62ja
ára gamall. Er þessi mynd tekin af honum (til v.) og hinum
nýja Ford-forstjóra, Caldwell á blaðamannafundi í
aöalstöövum Ford í bænum Dearborn, er Ford tilkynnti
þessa ákvöröun sína, sem hann kvaöst hafa tekið svo
sem 10 dögum áður. Hann mun þó áfram starfa viö þetta
risafyrirtæki afa síns í fjármáladeild þess.
„MAGGA í námunni“
+ MEO þessum oröum hefst myndatexti
þessarar AP-frettamyndar. Magga er engin
önnur en Margaret Tatcher forsætisráöherra
Breta. — Fór hún niður í kolanámur, sem eru
í bænum Selby, til þess aö sjá þar meö eigin
augum vinnuaöstööu og aöbúnaö námu-
manna.
í námunum, sem heita Wistow-námurnar,
naut forsætisráöherrann fylgdar fram-
kvæmdastjóra North Yorkshire námanna,
Michael Eaton. Er hann á myndinni meö
Margréti forsætisráðherra.
Hún giftist
- Pabbinn
kviksetti
hana
+ BÓNDI einn í Lihanon,
bjargaði um daginn ungri
stúlku frá dauöa. Hún haföi
veriö kviksett. — Blað eitt í
Beirut, As Safir, sagöi frá
þessum atburði. — Unga
stúlkan haföi ekki farið aö
vilja fööur síns er hún giftist.
Hún tók sjálf ákvöröun um aö
giftast manni sem hún elsk-
aði, en ekki þeim, sem gamli
maöurinn, pabbi hennar,
haföi ákveöið aö hún skyldi
giftast. Hann geröi sér þá lítið
fyrir og fór meö dóttur sína
afsíðis. Þar tók hann gröf
hennar og gróf hana lifandi.
— Bóndi nokkur var á heim-
leiö af akri sínum og heyröi
neyöaróp. — Hann gekk
ásamt fleira fólki á hljóöiö
opnaði gröfina í snatri og
bjargaöi stúlkunni.
Ekki segir nánar frá þessu
í blaðinu, t.d. viöbrögöum
fööurins eða lögregluyfir-
valda.
VIÐTALSTÍMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
veröa til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfasra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 22. marz, veröa til viötals Markús Örn
Antonsson, og Elín Pálmadóttir. Markús er í
félagsmálaráði, framkvæmdanefnd vegna bygginga-
stofnana í þágu aldraöra, heilbrigöismálaráði, Elín er
í fræösluráöi og umhverfisráöi.
PASKAFERÐALAG?
SKIDOO EVEREST 500 E
Stór, sterkur og sparneytinn sleöi meö öllum
búnaöi, mælum, rafstarti o.fl.
Vandaöar kerrur, henta bæöi fyrir jeppa og
fólksbíla, stór dekk og sterk fjöörun.
Tengisleðar, 3 stæröir:
150 kg, 250 kg og 500 kg, mjög þýðir.
Gísli Jónsson & CO. HF.
Sundaborg 41 — Sfmi 86644