Morgunblaðið - 22.03.1980, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
’J
401 keppandi skráður i
Víðavangshlaup íslands
VÍÐAVANGSHLAUP íslands fer
fram á Miklatúni í Reykjavik á
morgun, sunnudag. Hefst keppni
kl. 14. Skráður er 401 keppandi i
7 flokkum, víðs vegar að af
Iandinu. Flestir eru frá UBK cða
152, 83 frá FH, 68 frá Ármanni
og 35 frá ÍR. Allir bestu hlaupar-
ar landsins eru skráðir til keppni
að undanskildum nokkrum sem
dvelja erlendis við æfingar.
Tímaseðill verður sem hér segir:
stelpur 14:00
strákar 14:15
telpur 14:30
piltar 14:45
konur 15:00
sveinar og drengir 15:20
karlar 15:40
verðlaunaafhending 16:30
Hlaupið byrjar og endar á
flötinni sunnan Kjarvalsstaða. Á
meðan á hlaupinu stendur verður
kaffistofa Kjarvalsstaða opin og
er hægt að fylgjast með hlaupinu
þaðan. Þegar keppendur koma í
mark mun Mjólkursamsalan gefa
þeim sopa eða eplajóga að drekka
til að slökkva þorstann.
Nú verður í fyrsta skipti keppt
samkvæmt nýjum reglum um
hlaupið. I hverjum flokki er keppt
í 4 og 10 manna sveitum og gildir
samanlögð raðtala keppenda
hverrar sveitar. Þá er einnig keppt
um bikar fyrir elstu 5 manna sveit
og elsti keppandi fær bikar.
Vegalengd í yngstu aldursflokk-
unum er um 1700 m og er hlaupinn
einn minni hringur, samkv. með-
fylgjandi mynd. Hjá konum og
sveinum og drengjum eru hlaupn-
ir tveir minni hringir, eða um 3200
m. Hjá körlum eru hlaupnir 4
stærri hringir, eða um 8000 m.
Búningsaðstaða er í Austurbæj-
arbarnaskólanum en úthlutun
númera og skrifstofa Víðavangs-
hlaupanefndar á Kjarvalsstöðum.
Þar sem tvöfalt skráningarkerfi
verður tekið upp og fulltrúar
félaganna verða að skrá röð sinna
keppenda, þurfa þeir að mæta á
skrifstofu nefndarinnar kl. 13. Þá
verður einnig að tilkynna um
nafnabreytingar og greiða þátt-
tökugjöld.
Nánari upplýsingar um hlaupið
gefur form. Víðavangshlaupa-
nefndar, Sigfús Jónsson, sími h.
28531/ v. 25133.
Á þessu korti má sjá hlaupalciðina í Víðavangshlaupi íslands sem háð
verður á Miklatúni á morgun. Rásmark og endamark er, eins og í
fyrra, á flötinni fyrir framan Kjarvalsstaði.
Urslit á
meistaramóti
15-18 ára í
frjálsíþróttum
MEISTARAMÓT innanhúss í
frjálsíþróttum 15—18 ára fór
nýlega fram í Baldurshaga. Úr-
slit í einstökum greinum.
Meyjar 15—16 ára 50 m
Geirlaug Geirlaugsd. A 6,7
Thelma Björnsdóttir UBK 6,9
Bryndís Hólm ÍR 6,9
Langstökk
Jóna B. Grétarsd. A 5,47
Bryndís Hólm ÍR 5,28
Ragna Ólafsd. UBK 5,02
Sveinar 15—16 ára 50 m
Sigsteinn Sigurðsson UND 6,2
Sigurjón Kristmundss. UMFA 6,3
Jóhann Jóhannsson ÍR 6,3
Langstökk
Kristján Harðarson HSH 6,43
Ármann Einarsson UÍA
Sigsteinn Sigurðsson UDN
Stúlkur 17—18 ára 50 m
Helga Halldórsd. KR
Ragnheiður Jónsd. Selfoss
Oddný Kjartansd. UIA
Langstökk
Helga Halldórsd. KR
Ragnhildur Karlsd. Selfossi
Ragnheiður Jónsd. Selfossi
Drengir 17—18 ára 50 m
Guðni Tómasson A
Stefán Þ. Stefánss. ÍR
Egill Eiðsson KA
Langstökk
Stefán Þ. Stefánss. ÍR
Guðmundur Gunnarss. UBK
5,91
5,86
6,6
6,9
6,9
5,40
4,51
4,46
5,9
6,0
6,1
6,66
5,86
• Vésteinn Hafsteinsson er ört vaxandi kastari og á móti í Berkeley í Kaliforniu um helgina bætti hann sig
enn einu sinni i kringlukasti. Á þessari mynd er Vésteinn mcð fyrrverandi heimsmethafa i kringlukasti,
Bandaríkjamanninum John Powell, á æfingu í Kaliforníu fyrir skömmu. Til hægri á myndinni er svo
aðalþjálfari San Jose State University en hann hefur mikinn áhuga á að fá Véstein í skóla sinn í haust,
ásamt þeim Sigurði Einarssyni spjótkastara og Oddi Sigurðssyni spretthlaupara.
Ljósm. Oddur Sigurðsson.
Enn bætir Vésteinn sig
Athyglisveröur árangur Stefáns í tugþraut
VÉSTEINN Hafsteinsson KA
bætti enn árangur sinn í kringlu-
kasti á frjálsíþróttamóti i Kali-
forníu um helgina, en þar dvelst
hann við æfingar ásamt tæpum
tveimur tugum frjálsíþrótta-
manna. Kastaði Vésteinn 50,76
metra, á mótinu í Berkeley. Átti
Vésteinn þrjú köst yfir 50 metra.
Gunnar P. Jóakimsson ÍR
hljóp 400 metra hlaup á 51,5
sekúndum og Sigriður Kjartans-
dóttir KA 200 metra á 25,0
sekúndum, en hvort tveggja er
skammt frá þeirra bezta. Fyrir
skömmu hljóp Þorvaldur Þórsson
ÍR 400 metra á móti í Kaliforníu
á 49,6 sekúndum sem er hans
bezta. Sagði Gunnar Páll í spjalli
við Mbl., að Þorvaldur væri í
mikilli framför og hefði hann náð
sér vel á strik á æfingum upp á
síðkastið, og mætti búast við
talsverðri bætingu hjá honum er
á liði.
Stefán Hallgrímsson UÍA náði
sæmilegum árangri í tugþraut á
móti í Stanford í Kaliforníu á
miðvikudag og fimmtudag. Hlaut
hann 7.309 stig, en hann á bezt
7.589 stig. Árangur Stefáns er
athyglisverður svo snemma árs,
og eins fyrir það að Stefán var
talsvert frá sínu bezta í mörgum
greinum þrautarinnar, sem bendir
til þess að hann geti meira þegar
hann skerpir formið betur þegar
líður á sumarið. Árangur Stefáns í
einstökum g-einum fyrri dag
þrautarinnar var sá, að hann
hljóp 100 metra á 11,2 sekúndum,
stökk 6,63 metra í langstökki,
varpaði kúlu 13,29 metra, stökk
1,83 metra í hástökki og hljóp 400
metra á 49,5 sekúndum. Seinni
dag þrautarinnar hljóp hann 110
m grindahlaup á 15,1 sekúndu,
kastaði kringlu 39,30 metra, stökk
3,75 metra í stangarstökki, kastaði
spjóti 54,86 metra og hljóp 1,500
metra á 4:21,4 mínútum. Elías
Sveinsson FH var skráður til
keppni en keppti ekki vegna smá-
vægilegra meiðsla. — ágás.
Gott körfubolta-
lið í heimsókn
Armenskt körfuboltalið
til íslands
Armenía er oft kölluð lýðveldi
fimleikanna, og vissulega taka
næstum 820.000 af þremur millj-
ónum, sem íbúar lýðveldisins eru,
þátt í íþróttum eða líkamsrækt af
einhverju tagi. Nöfn armenskra
fimleikamanna, boxara, skák-
manna og lyftingarmanna eru
kunn bæði innan og utan Sovét-
rikjanna. Á siðustu 5—6 árum
hafa körfuknattleiksmenn einnig
vakið athygli manna.
Körfuknattleikur hefur ætíð
verið meðal vinsælustu íþrótta í
Armeníu. Þó hafa armenskir
körfuknattleiksmenn enn ekki
unnið neinn veigamikinn sigur í
alþjóðakeppnum. Sumir íþrótta-
frömuðir halda að orsökin sé
hinn mikli sigur armenskra fót-
boltamanna í sovéska úrvalslið-
inu. Þjálfarar körfuknattleikslið-
anna telja þó að ósigrarnir í
körfuknattleik séu vegna rangra
starfsaðfcrða.
En hvað sem öðru líður, körfu-
knattleikur er mjög vinsæll í
Armeníu, og er iðkaður í svo til
öilum áhugamannasamtökum.
SKIF-liðið, sem samanstendur af
stúdentum og ungum kennurum
Yerevan líkamsræktarstofnunar-
innar, er álitið sterkasta liðið í
Armeníu. Þeir hafa aldrei tapað
leik í Armeníu og eru næstum
allir í landsliðinu.
Síðastliðið ár varð SKIF í sjötta
sæti í sovéskri keppni. Konstantin
Vardanyan, þjálfari liðsins og vel
þekktur körfuknattleikssérfræð-
ingur í Armeníu, og aðstoðar-
maður hans, Karlen Manukyn,
álíta að armenska körfuknatt-
leiksliðið muni bráðlega ná betri
árangri.
í liðinu sem ætlar að leika á
íslandi eru bestu körfuknatt-
leiksmenn Armeníu. Þar er Vitaly
Zastukov, skipstjóri, 34 ára, al-
þjóðlegur íþróttameistari, og
Konstantin Vardanyan telur hann
meðal fremstu íþróttamanna.
Hann hefur nokkrum sinnum leik-
ið með sovéska Iandsliðinu, og
vann, ásamt liði sínu, sigur í
Evrópukeppni 1974. Enda þótt
hann sé ekki mjög hár, aðeins 178
cm, er hann harðvítugur og
markviss körfuknattleiksmaður.
Einnig má nefna Edward Arut-
yunyan og Yegishe Davtyan, sem
eru meðal bestu manna liðsins,
sem báðir hafa leikið lengi með
því, hinn fyrrnefndi er 32ja ára, en
hinn síðarnefndi er 30 ára. Af
yngri mönnum mönnum, sem
skara fram úr eru: Ashot Papyan
(192 cm) og Lorias Avakyan (185
cm) sem báðir eru tvítugir. Hæsti
maður liðsins er Victor Agadjan-
yan (202 cm).
Ferðin til íslands er ekki hin
fyrsta ferð liðsins til útlanda. Á sl.
áratug hefur það getið sér góðan
orðstír í Sýrlandi, Líbanon, íran,
Iraq og Tékkóslóvakíu.
Iþrótta-
mót hjá
fötluðum
INNANFÉLAGSMÓT í eftir-
töldum greinum verða sem
hér segir:
Sund. Laugardaginn 29.
mars kl. 14 i skólalaug
Árbæjarskóla. Þátttaka tilk.
fyrir 26. mars.
Borðtcnnis. Mánudaginn
31. mars kl. 20 í Fellahelli.
Þáttaka tilk. fyrir 26. mars.
Boccia. Einstaklings-
keppni. Fimmtudaginn 3.
apríl (skírdag) kl. 14 i Haga-
skóla. Þátttaka tilk. fyrir
29. mars.
— Stjórn og þjálfarar —
Svigogganga
• í DAG og á morgun fer
fram við Skiðaskálann i
Hveradölum skiðaganga
fyrir almenning og svig-
keppni fyrir unglinga. byrj-
endur. Tilsögn verður á
staðnum. Það er Skiðafélag
Reykjavikur sem stendur
fyrir sviginu og göngunni.
Knattspyrna
FYRSTI opinberi
knattspyrnukappleik-
ur ársins fer fram í
dag á Kaplakrikavelli
og hefst kl. 14.00. Það
eru FH og Fram sem
mætast.
J