Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
7
„Fööurleg um-
sjá og sjálfs-
hól“ flokksins
Einar Örn Stefánsson
segir í Þjóövilja á sunnu-
degi:
„Þaö hefur verió talað
um, aö Þjóðviljinn hafi
löngum verió ráóherra-
hollt biað og eigi aö vera
þaó. Þjóðviljinn á aö
mínum dómi ekki að vera
ráöherrahollur í þeim
skilningi aö hann skuli
lofa og prísa allar gjöröir
ráóherra „okkar“.
Þjóöviljinn á einmitt aö
gagnrýna ráðherra Al-
þýöubandalagsins í borg-
aralegum ríkisstjórnum
og veita þeim rækilegt
aöhald. Ekki mun al
veita, því í þægilegum
ráóherrastólum borgara-
legrar þingræöishyggju
„hægt er að festast, bágt
mun úr að víkja“, eins og
ort var af ööru tilefni.
Blaöið okkar er of
flokkshollt og skortir
mjög svigrúm til sjálf-
stæðra stefnumótunar.
Nú vill svo til, aö Þjóövilj-
inn er málgagn sósíal-
isma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóöfrelsis.
Varla hefur Alþýðu-
bandalagiö einkarétt á
þessu öllu saman? Þjóð-
viljínn ætti einmitt aó
vera vettvangur allra
þeirra sem vilja berjast
undir þessum merkjum,
hvort sem þeir hafa játaó
Alþýöubandalaginu holl-
ustu eður ei. Ég man ekki
betur en að slík vióhorf
hafi reyndar iðulega veriö
ítrekuð af ritstjórum
þessa blaðs á undanförn-
um árum, þótt verkin hafi
ekki alltaf verið í fullu
samræmi viö þessa
frómu stefnu.
Mergur málsins er sá,
aö blaðið er of háð
flokksvaldinu. Blaðið
breytist trauðla til hins
betra nema annað
tveggja gerist: flokks-
starfiö taki stakkaskipt-
um, — eöa flokkurinn
hætti „föðurlegri umsjá
sinni og sjálfshóli á
síðum blaösins".
„Alþýöumaö-
ur“ í uppskrift
Þjóöviljans
Þjóöviljinn birtir helg-
arviðtal viö Kjartan
Helgason, sem þar er
titlaður „ferðaskrifstofu-
rekandi". Viðtalið hefst á
því, hvern veg skuli bera
kennsl á „alþýðumann".
„Klæðnaðurinn: Græn
skyrta, gyllt bindi, brúnar
buxur ásamt giidu belti
bera vitni um alþýóu-
mann. Orðavalið og fram-
setning skírskota hins-
vegar til ódrepandi
vinnusálar og viðskipta-
manns sem hefur báöa
fætur á jöröunni." Eöa
þannig — sko.
Áhugaleysi —
skattastefna
Ellert B. Schram rit-
sjóri segir í Vísi:
„Þaö sem vakti þó
mesta athygli í sambandi
við afgreiðslu þessa máls
(hækkun söluskattsins)
var áhrifaleysi Gunnars
Thoroddsen og hans
manna. Sighvatur Björg-
vinsson hefur lýst því svo
í þingræöu, aö þeir hafi
ráfað um þinghússganga,
meðan þingflokkar Al-
þýðubandalags og Fram-
sóknarflokks deildu um
frumvarpiö, og jafnskjótt
og þeim fundí hafi verið
lokiö hafi breytingin úr
2% í 1%% hækkun sölu-
skatts verið kynnt þíng-
inu, án nokkurs samráðs
við stuðningsmenn
stjórnarinnar úr röðum
Sjálfstæðisflokksins.
Nú er þetta aö vísu
orðrómur einn, en allút-
breiddur og viðurkennd-
ur meðal þingmanna, og
því miöur virðist margt
annað benda til, að ráð-
herrar úr rööum Sjálf-
stæðisflokksins leiki ekki
stórt hlutverk í ríkis-
stjórninni...“
Aö skattleggja
skattana
í gær hækkaði bensín-
verð um kr. 60.-. Af þess-
ari myndarlegu „niöur-
talningu vöruverðs"
renna 42 krónur beint í
ríkissjóð (70% hækkun-
arinnar) — en 18 krónur
(30%) eru vegna hækk-
unar erlendis og gengis-
falls íslenzku krónunnar.
Miðað við óbreytta stefnu
verða tekjur ríkissjóðs af
bensíni 29,7 milljarðar
króna á heilu ári. Af 430
króna bensínverði fær
ríkissjóður í sinn hlut kr.
247.50 eöa um 57,6%. í
allri skattagleðinni, sem
einkennir stjórnarliðiö,
kemur það e.t.v. einna
spánskast fyrir sjónir, að
söluskatturinn, sem nú er
hækkaöur, leggst m.a. á
þá ríkisskatta, bensín-
gjald og innflutningstolla,
sem fyrir voru. Skattarnir
eru skattlagðir og al-
menningur borgar bens-
ínbrúsann. En „kosningar
eru kjarabarátta“, eins og
menn muna, og „setja má
samninga í gildi“ og
„vernda kaupmátt launa“
meö ýmsum hætti, þegar
Alþýðubandalagið leggur
til fjármálaráðherra, aö
ekki só talað um „svig-
rúmið“ á sviði kjarabót-
anna. Ef einhverjum
finnst röksemdadæmi
Alþýðubandalagsins ekki
ganga upp má benda
hinum sama á „félags-
málapakkann", sem aö
vísu týndist úr fjárlögum
ársins en finna má dag
hvern í jólapappír meö
rauðri slaufu í Þjóðviljan-
um, því „ráðherraholla”
btaði.
Fyrirlestur um Matisse
HALLDÓR Runólfsson listfræð-
ingur helduT fyrirlestur á vegum
Aliance Francaise um franska
listamanninn Matisse í kvöld kl.
20.30 í franska bókasafninu
Laufásvegi 12.
Matisse var fyrstur formbylt-
ingarmanna 20. aldar og ásamt
Picasso og Kandinsky einn af
mikilvægustu myndlistarmönnum
síðari tíma. Síðustu ár ævi sinnar
lagði Matisse penslana á hilluna
og sneri sér nær eingöngu að nýju
formi tjáningar, sem er gerð
klippimynda. Þessar klippimyndir
eru sérstæðar fyrir ferskleika og
þá lífsgleði sem í þeim er fólgin og
hafa þær haft djúpstæð áhrif á
yngri kynslóðir myndlistarmanna,
einkum meðal svokallaðra popp-
listamanna.
Halldór Runólfsson nam lista-
sögu í Frakklandi og hefur starfað
síðan við kennslu og blaðagagn-
rýni. Fyrirlesturinn, sem er öllum
opinn er á íslenzku og verða
sýndar litskyggnur af verkum
Matisse. Þess má geta að nú gefst
íslendingum færi á að sjá mynd
eftir Matisse á sýningu, sem yfir
stendur í Norræna húsinu.
Verksmidjusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Geriö góö kaup í úrvalsvöru.
Opiö virka daga kl. 10—18. Föstudaga kl. 10—19.
Laugardaga kl. 9—12.
Skipholti 7.
Sími 28720.
FRA TOPPI TIL
TÁAR
ALLT
Á EINUM STAÐ
Hárgreiðslu og snyrtistofan
HÓTEL LOFTLEIÐUM
bjóða þjónustu sem sparar tíman.
Fáið
snyrtingu
meðan beðiö er í þurrku eða permanenti.
Hárgreiðslustofan Snyrtistofan
Sigríður Finnbjörnsdóttie, Helga Þ. Jónsdóttir,
hárgreiðslumeistari. fótaaðgerðar- og snyrtifræöingur.
Sími 25230 Sími 25320 Q'
LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER —
Málning og
málningarvörur
Afslattur
Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram
30—50 þús. 50 þús.
veitum við 10% veitum við 15%
afslátt. afslátt.
Þetta er málningarafsiáttur í Litaveri fyrir alla þá, sem eru
að byggja, breyta eöa bæta.
Líttu viö í Litaveri,
því þaö hefur ávallt
borgað eig.
LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — =
Schejppach
trésmiðavélar
fyrirliggjandi
Samanstendur af 5“ þykktarhefli, 10“ afrétt-
ara og hjólsög með 12“ blaði, 2 ha. mótor.