Morgunblaðið - 15.04.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1980
13
að ekki teljist nauðsynlegt að
hafa varnarlið á íslandi. Því
miður er heimsmálum svo háttað
í dag, að ég tel brottför varnar-
liðsins ekki æskilega. En það er
ekki hlutverk forsetans að marka
stefnuna í þessum efnum.
3. Við myndun ríkisstjórna verð-
ur forsetinn að meta hverju sinni
hvaða leið er árangursríkust til
þess að meirihlutastjórn komist á
sem fyrst. Aðrar leiðir koma til
greina heldur en sú, að fela
formönnum stjórnmálaflokka
umboð til stjórnarmyndunar eft-
ir ákveð'inni röð, og ég tel að
engin sérstök leið hafi unnið hefð
í þessu efni.
4. Eg hefi aldrei gegnt trúnaðar-
starfi á vegum stjórnmálaflokks
hvorki á vettvangi flokksstarfs
né verið tilnefndur í nefnd eða
ráð á vegum stjórnmálaflokks.
5. Störf forseta Islands eru miklu
fjölþættari og þýðingarmeiri en
menn virðast almennt gera sér
grein fyrir. Forsetaembættið hef-
ur á undanförnum árum mótast á
tímum friðsamlegs ástands innan
lands og utan. En ákvæði stjórn-
arskrárinnar veita svigrúm til að
móta það á annan hátt ef nauð-
syn krefur. Alvarlega atburði
getur borið að höndum, t.d. erfiða
stjórnarkreppu eða upplausnar-
ástand, og í alþjóðamálum getur
syrt í álinn. I slíkum tilvikum
getur reynt mjög á forseta
Islands, og þá er mikilvægt að
hann hafi reynslu er gerir honum
kleyft að takast á við erfiðleik-
ana.
Rögnvaldur
Pálsson
1. Vel mætti hugsa sér breytingu
í framtíðinni, en þar sem stutt er
til kosninga tel ég breytingar
ekki tímabærar.
2. Sumu og sumu ekki. Já, vest-
rænni samvinnu. Ég er andvígur
því að kjarnorkuvopn séu geymd
hér á landi, og sömuleiðis því að
bandarískur her sé staðsettur hér
á friðartímum, en fylgjandi því
að Atlantshafsbandalagið reki
eftirlitsstöðvar hér á landi, sem
verða smám saman reknar af
Islendingum eftir því sem þeir
eru þjálfaðir til að taka við
störfum og eru færir til.
3. Ég er hlynntur þeim lýðræðis-
reglum, sem nú eru í gildi og hver
þingmaður sem getur sannað að
hann hafi þingmeirihluta á bak
við sig hefur að mínu áliti fullan
rétt til að fá umboð forsetans.
Eiga þá engar flokkspólitískar
reglur að koma í veg fyrir það.
4. Ég hef ekki gegnt neinu
ábyrgðarstarfi í neinum flokki,
en hef fylgzt náið með öllum
stjórnmálum innanlands og er-
lendis frá því ég man eftir mér.
Tel ég af minni reynslu að oft á
tíðum hafi þeir eytt of miklum
kröftum í smátökin en oft látið
sér yfirsjást yfir stærri viðfangs-
efnin.
5. Hann skal vera sameiningar-
tákn þjóðarinnar og leitast við að
sætta hin stríðandi öfl þjóðfé-
lagsins og bera klæði á vopnin
hvenær og hvar sem hægt er að
koma því við.
Vigdís
Finnbogadóttir
1, Hugmyndin er fullrar athygli
verð og sjálfsagt að athuga hana
fyrir framtíðina. Henni verður þó
varla við komið í framkvæmd
með svo stuttum fyrirvara sem
nú er'fyrir forsetakjör. Ég á bágt
með að ímynda mér þann þegn á
Islandi, sem ekki vildi helst að
meirihluti stæði að baki forseta
sínum, né það forsetaefni, sem
ekki óskaði hins sama.
2. Samkvæmt stjórnarskrá
íslenska lýðveldisins og hefðum
sem skapast hafa, fara Alþingi og
ríkisstjórn með ákvörðunarvald í
utanríkismálum. Stefnumörkun í
þeim efnum tel ég ekki falla
undir valdasvið forseta íslands.
Hver sá sem gegnir forsetaemb-
Stjórn Kvennadeildar Slysavarnafélags íslands í Reykjavík og ritnefnd ásamt Gunnari Friðrikssyni
forseta Slysavarnafélags lslands. Lj«sm. RAX.
Fullnaðarrannsókn hafnar við Dyrhólaey:
Kvennadeild J31ysa-
varnafélags Islands
Reykjavík 50 ára
KVENNADEILD Slysavarnafélags íslands,
Reykjavík, sú elsta á landinu, verður 50 ára 28.
apríl n.k. Verður haldið upp á afmælið með hófi á
Hótel Sögu 28. apríl en þangað er öllum slysa-
varnakonum boðið ásamt eiginmönnum og gestum.
Þá hefur deildin gefið út platta í tilefni afmælisins
og kynningarrit. Plattinn verður seldur á 10.000
krónur stykkið en konurnar munu ganga um með
blaðið og dreifa því ókeypis.
ætti hlýtur að virða lög landsins í
þeim málum sem öðrum og fara
að meirihlutavilja, óháð eða
óháður jærsónulegum einkaskoð-
unum. Ég vísa í því tilviki til þess
sem ég hef þegar sagt á opinber-
um vettvangi viðtali við Helgar-
póstinn.
Öllum er kunn sú staðreynd að
stefna Islands í utanríkismálum
hefur á síðustu árum verið um-
deild. Ég tel ekki rétt að draga
forsetaembættið inn í þær deilur.
Hver sá sem valinn er til forseta-
embættis á að leitast við að jafna
deilumál okkar innbyrðis og vera
sameiningartákn þjóðarinnar.
Mér þykir vænt um þetta land og
þessa þjóð og tel það skipta
meginmáli í lífi okkar hvers og
eins að við vitum af frelsinu til að
túlka skoðanir okkar, í eigin
sambúð og í sambýli við aðrar
þjóðir, óháð öllum öðrum. Ég þoli
ekki, hef ekki þolað og mun aldrei
þola skoðanakúgun í neinni
mynd, hvar sem er á jörðunni, til
austurs eða vesturs. Ég vísa því
spurningunum þrem til þjóðar-
innar, og lýsi í dag, sem forseta-
efni virðingu fyrir vilja hennar.
3. Engin regla getur verið algild í
því máli, en meginreglan hlýtur
samt að vera sú að fara eftir
þeirri „röð“, sem þjóðin hefur
kosið sér, þ.e. stærð stjórnmála-
flokkanna á Alþingi. I því felst
lýðræði og ég er og verð lýðræð-
issinni. Aðstæður geta þó orðið
þannig í erfiðum stjórnarkrepp-
um að nauðsyn skapist til að
bregða út af þessari meginreglu.
4. Ég hef aldrei verið í neinum
stjórnmálaflokki og því aldrei í
neinu flokksstarfi, hvorki „innra“
né „ytra“. Einn stjórnmálaflokk-
ur hefur í einu tilviki bent á mig
til nefndarstarfa. Það var í út-
hlutunarnefnd listamannalauna
og flokkurinn var Alþýðubanda-
lagið. Ég hef um árabil verið
mótfallin því að nefnd, sem svo
náið snertir listamenn, sé skipuð
flokkspólitískum fulltrúum. Ég
þáði sæti í nefndinni, að höfðu
samráði við fjölmarga vini mína
með hinar fjðlbreytilegustu
stjórnmálaskoðanir, m.a. til að
reyna að stuðla að breytingum á
þessu fyrirkomulagi. Ég tel það
eitt af hinu versta, sem um getur
verið að ræða, að flokkssjónarmið
ráðskist með lista- og menning-
armál. Enginn annar stjórnmála-
flokkur leitaði til mín vegna
þessara starfa, en í ljósi ofan-
greindrar afstöðu hefði ég alveg
eins getað hugsað mér að vera
tilnefnd í úthlutunarnefnd lista-
mannalauna af einhverjum öðr-
um flokki, t.d. Sjálfstæðisflokkn-
um. Varla er hægt að gera okkur,
allt þetta fólk í landinu sem ekki
er í neinum stjórnmálaflokki, að
einhverjum utangarðsmönnum?
— Þá má geta þess að mér hefur
verið falið að vera fulltrúi íslands
í ráðum og nefndum erlendis, og
stundum trúnaðarstörf í því sam-
bandi. Ég hef t.d. verið í ráðgef-
andi nefnd um menningarmál á
Norðurlöndum um nokkurra ára
skeið (RKK), skipuð af mennta-
málaráðuneytinu 1975, í stjórn-
artíð Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins. Ég var
formaður þeirrar nefndar síðasta
kjörtímabil hennar 1978—80 og
endurkjörin til formannsstarfa í
nefndinni nú á ný í byrjun þessa
árs — af ráðherranefnd Norður-
landa.
5. Sveinn Björnsson fyrsti forseti
Islands orðaði hugsun mína um
eðli embættisins og hlutverk
handhafa þess, þegar hann við
lýðveldisstofnun á Þingvöllum
lagði út af orðum Þorgeirs Ljós-
vetningagoða: „Ef sundur er skipt
lögunum, þá mun sundur skipt
friðnum". Við það hef ég því einu
að bæta að þar er um að ræða
karl eða konu, sem leggur rækt
við þjóðlegar erfðir í nánum
tengslurú við fólkið, sögu þess
fyrr og nú, menningu og tungu.
Sem slíkur er hann eða hún
jafnframt oddviti þjóðarinnar
sem kemur fram fyrir hennar
hönd út á við.
Á fundi meö blaða-
mönnum sagði Hulda Vict-
orsdóttir formaður Kvenna-
deildarinnar að aðalstarf fé-
lagsins hefði frá upphafi
verið að afla fjár til upp-
byggingar björgunarstarfi
Slysavarnafélags íslands.
Hún sagði að í upphafi hefði
starf kvennadeildarinnar
fyrst og fremst miðast við
sjóslys en hefði síðar orðið
víðtækara um leið og starf
Slysavarnafélagsins sjálfs.
Platti sá sem Kvennadeildin gef-
ur út i tilefni 50 ára afmælisins.
Gunnar Friðriksson for-
seti Slysavarnafélagsins
sagði á fundinum að dugn-
aður þeirra kvenna sem
deildina skipa væri hreint
afrek og án þeirra væri
Slysavarnafélagið ekki það
sem það er í dag.
Fyrsta stjorn Kvenna-
deildarinnar var þannig
skipuð: Guðrún Jónsdóttir,
formaður, Inga Lára Lárus-
dóttir, ritari, Sigríður Pét-
ursdóttir gjaldkeri, Guðrún
Brynjólfsdóttir varafor-
maður, Guðrún Lárusdóttir,
vararitari, Lára Schram
varagjaldkeri og Jónína
Jónatansdóttir meðstjórn-
andi. Stofnfélagar voru alls
100.
Núverandi stjórn er þann-
ig skipuð: Hulda Victors-
dóttir, formaður, Halldóra
Magnúsdóttir gjaldkeri,
Guðrún S. Guðmundsdóttir
ritari, Ingibjörg Auðbergs-
dóttir, Dýrfinna Vítalín,
Lilja Sigurðardóttir, Þórdís
Karelsdóttir, Erna Antons-
dóttir og Jóhanna Árnadótt-
ir.
í ritnefnd kynningarrits-
ins eru Hulda Victorsdóttir,
Svala Eggertsdóttir, Erna
Antonsdóttir, Gróa Ólafs-
dóttir og Guðbjörg Hall-
dórsdóttir en ritstjóri er
Guðrún S. Guðmundsdóttir.
LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER
m
Obl
l'flT
it<X
0&O.
a,
■ t/
Vitiö
þiöaö
veggfóöur er á
uppleið?
Erum nýbúnir að taka upp nýtt úrval, t.d.
prúðuleikarana — Star Wars fyrir börn og einnig
falleg Ijós damask veggfóöur
Tegundir: May-fair, Vymura — Decórine —
Melody Mills.
Líttu viö í Litaveri því
þaö hefur ávallt borgaö
aig.
Orenaéavegi, Hreyfilthúiinu
Sími 82444.
LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER