Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 21 Sætur sigur gegn Dönum íslendingar unnu stóran sigur á Dönum, 108—88 í þriðja leik sínum á Norðurlandamótinu í körfuknattleik um helgina. Staðan í hálfleik var 55—45 fyrir ísland. Leikurinn var jafn framan af, en undir lok fyrri hálfleiks tóku íslendingar mikinn kipp og stungu Danina af. Náðu íslendingar forystu sem ekki var látin af hendi og þegar upp var staðið blasti við sætur og stór sigur gegn þeirri þjóð sem íslendingum þykir skemmtileg- ast að leggja að velli. Pétur Guðmundsson bar sem fyrr höf- uð og herðar yfir aðra leikmenn íslenska liðsins, í tvennum skilningi, hann var ekki lengi að komast i villuvandræði, en skoraði engu að síður 32 stig á þeim stutta tíma sem hans naut við. Flosi Sigurðsson tók stöðu hans og gerði henni góð skil, vaxandi leikmaður Flosi, þ.e. a.s. vaxandi að getu ekki hæð. Stig íslands skoruðu: Pétur 32. Jón 15, Kristinn 11, Flosi 10, Kristján og Guðsteinn 9 hver, Torfi 8, Jónas og Símon 5 hvor og Gunnar 4 stig. Finnar sterkari ÍSLENDINGAR töpuðu fjórða leik sínum í Polar Cup, er þeir máttu gera sér að góðu ósigur gegn Finnum. Ekki var tapið ýkja stórt, 60 — 77, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 43—33 fyrir Finna. Var mála manna að norskur dómari hafi leikið stórt hlutverk í leiknum og bælt íslenska liðið niður með ýmsum furðudómum. Kvað svo rammt að þessu, að íslenskur áhorfandi réðst að honum í leikslok, en slys urðu ekki á fólki. íslendingar voru að ná sér vel á strik, er Pétur fékk sína 5. villu frekar snemma i síðari hálflcik. Var þá aðeins 7 stiga munur. Við það að missa Pétur var allur vindur úr íslenska liðinu og Finnar sigu fram úr á nýjan leik og unnu loks örugg- an sigur. Gerðu gott betur, urðu Norðurlandameistarar. En íslendingar geta vel við unað eftir stórsigra gegn Nor- egi og Danmörk. Og landinn stóð vel í Svíum og Finnum sem hafa á að skipa liðum í fremstu röð. Með heppni hefði verið hægt að ná enn hagstæðari úrslitum gegn þeim. Stig íslands gegn Finnum skoruðu: Pétur 27, Símon 12, Jón og Torfi 6 hvor, Kristinn 3, Flosi, Gunnar og Guðsteinn 2 hver. Tvö mörk frá Arnóri ARNÓR Guðjohnsen fékk loks tækifæri með aðalliði Lokeren um helgina og greip það báðum höndum. Hann átti snilldarleik er Lokeren lagði að velli mjög frambærilegt lið Cercle Brugge og skoraði bæði mörkin í 2—1 sigri Lokeren. Arnór lék vörn Cercle hvað eftir annað afar grátt og var hann óheppinn að bæta ekki þriðja markinu við. Síðara mark Arnórs var sérlega glæsilegt, þrumuskot frá vítateigslínu upp undir þverslána. Auk þess að skora bæði mörkin prjónaði hann sig eitt sinn laglega í gegn þar til hann átti markvörðinn einan eftir. Renndi hann þá knettinum til pólska landsliðs- mannsins Lubanski sem stóð fyrir opnu marki, en hann brenndi illa af. Úrslit leikja i Belgiu urðu annars þessi: Beringen — FC Liege 1—0 Charleroi — Waregem 2—0 Molenbeek — Waterschei 2—0 Winterslag — Anderlecht 1—1 Beerschot — Berchem 1—2 FC Brugge — Beveren 3—2 Lokeren — Cercle Brugge 2—1 Standard — Lierse 5—2 Antwerp — Hasselt 4—0 • Arnór Guðjohnsen stóð sig frábærlega um helgina, skoraði bæði mörk Lokeren 12—1 sigri liðsins. Guðmundur Sigurðsson Ármanni varð Islandsmeistari í 10. skipti á meistaramótinu í lyftingum um helgina. Guðmundur er á myndinni að setja nýtt íslandsmet í snörun en þar lyfti hann 148 kg. Sjá bls. 25. Ljósm. Rax Atli skrifaði undir tveggja ára samning ATLI Eðvaldsson, knattspyrnu- maðurinn snjalli úr Val, skrií- aði um helgina undir tveggja ára samning við vestur-þýska stórliðið Borussia Dortmund, sem er eitt af efstu liðunum í þýsku deildakeppninni. Tekur HOLLENSKIR fjölmiðlar gerðu sér mikinn mat úr einvígi markakóngana í hollensku knattspyrnunni, er Feyenoord og AZ’67 Alkmaar mættust á heimavelli Feyenoord. Fyrir leikinn hafði Kees Kist skorað 22 mörk i deildarkeppninni, en Pétur 21 mark fyrir Feyenoord. Pétur fann leiðina í markið hjá Alkmaar og var markið afar fallegt að sögn ólafs Sigur- vinssonar sem fylgdist með leiknum á sjónvarpsskermi i Belgiu. En Kist skoraði eina mark Alkmaar sem tapaði leiknum 1—3 og er því ennþá einu marki á undan Pétri i keppninni um markakóngstitil- inn. Báðir keppa auk þess að ÁSGEIR Sigurvinsson var á skotskónum i belgisku knatt- spyrnunni um helgina þegar lið hans Standard Liege vann sinn leik í 1. deild. Standard vann Lierse stórt á heimavelli 5:2 eftir að staðan hafði verið 2:0 í hálfleik. Stand- ard komst í 5:0 en slakaði á undir lokin og þá skoraði Lierse tvö mörk. Ásgeir kom félögum sínum á bragðið með því að skora fyrsta markið, þrumuskot utan úr teignum eftir að Edström hafði lagt fyrir hann samningurinn gildi 1. júlí. Atli er enn sem komið er eini erlendi leikmaðurinn á launaskrá hjá Dortmund og á því enn betri möguleika en ella á því að tryggja sér fast sæti í aðalliði félagsins. gullskó Adidas. Úrslit leikja í Hollandi urðu þessi: Pec Zwolle — GAE Deventer 2-1 Nec Nijmegen — Nac Breda 1-1 PSV Eindhoven — Ajax 1-1 MVV Maastricht — Excelsior 3-1 Den Haag — Sparta 2-0 Willem 2 — FC Utrecht 0-2 Feyenoord — AZ’67 Alkmaar 3-1 Roda JC — Haarlem 1-2 Tvente — -Vitesse Arnhem 4-1 Ajax hefur enn góða forystu í deildinni og vænkaðist hagur félagsins við tap Alkmaar. Hef- ur Ájax 47 stig, en Alkmaar hefur 44 stig. Feyenoord hefur 40 stig, en hefur leikið einum leik minna en Ajax og Alkmaar. Síðan er fjögurra stiga ginn- ungagap niður í fjórða sætið, en það skipar gamla stórveldið Phillips Sportverein Eindhoven. boltann. Portúgalinn De Matos var iðinn við kolann, skoraði þrjú mörk og eitt markanna skoraði Riedl. FC Brúgge vann Beveren á heimavelli 3:2 og hefur enn tveggja stiga forystu þegar fjórar umferðir eru eftir en Standard er í öðru sæti. Möguleikar Brugge á meistara- titlinum eru því miklir en Stand- ard á hins vegar mikla mögu- leika í bikarkeppninni, er komið í fjögurra liða úrslit og mætir þar Beveren. SS. Ármann lagði Víking ÁRMANN vann óvæntan sigur á Víkingi, 3—0, á Reykjavíkurmótinu um helgina og fær fyrir vikið þrjú stig. Um helgina léku einnig í sömu keppni Valur og Fylkir og sigraði Valur 2—1. Skoraði Hörður Júlí- usson bæði mörk Vals, en ögmundur Kristinsson svar- aði fyrir Fylki. Tveir leikir fóru einnig fram i litlu bikarkeppninni. FH sigraði Hauka 2—1 á Kaplakrika og í Keflavik sigraði ÍBK lið UBK 3-2. Þórir Sigfússon skoraði öll mörk IBK, en þeir Ingólfur Ingólfsson og Sigurður Grét- arsson skoruðu fyrir UBK. Þrjú met ÞRJÚ ný íslensk unglinga- met voru sett á unglinga- móti Ægis í sundi sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Katrín Sveins- dóttir setti bæ'ði telpna-og stúlknamet i 200 metra skriðsundi stúlkna. synti hún vegalengdina á 2:16,2 minútum. Þá var sett nýtt stúlknamet er A-sveit Ægis keppti í 4x100 metra skrið- sundi stúlkna. Tíminn 4:28,0 minútur. Viren í ham LASSE Viren, langhlaupar- inn heimsfrægi frú Finn- landi, sýndi um helgina, að hann er ekki dauður úr öllum æðum, er hann sigraði örugglega i alþjóðlegu Iang- hlaupi sem haldið var á San Andreas-eyju í Karabíska hafinu. Tími Virens var mun betri heldur en hjá Victor Mora, sem varð annar. Vega- lengdina, sem var 15 kíló- metrar, hljóp Viren á 42 mínútum og 16 sekúndum. Mora hljóp hins vegar á 42.44. Tékkar öruggir TÉKKAR sigruðu Ungverja í óiympiulandsleik i knatt- spyrnu með 3 mörkum gegn 2 um helgina. Tryggði tékkneska liðið sér þar með farmiða á Óivmpiuleikana í Moskvu i sumar. Sem kunn- ugt er. tefla austantjalds- þjóðirnar fram atvinnum- annaliðum sinum á Ólympiu- leikum. Janecka. Vizek og Licka skoruðu mörk Tékka, en þeir eru allir fastamenn í A-landsliði Tékka. Sama er að segja um markaskorara Ungverjanna, Komjati og Tatar. Naumt tap gegn Póllandi ÍSLENZKA landsliðið í badminton tapaði naumlega fyrir Póllandi 2—3 í fyrstu umferðinni á Evrópukeppni landsliða sem hófst í Gron- ingen i Hollandi um helgina. Pétur og Kist háðu einvígi - sem lauk sem jafntefli báöir skoruöu Gott mark hjá Ásgeiri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.