Morgunblaðið - 15.04.1980, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
23
Árni Indriðason úr Víkingi og
fyrrverandi landsliðsíyrirliði í
handknattleik sigraði i eink-
unnagjöf Mbl. með fáheyrðum
yfirburðum. Lék Árni alla leiki
Víkings, fjórtán talsins og fékk
samtals 45 stig. Það gerir 3,21 í
meðaleinkunn, sem er einhver
hæsta meðaleinkunn sem Mbl.
hefur veitt einstökum leikmanni,
ef ekki sú hæsta. Er Árni sannar-
lega vel að sigri sínum kominn.
Lið Víkings hafði algera yfir-
burði á íslandsmótinu og oft bar
meira á félögum Árna heldur en
honum sjálfum. En hann er
þannig leikmaður, að vafasamt
verður að teljast að Víkingur
hefði sigrað með jafn miklum
glæisbrag nyti Árna ekki við.
Hann er kjölfestan í liðinu, lykil-
maður í vörn og leikur auk þess
stórt hlutverk í sóknarleiknum
þó yfirleitt skori hann ekki mik-
ið. Óskar Mbl. Árna til hamingju
með sæmdarheitið „besti leik-
maður íslandsmótsins“ og verður
hann sæmdur fallegum bikar
fyrir vikið innan skamms.
Kristján Arason, FH-ingurinn
ungi, varð í öðru sæti, hann fékk
samanlagt 40 stig fyrir 14 leiki,
eða 2,85 í meðaleinkunn. Má því
glöggt sjá hversu miklir yfirburðir
Árna voru, en Árni fékk aldrei
lægri einkunn heldur en 3 og
nokkrum sinnum fjóra. Kristján
getur þó sannarlega vel við unað,
því að hann varð markakóngur 1.
deildar með 87 mörk. Verður hann
því verðlaunaður af Mbl. eins og
Árni. I framhaldi af þessu spjalli
skulum við líta á listann yfir þá
sem hlutu mesta stigafjöldann.
stig leikir medal.
Árni Indriðason Vík. 45 14 3,21
Kristján Arason FH 40 14 2.85
Haukur Ottesen KR 39 14 2.78
Bjarni Bessason ÍR 39 14 2,78
Sigurður Gunnarsson
Vík. 39 14 2.78
Jens Einársson Vík. 38 14 2,71
Þorb. Aðalsteinss. Vík. 38 14 2,71
Friðr. borbjörnss. KR 36 14 2.57
Páll Björgvinsson Vík. 36 14 2.57
Steinar Birgisson Vík. 36 14 2.57
Sæm. Stefánsson FH 36 14 2.57
Þorbj. Guðmundss. Val 36 14 2.57
Einar borvarðars. HK 36 14 2,57
Jóhannes Stefánss. KR 35 14 2,50
Aðrir leikmenn voru með
minna. Með 34 stig voru Erlendur
Hermannsson Víkingi, Ólafur
Jónsson Víkingi, Pétur Ingólfsson
FH, Brynjar Kvaran Val, Bjarni
Guðmundsson Val, Andrés Bridde
Fram og Erlendur Davíðsson
Fram. Með 33 stig voru Hannes
Leifsson Fram, Stefán Jónsson
Haukum, Ragnar Ólafsson HK
var með 32 stig.
• Árni Indriðason var valinn besti leikmaður íslandsmótsins
1979—80 af fréttamönnum Mbl.
Kristján varð marka-
kóngur Islandsmótsins i Heildar
KRISTJÁN Arason. hinn stór- hann skoraði ekkert af mörkum Atli Hilmarsson Fram 49 ™ ® ® ® B
efnilegi FH-ingur varð mark-
hæsti leikmaður 1. deildar. Skor-
aði hann 87 mörk í 1. deildar
keppninni, eða tíu mörkum meira
heldur en Bjarni Bessason úr ÍR
sem kom næstur. Kristján, sem er
unglingalandsliðsmaður, á mikla
framtíð fyrir sér, hann er hávax-
inn, ógnarsterkur, auk þess sem
hann hefur verið vítaskytta
FH-liðsins. Fram eftir öllum
vetri veitti Bjarni Kristjáni
harða keppni, en varð undan að
láta undir lok keppnistímabils-
ins. Aðeins einn leikmaður annar
skoraði yfir 70 mörk í deildar-
keppninni, það var landsliðs-
maðurinn ungi hjá Víkingi, Sig-
urður Gunnarsson, sem skoraði
71 mark. í raun er afrek Bjarna
Bessasonar einna best, því að
sinum úr vitaskotum. Marka-
kóngurinn Kristján Arason skor-
aði hins vegar mikið úr vítum og
Sigurður Gunnarsson nokkuð.
Þetta er þó alls ekki sagt til að
rýra árangur Kristjáns, sem er
vel að titli sínum kominn. En
markhæstu leikmenn deildarinn-
ar voru eftirfarandi.
Kristján Arason FH 87
Bjarni Bessason ÍR 77
Sigurður Gunnarsson Vík. 71
Þorbjörn Guðmundsson Val 64
Ragnar Ólafsson HK 64
Páll Björgvinsson Vík. 61
Hörður Harðarson Haukum 60
Bjarni Hákonarson ÍR 59
Haukur Ottesen KR 59
Hannes Leifsson Fram 53
Ólafur Lárusson KR 52
Konráð Jónsson KR
Andrés Bridde Fram
Pétur Ingólfsson FH
Þorbergur Aðalsteinsson Vík.
Sæmundur Stefánsson FH
Hilmar Sigurgíslason HK
Stefán Halldórsson Val
Bjarni Guðmundsson Val
Steinar Birgisson Vík.
Erlendur Davíðsson Fram
Árni Hermannsson Haukum
Guðmundur Þórðarson ÍR
Guðmundur Magnússon FH
Árni Indriðason Vík.
Björn Pétursson KR
Sigurður Svavarsson ÍR
Þorbjörn Jensson Val
Stefán Jónsson Haukum
Ólafur Jónsson Vík.
Ársæll Hafsteinsson ÍR
Erlendur Hermannsson Vík.
47
46
45
44
43
42
40
39
39
36
36
36
36
35
35
35
34
33
32 ALLS vörðu íslensku 1. deildar
31 markverðirnir i handknattleik
30 88 vítaköst og guð einn veit hve
irnir vorou
88 vítaköst
— Einar Þorvarðar þar af 13 stk.
HK með hæstu
tölu og lægstu
• Kristján Arason i kunnuglegri stellingu, i þann mund að
skotið ríða af. Kristján varð markhæsti leikmaður 1. deildar.
láta
EKKERT lið i 1. deild notaði
fleiri leikmenn i deildarleikjum
sinum heldur en botnliðið HK.
Þetta er hlutur sem oft fylgir
liðum sem eiga i erfiðleikum,
sifelldar breytingar á liðinu frá
einum leik til næsta koma i veg
fyrir að leikmenn læri á hver
annan. Þó verður að segjast eins
og er, að þrátt fyrir að 20 manns
hafi komið inn á fyrir HK i vetur,
mæddi lang mest á örfáum leik-
mönnum. Þar er komið ao kjarna
málsins hvað varðar HK, því
þrátt fyrir hinn mikla fjölda
leikmanna, voru aðeins örfáir
hæfir leikmenn í 1. deiid. Af
þessum 20 mönnum skoruðu að-
eins 10 mark eða mörk. Aðeins
hjá ÍR skoruðu færri leikmenn
mörk, 9 manns, en ÍR-ingarnir
notuðu langfæsta menn, aðeins
13. Athygli vekur, að HK og ÍR
voru einmitt liðin sem höfnuðu i
tveimur neðstu sætum dcildar-
innar.
Haukar og Fram notuðu bæði 19
leikmenn í leikjum sínum og liðin
áttu það sameiginlegt í vetur, að
vera í bullandi fallhættu fram í
síðustu leiki. 12 leikmenn Fram
skoruðu í vetur, en 13 hjá Hauk-
um. Athyglisvert er að líta á
markalista Hauka. Þar kemur
glöggt fram að enginn afgerandi
leikmaður er þar í liði. Hörður
Harðarson er þeirra lang mark-
hæstur, en meiri hluti marka hans
kom úr vítaköstum. Það var einn
helsti galli Haukaliðsins, að illa
vantaði skyttur.
Víkingar notuðu 16 leikmenn, en
léku þó að lang mestu leyti með
sama tíu manna kjarnann. Aðrir
fengu helst að spreyta sig skömmu
fyrir leikslok eftir að öruggur
sigur var kominn í höfn. Vals-
menn, úrslitaliðið í Evrópukeppn-
inni, notaði aðeins 15 leikmenn og
aðeins ÍR notaði færri, sennilega
vegna þess að fleiri menn voru
ekki til innan veggja félagsins.
Það var t.d. athyglisvert þegar
Valsmenn sigruðu ÍR í síðari
umferð íslandsmótsins. Þá notuðu
IR-ingar sömu leikmennina frá
upphafi leiksins til enda hans.
Bendir það ekki til mikillar
breiddar hjá félaginu. En við
vorum að ræða um val. Af þeim 15
leikmönnum sem félagið notaði í
vetur skoruðu 11 mark eða mörk,
eða allir utan einn ef markverð-
irnir þrír eru undanskildir.
Þá er aðeins eftir að geta KR og
FH. FH notaði 18 leikmenn og 14
skoruðu, eða allir utan fjögurra
markvarða. 13 af 17 leikmönnum
KR skoruðu mörk ...
mörg í viðbót fóru fyrir ofan
garð og neðan með öðrum hætti.
Verður að segjast eins og er, að
þetta er há tala miðað við hve
litla möguleika markvörðurinn á
í rauninni að eiga gegn góðri
vítaskyttu. Vítakóngurinn var
Einar Þorvarðarson úr HK, en
snilldarmarkvarsla hans var
ekki nóg til þess að halda HK á
floti í 1. deild. Einar varði 13
vitaköst, en það er næstum víti í
leik. Þórir Flosason úr ÍR varði
11 vítaköst, en lék ekki síðustu
tvo leiki ÍR, þannig að hann hefði
jafnvel skotist fram úr Einari,
hver veit?
Alls vörðu 19 markverðir þessi
88 vítaköst og næstir á eftir þeim
Einari Þorvarðarsyni og Þóri
Flosasyni komu þeir Ólafur Guð-
jónsson og Pétur Hjálmarssön,
Ólafur úr Haukum og Pétur úr KR
með 7 vítaköst hvor. Eftirtaldir
markverðir komust einnig á blað:
Gunnar Einarsson Haukum 6
Sigurður Þórarinsson Fram 6
Brynjar Kvaran Val 6
Jens Einarsson Vík. 5
Sverrir Kristinsson FH 4
Gissur Ágústsson Fram 3
Snæbjörn Arngrímsson Fram 3
Gunnl. Gunnlaugsson Hauk. 2
Ásgrímur Friðriksson ÍR 2
Birgir Finnbogason FH 2
Gísli Felix Bjarnason KR 2
Haraldur Ragnarsson FH 1
Magnús Ólafsson FH 1
Þorlákur Kjartansson Hauk. 1
Handknattielkur
Einkunnagjöf Mbl:
Árni Indriðason
algera yfirburði
hafði