Morgunblaðið - 15.04.1980, Qupperneq 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
Brutu rúðu og
stálu myndavél-
um og sjónaukum
ÞJÓFAR voru á ferð í Austur-
stræti aðfaranótt sunnudags-
ins. Brutu þeir rúðu í sýn-
ingarglugga verzlunarinnar
Gevafoto og höfðu á brott með
sér tvær myndavélar af 01-
ympus-gerð, tvo sjónauka, eina
linsu og eitt leifturljós, en
þessir hlutir voru í glugganum.
Verðmætið er um hálf milljón
króna. Málið er í rannsókn og
eru þjófarnir ófundnir svo og
þýfið.
Úrum stolið
AÐFARANÓTT sunnudagsins
var brotist inn í Sundlaug
Vesturbæjar og þaðan stolið
nokkrum armbandsúrum, sem
voru í óskilum í afgreiðslunni.
Málið er í rannsókn.
Vinnuslys
VINNUSLYS varð sl. laugar-
dag, þegar unnið var við upp-
skipun í m.s. Selá við Granda-
garð. Maður, sem var þar við
vinnu, fótbrotnaði og var hann
fluttur á slysadeild.
Hver man eftir
árekstri á
Nóatúni?
SLYSARANNSÓKNADEILD
lögreglunnar í Reykjavík hefur
beðið Morgunblaðið að auglýsa
eftir vitnum að árekstri, sem
varð á gatnamótum Laugaveg-
ar og Nóatúns föstudaginn 7.
marz sl. klukkan 8.55. Þá
rákust saman Scout-jeppi, sem
ók suður Nóatún, og Datsun
fólksbifreið, sem ók norður
Nóatún og beygði vestur
Laugayeg og í veg fyrir jepp-
ann. Ágreiningur er um að-
dragandann að árekstrinum og
þarf lögreglan því nauðsynlega
að ná tali af vitnum.
Skallagrímur
sýnir Pókók
Mynd þessi var tekin er yfir stóðu
æfingar á leikritinu Pókók.
UNGMENNAFÉLAGIÐ
Skallagrímur í Borgarnesi
frumsýndi gamanleikritið Pók-
ók eftir Jökul Jakobsson í
samkomuhúsi staðarins hinn
11. apríl fyrir fullu húsi áhorf-
enda. Leikstjóri er Jakob S.
Jónsson en með helstu hlut-
verkin fara Sigurðar Páll
Jónsson, Oddný Þórunn Braga-
dóttir, Haukur Gíslason, Elías
Gíslason og Þorsteinn Ey-
þórsson.
Næstu sýningar á Pókók
verða í samkomuhúsinu þriðju-
dagskvöld og fimmtudagskvöld
kl. 21. Fyrirhugað er að ferðast
með leikritið vestur á Snæ-
fellsnes og til Reykjavíkur.
Svipmynd frá Alþingi:
Hér sjást þeir ræðast við í þingflokksherbergi
Sjálfstæðisflokks Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks í stjórnarandstöðu, og Friðjón Þórðarson
dómsmálaráðherra. Að baki þeim eru myndir af
þingflokki sjálfstæðismanna á ýmsum tímum geng-
innar stjórnmálasögu. Sjálfir eru þessir þingmenn
semjendur sögu líðandi stundar.
Þingmenn úr öllum flokkum:
„Alger endurskoðun
geðheilbrigðismála“
Átta þingmenn úr öllum þingflokkum hafa flutt tillögu til
þingsályktunar um geðheilbrigðismál, skipulag og úrbætur, svohljóð-
andi:
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að taka nú þegar til
algerrar endurskoðunar öll geðheil-
brigðismál hér á landi með tilliti til
þess að byggt verði upp nýtt skipulag
þessara mála.
I þessu skyni skipi viðkomandi
ráðherra nefnd til undirbúnings mál-
inu þar sem m.a. aðstandendur geð-
sjúkra eigi fulla aðild.
Nefndin skili áliti fyrir árslok
1980. Brýnustu viðfangsefni, sem
vinna þarf að ýmist samhliða nefnd-
arstarfinu og i nefndinni sjálfri, eru
þessi:
• 1. Veitt verði fé til lúkningar
Geðdeildar Landspítalans á næstu
tveimur árum og sá hluti hennar,
sem tilbúinn er, tekinn í notkun nú
þegar. Fjármagni verði veitt til
ráðningar starfsfólks, svo deildin
geti sinnt verkefni sínu að fullu.
• 2. Að aðstaða tii skyndihjálpar og
neyðarþjónustu verði bætt.
• 3. Fullkomnari göngudeildarþjón-
ustu verði komið á.
• 4. Fjölgað verði vernduðum heim-
ilum fyrir geðsjúka.
• 5. Sérstök áhersla verði iögð á
aðstöðu fyrir unglinga með geðræn
vandamál (12—16 ára), svo sem lög
kveða á um.
• 6. í stað fangelsisvistar geðsjúkl-
inga komi viðeigandi umönnun á
sjúkrastofnunum.
• 7. Reglur um sjálfræðissviptingu
verði teknar til rækilegrar endur-
skoðunar.
• 8. Atvinnumál geðsjúkra verði í
heild tekin til athugunar, m.a. með
tilliti til verndaðra vinnustaða, nauð-
synlegustu iðjuþjálfunar, endurhæf-
ingar, þ.m.t. símenntunar og ráðgjaf-
araðstoðar til að komast út í at-
vinnulífið á ný.
Kannaðir verði allir möguleikar
hins opinbera svo og atvinnurekenda
til lausnar þessa vanda.
• 9. Kannað verði hvort stofna skuli
embætti deildarstjóra við heilbrigð-
isráðune.vtið, sem fjalli sérstaklega
um stýringu og skipulag geðheil-
brigðismála. Sér til ráðuneytis hefði
deildarstjórinn sérstaka stjórnar-
nefnd þar sem viðkomandi
hagsmunaaðilar ættu fulla aðild.
• 10. Stóraukin verði almenn
fræðsla um vandamál geðsjúklinga
og aðstandenda þeirra svo og um eðli
geðrænna sjúkdóma. Ráðgjafarþjón-
usta verði sem allra best tryggð."
Þingfréttir í stuttu máli:
Ungir skylduspar-
endur hlunnfarnir
Ríkisvaldið tryggir sér ódýrt lánsfé
Yngri sparendur
hlunnfarnir
Allmiklar umræður urðu um til-
lögu um ávöxtun skyldusparnaðar
ungs fólks, en tillagan (flutningsm.:
Guðmundur G. Þórarinsson o.fl.)
gerir ráð fyrir því að Alþingi „feli
ríkisstjórninni að gera nú þegar
nauðsynlegar ráðstafanir til þess að
ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks
verði ekki lakari en ávöxtun ríkis-
tryggðra skuldabréfa". Samkvæmt
lögum er ungmennum á 16—25 ára
aldursskeiði skylt að leggja ti hliðar
15% launa til ráðstöfunar í lána-
kerfi íbúðarbygginga.
I umræðunni er bent á að:
1. Einstaklingur, sem leggur 2
m.kr. á skyldusparnaðarreikning
ungs fólks nýtur ávöxtunar, sem
skapar 8 m.kr. eign á fimm árum.
2. Ef sami aðili legði sömu fjár-
hæð inn á 12 mánaða vaxtaauka-
reikning (43,5% vextir) yrði hún að
12 m.kr. á sama tíma.
3. Ávöxtunarkjör í skyldusparn-
aði „hátekjumanns" eru hins vegar
þau, að þessi sama fjárhæð, 2 m.kr.
yrði að 15 m.kr. á sama tíma, eða
Fimm þingmenn úr Suður-
iandskjördæmi hafa lagt fram á
Alþingi tillögu til þingsályktun-
ar, sem felur það í sér að
rikisstjórnin láti fara fram „á
árunum 1980—81 fullnaðar-
rannsókn á hafnargerð við Dyr-
hólaey“. bær áætianir, sem fyrir
liggi, verði endurskoðaðar, meðal
nýtur nærri helmingi betri ávöxtun-
ar en hjá unga fólkinu.
Tillaga þessi hlaut jákvæðar und-
irtektir, en það var hins vegar
gagnrýnt að flytja málið í formi
þingsályktunar, sem væri „stein-
dautt form“ (Vilmundur Gylfason)
en ekki frumvarps, sem fæli í sér
úrbætur, ef samþykkt yrðu. Þings-
ályktun þýddi hins vegar — eða gat
þýtt — „söltun“ málsins. Unga
fólkið ætti rétt á raunvöxtum, eins
og aðrir sparendur í landinu, sagði
V.G.
Útibú frá
Veiðimálastofnun á
Austurlandi
Egill Jónsson (S) mælti fyrir
nefndaráliti á Alþingi í gær, þar
sem lagt er til að samþykkt verði
tillaga frá Helga F. Seljan (Abl.)
um útibú frá Veiðimálastofnun á
Austfjörðum. Sverrir Hermanns-
son (S) taldi meiri reisn í málatil-
búnaði, ef þeir, sem nú færu með
fjármálavald í landinu, hefðu fylgt
annars með tilliti til útflutnings
á Kötluvikri i miklum mæli.
I greinargerð er minnt á rann-
sókn Jarðefnaiðnaðar hf. á gæðum
Kötluvikurs. Þær rannsóknir sýni
að efniseiginleikar og gæði vikurs-
ins uppfylli kröfur þýzkra staðla
um léttsteypu. Þá segir í greinar-
gerð að „nýtanlegur vikur sé að
þessu máli eftir með fjárveitingu til
að gera orð að veruleika.
íslenzkur iðnaður og
kaup opinberra aðila
Davíð Aðalsteinsson (F) ræddi
tillögu Eggerts Haukdals um sam-
starf sveitarfélaga og ríkis um að
beina viðskiptum (innkaupum ríkis,
sveitarfélaga og opinberra stofn-
ana) til íslenzks iðnaðar, sem byggja
þyrfti upp til að mæta atvinnuþörf
vaxandi þjóðar. Vitnaði hann til
ályktunar 38. iðnþings máli sínu til
stuðnings.
Aukin nýting
í fiskvinnslu
Stefán Guðmundsson (F) hélt
áfram umræðu um tillögu, er hann
flyt.ur, um aukna nýtingu í fisk-
vinnslu; þ.e. könnun á því, hvern veg
megi bezt ná hámarksnýtingu þess
sjávarafla, sem á land kemur. Taldi
Stefán byltingu hafa orðið í meðferð
afla um borð í veiðiskipum (kassa-
væðing) en enn skorti mikið á hjá
fiskvinnslunni að þróa meðferð
hráefnisins. Ekki væru allir fisk-
vinnslustaðir komnir af stigi hjól-
böru á stig færibandsins.
minnsta kosti 300.000.000 rúm-
metrar á Mýrdalssandi vestan og
norðan Hjörleifshöfða", en á öll-
um sandinum „sé nýtanlegur vik-
ur þrisvar eða fjórum sinnum
meiri en það“.
Höfn í Dyrhólaey
gæti leyst örðugleika sem nú eru
fyrir hendi að koma þessum vikri
á markað. „Það er því komin ný
forsenda fyrir hafnargerð í Dyr-
hólaey í viðbót við eldri rök fyrir
því máli,“ segir í greinargerðinni.
Elnar Slgurður
Jón Böðvar
Yngstur þingmanna:
24 ára námsmad-
ur á Alþingi
Þjóðarat-
kvæði um
þúsundkall?
Fjórir varaþingmenn tóku sæti
á Aiþingi í gær og sitja þá samtals
10 varaþingmenn þingbekki. t
hópi hinna nýju þingmanna er 24
ára námsmaður, Einar Kr. Guð-
finnsson (S) frá Bolungarvík, sem
tekur sæti á Alþingi í veikindafor-
föllum Matthíasar Bjarnasonar, 1.
þingmanns Vestfirðinga. Einar Kr.
Guðfinnson er 2. varaþingmaður
Sjálfstæðisflokks í Vestfjarðakjör-
dæmi. 1. varaþingmaður flokksins í
kjördæminu, Sigurlaug Bjarnadótt-
ir, situr og á Alþingi, í fjarveru
Eyjólfs K. Jónssonar, landkjörins
þingmanns. Einar er langyngstur
þeirra er nú skipa Alþingi.
• Þá hefur Sigurður Óskarsson (S)
framkvæmdastjóri, varaþingmaður
Sjálfstæðisflokks í Suðurlandskjör-
dæmi, tekið sæti á Alþingi í veik-
indafjarvistum Steinþórs Gestsson-
ar.
• Jón Sveinsson (F) lögfræðingur,
1. varaþingmaður Framsóknar-
flokks í Vesturlandskjördæmi, hef-
ur tekið sæti Alexanders Stefáns-
sonar á þingi í fjarvistum hins
síðarnefnda í opinberum erinda-
gjörðum erlendis.
• Böðvar Bjarnason (F) sýslumað-
ur hefur tekið sæti Þórarins Sigur-
jónssonar á þingi, vegna anna þess
síðarnefnda heimafyrir, en Böðvar
er 1. varaþingmaður Framsóknar-
flokks í Suðurlandskjördæmi.
Kötluvikur á þýzk-
an markað?