Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 26
3 4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 ÓLAFUR M. JÓHANNESSON: GREIN 4 í grein 2 og 3 um Gagnrýni dagblaða var litið á gagnrýnina af sjónarhóli hins félagslega og hins sálfræðilega. Verkin skoðuð sem afsprengi samfélagsins eða sálarlífs höfundar og þau metin í ljósi þess. I þessari fjórðu og síðustu grein verður lesandanum brugðið upp á hinn „ný rýna“ sjónarhól. Þar sem verkin eru skoðuð sem sjálfstæð líf-veröld sem lýtur eigin lögmálum. Þessi hugmynd Eliot er reyndar óraunsæ á fleiri máta. Hver er t.d. kominn að lýsa lögun pýramídans og sæti hvers verks í þeirri byggingu. Ætli pýramídarnir yrðu ekki jafn margir og þeir sem þá reistu í huga sér. Það er máske ekki að undra þótt þessi hugmynd sé lítt raunhæf þar sem hún er sennilega runnin undan rifjum þeirrar furðuskepnu Ezra Pound. Nú, en þrátt fyrir að ýmislegt úr hugmyndaheimi Eliot komi okkur spánskt fyrir sjónir í dag verður að telja hann annan merkastann rýni nýrýninnar ásamt Richards. I.A. Richards kom í þennan ófullkomna heim, árið 1893. Sem Gagnrýni dagblaða Nýrýnin í því ljósi sem hún verður skoðuð hér í örstuttri blaðagrein — telst hafa risið sem sjálfstæð .stefna í bókmenntarýni um 1940. Að vísu voru ýmis merki um þessa stefnu kominn fyrr, t.d. flutti Joel nokkur Spingarn fræg- an fyrirlestur um „Nýrýni" við Columbiaháskólann 1910, þar sem hann gerir upp hug sinn við ýmsar eldri gagnrýnistefnur. En sem hreyfing varð nýrýnin sennilega til í hópi gagnrýnenda við tímaritið „The Fugitive" 1922—25. Þessi grúppa var kennd við Nashville og taldi m.a. innan sinna raða menn sem síðar urðu í forsvari fyrir nýrýnina þar einna fremstan John Crowe Ransom sem þá var kennari við Vanderbilt háskólann. Nashvillehreyfingin kom fram sem andóf gegn tækni- væðingu og stóriðjubrölti norður- ríkjanna. Sem þeir töldu andlega og siðferðilega geldandi. Ein leið út úr þessarri kreppu var að hverfa aftur fyrir borgarastríð til staðbundinna, hefðarríkra menn- ingarforma Suðurríkjanna. I list- um dáðust meðlimir hópsins að því sem var ríkulega hlaðið, dulúð og háspeki, t.d. skáldskap enska jöfursins John Donne. En brátt tekur hreyfingin að beina sjónum sínum nær samtímanum. Að hinu fagurfræðilega í skáldskap dags- ins. Hún þróast smám saman í átt til „nýrýni" bæði í greiningu á nýjum skáldskap svo og í nýjum tökum á skáldverkum fyrri alda. Þess var getið að Nashville- grúppan væri til í kringum tíma- rit. Fleiri slík tímarit urðu hvati hinnar nýju gagnrýnistefnu t.d. „Southern Review" sem Cleanth Brooks og Robert Penn Warren gáfu út við ríkisháskólann í Louis- iana 1935 til ’42 og frá 1939 gefur Ransom út ritið „Kenyon Review" við Kenyon College. Sú nýrýna umræða sem fór fram í þessum tímaritum og í þeim hópum menn- ingarvita sem kring um þau sveimuðu fékk vart afgerandi form sem stefna fyrr en um 1941 að Ransom skýrir bók um T.S. Eliot, I.A. Richards, Yvor Winters o.fl. „The New Criticism" eða NÝRYNIN. Og við skulum vara okkur á að þótt nýrýnin sé hér kölluð gagnrýnistefna þá er hún það ekki í afmarkaðri merkingu heldur telst fremur víð opin and- leg hreyfing, sem ýmsir sem þegar hafa verið nefndir telja — án tilvistar. Enda léku um nýkrítikan ýmsir hliðarstraumar sem máðu oft á tíðum út mörk hennar. Sterkasti straumurinn á nýrýn- inni bandarísku var frá Bretlandi, þar sem svipaðar hugmyndir þró- uðust svo til samhliða, þótt við ólíkar aðstæður væri. Sérstaklega urðu þessar hugmyndir öflugar við Cambridge háskólann þar sem nýrýnirinn I.A. Richards briller- aði. Reyndar verður að telja for sendurnar fyrir „nýrýninni" fyrir ndi í Englandi rétt upp úr fyrri ’msstyrjöld — er Eliot gaf út •einskeytta ritgerðasafn „The oacred Wood" — árið 1920. Thom- as Stearns Eliot var fæddur á Nýja Englandi 1888 en lést í því gamla að því mig minnir árið 1965. Þar fékk hann ríkisborgararétt um fertugt. Bjó í London frá og með fyrri heimsstyrjöld. Eliot vann framan af fyrir sér með kennslu, var lengi bankastarfs- maður, bókmenntaráðunautur og að lokum forstjóri hinnar virtu bókaútgáfu Faber & Faber. í þessu starfi sínu og sem gagnrýn- andi hafði hann mikil áhrif í bókmenntaheiminum. Verður að telja hann ásamt skáldunum Ezra Pound og Máske Yeats hvað öflug- astan við upphaf aldarinnar, í heimi ljóðsins, því Eliot var fyrst og fremst ljóðasmiður. Hagur svo af bar. Sitt fyrsta ljóðasafn gaf hann út 1917 „Prufrock and Other Observations", en það er þó fyrst með ljóðinu „The Waste Land“ sem kom út 1922 að hann kveður sér hljóð meðal stórskálda. Þetta mikla verk sem er að því er mig minnir yfir 400 línur, er án eiginlegs þráðar. Heldur eru stöð- ugar tilvísanir til ýmissa tíma- skeiða bókmenntalegra og sögu- legra: Það er ekki aðeins ritað á ensku heldur og þýsku, frönsku, sanskrít, ítölsku auk tilvitnana á latínu og grísku. í næstu grein á undan í þessum greinaflokki var aðeins vikið að tengslum The Waste Land við kenningasmíð Jung — ekki verður farið frekar út í þá sálma^né Eliot sem skáld, en vikið stuttlega að gagnrýni bók- mennta hans í tengslum við „Ný- rýnina". Eliot er einn fárra nýkrítikera sem ekki hefur verið bundinn háskólaheiminum. Hann nam að vísu heimspeki við Harvard og var við nám í Oxford og Sorbonne. Dvaldi um tíma við Cambridge og sem „prófessor í ljóðlist" við Harvard og seinna var hann í tengslum við Princeton. En var hvergi ráðinn til langframa sem háskólakennari. Eliot varð því í senn vel menntaður háskólamaður og sjálflærður í besta skilningi. Þetta innra frelsi Eliot — frá þrúgandi vélmennsku háskólanna — þar sem mest áhersla virðist lögð á að kenna nemendum að rita ritgerðir samkvæmt forskrift en ekki eftir innblæstri — varð honum til happs sem gagnrýn- anda. Hann varð víðsýnni óhræddari við að gefa sig á vald þeim verkum sem hann rýndi í það og það skiptið. Lét sér ekki nægja að staðnæmast við ytra form þeirra í von um prófgráðu eða hærri laun, heldur slökkti á eigin sjálfi og rann þannig saman við sjálf verkanna. Likt og dropinn hjá Búdda við hið skínandi haf uppljómunarinnar.Hann tekur sér far út á þetta ókunna haf með fleyi skáldgyðjunnar og lætur reka á reiðanum hvar það ber að strönd. En þegar komið er á land gengur hann um og skoðar fegurð landsins eða ljótleika. Líkt og hann sé á eyju sem sprottið hafi í tröllahöndum. Nú þegar hann hefir gert sér mynd af þessu sköpunarverki, siglir hann til baka, lendir á strönd raunveru- leikans tilbúinn að miðla reynslu sinni. En enginn er eyland nema ef vera skildi konan í ilmvatns- auglýsingunni. Og Eliot er ljóst að í hinu mikla hafi eru margar eyjar og bárurnar bera sitthvað þar á milli og frjóduft ferðast í lofti og ósýnileg blóm taka sér bólfestu í hinum ólíka jarðvegi. Blóm sem eiga það sameiginlegt að hafa rætur og fá næring úr sömu uppsprettu. Þessi uppspretta var fyrir Eliot ljóðahefðin sem hann lýsir svo í ritgerð sinni „Tradition and The Individual Talent.“: „... tilfinningin fyrir hinni sögulegu framvindu er nauðsyn þeim sem vill halda áfram að vera skáld fram yfir 25. aldurs- árið. Þessi tilfinning fyrir hefð- inni þýðir að maður lifir for- tíðina ekki eingöngu sem fortíð, heldur sem nálægð. Tilfinningin fyrir sögulegri framvindu þvingar manneskjuna til að skrifa ekki eingöngu með sína eigin kynslóð í huga, heldur allar bókmenntir Evrópu frá Hómer. ... þessi tilfinning fyrir hinu tímalausa gerir höfundinn hefðbundinn háðan hefðinni en jafnframt næman fyrir stöðu sinni í samtíðinni." Ljóðið er þannig að mati Eliot hluti menningararfleifðar en jafn- framt sjálfstætt, óháð henni því það er eilíft lifir í núinu. Með þessari skilgreiningu sinni leggur Eliot hornsteininn að kenningu nýrýninnar um eigið líf skáld- skaparins. Sjálfstæði hans gagn- vart sögunni — í þeim skilningi sem við skiljum hana. Og þarna er einnig komin „Samanburðaaðferð- in“ sem svo mjög var beitt af nýrýnum. Eliot og félagar bera ekki saman bókmenntaverk til að sýna fram á beinan þróunarferil bókmenntanna. Heldur ganga þeir út frá hinni bókmenntalegu hefð sem lifandi afli sem vakir í núinu — hún sé tilfinning fyrir sam- hengi bókmenntanna — tilfinning sem vakir í meðvitund skáldsins og sem verður mótandi afl í upplifun lesandans. Eliot orðar þetta svo. „Ekkert skáld, enginn list- amaður innan nokkurrar list- greinar, ber með sér allt inntak listarinnar. Verðleikar hans verða metnir f tengslum við mátt hans meðal látinna lista- manna og skálda. Við verðum vegna samanburðarins að setja hann meðal hinna dauðu. Við getum ekki metið hann sem einangrað fyrirbrigði ... það sem raunverulega á sér stað þegar nýtt listaverk kemur, er nokkuð sem gerist meðal allra listaverka sem þegar hafa verið sköpuð. Öll þau listaverk sem þegar hafa orðið til mynda huglægan pýramída, sem um- myndast þegar nýtt listaverk fæðist. Pýramídinn er heill sem slíkur áður en hið nýja verk kemur til sögunnar, bygging hans helst eftir sem áður, en — nú þegar enn einn steinn bætist við tekur hann breytingum. Steinn sem hefur trónað við toppinn gæti færst neðar og annar ofar ... þannig skiljum við tengsl — gildi — og mikil- leik nýs listaverks aðeins í tengslum við heildina.“ Við sjáum hvert þau vinnubrögð sem hér er gefin formúla að leiða. Venjulegur blaðagagnrýnandi get- ur að sjálfsögðu ekki beitt þeim. fullorðinn hefur hann starfað mesta sína tíð við Magdalene College í Cambridge og frá 1944 sem prófessor í enskum bók- menntum við Harvard háskólann í Bandaríkjunum. Richards er óvenju víðmenntaður maður, jafn- vígur á atferlissálarfræði sem fagurfræði, málvísindi og bók- menntarýni. Á síðastnefnda svið- inu hefur Richards lyft grettistaki með því að rífa bókmenntarýnina upp úr spekúlasjónum á svið hreinnrar vísindalegrar skoðunar. Þar sem beitt er málvísindalegum aðferðum jafnt og sálarfræði- legum tilraunum. Hefur karl ritað sitthvað um þessi efni svo sem merka bók — 1923 — í samvinnu við C.K. Ogden er þeir nefndu „The Meaning of Meaning." Þarna kemur sú skoðun Richards fram að ekki beri að skoða bókmennt- irnar í sögulegu samhengi, rýnjr- inn líti fram hjá þeim öflum sem eru að baki verkanna, einblíni í þess stað á hið skáldlega upplifun- arferli með sálarfræðilegar að- ferðir að vopni. Gagnrýnandanum beri að greina „hvað“ ljóðið beri með sér, á hvern „hátt“ það miðlar og hvers „virði" tjáskiptagildi þess er. Gagnrýnin verður þannig nokk- urskonar „siglingarfræði“, þar sem lesandanum er bent á hvar á hverju einstöku augnabliki hann er staddur á ferð sinni í heimi ljóðsins. Ljóðið er fyrir Richards ein tegund upplifunar — annars- vegar á stund sköpunarinnar og hins vegar á stund lestursins. I báðum viðvikum er upplifunin flókið sálrænt ferli. Og vilji maður kanna hana nánar sem slíka þá verður fyrst að rýna hin flóknu sálrænu ferli og þau lögmál sem þar ríkja. Þar sem Richards lítur á þessi ferli að baki ljóðinu sem hliðstæðu annarra rannsakan- legra ferla í lögmálsbundnu ríki hins huglæga/hlutlæga veruleika sviptir hann ljóðið hinu yfirnátt- úrulega, dularfulla — neistanum úr auga guðs. En þó telur hann reynsluferli sem samfara eru ljóði frábrugðin öðrum reynsluferlum mannsins á tvo vegu. Það er sérlega dýrmætt og gætt ríku- legum tjáskiptaeiginleikum. Dýrmætt er í augum Richards hver eigind sem fullnægir sér- manneskjulegum þörfum. Hann lítur á manneskjuna sem óhemju- flókið kerfi áhugamála sem að flestu er hömluð og ná ekki tjáningarsviði. Ríkast er líf mann- eskjunnar þegar áhugamál hennar ná sem flest á svið tjáningarinnar og þau falla þar í jafnvægi, skyggja ekki hvert á annað. En hrærigrautur tilverunnar hamlar þessarri viðfeldnu innri birtingu. Skáldið hins vegar getur í ljóði sínu lokið sér upp fyrir hinni óendanlegu margræðni tilverunn- ar, lýst hana í gegn með innsæi og fellt hana í heilsteypta mynd — í ljóð. Lesandinn getur síðan ferð- ast um hinn víða en formaða heim ljóðsins — numið ný svið innra með sér án þess að tapa áttum og þannig leyst úr læðingi þau áhugasvið sem hann hefir áður bælt, sem sagt fengið útrás fyrir sinn innra mann. Oðlast á tákn- rænan hátt frið og jafnvægi í sálarlífinu. En þetta verður aðeins vegna þess að ljóðið er einnig gætt óvenju ríkum tjáskiptaeiginleik- um það getur fluttst milli manna sem virkt og tjáningarferli. En þessi tjáskipti verða aðeins vegna þess að sjálft tungumálið er gætt ákveðnu „tilvísunargildi". Annars- vegar er um að ræða beina tilvísun tungunnar þ.e. til hluta og aðstæðna í veruleikanum. Slík tilvísun stenst þegar hana ber saman við það sem vísað var til. Hinsvegar er hin tilfinningarlega tilvísun tungunnar — sú vísar til annarra atriða en koma fram við fullnægingu þekkingarhvatarinn- ar. Slík tilvísun er hvorki sönn né ósönn sen slík en getur haft ákveðið „gildi" ef hún fullnægir öðrum hvötum en þekkingarhvöt- inni. En nú erum við komin inn á nýtt svið sem varðar blæbrigði sjálfs tungumálsins. Þessu sviði gaf einn merkur nýrýnir Empson mikinn gaum og verður hann síðastur á dagskrá í þessarri mjög ágripskenndu kynningargrein — verðum að sleppa mörgum ágæt- um nýrýnum á borð við John Crowe Ransom, Cleanth Brooks, Allen Tate, R.P. Blackmur, René Wellek. William Empson sem fæddist árið 1906 nam hjá Richards í Cambridge og varð fyrir sterkum áhrifum af spekingnum, einnig var hann framanaf hrifinn af kenningum Eliot. Nú, að loknu námi varð Empson prófessor í Tokyo, og ferðaðist þá nokkuð til meginlandsins Kína. Hann fór reyndar víða og var um tíma starfsmaður BBC. En 1953 var hann settur prófessor við Shef- field háskólann. Empson hlaut fljótt viðurkenningu fyrir texta- greiningu og 24 ára gaf hann út merkisverk um þetta efni „Seven Types of Ambiguity." Þar sem hann dregur athyglina að marg- ræðni texta skáldsins sem hann flokkar í 7 flokka eftir merking- armun o.fl. Þessa flokka ber þó ekki að líta á sem lokaða dilka heldur er hér á heimspekilegan hátt reynt að nálgast hin smæstu merkingarafbrigði orðanna. Bæði sem einstakra fyrirbrigða og sem merkingarheilda. Til að greina þannig hin smáu merkingaraf- brigði tungunnar þróaði Empson sérstaka lestraraðferð „Close reading" eða nákvæmnislestur sem svo mjög var einkennandi fyrir nýkrítikina. Empson hafði að vísu séð þessarri aðferð beitt í bókinni. „A Survey of Modernist Poetry" sem rituð var af skáldinu Robert Graves og Laura Riding en hann pússaði og dýpkaði þessa vandasömu aðferð sem byggist eins og nafnið bendir til — á því að gagnrýnandinn sekkur sér ofan í einstaka hluta textans reynir að greina innra samhengi hans og leysa úr merkingavandamálum kring um orðin og orðasamböndin. Hér var sem sagt numið staðar við kjarna hinnar bókmenntalegu tjáningar — orðið — þetta undar- lega fyrirbrigði sem varð til í „upphafi" og greindi okkur frá dýrunum. Orðin í þessum greinarflokki um gagnrýni daghlaða eru orðin nokkuð mörg en þó allt of fá. Þó vona ég að þau hafi nægt til að leiða háttvirta lesendur upp á nýjan hól þekkingar og þeir sjái í framtíðinni þegar þeir líta yfir hina daglegu „krítik" ýmislegt sem þeir sáu ekki áður. T.d. hve hinn þjóðfélagslegi bakgrunnur læðist fram í mati á verkunum — hvernig hugmyndir Freud um dulvitundina og Jung sem hið sammannlega virka á mat gagn- rýnandans eða hvernig gagnrýn- andinn krýfur verkið sem sjálf- stætt líf búið eigin lögmálum. Einnig vona ég að hinn almenni lesandi greini þessa hluti í sjálfum verkunum og verði þannig virkur gagnrýnandi. Því hvað er gagn- rýni annað en dagleg umræða manna á meðal — umræða sem allir geta tekið þátt í sem á annað borð hafa áhuga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.