Morgunblaðið - 15.04.1980, Page 27

Morgunblaðið - 15.04.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1980 35 Oddur A. Sigurjónsson: Einskonar vakning! Fyrir u.þ.b. hálfum öðrum ára- tug virtust íslendingar vakna við þann draum, að líklega færi vel á því, að þeir tækju að sinna ræki- legár en áður þörfum uppvaxandi kynslóðar. Þetta birtist m.a. í því, að varla greindu fjölmiðlar svo frá karla- og kerlingafundum, að þeim lyki ekki með ályktunum um að endi- lega þyrfti að gera eitthvað fyrir börnin og unglingana. Ef ég man rétt, var það hinsveg- ar lítt eða ekki skilgreint hvað þetta eitthvað skyldi vera, né að hverju það ætti að beinast. Óhætt má þó fullyrða, að flestu vitibornu fólki hefði mátt vera Ijóst, að svo bezt gat þessi hreyfing orðið gagnleg, að hún væri skynsamlega grundvölluð. Um þetta leyti vorum við að rísa úr fátækt til nokkurra bjargálna og því má telja nokkurn veginn víst, að undirstraumurinn hafi verið, að kynslóðin sem fæddist og ólst upp í kreppunni, hafi talið sér skylt, að fá afkvæmum sínum nokkru rífari kjör en hún þekkti úr sínum uppvexti. Þetta er auðvitað einstaklega mannlegt og artarlegt. Því miður hefur okkur víst láðzt, svo sem oft endranær, að skoða endinn í upphafi og frekar hirt um að gera eitthvað, en að ígrunda afleiðingar. Auðvitað er fjarri því, að margt hafi ekki gerzt, sem gott var og full nauðsyn á. Okkur dylst ekki, að börn okkar og unglingar eru yfirleitt glæsilegt og frjálslegt fólk í útliti og fasi og vel haldið að fæði og klæðum, gagnstætt því sem tíðkaðist fyrr á tímum. En getum við þá ekki litið fagnandi yfir farinn veg og talið okkar árangur harla góðan? Þrálátar umræður umunglinga- vandamál benda þó ekki til, að allt sé í því lukkunnar velstandi, sem vera ætti. Og ef við á annað borð viðurkennum tilvist unglinga- vandamáls, hljótum við að spyrja okkur að því, í hverju okkur hafi skjátlast. Fráleitt væri, að gera sér von um að þetta sé einstaklega einfalt mál og við getum fyrirhafnarlítið komizt að viðhlítandi niðurstöð- um. En allt um það sakar ekki að gera heiðarlega tilraun. Allar líkur mættu benda til þess, að engin ein orsök valdi. Miklu held- ur, að margar samvirkar ástæður séu fyrir hendi. Það, sem við blasir Mér kemur það svo fyrir sjónir, einkum af viðtölum við fjölda foreldra, að aðaláhyggjuefnin séu grómtekið hirðu- og hugsunarleysi barnanna og unglinganna, virð- ingarleysi í umgengni við dautt og lifandi, að viðbættri taumlítilli heimtufrekju. Rétt er að staldra við þetta fyrst. Gamalt máltæki segir: „Án er ills gengis, nema heiman hafi“. Og í stað þess að setjast í dómarastól yfir því, sem úrskeiðis kann að ganga hjá unga fólkinu, er ekki fjarri lagi, að athuga þátt okkar sjálfra og spyrja í fullri alvöru. Getur það ekki verið, að við séum hér að deila við heimatilbúin vandræði? Hvernig höfum við rækt ábyrgðina, sem á okkur hefur fallið við að fá hinum ungu heilbrigt veganesti? Þeir munu vera fáir, sem viður- kenna ekki, a.m.k. í orði, að heimilið sé hornsteinn þjóðfélags- ins. Það þarf fyeldur ekki að vefjast fyrir neinum, sem vill sjáandi sjá og er samvistum við börn frá heimilum-þar sem agi og regla ríki, hver geysi munur er á þeim og börnum frá heimilum sem láta vaða á súðum. Foreldrar, sem temja börnum sínum hógværð og kurteisi og skilgreiningu á hvað er rétt og hvað er rangt, eru heilladrýgri sáðmenn á mannlífsakrinum flest- um öðrum. Enda leggja þeir um leið traustan grundvöll að lífs- hamingju barnanna. Fáir eru sem faðir og enginn sem móðir, er gamalla og viturra manna mál. Af þessu leiðir nú beint, að umönnun, foreldra einkum á þeim tíma, sem börnin þurfa mest á að halda, til að öðlast öryggi, er þeim dýrmætara en tölum verði talið. Það er því full ástæða til að staldra við uppeldishætti, sem nú eru sem óðast að verða hreint tízkufyrirbæri á okkar góða landi og því fremur sem við erum alls ekki frábitin því, að hlaupa út á allskonar galeiður að lítt athug- uðu máli. Við þurfum ekki, hvorki lengi né mörgum blöðum að fletta nú, til að sjá að uppeldismálin eru mjög í sviðsljósinu. Þar kveða sér hljóðs margir, sem eru kallaðir, hvað sem um útvalið má segja. Rauði þráðurinn í orðræðum flestra eru kröfur um aukna möguleika til að sundra heimilunum og henda börnunum helzt frá öndverðu inn í allskonar stofnanir undir hand- leiðslu óviðkomandi fólks. Fyrir þessu standa margir harðsnúnir flokkar, allt frá uppeldisfræðing- um með fínum titlum, hvað sem þar er nú á bak við, niður í svokallaðar rauðsokkur. Og því miður er ekki annað að sjá, en að foreldrar gíni við þessu agni, ekki sízt mæður. Fúslega skal játað, að til eru þær aðstæð- ur, sem geta réttlætt sumt af þessu. En það er aftur jafn fráleitt, að hér sé um að ræða brennandi réttlætismál, eins og hinir háværustu vilja vera láta. Grunntónninn í orðræðum þeirra er nefnilega, að það sé einhver helgur réttur að geta fleygt afkvæmunum frá sér, sem fyrst, jafnvel h^áblautum úr fæð- ingu. Slík afstaða til afkvæma er lítt þekkt meðal dýra, hvað þá að hún ætti að finnast í stórum stíl meðal „herra jarðarinnar", Útileguþjóð í eigin landi Verði framhald, að ekki sé talað um aukningu á viðleitninni, að hrekja börnin frá heimilum sínum, þarf víst ekki að fara í grafgötur um árangurinn. Hann liggur raunar þegar á ljósu, sem vaxandi rótleysi unga fólksins er óljúgfróðast vitni um. Fleira renn- ur í slóðina. Líklegt er, að börn, sem búin eru að svamla milli vöggustofa, dag- heimila og leikskóla og undir handarjöðrum fjölmargra svokall- aðra uppalenda þar á hrifnæm- asta aldursskeiði sínu, finni að þau hafa ekki einkar fast undir fótum svona almennt séð. Er þá ekki rökrétt að búast við, að þeim verði helzt fyrir að treysta á hópinn? Vitað er öllum sem vitja vilja að foringjar hópanna eru ekki ætíð æskilegustu leiðtogarnir. Hallær- isplönin svokölluðu eru drjúg vitni þar um. Sízt af öllu bætir úr skák oft stórfurðuleg fjarráð óvitanna. „Margur verður af aurum api“. Ef vikið er aftur að þætti foreldranna, heyrum við langoft- ast við báruna um fjárþörf þeirra, til að hafa í sig og á og koma upp þaki yfir höfuð fjölskyldunnar. Vissulega er ýmislegt rétt í því. En væri það ekki íhugunar efni, hvort kröfugerð okkar um fínni og dýrari hús og húsgögn eiga að hafa jafn mikinn forgang fyrir þörfum barnanna og raun er á? Að ekki sé talað um þegar börnun- um er svo byggt út úr dýrðinni. Fráleitt væri, að áfellast fólk fyrir að reyna að bjarga sér, og víst er landinn, jafnt konur sem karlar, vinnufús svo að af mun bera. Annað mál er samt, hve dýru verði aukin fjárráð eru kaupandi. Vinnuergja, sem kostar það að vanrækja heimili og þar með börnin, er dýrustu fjármunir, sem búandi f41k getur aflað. Vissulega er þetta mál engan veginn fulltæmt og verður víst seint. Margt er það sem mannin- um mætir og neyð er aldrei kaupmaður. En samt verðum við að telja, að velferðarríkið, sem við erum sí og æ að státa af, hljóti að gefa færi á kostum, sem níða ekki niður hamingjuvonir þeirra, sem erfa eiga landið. Síðari ár hafa kóklað upp und- arlegu og heldur ógeðfelldu fyrir- bæri á landi hér, eflaust víðar. Er þar átt við svokallaða rauðsokka- hreyfingu. Eins og vænta má virðist hug- myndaheimur þeirra, sem hneigj- ast að henni ærið furðulegur, einkum kvenna. Varla verður ann- að sagt en grunntónninn sé óval- inn öfuguggaháttur hjá þeim, sem á annað borð ganga til sambúðar við hitt kynið vígðrar eða óvígðr- ar. Vitanlega er það þeirra einka- mál, að gera sitt til að má út kynþokka sinn, ef einhver væri, og búa svo að sínu með sjálfum sér. En þegar til sambúðar kemur og einkum ef þær eignast afkvæmi, breytist dæmið. Að sjálfsögðu er barátta kvenna fyrir jafnrétti við karla í alla staði eðlileg og væri furðulegt að amast við slíku. Hitt er jafn furðulegt, að telja umönnun afkvæmis ein- hverja himinhrópandi réttar- skerðingu. Miklu heldur mætti telja það sjálfsagðan rétt móðurinnar, enda eðlislægan. Á okkar tímum hafa konur, sem betur fer og sjálfsagt er, jafnan rétt til menntunar og karlar. Hvernig þær spila á sín spil í uppvextinum, um undirbúning að æfistarfi er og á að vera þeirra mál. En auðvitað er fráleitt, að kasta svo sökinni á aðra, vegna vonbrigða af því að hafa valið rangt. Rétt er að játa, að ekki er við því að búast, að allir séu fæddir í þeim sigurkufli að skjátlast ekki oft og einatt. Það gildir auðvitað um val viðfangsefna í lífinu. En enginn er að bættari með því að leggjast í sekk og ösku, þó lakar takizt til en vænzt var. Allra sízt er þó mannsæmandi, að kenna alfarið öðrum um það, sem miður fer. Se'm betur fer, eru fáir svo aumir, að geta ekki fundið nokkra lífsfyllingu í og utan venjulegs hversdagsstarfs, ef vilji er til. En það má rétt vera, að steiktar gæsir fljúgi sjaldan í munn manna án þeirra eigin tilverknaðar. Því eru einhliða kröfur á hendur öðrum ekki þroskavænlegar. Hér er drepið á þetta, vegna þess tízkufyrirbæris, að sjálfsagt sé að húsmæður þurfi endilega að vera eins og fjúkandi haustull utan heimila sinna næstum hvem- ig sem á stendur og því borið við, að ella hafi þær ekki möguleika til eigin fjárráða auk þess sem þær missi þá af blendni við annað fólk. Hvað sem öðru líður er það"þó reiturinn, sem hver og einn hefur að rækta, sem skiptir máli öðru fremur fyrir hvern einstakling. Ef þetta þykir kuldaleg niður- staða, má hún vel réttlætast af áratuga kynnum af „lyklabörn- um“, sem koma dögum oftar að aðsetri sínu mannlausu og köldu, eða eru fengnir fjármunir, þegar foreldrar koma heim og aftur rekin út, til að kaupa sér „coca cola og prins polo“. Þarf nokkurn að reka í roga- stanz, þó börn sem þannig eru svipt hlýju heimilisins, verði ekki sérlega heimakær né handgengin foreldrum? „Smekkurinn, sem kemst í ker, keiminn lengi eftir ber.“ Gert fyrir börnin En aldur barnanna er ekki hár, þegar þurfa þykir, að gera aukin átök í þá veru að leggja skipulagð- an grundvöll að „menntun“ þeirra. Þetta skal nú gera, samkvæmt sænskum fyrirmyndum og máske sóttum víðar að, með því að kalla þau í skóla ári fyrr en skólaskylda mælir fyrir um. Ein aðal röksemd- in fyrir þessu er, að með því sé verið að þjálfa þau og gera hæfari fyrir alvarlegt nám. En hvernig fer svo þessi þjálfun fram? Það er opinbert leyndarmál, að ríkust áherzlan er víðast lögð á, að fremja allskonar leikspil, sem engan skynsamlegan tilgang virð- ist hafa og beinist næsta lítið, ef nokkuð, að kunnáttuatriðum. Á þessum aldri eru börnin einmitt opnust fyrir fræðslu, þó auðvitað verði að ætla þeim af um tíma- lengd daglega. Og nú byrjar ballið. Börnin fá í hendur pappír og allskonar liti, til þess að sulla með einhvern veginn stundum að krota upp einhverjar fígúrur, sem engin tilgerð er á, að vonum. Dæmalaust er ekki, að hvolft sé á pappírsblað fyrir framan börnin allskonar litadufti. Síðan eru þau látin glenna út fingur beggja handa og hræra í hrúgunni stundum undir tónlist (!) og „Presto" brátt birtist mynd (?) listaverk! Vissulega kemur fyrir að þeim séu sýndir bókstafir, en auðvitað verður að gæta þess vandlega, að vetrarskamturinn sé þá ekki nema svona Va af stafrófinu og skal lukka til, að ruglað sé ekki saman hljóðaðferð og gömlu góðu bandprjónsaðferðinni! Auðvitað verða börnin, sem sjá í gegnum tilgangsleysið og leikara- skapinn, hundleið á svona æfing- um. En þá er alltaf hægt að grípa til kynfræðslu sem áhugavekjandi kennslu! Ekki er ráð, nema i tíma sé tekið! Ýmsir bókaútgefendur hafa ver- ið svo vingjarnlegir að láta skól- unum í té auðvitað fyrir fulla greiðslu myndskreytta samfara- fræði. Óbrjálað fólk ætti nú að geta gert sé í hugarlund, hversu svona smábarnakennsla þjálfar krakk- ana í hagnýtu námi og námsað- ferðum og hversu mikið færari þeir hljóta að vera að taka við alvarlegu námsefni, sem bíður á næsta leiti! En hvað um þetta „Vertu ekki að aka þér“íslands frjálsi blómi. Bara ef lúsin útlend er/er þér bitið sómi“! Öllum, sem nokkur veigur í, er það í blóð borið, að vilja sjá nokkurn ávöxt iðju sinnar. Það er vaxtarbroddur þroskans. Börn og unglingar eru ekki hér undan skilin, nema síður sé og víst mættu ýmsir hinna útblásnu „fræðinga" bera dökkan kinnroða fyrir raunsæi þeirra. En af sjálfu leiðir, að þau þurfa að finna tilgang í því, sem þeim er fyrir lagt og hafa hæfilegt viðnám fyrir orku sína í viðfangsefnunum. Það er ekki út í hött, að fyrstu kynni af námi þurfi að efla þetta mark- visst, enda býr lengi að fyrstu gerð. Ávextina sjá menn hinsveg- ar í sívaxandi námsleiða sé hvorki hirt um heilbrigðan metnað eða fróðleiksfýsn. Menntun er dýrmætt hnoss, enda sé hún ekki einvörðungu miðuð við samtíning sundurlausra staðreynda eða langa skólasetu. Raunar er inntak hennar, að öðlast það, sem gerir menn að mönnum. Að því verður allt upp- eldi að beinast, ef ekki á verr að fara. En það getur aldrei gerzt með því að fá ungmennum allt upp í hendurnar fyrirhafnarlaust og svipta þau frumkvæði, eða til- gangi með lærdómi. Annað mál er, að uppalendur gæti þess að sveigja frumkvæðið inn á brautir, sem byggja persónu- leikann upp til góðra og gagnlegra hluta. Oddur A. Sigurjónsson. Sverrir Runólfsson: Er þetta hægt? Vegna þess umtals undanfarið að ég gefi kost á mér til forseta- kjörs, (t.d. í Velvakanda 29. mars sl.) hafa margir viljað vita í leiðinni hvort ég væri búinn að gefast ugp í baráttunni fyrir betri vegum. Ég hef verið að undirbúa málaferli gegn Vegagerðinni, en það hefur gengið seint, því ég er ákveðinn að sækja málið sjálfur og lítill tími frá brauðstritinu. Sem betur fer er eins og flestir, eða furðumargir, skilji nákvæm- lega hvað skeði í sambandi við tilraunakaflann á Kjalarnesi. Mín mistök eru þau að ég tók ekki alvarlega þegar fólk varaði mig við því, að ráðamenn í vegagerð og einnig þeir sem stæðu í vega- framkvæmdum hér á landi, mundu gera allt til að fyrirbyggja að tilraunin tækist. Þrátt fyrir allt, tókst hún þó yfir 90%. Það er víst nokkuð satt í því, að hrekk- laus maður varast síður hrekkinn. Hvernig átti ég nýkominn heim, eftir um 25 ára fjarveru, að þekkja og vara mig á kerfinu. Allan tömann sem ég var að vinna við tilraunina stóð ég í þeirri mein- ingu að eftir að ég væri búinn með kaflann, sem Vegagerðin skammt- aði mér, fengi ég að velja kafla á móti. Eins og þeir höfðu lofað, áður en ég byrjaði á framkvæmd- um. Ef ég hefði ekki haft þetta loforð, þá hefði ég aldrei byrjað. Margir hafa sagt: „Sverrir minn, þú hefðir átt að fá loforðið skrif- legt.“ Jú, víst er það rétt. En reynið að fá embættismenn til að skrifa undir hliðstætt. Það eru nóg vitni að loforðinu. Enda stend ég í þeirri meiningu að þessir menn hljóti að verða að athlægi ef þeir þora ekki að láta mig velja kafla á móti. Og ráða algjörlega framkvæmdum. Því á Kjalarnesi var það öfugt. Nú er eins og Vegagerðin hafi ákveðið að svíkja þetta loforð. Ég spyr: Er þetta hægt? Að háttsettir embættis- menn geti hreint og beint blekkt saklausa menn sem aðeins vilja gera þjóð sinni gagn. Það er hreint ótrúlegt. Allir verktakar, sem unnu við kaflann ( 13 að tölu), unnu nákvæmlega eins vel fyrir mig og fyrir aðra. Því miður fóru miklir peningar í auka flutninga Sverrir Runólfsson og það að að fá ekki þau tæki sem ég hafði reiknað með. Nema á sunnudögum. Það er ekki nema von að þjóðin sé í fjárhagslegu öngþveiti ef svona hefur verið farið með góða krafta ( lærða menn) þegar þeir hafa ætlað að gera þjóðinni gagn. Því miður er viðureign mín við kerfið ekkert einsdæmi. Þess vegna spyr ég aftur: Er þetta hægt?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.