Morgunblaðið - 15.04.1980, Side 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
Hafðu ekki áhyggjur, með aldr-
inum förum við ekki eins hratt
yfir. — Þetta er reglan, sem
gildir fyrir alla.
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Oft eru reyndar við spilaborðið
aðferðir, sem jafnvel allir við-
staddir, aðrir en sá, sem reynir,
vita, að ekki mun takast. Þá
hefur eitthvert atriði sloppið óséð
framhjá augum hans.
Austur gaf, austur-vestur á
hættu.
Norður
S. KG
H. 743
T. ÁDG84
L. Á97
Vestur
S. 43
H. 5
T. 765
L. DG108532
Suður
S. Á98752
H. K9
T. K103
L. 64
Austur
S. D106
H. ÁDG10862
T. 92
L. K
Austur hóf sagnir með einu
hjarta en eftir það fengu suður og
norður frið og enduðu í fjórum
spöðum.
Vestur spilaði út hjartafimmi,
sem austur tók með ás og hann lét
félaga sinn næst trompa hjarta-
kónginn. Vestur skipti þá í lauf-
drottningu, sem tekin var í blind-
um. Næst fylgdu tveir siagir á
tromp og í ljós kom, að austur átti
þar slag vísan.
Enn átti suður eftir gjafaslag á
lauf og honum þótti skásti mögu-
leikinn, að losna við hann í tígullit
blinds. En austur trompaði þriðja
tígulinn og eftir það var ekki
undankomu auðið. Vestur hlaut að
fá úrslitaslaginn, einn niður.
Suður hlýtur að hafa gleymt
trompun vesturs. í öllu falli var of
mikill hluti spila austurs orðinn
opin bók. Hjartatrompun vesturs
upplýsti sjö spil í hjartanu í
austur, spaðalegan þrjú og lauf-
kóngurinn hafði komið í ásinn.
Þannig var ekki rúm fyrir nema
tvo tígla og þannig í raun eini
möguleikinn, að austur ætti ekki
til fleiri lauf. Og allt, sem gera
þurfti var að láta austur taka
trompslaginn en eftir það yrði
hægt að spila tíglunum í friði.
COSPER
Mælirinn er f ullur
Undanfarnar vikur hafa birzt
óhugnanlegar og mjög alvarlegar
fréttir af afbrotum og skemmdar-
verkum sem framin hafa verið
nýlega. Ekki sízt brá öllum hugs-
andi mönnum í brún, þegar borg-
arstjóri Reykjavíkur birti þá
fregn að skemmdarverk sem
framin hefðu verið á eignum
borgarinnar — eignum okkar
allra, — á síðasta ári væru metin
hátt í 100 millj. kr.
Þar sem vitað er að hliðstæð
skemmdarverk sem eru unnin
árlega meira og minna um land
allt, er hér um að ræða svo
stórkostleg verðmæti sem fyrst og
fremst eru framin vegna skorts á
siðlegu uppeldi þjóðarinnar að
allir ábyrgir uppalendur verða
hreint og beint að taka höndum
saman til að vinna gegn þessum
ósóma. Það er áreiðanlega hægt ef
nægur vilji er fyrir hendi.
Ymsir hafa látið til sín heyra í
ræðu og riti um þessi efni, og
öllum hrýs að sjálfsögðu hugur við
því fádæma siðleysi sem þarna
býr að baki. Og öllum ber saman
um að nú sé ekki lengur hægt að
horfa aðgerðalaust á slíka þjóðar-
skömm, heldur sameinast til
átaka gegn ósómanum.
Ég vil leyfa mér að þakka þeim
Dagrúnu Kristjánsdóttur og Sig-
urði Gunnarssyni fyrrv. skóla-
stjóra fyrir ágætar og skorinyrtar
umræður um þessi mál nú rétt
fyrir páskana. Alveg sérstaklega
vil ég vænta þess, að tillaga
Sigurðar um að ábyrgustu og
áhrifamestu uppeldisaðilar þjóð-
arinnanheimili, skólar og kirkja
kjörnir aðilar frá þeim stofnun-
um — taki sem allra fyrst saman
höndum um að móta framtiðar-
stefnu um siðlegt uppeldi þjóðar-
innar, — stefnu sem fylgt yrði
markvisst og ákveðið eftir á
heimilum, í skólum og i öllu
kristilegu starfi, — af foreldrum,
kennurum og prestum.
Telja má víst, að þetta sameig-
Lágmarksverð ákveðið á
kolmunna og spærlingi
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hefur ákveðið
lágmarksverð á kolmunna og
spærlingi til bræðslu frá byrj-
un vorvertíðar til loka ágúst-
mánaðar. Verðið er ákveðið
krónur 12,50 á hvert kíló og
er uppsegjanlegt frá og með 1.
júní með viku fyrirvara. Verð-
ið er miðað við 3% fituinni-
hald og 19% fitufrítt þurrefni.
Verðið breytist um kr. 1.30 til
hækkunar fyrir hvert 1%, sem
fituinnihald hækkar frá viðmið-
un og hlutfallslega fyrir hvert
0.1%. Verðið breytist um kr. 1.70
til hækkunar eða lækkunar fyrir
hvert 1%, sem þurrefnismagn
breytist frá viðmiðun og hlut-
fallslega fyrir hvert 0.1%. Auk
verðsins, sem að framan greinir,
skal lögum samkvæmt greiða
fyrir spærling og kolmunna
2.5% olíugjald og 10% gjald til
stofnfjársjóðs fiskiskipa, sem
ekki kemur til skipta. Verk-
smiðjunum ber þannig á grund-
velli þessarar verðákvörðunar að
greiða til veiðiskipa eftirfarandi
heildarverð:
Hcildarverð til
útgerðar að með-
tðidu oliugjaldi
og 8tofnfjár-
sjóðagjaldi
kr. pr. kg.
1. Fyrir hvert kg af
spærlingi og kolmunna
miðað við 3% fituinni-
hald og 19% fitufritt
þurrefni 14.06
2. Viðbót fyrir frávik um
1% af fituinnihaldi frá
viðmiðun sbr. hér að
framan 1.46
3. Viðbót eða frádráttur
fyrir frávik um 1% að
þurrefnisinnihaldi frá
viðmiðun sbr. hér að
framan 1.91
Fituinnihald og fitufrítt þurr-
efnismagn hvers kolmunna og
spærlingsfarms skal ákveðið af
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins eftir sýnum, sem tekin skulu
sameiginlega af fulltrúa veiði-
skips og fulltrúa verksmiðju,
eftir nánari fyrirmælum Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Sýni skulu innsigluð af fulltrúa
veiðiskips með innsigli viðkom-
andi skips.
Verðið er miðað við að seljend-
ur skili kolmunna og spærling á
flutningstæki við hlið veiðiskips
eða í löndunartæki verksmiðju.
Ekki er heimilt að nota aðra
dælu en þurrdælu eða blanda
vatni eða sjó í hráefni við
löndun.
Verðuppbætur:
Með vísun til laga nr. 4 frá 1.
febrúar 1980 skal greiða uppbót
á framangreind verð er nemi kr.
3.40 á hvert kg spærlings og kr.
8.40 á hvert kg kolmunna allt
verðtímabilið. Uppbót þessi
greiðist úr verðjöfnunardeild
Aflatryggingasjóðs og annast
Fiskifélag Islands greiðslurnar
til útgerðaraðila eftir reglum,
sem sjávarútvegsráðuneytið set-
ur.