Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAI1980 Þorlákshöfn: Ágætri vetr- arvertíð lokið Þorlákshófn, 2. maí 1980. ÞAÐ VAR mesta mildi að ekki urðu slys á fólki þegar vörubifreið hlaðin timbri fór á hliðina i Tryggvagötu gegnt Hamarshúsinu skömmu fyrir klukkan 15 í gær. Þrátt fyrir mikla umferð var engin bifreið á hinni akgreininni né gangandi vegfarendur á gangstéttinni, þar sem timbrið hafnaði. Bifreiðastjórann sakaði ekki en bifreið- in er stórskemmd. Bifreiðin ók hægt en þegar hún kom í aflíðandi beygju lagðist hún á hliðina. Er talið að skýringu á óhappinu sé að finna í þvi hvernig timbrinu var hlaðið á bifreiðina. Mikið umferðaröngþveiti skapaðist í Miðbænum í gær vegna þessa óhapps. Ljósm. Mbl. Emilla. Sveitarstjórnir undir meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins: Ú ts'varið sama og í HÉR er nú ágætri vetrar- vertíð lokið. Þrír afla- hæstu bátarnir eru Frið- rik Sigurðsson með 1504 tonn, Höfrungur III með 1322 tonn og Jón á Hofi með 1315 tonn. Á vertíð- inni er bátafiskur á land kominn 18.790 tonn, en á vertíðinni í fyrra 16.331 tonn. Togararnir hafa landað 3.280 tonnum það sem af er þessu ári, en á vertíðinni í fyrra 1.629 tonnum. Það skal tekið fram, að þarna er um afla af þremur togurum að ræða, en tveimur í fyrra, því Bjarni Herjólfsson hef- ur landað hér að einhverju leyti, en ekki í fyrra. Nú hefur því borist hér á land afli báta og togara samanlagt 22.070 tonn, en í fyrra 17.360 tonn. Um aflaaukningu upp á 4.000 tonn er því að ræða. Þá má geta þess að 13 bátar eru nú með afla á bilinu frá 600 tonnum til 1500 tonna. Þessir bátar eru þvi að meðaltali með Lést af slysförum DRENGURINN sem lést af slys- förum á Hellissandi á þriðjudag- inn, hét Sigurvin Jónsson. Hann var ellefu ára gamall, tii heimilis að Fögruvöllum Hellissandi. Hinn drengurinn sem varð und- ir sandbarðinu er nú á batavegi, en töluvert var af honum dregið er björgunarmenn fundu hann eftir slysið. 913 tonn á bát. Alls voru bátarnir á vertíðinni hér rúmlega 30, en þar af margir smábátar. Eins og fyrr sagði er Friðrik Sigurðsson aflahæstur yfir land- ið allt. Skipstjóri á Friðrik er Sigurður Bjarnason Haukabergi 4 í Þorlákshöfn. Allt er enn óráðið um hvað við tekur þegar veiðibanni lýkur, ef til vill net aftur eða troll hjá þeim stóru. Smærri bátarnir fara að sjálfsögðu á humarveiðar en nú er sem sagt millibilsástand hér sem og annars staðar. — Ragnheiður. Mikil vinna á Bíldudal BUdudal, 2. maí 1980. SKUTTOGARINN Sölvi Bjarnason hefur nú lagt hér upp þrisvar sinnum, og er aflinn samtals 330 tonn. Afl- inn er aðallega þorskur, karfi og grálúða. Mestur hluti afl- ans er unninn hér á Bildudal, en einhverjum hluta hans hef- ur þó verið ekið á brott. Atvinnuástand hefur verið gott hér í vetur, og kemur þessi afli togarans því sem viðbót, og er nú mjög mikil vinna hér, en útgerð skipsins virðist ætla að ganga vel. Þá er einn bátur byrjaður á línu, og hefur farið nokkra túra á steinbít, og hefur aflað bara vel. Þá eru tveir bátar byrjaðir á hörpudiski, og farið verður á úthafsrækjuveiðar í sumar. - Páll. SVEITARSTJÓRNIR Mos- fellssveitar, Garðabæjar og Seltjarnarness hafa nú allar gengið frá fjárhags- áætlunum sínum fyrir árið 1980, og var alls staðar ákveðið að nýta ekki heim- ild til útsvarshækkunar sem stjórnarmeirihlutinn á Alþingi samþykkti ný- lega. Verður útsvarspró- sentan í ár sú sama og hún var í fyrra í öllum fyrr- nefndum sveitarfélögum. í Garðabæ verður lagt á 11% útsvar, og einnig í Mosfellssveit, en á Seltjarnarnesi verður útsvar 10% eins og í fyrra. Öll önnur sveitarfélög á land- inu, sem þegar hafa gengið frá fjárhagsáætlunum, hafa þegar ákveðið að hækka útsvarið frá því sem það var í fyrra, mismunandi það mikið, en samkvæmt hinum ný- samþykktu lögum má álagningin nú hækka úr 11% í 12,1%. Bæjar- stjórnir Seltjarnarness, og Garða- bæjar, og hreppsnefnd Mosfells- sveitar, eru einu sveitarstjórnirn- ar á landinu þar sem sjálfstæðis- menn hafa hreinan meirihluta. í öðrum sveitarfélögum, svo sem á Akureyri og í Reykjavík hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins einnig lagst gegn útsvarshækkun- inni. Kraftaverk að ökumað- urinn skyldi sleppa lífs ÞAÐ VERÐUR að teljast kraftaverk að ökumaður fólksbifreiðar sem fór út af óshlíðarvegi milli Bolung- arvíkur og ísafjarðar um tvöleytið í gær skyldi halda lífi. Ökumaðurinn, 31 árs karlmaður, var að koma frá ísafirði þegar hann ók út af veginum við svonefnda Steinsófæru sem er milli Seljadals og Krossins á hlíðinni. Vegurinn þarna er í um það bil 30 metra hæð yfir sjó, og er þarna kröpp og blind beygja á veginum. Bifreiðin fór án við- komu niður í malarfjöru, þar sem hún kom niður á framend- ann, endasteyptist og hafnaði á hvoífi um það bil 20 metrum norðar í fjörunni. Höfuð öku- mannsins fór út um framrúðu bílsins og var hann fastur á hálsinum í glugganum. Öku- maður sem var á undan þessari bifreið sá hvað gerðist og gerði lögreglunni í Bolungarvík við- vart. Skömmu síðar komu lög- reglubílar frá ísafirði og Bolung- arvík á vettvang og tókst lög- reglunni að ná manninum út úr flakinu og koma honum á sjúkrahús á ísafirði þar sem hann liggur óbrotinn en nokkuð skorinn. Bifreiðin er gjörónýt. Úlfar. Þannig leit bifreiðin út eftir fallið, gjörónýt og talið kraftaverk að ökumaðurinn skyldi lifa byltuna af. Ljósm: Cunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.