Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 áherslu á að styrkja starfse.ini ungs fólks, sem fram fer 'í „útjöðrum" Evrópu þ.e. á íslandi, Færeyjum, Grænlandi, norður- héruðum Skandinavíu og syðstu löndum álfunnar, og er því enn brýnni ástæða til þess en áður fyrir íslensk æskulýðssamtök að kynna sér starfsemi og reglur þessa sjóðs. í fyrsta sinn í sögu sjóðsins á Island fulltrúa í stjórnarnefnd hans. Er það Guðmundur Þ. Bjarnason og mun hann sitja í stjórnarnefndinni tímabilið 1980—1981. Ætti vera hans í nefndinni að tengja æskulýðs- samtök hér á landi enn nánar við sjóðinn. Stuöningiir Evrópu- ráðsins við æskulýðs- og félagsstarf n ngs fólks Á vegum Evrópuráðsins starfa tvær stofnanir, sem hafa það meginhlutverk að styrkja félagshreyfingar ungs fólks í aðildarríkjum ráðsins, til auk- innar alþjóðlegrar samvinnu. Þetta eru Evrópusjóður æsk- unnar (The European Youth Foundation) og Æskulýðsmið- Reynir G. Karlsson: fyrsta fjárhagsárið hófst í jan- úar 1973. Markmið stofnunarinn- ar er fyrst og fremst „að stuðla að samvinnu æskulýðs í Evrópu með því að veita fjárhagsaðstoð þeirri æskulýðsstarfsemi, sem stuðlar að friði, skilningi og samstarfi Evrópumanna og ann- arra heimsbúa í anda virðingar fyrir mannréttindum og frelsi," opa, 67006 Strasbourg, Cadex, France). Æskulýðsráð ríkisins getur einnig veitt nánari upplýs- ingar.um stofnunina. „Æskulýðsmiðstöð Evrópu“ (The European Youth Centre) Á sama hátt og Evrópuráðið hefur stuðlað að beinum fjárveit- ingum til æskulýðssamtaka sbr. Evrópusjóður æskufólks, hefur ráðið látið byggja æskulýðs- miðstöð (The European Youth Centre) í Strasbourg. Hlutverk þessarar æskulýðsmiðstöðvar er m.a. að stuðla að aukinni þjálfun leiðbeinenda og forystumanna í æskulýðsstarfi; að veita æsku- lýðssamtökum aðstöðu til að halda ráðstefnur og fundi um sameiginleg málefni Evrópu- þjóða og stuðla á þann hátt að því að ungt fólk frá ýmsum löndum fái tækifæri til þess að koma saman og skiptast á skoð- unum, og taka þannig virkan þátt í því að leysa ýmis vandamál er þau sjálf varða. Nýlega var byggt við æsku- lýðsmiðstöðina þannig að þar geta nú 75 þátttakendur nám- skeiða og ráðstefna gist á sama tíma, og aukið var verulega við rými til fundahalda, tómstunda- starfa o.s.frv. stöðin í Strasborg (The Europ- ean Youth Centre). Evrópusjóður æskufólks (The European Youth Foundation) Ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykkti stofnskrá Evrópu- sjóðs æskufólks í maí 1972 og eins og segir í samþykktum stofnunarinnar. I reglugerð segir að stofnunin megi einungis styrkja fjölþjóða- starfsemi, og til þess að verða styrkhæf, þurfa samtök annað- hvort að vera alþjóðleg, og ekki í tengslum við ríkisstjórnir, eða æskulýðsfélög og samtök, sem ekki eru í beinum tengslum við ríkisstjórnir, og starfa á grund- velli landssambanda og í sam- vinnu við önnur landssambönd í a.m.k. þremur öðrum löndum (eða við alþjóðleg æskulýðssam- tök). Stjórn sjóðsins hefur nýlega lýst því yfir að hún vilji leggja Þá geta félagasamtök aflað sér nánari upplýsinga um Æsku- lýðsstofnun Evrópu með því að skrifa eftir bæklingi með leið- beiningum varðandi umsóknir um styrki frá stofnuninni þ.e. „Guidelines for applying for grant from European Youth Foundation" (c/o Council of Eur- Stjórn æskulýðsmiðstöðvar- innar hefur einnig lýst því yfir nýlega, eins og stjórn Evrópu- sjóðsins að hún vilji gjarnan sjá fleiri gesti frá „útjöðrum" Ev- rópu og er því full ástæða fyrir æskulýðssamtök hér á landi að kynna sér hvernig það megi verða. Aðalstöðvar Evrópuráðsins í Strasbourg Æskulýðsmiðstöð Evrópu Þorsteinn Júlíusson endurkjörinn f ormaður Lögmannaf élags íslands AÐALFUNDUR Lögmanna- félags íslands haldinn 28. mars sl. að Hótel Loftleiðum í Reykjavík. I upphafi fundar minntist formaður félagsins, Þorsteinn Júlíusson, hrl., félagsmanna sem látist hafa frá síðasta aðalfundi, þeirra Bjarna Bjarnasonar, hdl., Jóhanns Gunnars Ólafssonar, hrl. og fyrrverandi sýslumanns, Jóns N. Sigurðssonar, hrl. og Svein- bjarnar Jónssonar, hrl., sem jafnframt var heiðursfélagi í Lögmannafélagi íslands. Vott- uðu félagsmenn hinum látnu virðingu með því að rísa úr sætum. í skýrslu formanns, þar sem rakin voru störf stjórnar og nefnda félagsins á liðnu starfsári, kom m.a. fram að haldnir hafa verið 36 stjórn- arfundir og 344 málsatriði bókuð. Þrír almennir félags- fundir voru haldnir á árinu, þar sem m.a. var fjallað um nýju hlutafélagslögin nr. 32/ 1978, svo og nýjar framtals- Stjórn Lögmannafélags íslands reglur og breytingar á skatta- lögum. Þá var einnig haldið á vegum félagsins námskeið um efnið — lögmaður sem skipta- stjóri — og var danskur hæst- aréttarlögmaður, Hans Brochner fyrirlesari á nám- skeiðinu. Þorsteinn Júlíusson, hrl. var endurkjörinn formaður félags- ins en meðstjórnendur til tveggja ára voru kjörnir, Ólaf- ur Axelsson, hdl. og Svala Thorlacius, hdl. Úr stjórninni gengu samkv. félagslögum, þeir Skarphéðinn Þórisson, hdl. og Stefán Pálsson, hdl. Áfram sitja í stjórninni til næsta aðalfundar, þeir Jónas A. Aðalsteinsson, hrl. og Helgi V. Jónsson, hrl. í varastjórn voru kjörnir til eins árs, þeir Gunnar Sólnes, hrl., Jón Magnússon, hdl. og Kristinn Björnsson, hdl. Endurskoðendur félagsins voru kjörnir Ragnar Ólafsson hrl. og Óthar Orn Petersen, hdl. og til vara Gústaf Þór Tryggvason, hdl. I gjaldskrárnefnd voru kjör- nir þeir Jón Ólafsson, hrl., Gylfi Thorlacius, hrl. og Garð- ar Garðarsson, hdl. í laganefnd voru kjörnir Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl., Benedikt Blöndal, hrl., Jón Finnsson, hrl., Baldur Guðlaugsson, hdl. og Páll A. Pálsson, hdl. í kjaranefnd voru kjörnir Jón E. Ragnarsson, hrl., Brynjólfur Kjartansson, hrl., Ragnar Aðalsteinsson, hrl., Jón Steinar Gunnlaugsson, hdl., Gestur Jónsson, hdl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.