Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 Ágreiningur rétt einu sinni milli forseta og Khomeinis Nú um þaö hvort líkum Bandaríkjamannanna verði skilaö Abu Dhabi, Teheran 2. maí. AP. UTANRÍKISRÁÐHERRA Irans Ghotbzadeh sagði í gær, að stjórn hans hefði lagt það í hendur brezku stjórnarinnar að leysa sendiráðstökuna i London eins „og hún teldi hagstæðast“. Hann sagði að þetta væri hryðjuverk og stjórn sín myndi ekki láta sér detta i hug að semja við slika glæpamenn. Aðspurður um það hvort ekki væri í því nokkur kaldhæðni að hann fordæmdi töku sendiráðs í London, meðan annað sendiráð væri í ræningjahöndum sagðist hann ekki sjá þar neina hliðstæðu, þvi að taka bandariska sendiráðsins væri aðeins merki um viðbrögð irönsku þjóðarinnar við áralangri kúgun og yfirgangi Bandarikjanna eins og hann komst að orði. Hópur kúrdiskra stúdenta réðst á fimmtudag inn í dómkirkju Frankfurt og kváðust með því mótmæla því sem þeir kölluðu fjöldamorð á minnihlutahópum og þjóðarbrotum í íran. Ekki hafa borizt neinar meiriháttar óeirða- fregnir frá Kúrdistan nú, en hins vegar er því meiri ólga í Khuzest- anhéraði, heimaslóðum íranskra Araba í kjölfar atburðanna í Lond- on. Tveir menn voru teknir þar af lífi dag fyrir ótilgreindar sakar- giftir. Mjög mikil átök hafa verið þarna síðustu daga, en fréttir um þau verið af skornum skammti. í Khuzestan er mjög mikil olía og meirihluti íbúanna af arabiskum ættum. Þrír hópar arabiskra Irana í New York Times um björgunartilraun Bandaríkjamanna: Sprengjuflugvélar til taks ef út af brygði Khuzestan hafa hótað að ekki verði látið við sendiráðstökuna í London sitja og muni hugað á frekari aðgerðir og séu þeir fúsir að deyja sem píslarvottar frekar en þola þá mismunun og kúgun sem þeir og aðrir minnihlutahópar séu beittir af hálfu núverandi stjórnvalda í Iran. Bani Sadr forseti írans ítrekaði í dag að Bandaríkjamenn fengju skilmálalaust afhentar jarðneskar leifar bandarísku mannanna sem létust í tilrauninni til að frelsa gíslana. Aftur á móti sagði Ayatollah Beheshit, fyrsti ritari byltingarráðsins, að Khomeini og ráðið myndu úrskurða um hvað yrði um lík mannanna. í frettum frá íran í dag segir að fundizt hafi lík tíunda Bandaríkjamannsins, en sjálfir staðhæfa Bandaríkjamenn að ekki hafi fleiri en átta menn farizt. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. i Washington, 2. maí. í GREIN, sem The New York Times birtir í dag, segir, að sprengiflug- véiar hafi verið tii taks i björgun- artilraun Bandarikjamanna í íran i siðustu viku. Þessar vélar hefðu getað varið brottflug herliðsins og gislanna og eyðilagt herstöðvar i kringum Teheran, ef til vandræða hefði komið, þegar heriiðið var i sendiráðinu. Jimmy Carter forseti og helztu ráðgjafar hans hafa sagt að hættu- legasti og erfiðasti hluti björgunar- ferðarinnar hefði verið ferðin til Teheran. 1 grein The New York Times segir, að sprengivélarnar hafi verið á valdi Carters og hann hefði aðeins gripið til þeirra i aigjörri neyð. Cyrus Vance, f.v. utanríkisráð- herra, sagði af sér embætti vegna björgunartilraunarinnar. Hann hef- ur ekki sagt, hvers vegna hann var svo andvígur henni. New York Times hefur eftir samstarfsmönnum hans, að hann hafi óttast, að íranir hand- tækju bandaríska fréttamenn í Te- heran, sem eru um 20 talsins, og um 200 aðra Bandaríkjamenn, sem eru enn í íran, í stað gíslanna 50, ef þeim hefði verið bjargað. Hann er einnig sagður hafa óttast, að Sovétmenn myndu nota björgunarferð Banda- ríkjamanna sem afsökun fyrir að ráðast inn í íran, en þeir hafa flutt mikinn herafla að landamærum írans á undanförnum mánuðum. Hætt var við björgunarferðina á miðri leið til Teheran vegna bilana í 3 þyrlum. Enn er óljóst af hverju bilanirnar stöfuðu, en starfsmenn varnarmálaráðuneytisins kenna sandstormi og mjög erfiðu og löngu flugi um. Aðrir gagnrýna viðhald vélanna, útbúnað þeirra fyrir flugið og þjálfun flugmannanna. Fyrsta þyrlan sneri við til her- skipsins Nimitz í Persaflóanum, eftir að áttavitar hennar biluðu í sand- stormi og kælivifta brast. Önnur þyrlan var skilin eftir í eyðimörk- inni, þegar sprunga í einum þyrlu- spaða hennar kom í ljós. Og sú þriðja var skilin eftir á fyrsta mótsstað herliðsins í eyðimörkinni vegna leka í slöngu, sem dró úr afli vélarinnar. Viðgerðarhlutir höfðu verið í fyrstu þyrlunni, sem sneri við. Ekki gafst tími til að eyðileggja gögn í þyrlunum og óttast er að íranir hafi komizt yfir meira en Bandaríkja- menn kæra sig um að sé í þeirra höndum. ERLENT Veður Akureyri 12 Amsterdam 18 Aþena 21 Barcelona 19 Berlín 9 Chicago 16 Denpasar 33 Dublin 11 Feneyjar 20 Frankfurt 20 Genf 15 Helsinki 8 Hong Kong 25 Jerúsalem 30 Jóhannesarborg 22 Kaupmannahöfn 12 Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Mexicoborg Mallorca Malaga Miami Moskva Nýja Delhi New York Ósló París Reykjavík Rio de Janeiro Róm San Francísco Sfokkhólmur Sydney Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 22 18 15 19 18 25 19 20 28 23 42 20 17 20 9 34 16 17 12 21 30 18 22 16 heióskírt heióskírt skýjaó þokumóóa skýjaó heióskírt heiöskírt heiöskírt lóttskýjaó heióskírt skýjaó heiðskírt skýjaó heiöskírt heiðskírt heiðskírt skýjaö skýjaó skýjaó skýjaó skýjaó heiöskírt alskýjað léttskýjað skýjaó skýjaó heiöskírt skýjaó heiðskírt skýjaó skýjað skýjað heiöskírt skýjaö heióskírt rigning heiöskírt skýjað skýjaö heiðskírt Reagan spáð sigri í Texas Frá fréttaritara Morgunblaösins önnu Bjarnadóttur, Washíngton i gær. REPÚBLIKANAR halda forkosn- ingar í Texas á laugardag. 80 fulltrúar verða kjörnir á lands- þing flokksins. Ronald Reagan þykir eiga sigur vísan. George Bush hefur þó lagt sig allan fram í ríkinu og unnið nokkuð á, en þvi er spáð, að hann hljóti aðeins um 12 fulltrúa i kosningunum. Dcmókratar halda prófkjör í Texas sama dag. Reglur flokksins þar eru mjög flóknar og litill áhugi hefur verið sýndur kosning- unum. 152 fulltrúar eru i veði og Jimmy Carter er spáð auðveldum sigri. Edward Kennedy leggur nú hart að Carter að eiga við sig kappræðu fyrir forkosningar flokkanna í Kali- forníu 3. júní n.k. Carter ákvað í vikunni að ferðast nokkuð um landið og taka þátt í kosningabar- áttunni á næstunni, en hann hefur haldið sig innan veggja Hvíta hússins síðan gíslarnir voru teknir í Teheran 4. nóvember s.l. Hann ætlar þó ekki að fást við Kennedy í kappræðu, en mun mæta frambjóðanda repúblikana í kapp- ræðu með haustinu, ef hann hlýtur útnefningu demókrataflokksins. Viðskiptaráðunautur brezka sendiráðsins i Teheran, Arthur Wyatt, talar við kanadiskan fréttamann (til hægri) gegnum lokað hlið sendiráðslóðarinnar og byltingarvörður fylgist með. Herskáir menn hafa hótað að taka sendiráðið og þar cr nú aðeins sex manna starfslið. Færeyingum nú bannað að drekka sterkan biór Jr Fylgishrun Ihalds í sveitarstjórnum Frá Joifvan Arge. fréttaritara Mbl. i Færeyjum, 2. mal. FÆREYINGAR hafa fengið nýja áfengislöggjöf, sem hvort tveggja í senn er strangari en gamla löggjöf- in og veitir Færeyingum meira frelsi i neyzlu áfengra drykkja. Lögþingið samþykkti lögin á mið- vikudagsnóttina, áður en sumar- leyfi þingmanna hófst. Samkvæmt hinni nýju löggjöf fá ölgerðir í Færeyjum nú að brugga öl allt að 4,6% að styrkleika — eða svokallað milliöl. En á móti kemur að Færeyingum er bannað að drekka sterkan bjór yfir 4,6%. Héðan í frá mega Færeyingar ekki drekka bjór eins og t.d. Elefant. Jafnframt þessu var ákveðið að hver einstaklingur megi kaupa 4 kassa af bjór á mánuði og gildir einu hvort um er að ræða færeyskan bjór eða danskan. Þá var neyzla áfengis yfir 60% að styrkleika bönnuð í Færeyjum. Jafnframt hyggjast yfirvöld reyna að beina neyslunni í auknari mæli yfir á létt vín. Færeyingar mega kaupa 9 lítra á mánuði af vínteg- undum undir 23% og eins og þá lystir af víni undir 13%. En áfram stendur það í færeyskri löggjöf, að eyjarskeggjum er bannað að kaupa áfengi, nema þeir hafi greitt keisar- anum það sem keisarans er. Lundúnum, 2. maí. AP. STJÓRN Margaretar Thatcher fékk heldur kaldar kveðjur frá brezkum almenningi á 1 árs afmælisdegi sínum. íhaldsflokk- ur Thatcher tapaði 396 sætum í sveitarstjórnakosningum í dag en Verkamannaflokkurinn vann 469 sæti. Kosið var í 177 héruð- um. Leiðtogar Verkamanna- flokksins voru sigurreifir eftir að úrslit lágu fyrir og sögðu, að brezka þjóðin hefði sagt hug sinn í verki til stjórnar Thatchers. íhaldsmenn sögðu hins vegar að þeir hefðu átt von á fylgistapi, raunar meira en raun varð á. Þeir sögðu, að hin harða stefna Thatch- ers í efnahagsmálum væri nauð- synleg ef þjóðin ætti að ná sér upp úr þeim öldudal, sem hún hefði verið í. Barn lifði af fall af 13. hæð Seul, 2. maí. AP. TVEGGJA ára gamalt barn féll út um glugga á þrettándu hæð i Seul i dag, en slapp lifs af þegar niður kom, því að móður barns- ins tókst að grípa það áður en barnið skall á jörðina. Fallið var 33 metrar. Bæði móðir og barn slösuðust nokkuð. Móðirin hafði farið út á lóð hússins til að ná í peningaseðil sem lítill sonur hennar hafði kastað út um glugga. Henni varð síðan litið upp og sá þá að barnið var að detta niður. Hljóðandi af skelfingu tókst móðurinni að hlaupa til og ná að grípa barnið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.