Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 11 FRÆÐI EÐA FJÁR- KÚGUN? I ljósi þess sem nú er rakið fellur allur samanburður Sigurðar á sálarfræði og öðrum fræðigrein- um — efnafræði sem á rætur í gullgerðarlist, stjörnufræði sem spratt af stjörnuspeki — um sjálfan sig. Saga fræðigreinar og gildi hennar eru vitaskuld tvö aðskilin málefni. Allt um það er saga greindarfræðanna umhugs- unarverð. Hvernig stendur á því að greindarsálarfræði Lewis Terman og Steingríms Arasonar lifir það af, í sömu gömlu mynd- inni, að mannkynið snýr baki við allri annarri mannbótafræði með hryllingi? Er ekki nærtækt að láta hvarfla að sér að það sé vegna þess að greindarfræðin bitni helzt á börnum, eins og öll uppeldis- fræði, og þá sé fólki skítsama? Hitt meginatriðið í grein Sig- urðar er sýnu skynsamlegra. Hann segir að ekki megi dæma heila fræðigrein af fáeinum dæm- um um glöp iðkenda hennar. Og þetta er vitaskuld satt og rétt. Ég tók aðeins fá dæmi, og lét mér svo nægja að fullyrða að þau væru dæmigerð. Við þá fullyrðingu skal ég að vísu standa, með venjulegum fyrirvörum. Engu að síður er ábending Sigurðar þörf og skyn- samleg. Sigurður reynir síðan að verja sálfræðinga gegn árásum mínum. Hann segir að „greindarkenning- ar, og þó einkum greindarmæl- ingar, séu mjög umdeildar innan sálarfræðinnar". Síðar segir: „Sál- fræðingar hafa bæði gagnrýnt greindarhugtak prófanna og þá herfilegu misnotkun og mistúlkun, sem orðið hefur hlutskipti greind- arprófa og reyndar allra prófa." Og Ásgeir Sigurgestsson tekur undir: „Það mun fáum betur ljóst en sálfræðingum sjálfum hverjar takmarkanir þessara prófa eru, og fáir munu hafa lagt þar meira og betra til en einmitt þeir.“ Allt sem ég hef að segja á að vera umræða sem „hafi lengi átt sér stað innan sálarfræðinnar", og skrif mín eiga aðeins að vera „endurómur af þeim gagnrýniröddum" sem al- kunnar séu. Lítum nú til íslenzkra sálfræð- inga. Um greindarfræði eru til að minnsta kosti tvær heilar bækur eftir íslenzka höfunda, Mannbæt- ur Steingríms Arasonar frá 1948 og Mannleg greind Matthíasar Jónassonar frá 1967, og hefur engin sérgrein sálarfræðinnar notið annarrar eins alúðar hér á landi. Við þetta bætist að íslend- ingar eiga nú völ tveggja frum- saminna kennslubóka i sálarfræði — og búa þar betur en í nokkurri annarri fræðigrein: Sálarfræði eftir Símon Jóh. Ágústsson frá 1967 og Sálarfræði eftir Sigurjón Björnsson frá 1973 og síðar. í báðum þessum bókum er ítarlega fjallað um greind og greindarpróf. Og nú spyr ég eins og saklaust barn: hvar í ósköpunum er nú öll hin gagnrýna umræða í þessum fjórum bókum? Eða hvar annars staðar? Hvar er í bókunum annað að finna en ruglingslega fram- setningu hinna frumstæðustu hugmynda? Og þess utan hjá öllum þessum höfundum nema Símoni einum á skelfilegu íslenzku máli. Svo að lítið dæmi sé tekið gengur Sigurjón svo langt í sinni bók að fullyrða um hinn meinta greindarmun á svörtum mönnum og hvítum að hann sé „tvímælalaust fyrir hendi" (Sálar- fræði 1,146). Ef það er nú rétt hjá þeim Ásgeiri og Sigurði að sú umræða sem ég hef hafið á íslandi snúist mest um gamlar lummur, þá er eitthvað meira en lítið bogið við kennslubók meistara þeirra Sigurjóns Björnssonar úr því að hann veður í villu um mikilvægt atriði sem allur þorri sálfræðinga er iöngu búinn að átta sig á. Fyrir fáum árum efndi ég í Háskóla íslands til samstarfs við sálfræðikennara um málstofu um greindarpróf og greindarmæl- ingar, og entist hún okkur heilt misseri. Ef þar komu einhverjar gagnrýnisraddir frá sálfræðing- um, þá fóru þær öldungis fram hjá okkur hinum sem málstofuna sát- um. Því má líka bæta við, svo menn haldi ekki að um skólaskraf eitt sé að tefla, að hið umdeilda einkunnakerfi sem grunnskólinn býr nú við — hlutfallakerfið — er einatt talið stutt þeirri „vísinda- legu kenningu" sálfræðinga að greind sé meðaldreifð sem kallað er. Og svo mætti lengi telja. Og þetta gerist ekki á íslandi einu. Til að mynda er ein virtasta alþjóðleg kennslubók í sálarfræði um þessar mundir, líka í Háskóla íslands, samin af Richard Hernstein. Hann er ekki einasta einn skelegg- asti talsmaður greindarfræða sem uppi er, heldur líka liðsmaður þeirra Arthurs Jensen og Hans Eysenck, Steingríms Arasonar og Sigurjóns Björnssonar, í baráttu þeirra gegn blökkumönnum — baráttu sem er háskalegust vegna þess að hún er háð í góðri trú. Úr því að ég nefndi málstofu um greind sem haldin var í Háskólan- um fyrir fáum árum, held ég að ég láti fleira vaða. Ég hef fylgzt nokkuð með kennslu í félags- vísindadeild Háskólans. Og ég fullyrði að þar hef ég hvergi orðið var við snefil af gagnrýnni hugs- un, eins og greinar andmælenda minna eru raunar til vitnis um. Og þegar sálfræðinemar sjálfir taka sig til af mesta myndarskap og efna til gagnrýnnar umræðu um tilraunasálarfræði á veglegu málþingi á Loftleiðahótelinu, eins og þeir gerðu á síðasta pálma- sunnudag og reyndar að frum- kvæði Sigurðar Grétarssonar, þá láta kennarar deildar þeirrar ekki sjá sig, hvað þá til sín heyra. Mér virðast sálfræðinemar og félagsfræðinemar í Háskóla íslands litla sem enga menntun hljóta svo orð sé á gerandi; í hennar stað sæta þeir innrætingu. Ég hef fylgzt með Skinneröldu, kennda við bandaríska atferðis- fræðinginn B.F. Skinner, ríða yfir og fjara út; kannski kemur röðin næst að Wilhelm Reich sem hafði merkilegar kenningar um algleymi. Þá getur deildin ráðið til sín Steinunni Jóhannesdóttur leik- konu, með hliðsjón af grein henn- ar í Þjóðviljanum sunnudaginn 27da apríl, sem kennara eða kennslugagn. Eins hef ég fylgzt með innrætingaröldum í félags- fræðum, einkum undir merkjum róttækra vinstrimanna sem kalla sig svo því þeir skilja ekki orðið ‘róttækur’. Eg bíð þess nú með lítilli eftirvæntingu að baksletta frjálshyggjunnar dynji yfir deild- ina. Sama tóbakið, „með hugsuðu öfugu formerki" eins og segir í limrunni. Blað og tímarit Ég þykist vita að andmælendur mínir séu öðrum þræði jafnæstir og raun ber vitni vegna þess að grein mín birtist í Morgunblað- inu. Ásgeir Sigurgestsson hefur um þetta efni átakanleg orð: Og stærsta blað landsins hefur lagt sltt af mörkum, útvarpaö tíöindunum og lagt á þau sérstaka áherzlu meö því að bregöa um þau svört- um sorgarramma á miöopnu einmitt annan þeirra daga, sem þjóöin má helzt vera aö því aö lesa blööin. Jafnvel ekki meö góöum vilja var hægt aö fletta fram hjá þess- um ótíðindum. Hér er naumast við mig að sakast. Fyrir fimm árum birti ég í Skírni fræðilega ritgerð undir yfirskriftinni „Ætti sálarfræði að vera til?“. Ólafur Jónsson Skírnis- ritstjóri gerði þá ítrekaðar til- raunir til að fá sálfræðinga til að standa fyrir máli sínu 1 tímaritinu og kom allt fyrir ekki. Fræðilega rökræðu vilja þeir ekki, hvorki á málþinguin nemenda sinna né í Skírni. Þeir eru ugglaust önnum kafnir við að róa í stjórnarráðinu og Alþingi, ef þeir ekki beinlínis sitja þar sjálfir eða í bæjarstjórn- inni, til að tryggja nýjar stöður handa þeim vesalings ungmennum sem þeir hafa innrætt óskapnað- inn sem þeir kalla fræði. Það skal koma sálfræðingur í hvern skóla, hver einasti kennari skal vera uppeldisfræðingur að einum fjórða, og svo þarf áreiðanlega margar nýjar stöður á upptöku- heimili. Á einu slíku er nú ekki nema átján manna starfslið fyrir ellefu vistmenn, og aðeins þriggja manna stjórn yfir öllu saman undir forsæti Sigurjóns Björns- sonar. Það segir sig sjálft að með svo naumum mannana eru næst- um engin færi á að fara með heimilismenn í skemmtiferðir til Stykkishólms að skjóta þar á sjúkrahúsið. Saga um uppeldisfræði Sigurður Grétarsson biður um „stranga og viturlega umræðu" um hvort það gagn sé að uppeldis- fræði, sálarfræði og félagsfræði að skikka megi „íslenzka háskóla- menn í uppeldisfræðinám til þess að þeir megi löglega stunda kennslu". Ég þykist hafa hafið slíka umræðu — raunar fyrst aí heita má í Skirni fyrir fimm árum — og viðbrögðin hafa annaðhvort verið alls engin, eða þá af því tæi sem ég hef gert skil í þessari grein. En ég skal gjarnan halda áfram, og segja næst dálitla sögu sem samkennari minn Mike Mar- lies færði mér að gjöf á dögunum. Sagan er af dr. Frederick S. Haydon, sagnfræðingi sem um skeið var prófessor í hernaðarsögu við Yaleháskóla. Hún birtist í Johns Hopkins Magazine í nóv- ember 1977. Haydon var fyrir og eftir heims- styrjöldina háskólakennari í sagn- fræði við ýmsa bandaríska há- skóla; á styrjaldarárunum stund- aði hann kennslu á ýmsum skóla- stigum meðal hermanna og gat sér hið bezta orð. Kom nú sá tími að hann fékk hug á að kenna frekar í menntaskóla en háskóla og sótti um margar stöður. Honum var hvarvetna hafnað vegna þess að hann hefði ekki kennsluréttindi — hann vantaði uppeldisfræði. Á endanum gafst hann upp fyrir þessari kröfu stjórnvalda, og tók að stunda hið tilskilda nám í uppeldisfræðideild sjálfs Har- vardháskóla. Tímaritsgrein hans er lýsing á þeirri reynslu og annarri af fræðunum. Ég ætla ekki að endursegja greinina; hún er mönnum aðgengileg á sínum stað. Uppistaðan í öllu sagnasafni Haydons er hin sama. Uppeldis- fræðingar héldu yfir honum og skólasystkinum hans langa fyrir- lestra um hvernig kenna skyldi til að mynda sagnfræði; og voru þó sjálfir svo átakanlega fáfróðir um alla sögu eða hverja kennslugrein aðra að þeir komu upp um sig á fimm minútna fresti. Einn upp- eldisfræðingur sem Haydon segir frá óð fram og aftur um pall í kennslusal, veifaði löngu priki og hafði hátt. Allt í einu rekur hann prikið fyrir bringspalirnar á Haydon og spyr hastur hver sé höfuðkostur á góðum kennara. „Að hann kunni sitt fag,“ svaraði Haydon skelfdur. „Rangt!" æpti uppeldisfræðingurinn. „Höfuð- kosturinn á góðum kennara er röddin!" Haydon vitnar líka í skýrslu eina um uppeldisfræði; hana samdi sérfræðingur bandaríska uppeldisráðsins (American Coun- cil of Education) sem starfaði um hríð við sömu hernaðarsögustofn- un og Haydon sjálfur. í skýrslunni standa þessi orð meðal annarra: Uppeldisfræöi þarf aö koma sér upp vísindalegu og framandlegu („esoteric") máli sem greini uppeldisfræöinga frá öörum sérfræöingum. Þaö mundi auka bæöi viröingu þeirra og samstööu. Lög- fræöingar tala lagamál, lækn- ar tala læknamál, herinn ræð- ur yfir sérstökum oröaforöa og aö vissu marki stnu sér- staka máli. Hvers vegna skyldum viö uppeldisfræð- ingar ekki sitja viö sama borö? Fræði eða fjárkúgun? Sigurður Grétarsson spyr hvort sálarfræði megi ekki vera til. Og ég svara: vissulega má hún það. Ég er ekki að biðja um að neitt sé bannað; sálarfræði má vera til alveg eins og heimspeki og stærð- fræði, fiskifræði og handritafræði. En ég er á móti fjárkúgun. Og ég get ekki kallað það annað en fjárkúgun þegar hópur manna lætur halda sér uppi með þeim hótunum, þótt löghelgaðar séu, að ella fái aðrir ekki full laun fyrir störf sín. Látum sálfræðinga, uppeldis- fræðinga og félagsfræðinga sitja við sama borð og aðra fræðimenn í landinu. Látum þá standa fyrir máli sínu á málþingum, látum þá svara rökstuddri gagnrýni á fræði sín í blöðum og tímaritum. Látum þá brautskrá góða stúdenta sem halda til framhaldsnáms við fremstu háskóla heimsins og eru þar landi sínu og þjóð til sóma, þó svo þeir eigi enga atvinnu vísa þegar heim kemur. Látum þá gera einhverjar uppgötvanir með fræðilegum rannsóknum, sama hversu smáar, og uppgötva þá eitthvað annað en framandlegt orðalag um hluti sem verið hafa á hvers manns vitorði frá því sögur hófust. Þetta gera stærðfræðingar og eðlisfræðingar, heimspekingar, líffræðingar og málfræðingar. Þeir geta varið ævinni í einhver smáatriði fræða sinna — spennu- breytingar í sléttum vöðva úr marsvíni eða afturbeygða fornafn- ið í íslenzku — og eru ekki nema hótinu nær að ævilokum. Enda lofa þeir engu um gagn að þessari þrotlausu leit. Hún má vel vera fullkomlega gagnslaus; hún er göfug samt. Og svo eru þeir til taks ef svo ólíklega vill til að einhver annar þurfi á þeim að halda. Látum sálfræðinga, uppeldis- fræðinga og félagsfræðinga endi- lega vera til. En látum þá ekki fjárkúga þúsundir manna til að innbyrða fimbulfambið sem er alheimsplága.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.